Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 26
26 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008 NÚ ERU rúmar tvær vikur frá því að Guðni Ágústsson sagði af sér þingmennsku og lét af störfum sem for- maður Framsókn- arflokksins. Vandinn blasir við framsókn- armönnum! Guðni tók við for- mennsku að loknum alþingiskosningum vorið 2007 þar sem Framsóknarflokkurinn varð fyrir mestu niðurlægingu í 90 ára sögu sinni. Meint spilling- arumræða, með réttu eða röngu, eftir 12 ára ríkisstjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn, auk lang- varandi innanflokksátaka, gekk svo nærri flokknum að fylgi hans var langt undir sársaukamörkum flokksmanna, þegar drengskap- armaðurinn frá Brúnastöðum tók við kyndlinum. Ef það var eitthvað eitt, sem Framsóknarflokkurinn þurfti við þessar aðstæður, var það einstaklingur sem bjó yfir pólitískri reynslu, með óflekkað mannorð og hlýju til að taka særðan flokk í fangið. Þessa eiginleika hefur Guðni í ríkum mæli. Hann nýtti þá til að leiða saman sundraðan hóp, tala kjark í mannskapinn um leið og hann skemmti fólki og lét því líða vel. Verkefnið var ekki einfalt og var Guðni meðvitaður um að fylgi flokksins myndi halda áfram að dala fyrst eftir kosningar, einfaldlega vegna þess að fáir taka sér stöðu með taparanum. Síðan myndi landið rísa og flokkurinn aftur ná vopnum sínum, ef menn bæru gæfu til að vinna saman. Það grundvallaratriði virð- ast flokksmenn hins- vegar eiga erfitt með að tileinka sér. Evrópusambandið Einhverra hluta vegna hefur framsóknarmönnum tekist að gera afstöðuna til Evrópusambandsins harðari og erfiðari innan Fram- sóknarflokksins en í öðrum flokk- um. Hvort það var af óslökkvandi hugsjónaeldi eða hvort það var skipulagt til þess að koma formann- inum í vandræði skal ósagt látið. Allir sem þekkja til Framsókn- arflokksins vita að þar eru skiptar skoðanir um Evrópumál og því var það vandasamt fyrir formanninn að halda hópnum saman undir enda- lausum þrýstingi um breytta af- stöðu til Evrópusambandsins. Nú er svo komið að meirihluti þing- flokks Framsóknarflokksins virðist vera þeirrar skoðunar að sækja eigi um aðild að Evrópusambandinu. Það er því eins gott að samnings- markmiðin verði skýr og þeir gleymi ekki þeim hópi samfélagsins sem á afkomu sína undir landbún- aði og sjávarútvegi. Sá hópur hefur lengst af verið hryggjarstykkið í baklandi Framsóknarflokksins. Guðni Ágústsson hefur aldrei misst sjónar á þeim hópi og því er skarð fyrir skildi. Stefnan Þegar pólitískar áherslur Guðna sem formanns eru skoðaðar, kemur í ljós að í öllum meginmálaflokkum hefur hann lagt gott eitt til. Betra hefði verið að ríkisstjórnin hefði hlustað og reynt að bregðast við yf- irvofandi ógnun sem skall svo á þjóðinni með skelfilegum afleið- ingum. Framsóknarflokkurinn gagnrýndi þenslufjárlög rík- isstjórnarinnar við þessar að- stæður. Sú gagnrýni hefur reynst réttmæt. Framsóknarflokkurinn lagði fram sérstakar efnahags- tillögur auk tillögu um þjóðstjórn. Þær tillögur hafa fengið hljóm- grunn löngu eftir að Guðni lagði þær fram. Formaður Framsókn- arflokksins rak á eftir ríkisstjórn- inni í vor um að taka erlent lán til þess að styrkja gjaldeyrisvarafor- ðann, en ríkisstjórnin sá enga ástæðu til þess að bregðast við. Þessu til viðbótar má nefna varð- stöðu hans um Íbúðalánasjóð og hvatningu til fólks um að velja ís- lenskt og elska allt sem íslenskt er. Á meðan miðstjórnarmenn Fram- sóknarflokksins kvörtuðu yfir engri stefnu, engu trausti, engri forystu og engum kjósendum var Guðni Ágústsson að leggja á ráð, sem hefðu gengið upp ef hann hefði fengið vinnufrið. Stefnan, traustið og forystan var til staðar hjá frá- farandi formanni, en kjósendur koma ekki, frekar en fé af fjalli, ef smalarnir fylkja sér ekki bak við fjallkónginn. Ráðagóður og hvetjandi Sem formaður Framsókn- arflokksins sýndi Guðni mér, sem borgarfulltrúa, mikinn stuðning og næmi í öllu stöðumati flokksins í höfuðborginni. Stuðningur hans við lausn stjórnarkreppunnar í Reykja- vík var mjög mikilvægur. Hann hvatti flokksmenn til að treysta dómgreind minni við þessar að- stæður og sú ákvörðun hefur reynst rétt. Þess vegna kom það mér á óvart að miðstjórnarmenn Framsóknarflokksins hefðu uppi gagnrýni um forystu hans. Fyrir framsóknarmenn í Reykjavík gerði hann það sem foringi þarf að gera. Rétti út hönd og veitti skjól um leið og blásið var til sóknar. Þeir sem kalla eftir forystu mega ekki gleyma að bera sig eftir henni. Tekur ráðum Njáls Þegar Gunnar á Hlíðarenda var dæmdur í útlegð vegna langvinnra vígaferla, ráðlagði vinur hans, Njáll á Bergþórshvoli, honum að fara í útlegðina og koma síðan heim aftur. Þá yrði hann gamall maður á Ís- landi. Ef hann hinsvegar færi ekki, myndi ófriðurinn halda áfram og hann yrði veginn af óvinum sínum, langt fyrir aldur fram. Öll þekkjum við ákvörðun Gunnars. Guðni hins- vegar tekur ráðum Njáls, fer í póli- tíska útlegð og hefur með því öll spil á hendi sér hvernig endurkoma hans verður. Vinir Guðna, stuðn- ingsmenn og um 60% þjóðarinnar, samkvæmt netkönnun Fréttablaðs- ins, sjá á eftir honum af vettvangi stjórnmálanna. Hans sérstaki stíll hefur sáð fræjum sínum um allt samfélagið, en sáðmaðurinn fékk ekki tækifæri til þess að njóta upp- skerunnar. Guðni Ágústsson er eini formaður Framsóknarflokksins sem fær ekki tækifæri til þess að leggja störf sín í dóm kjósenda. Það eru kaldar kveðjur frá flokki sem á sér meira en 90 ára sögu, byggða á félagslegum samvinnugildum sem sjaldan eða aldrei hafa átt meira erindi við þjóðina en einmitt núna. Foringinn kvaddur Óskar Bergsson kveður Guðna Ágústsson »… því var það vanda- samt fyrir formann- inn að halda hópnum saman undir endalaus- um þrýstingi um breytta afstöðu til Evr- ópusambandsins. Óskar Bergsson Höfundur er borgarfulltrúi Fram- sóknarflokksins og formaður borg- arráðs. HINN 1. desember 1918 var örlagaríkur dagur í sögu íslensku þjóðarinar, þegar Ís- land varð fullvalda ríki, og ljóst að stofn- að yrði lýðveldið Ís- land í fyllingu tímans. Þann sama sunnudag komu tíu kennarar við Háskóla Íslands sam- an á fundi að boði prófessoranna Ágústs H. Bjarnasonar og Sig- urðar Nordals. Tilgangurinn var að stofna félagsskap íslenskra vís- indamanna með það markmið að efla vísindastarfsemi í landinu og styrkja stöðu vísinda. Félagið nefndu þeir „Vísindafélag Íslend- inga“, og er fullveldisdagurinn því stofndagur félagsins. Í upphafi var aðild að félaginu skilyrt og fjöldi meðlima takmarkaður eins og tíðk- ast í vísindaakademíum víða um heim. Einnig er gerð sú krafa til félaga að þeir hafi lagt marktækt til vísindalegrar þekkingar. Það felst því nokkur viðurkenning í því að vera samþykktur sem félagi í Vísindafélagi Íslendinga. Af þessu mætti draga þá ályktun að Vís- indafélag Íslendinga væri lokaður félagsskapur í fílabeinsturni, en í reynd er öll starfsemi félagsins op- in öllum þeim er áhuga hafa á vís- indum og stöðu þeirra í samfélagi okkar. Vefsíða félagsins, www.vis- indafelag.is, er aðgengileg öllum og sýnir hvað er á döfinni í starf- semi þess. Fastir liðir í starfinu eru fundir síðasta miðvikudag í hverjum mánuði á veturna, þar sem flutt er erindi um vísindalegt efni. Umræður um fyrirlesturinn fylgja í kjölfarið. Að auki hefur fé- lagið staðið fyrir málþingum um vísindaleg efni, og í tilefni 90 ára afmælisins verður málþing á af- mælisfundi í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Vísindafélag Íslendinga hefur einnig staðið fyrir marg- víslegri útgáfu, og fundum í Ráð- húsi Reykjavíkur, í samvinnu við Reykjavíkurborg, um vísindaleg efni sem ofarlega eru á baugi og snerta hag almennings. Staða vísindarannsókna í ís- lensku samfélagi hef- ur mikið breyst síðan Vísindafélag Íslend- inga var stofnað. Bæði hefur orðið mikil aukning í útgjöldum til rannsókna og fjölg- un vísindamanna er starfa á Íslandi. Nú eru fleiri rann- sóknastofnanir og há- skólar á Íslandi og umsvif þeirra hafa aukist. Einnig er auk- in þátttaka íslenskra vísindamanna í samstarfi við koll- ega um allan heim. Ljóst er að ís- lenskt vísindasamfélag hefur eflst mjög af alþjóðlegu samstarfi, og það er hæpið að tala um „íslensk vísindi“ þar sem íslenska vísinda- samfélagið er eins og vera ber hluti af því alþjóðlega. Þekking- arleit og þá vísindi eru órjúf- anlegur hluti af mannlegri tilveru. Það er því góð fjárfesting að leggja fé, tíma og krafta í að læra vísindi og stunda vísindarann- sóknir. Sérhver þjóð sem bregst í þeim efnum er að svíkja sjálfa sig. Vísindi eru ekki föndur karla og kvenna með fínar prófgráður, heldur aðferð til að afla áreið- anlegrar þekkingar og ekkert skil- ar vænlegri leið til þess en hin vís- indalega aðferð. Stundum er reynt að draga þetta í efa og kasta rýrð á vísindin og vara við einhverju sem kallað er „vísindatrú“. En hvað kemur í staðinn fyrir vís- indalega þekkingu og þekking- arleit? Eru hæpnar hugmyndir eða brjóstvitið eitt bestu tækin til að takast á við úrlausnarefni sem við þarf að fást? Svari hver fyrir sig af bestu samvisku. Það hefur fylgt umræðu af þessu tagi að hagsmunaaðilar af ýmsum toga hafa séð ástæðu til að draga heilindi sumra íslenskra vísinda- manna í efa, oftast án nokkurs efn- islegs rökstuðnings. Tilefnið er þá að niðurstöður rannsókna viðkom- andi vísindamanna er þessum að- ilum ekki að skapi. Eitt það versta sem komið getur fyrir vísinda- mann er að missa faglegt traust innan vísindasamfélagsins. Því miður kemur það fyrir að einstaka vísindamenn hafa sjálfir, með því að hagræða niðurstöðum, með rit- stuldi eða á annan hátt brjóta regl- ur um vinnubrögð, eyðilagt eigin orðstír og traust. Orsökin er oftast blindur metnaður er leiðir menn í ógöngur. Afleiðingarnar þegar upp kemst eru endalok ferils þess aðila í vísindum. En nefna má dæmi þar sem óprúttnir aðilar hafa gert allt til að eyðileggja traust og starfs- feril vísindamanna er voru þeim ekki að skapi. Dæmi um það eru tóbaksframleiðendur, og hegðun þeirra gagnvart þeim er sýndu að reykingar væru skaðlegar. Vís- indamenn Hafrannsóknastofnunar eru líklega sá hópur íslenskra vís- indamanna sem hafa hvað mest orðið fyrir ómaklegum árásum, og það ágæta fólk oft sakað um fagleg afglöp. Stöku manneskjur í öðrum greinum hafa einnig verið sakaðar um óheilindi þegar niðurstöður þeirra og álit eru mönnum ekki að skapi. Það er dapurlegt að slíkt tal skuli enn talið ásættanlegt í op- inberri umræðu á Íslandi. Af þessu er ljóst að það er brýnna en fyrr að í landinu sé starfandi akademía íslenskra vís- indamanna er stuðlar að samstöðu vísindasamfélagsins og bættri stöðu vísinda í landinu. Þetta á ekki síst við nú þegar íslenska þjóðin mætir miklum erfiðleikum og þarf á vísindalegri þekkingu að halda til að mæta þeim. Vísinda- félag Íslendinga mun enn sem fyrr reyna að vinna að eflingu vísinda í íslenskri menningu, og það er stefna núverandi stjórnar félagins að láta frekar að sér kveða í þeim efnum. Þau tímamót sem nú eru í sögu félagins eru hvatning til frek- ari dáða á næstu árum. Þór Eysteinsson segir frá starfi Vís- indafélags Íslands Þór Eysteinsson » Vísindi eru ekki föndur karla og kvenna með fínar próf- gráður, heldur aðferð til að afla áreiðanlegrar þekkingar og ekkert skilar vænlegri leið til þess en hin vísindalega aðferð. Höfundur er forseti Vísindafélags Ís- lendinga og dósent í lífeðlisfræði við HÍ. Vísindafélag Íslendinga 90 ára GATNAMÓT Bú- staðavegar og Reykja- nesbrautar hafa verið til skoðunar um nokk- urn tíma. Umhverfis- og samgönguráð sam- þykkti einróma tillögu um málið í liðinni viku. Borgarráð samþykkti svo á fundi sínum 27. nóvember tillögu um að loka vinstri beygju af Bústaðavegi inn á Reykja- nesbraut í Elliðaárdal til reynslu í sex mánuði á árinu 2009. Tillagan hefur verið nokkuð til umfjöllunar í fjölmiðlum. Hér er um mikilvæga tilraun að ræða sem vandað verður til. Umferð á Réttarholtsvegi, Sogavegi og Bú- staðavegi verður t.a.m. könnuð fyrir og eftir breytingu til að meta áhrifin sem breytingin veldur í aðliggjandi íbúðarhverfum. Framkvæmdin verður einnig kynnt í viðkomandi hverfaráðum fyrir og eftir reynslu- tímann. En þar sem gætt hefur ákveðins misskilnings í málinu lang- ar mig til að leggja nokkur orð í belg. Meginmarkmið þess að loka vinstri beygju af Bústaðavegi er að greiða fyrir umferð á stofnbrautum en minnka óþarfa gegnumstreymi í íbúðarhverfi. Á reynslutíma þess- arar tilraunar verða þær breytingar sem framkvæmdin veldur kannaðar, til dæmis hve mikið lokunin greiðir fyrir umferð á þessum gatnamótum og hver áhrif hennar á biðraðir sem myndast á annatímum verða. Ég legg áherslu á að tilraunin verði vel undirbúin og hvort þörf sé á mótvæg- isaðgerðum á Rétt- arholti á meðan hún stendur yfir. Málið verður allt kynnt vel fyrir íbúum hverfisins og öryggi skólabarna í hverfinu tryggt með viðeigandi aðgerðum. Allar aðgerðir verða kynntar og samráð haft við skóla og foreldra. Eftir mælinguna getum við metið aukna umferð á Réttarholtsvegi og því er mik- ilvægt að mæla á skólatíma og sum- artíma með og án beygjulokunar. Eftir það verður tekin upplýst ákvörðun um endanlega niðurstöðu. Öllum breytingum fylgja kostir og gallar. Kosturinn við þessa lokun er að streymi umferðar á Reykjanes- braut í suður batnar verulega. Einn- ig mun gegnumstreymi um Bústaða- veg minnka því bílstjórar munu velja aðra leið til að fara inn á Reykjanes- braut og þaðan í norður. Gallinn eða óttinn er sá að umferð muni aukast um Réttarholtsveg og munum við fylgjast sérstaklega vel með því m.t.t. öryggis. Samráð verður haft við Vegagerð- ina um þessa framkvæmd en stefnt er að því að vinstri beygjunni verði ekki lokað fyrr en birta tekur af degi á nýju ári. Ég vona að sátt geti myndast um þessa tilraun. Ég get fullvissað íbúa í hverfinu um við- unandi mótvægisaðgerðir meðan á þessari tilraun stendur og eftir það endurmat á lokuninni. Minni umferð á Bústaðavegi Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir skrif- ar um gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir »Meginmarkmið þess að loka vinstri beygju af Bústaðavegi er að greiða fyrir umferð á stofnbrautum og minnka óþarfa gegnumstreymi í íbúðarhverfi Höfundur er borgarfulltrúi og for- maður umhverfis- og samgönguráðs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.