Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 40
ríkur þýddi. Þá hefur hann sent frá sér Maíkonunginn, þýðingu sína á úr- vali ljóða bandaríska bítskáldsins Al- lens Ginsbergs. Auk þýðinganna sendir Eiríkur frá sér nýja ljóðabók fyrir jólin, en hún ber hið áhugaverða heiti Ú á fas- ismann. Líkt og áður er mikið um til- raunir í ljóðum Eiríks. „Í stað þess að taka hið skrifaða tungumál hugs- anatjáningar eða myndmáls sem út- gangspunkt eins og í flestum ljóða- bókum, þá set ég í forgrunn bókstaf- ina sem mynd eða tákn, og svo bókstafina og orðin sem hljóð sem fylgir með á geisladiski,“ útskýrir ljóðskáldið. Eins og nafnið bendir til er umfjöll- unarefni bókarinnar fasismi, í víðum skilningi þó. „Ég hef mikið verið að fást við pólitískan gildisþunga orða, og sum ljóðin eru til dæmis unnin út frá nöfnum einræðisherra. En svo er ég að vinna með orð og hugmyndir sem pólitískan þunga, og fasíska orð- ræðu sem leyfir engan skilning á sjálfri sér annan en þann sem er fyr- irskipaður af þeim sem talar.“ Eiríkur er í stuttu stoppi á Íslandi, því hann heldur aftur af landi brott í næstu viku. „Ég verð í Svíþjóð um jólin, konan mín er sænsk og við ætl- um að vera hjá fjölskyldu hennar í Linköping,“ segir Eiríkur sem stefnir að því að búa áfram í Helsinki. „Já, allavega á meðan ég get dregið fram lífið með íslenskum krónum,“ segir hann og hlær. Eiríkur ú-ar á fasismann  Eiríkur Örn Norðdahl sendir frá sér tilraunakennda ljóðabók  Þýðir barna- bók og bandarísk bít-ljóð  Býr í Finnlandi og líst ekkert á ástandið á Íslandi Morgunblaðið/Ómar Í miðbænum „Ég verð í Svíþjóð um jólin,“ segir Eiríkur sem á sænska konu. 40 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008 Fólk Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞAÐ er algjör blessun að þetta skuli ganga svona vel,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson um hina miklu velgengni safnplöt- unnar Silfursafnsins. Platan er sú mest selda á landinu um þessar mundir, en að sögn Palla hafa 4.000 eintök nú þegar verið seld. „Fyrsta upplag var 10.000 eintök, en í gær var svo eintaki númer 12.000 dreift í verslanir,“ segir Palli sem pantaði fyrst 10.000 eintök til landsins, en þegar hann sá hve salan fór vel af stað ákvað hann að panta 10.000 í viðbót. „Ég tók þá ákvörðun að hafa næsta upplag aðeins meira „glamúros“ fyrst salan fór svona vel af stað. Þannig að núna er plötuumslagið silf- urslegið og það er hægt að spegla sig í því.“ Þrátt fyrir velgengnina segist Palli þó fá sinn skammt af kreppunni. „Í vor gerði ég til dæmis fjárhagsáætlun fyrir þessa safnplötu. Þá stóð evran í 80 krónum, og ég fékk tilboð frá Aust- urríki, þar sem platan var prentuð og pressuð, og það hljóðaði upp á 2,8 milljónir fyrir 10.000 eintök, sem var alveg ásættanlegt verð. En svo dynja ósköpin yfir, og upplagið kostaði á endanum 5,8 milljónir. Af- leiðingin er sú að ég þarf að selja 10.000 eintök til að ná núlli. Þegar ég er búinn að því á ég hin 10.000 eintökin skuldlaust,“ útskýrir Palli, sem er bjartsýnn á að ná upp í kostnað. Að- spurður segist hann þó ekki ætla að fá sér nýjan síma, en eins og frægt er orðið á hann forláta Nokia 6110. „Ég mun ekki kaupa mér nýjan síma fyrr en þessi deyr. Ég keypti þennan 1997, áður en ég fór í Evr- óvisjón. Ég er bara spenntastur að sjá hvort hann nær að verða 16 ára,“ segir Palli og hlær. Silfurmaðurinn Páll Óskar. Palli selur og selur en heldur í gamla símann  Eins og dyggir lesendur Morg- unblaðsins kannast við hafa menn- ingarblaðamenn og gagnrýnendur Morgunblaðsins sest á rökstóla í lok árs og komið sér saman um lista yf- ir bestu íslensku plötur ársins. List- inn hefur jafnan birst í síðasta blaði ársins og sú verður einnig raunin í ár. Nú hefur Morgunblaðið hins vegar ákveðið að lesendur blaðsins og aðrir landsmenn geti sett saman annan lista, svokallaðan hlust- endalista, með því að greiða fimm plötum atkvæði sitt á mbl.is en svo mun listinn birtast í Morgunblaðinu og mbl.is á gamlársdag samhliða lista Morgunblaðsins. Kosningin er nú þegar hafin og er einungis leyfi- legt að kjósa einu sinni. Svonefndur sérfræðingalisti hefur þegar verið settur saman til að auðvelda fólki valið en einnig er gefinn kostur á því að skrifa inn í þar til gerða glugga, aðrar plötur sem ekki eru að finna á listanum. Kosning stend- ur yfir til 15. desember. Slóðin er www.mbl.is/bestaplatan. Þjóðin kýs bestu plötu ársins á mbl.is  Grallaraspóarnir í Baggalúti sendu í gær frá sér nýtt lag við ljóð Braga Valdimars Skúlasonar „Það koma vonandi jól“. Glöggir hlust- endur kannast ef til vill betur við lagið í flutningi Barböru Streisand en smellinn sömdu Gibb-bræður ár- ið 1980 og nefndu „Woman in Love“. Eins og Braga er von og vísa er ljóðið firnagott og fyndið og samfélagið allt haft að háði og spotti eins og sjá má af þessu texta- broti: Við áttum íbúð og bens / og or- lofshús / allt meikaði sens./ Góð- gerðir gáfum og blóð / greiddum í – dulítinn séreignasjóð. / En nú er allt þetta breytt og eftir er / ná- kvæmlega ekki neitt. / Já nú er út- litið dökkt / ljósið er slökkt / og við erum fökkt. / Það koma vonandi jól / með hækkandi sól. Við skellum könnu upp á stól / og Sollu í kjól. / Þrátt fyrir allt / þrátt fyrir verðbólgu- skot / – þjóðargjaldþrot. (baggalut- ur.is) Það koma vonandi jól! Í fyrra sendi Eiríkur frá sér ljóðabókina Þjónn, það er Fönix í öskubakkanum mínum! þar sem hann gerði ýmsar tilraunir með myndljóð. Meira er af slíku í Ú á fasismann, en ljóðið hér að ofan er einmitt úr henni. Myndljóð Lýstu eigin útliti. Hávaxinn, dökkhærður og hel- massaður. Hvaðan ertu? Fæddur og uppalinn á Akureyri. Á ættir að rekja til Vestfjarða og Borgarfjarðar. Hver vilt þú að verði næsti forseti lýðveldisins Íslands? (Spyr síð- asti aðalsmaður, Sigurður Björn Blön- dal). Vigdís Finnbogadóttir. Hún er hvort eð er á launum og þarf enga starfsþjálfun. Er alvara í gríninu? Öllu gamni fylgir einhver al- vara! Hversu pólitískur ertu, á skalanum 1 til 10? Ég er svona 2008. Hvaða áhugamál höfða til þín? Tónlist, bækur, kvikmyndir, lyftingar og rólegheit. Kemur Davíð upp á milli Geirs H. Haarde og Ingi- bjargar Sólrúnar? Davíð hver? Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfan þig? Ég get horft á keisarauppskurð á konunni minni án þess að það líði yfir mig. Styðurðu ríkisstjórnina? Nei, það geri ég ekki. Eigum við að ganga í Evrópusambandið? Ganga? Ég hélt við værum að manna okkur upp í að skríða. Hver ber ábyrgð á kreppunni? Allir þeir sem vissu að það voru engir peningar til, bara skuldir, en gerðu ekkert í því nema ræða það á lokuðum fund- um. Dansarðu til að gleyma? Ég gleymi yfirleitt að dansa. Hvaða plötu hlustar þú mest á þessa dagana? Silfursafnið hans Páls Óskars. „Allt fyrir ástina“ er uppáhaldslag Heimis Más, fjögurra ára drengsins míns. Hvaða bók lastu síðast? 123 töfrar, uppeld- isfræðibók. Uppáhaldskvikmynd? Donnie Darko. Hvenær varstu hamingjusamast- ur? Þegar ég fékk nýfæddan son minn í hend- urnar. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Að eitthvert pakk ætli sér að rukka syni mína fyrir mistök bankanna, en enginn hafi manndóm í sér til að koma hingað heim og eiga orðastað við mig. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Af einhverjum völdum vildi ég alltaf verða flugumferðarstjóri, eins undarlegt og það er nú. Hver eru þín mestu mistök? Að mennta mig ekki meira. Og þinn stærsti sigur? Að ná í unnustuna mína. Hvernig viltu deyja? Umvafinn fjölskyldunni. Hvers viltu spyrja næsta viðmæl- anda? Keyptir þú flatskjá í góðærinu? HENRÝ ÞÓR BALDURSSON AÐALSMAÐUR VIKUNNAR HEFUR VAKIÐ ATHYGLI FYRIR BEITTAR MYNDASÖGUR SEM HANN BIRTIR Á BLOGGSÍÐU SINNI, HENRY THOR.BLOGSPOT.COM. ÞAR GAGNRÝNIR HANN RÁÐAMENN ÞJÓÐARINNAR OG SÝNIR AÐ ÁSTANDIÐ ER BARA EITT SKRÍPÓ. Henrý Þór Er mikill áhugamaður um lyftingar og rólegheit. www.norddahl.org Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞAÐ er í senn ægilegt og ægileg- ur léttir að vera kominn heim,“ segir ljóðskáldið Eiríkur Örn Norðdahl sem kom til landsins í vikunni. Eiríkur hefur búið í Helsinki í Finnlandi í næstum tvö ár, og var að koma til lands- ins í fyrsta skipti eftir að ósköp- in miklu dundu yfir. Hann segir það vissulega hafa verið skrítið að fylgjast með atburðum und- anfarinna mánaða úr fjarlægð. „Það er alveg ólýsanlega undarlegt að sitja við tölvuna í Finnlandi þegar verið er að ryðjast inn á lögreglu- stöðvar, og hamfarir ganga yfir. Þá finnur maður fyrir fjarveru sinni á máta sem er eiginlega ólýsanlegur.“ Aðspurður segir Eiríkur að ís- lenska kreppan hafi haft töluverð áhrif á sig í Finnlandi. „Ég var svo sniðugur að ég fór með konunni minni til Ísafjarðar í sumar, og við unnum eins og skepnur til að spara pening, sem við fórum svo með til útlanda þar sem hann varð að engu,“ segir Eiríkur sem er ekkert sérlega bjartsýnn á að ástandið lagist á næstunni. „Það fer að vísu eftir því hvað verið er að tala um langan tíma. En ég bý í landi sem gekk í gegnum kreppu fyrir hátt í 20 árum, kreppu sem mér skilst að hafi verið töluvert minni en sú sem er hér. En þar er enn 6% atvinnuleysi og viðvarandi eymd víðs vegar. Þannig að miðað við forgangsröðunina hér er ég ekkert sérstaklega bjartsýnn.“ Fönixinn og fasisminn En nóg af krepputali. Eiríkur er hér á landi til að fylgja eftir þremur bókum sem komið hafa út að und- anförnu, og hann tengist með einum eða öðrum hætti. Fyrst ber að nefna barnabókina Doktor Proktor og prumpuduftið eftir Norðmanninn Jo Nesbø sem kom út í október, og Ei-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.