Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008 Fáðu þér áskrift að Morgunblaðinu á mbl.is/askrift – notaðu tíman til að læra F í t o n / S Í A skóla og námskeið Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um sunnudaginn 4. janúar 2009 Blaðið verður að venju stórglæsilegt og kemur inn á flesta þætti sem tilheyra þessum flokki. Í blaðinu verður fjallað um menntun og þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem vilja auðga líf sitt og möguleika með því að afla sér nýrrar þekkingar og stefna því á nám og námskeið. Skemmtileg og fræðandi námskeið fyrir börn og fullorðna Í skóla á ný eftir nokkur ár á vinnumarkaði Nýir og spennandi námsmöguleikar Skiptinám og nám erlendis Sérhæft nám Símenntun Endurmenntun Listanám Tölvunám Kvikmyndaskólinn Tómstundanámskeið og almenn námskeið Brottfall úr framhaldsskólum – meira eða minna? Er aukin eftirspurn eftir fjármálanámskeiðum? Erlendir nemar á Íslandi Ásamt fullt af öðru spennandi efni Meðal efnis verður : Tekið er við auglýsingapöntunum til klukkan 16 föstudaginn 19. desember 2008. Blaðið verður í sömu stærð og Morgunblaðið. Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 596 1105 eða kata@mbl.is Skeifan, Smáralind, Kringlan, Hafnarfjörður, Selfoss, Vestmannaeyjar, Egilsstaðir, Akureyri, Ísafjörður Aðeins 3.495kr. áður 6.990 kr. Aðeins 1.745kr. áður 3.490 kr. Aðeins 1.245kr. áður 2.490 kr. Aðeins 990kr. áður 1.980 kr. Aðeins 1.245kr. áður 2.490 kr. Aðeins 1.495kr. áður 2.990 kr. sparaðu 50% sparaðu 50% sparaðu 50% sparaðu 50% sparaðu 50% sparaðu 50% Tilboðin gilda frá 03.12.08 til 08.12.08. Til þess að koma í veg fyrir að samkeppnisaðilar nýti sér tilboðin til innkaupa fyrir eigin verslanir má hver og einn viðskiptavinur aðeins versla þrjár bækur af einstaka titli. HERDÍS L. Storgaard, forstöðu- maður Forvarnahússins, óttast að foreldrar fari í auknum mæli að kaupa útrunna barnabílstóla vegna verðhækkunar á nýjum stólum í kjölfar gengisbreytinga. „Fólk hefur hringt hingað í ör- væntingu. Það segist ekki hafa efni á að kaupa búnaðinn og leitar ráða,“ segir Herdís sem ræður fólki al- mennt frá því að kaupa notaðan bún- að nema það þekki þann sem er að selja. Upprunalegar leiðbeiningar getur vantað „Kannski hefur stóllinn orðið fyrir hnjaski eða þá að hann er útrunninn. Auk þess vantar yfirleitt uppruna- legu leiðbeiningarnar. Fólk festir stólana eftir minni eða fer eftir lím- miðum á stólunum sem innihalda bara hluta leiðbeininganna. Þar að auki eru stólar sem keyptir eru í Bandaríkjunum með öðruvísi fest- ingar en evrópskir stólar og þess vegna má ekki nota þá hér nema í bílum sem eru með Iso Fix-festing- ar,“ bendir Herdís á. Hún segir Forvarnahúsið gjarnan veita foreldrum upplýsingar um hvar finna megi merkingu um að notaður stóll sé runninn út og annað varðandi notaðan búnað. Sjóvá leigir ekki lengur út barna- bílstóla. Það gerir hins vegar VÍS og þar hefur mönnum tekist að anna eftirspurn hingað til, að sögn Rúnars Guðjónssonar. ingibjorg@mbl.is Varar við kaupum á út- runnum barnabílstólum Morgunblaðið/Kristinn Úrelt Gamlir barnabílstólar geta verið varasamir. Í TILMÆLUM til foreldra og forráðamanna, sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur útbúið í samvinnu við fræðsluyfirvöld sveitarfélaga, segir að mikilvægt sé að foreldrar fylgist sjálfir með veðri og veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju sinni. Foreldrar eiga sjálfir að leggja mat á hvort fylgja þurfi barni í skóla þótt engin tilkynning hafi borist frá yf- irvöldum. Bent er á að þegar veðurspár gefa til kynna að óveður sé í aðsigi á höfuðborgarsvæðinu sé fylgst gaumgæfilega með og gefnar út viðvaranir til almennings gerist þess þörf. Um sé að ræða tvö viðbúnaðarstig, stig 1 þegar röskun verður á skólastarfi en þá eiga foreldrar að fylgja börn- um í skólann, og stig 2 þegar skólahald fellur niður. For- eldrum ber þá að halda börnum sínum heima þar til til- kynningar berast um annað. Morgunblaðið/Golli Hvasst Betra er að vita þegar búist er við vondu veðri. Tilmæli um viðbrögð vegna óveðurs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.