Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008 FRÉTTASKÝRING Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is „ÉG veit ekki hvort menn vilja líta á þetta sem loforð eða hótun, það fer sjálfsagt eftir smekk manna. Það er í sjálfu sér ekkert sem bannar Davíð Oddssyni að reyna aftur fyrir sér í pólítík ef hann vill og kannski hefur hann aldrei hætt,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs, um ummæli Davíðs Oddssonar seðla- bankastjóra í viðtali við danska blað- ið Fyens Stiftstidende. Blaðið hafði eftir Davíð að hann ætlaði sér að gegna embætti seðlabankastjóra í nokkur ár til viðbótar en hætta þá af sjálfsdáðum. Yrði hann hins vegar þvingaður úr starfi myndi hann snúa aftur í stjórnmálin. Steingrímur segir að sér finnist ummæli seðlabankastjóra mjög óhefðbundin. Davíð megi að sjálf- sögðu lýsa framtíðaráformum, þar á meðal hugmyndum um endurkomu í pólitík. „En það er álitamál hvort það sé heppilegt að segja það með þessum hætti og tengja það beint veru sinni í Seðlabankanum.“ Menn hljóti að gera breytingar á mik- ilvægum opinberum embættum, ef þarf, óháð þáttum af þessu tagi Ágúst Ólafur Ágústsson, varafor- maður Samfylkingarinnar, segir um- mælin sem höfð eru eftir Davíð benda til þess að hann sé ekki hætt- ur í stjórnmálum. Ummæli seðla- bankastjóra séu ekki við hæfi. „En það undirstrikar að við þurfum að fá nýja stjórn í Seðlabankann,“ segir hann. Venjan sé að seðlabankastjór- ar tali varlega og menn taki mark á því sem þeir segi. „Okkar seðla- bankastjóri hefur ekki tamið sér vinnuhætti kollega sinna enda voru það mistök að skipa hann í Seðla- bankann.“ „Ég held því fram að þetta séu hrokafyllstu yfirlýsingar sem ég hef heyrt af hálfu embættismanns á mínum ferli, þegar hann segir að hann ætli sér að gegna stöðu seðla- bankastjóra í nokkur ár til viðbótar,“ segir Valgerður Sverrisdóttir, for- maður Framsóknarflokksins, um ummælin. Í þeim felist líka ákveðin hótun. „Hún fær mann til þess að hugsa þá hugsun hvort ekki ráði fag- leg sjónarmið för hjá forsætisráð- herra þegar hann aðhefst ekkert í sambandi við seðlabankastjórann.“ Davíð Oddsson var í gærmorgun boðaður á fund viðskiptanefndar Al- þingis. Að fundinum loknum var Davíð spurður um viðtalið við danska blaðið. Þá benti hann á að hann væri á góðum aldri og þyrfti að hafa eitthvað fyrir stafni ef hann færi úr Seðlabankanum. Í samtali við mbl.is í seinnipartinn í gær sagði Davíð hins vegar að gert hefði verið meira en efni stæðu til úr ummælum sem blaðið hafði eftir honum. Morgunblaðið/Valdís Thor Seðlabankastjóri Davíð Oddsson var boðaður á fund viðskiptanefndar Alþingis í gærmorgun. Loforð eða hótun? Segja ummæli Davíðs Oddssonar vera mjög óhefðbundin og ekki hæfa embættismanni á borð við seðlabankastjóra ÓLAFUR Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir ummæli Davíðs Oddssonar, eins og þau standa í Fyens Stiftstidende, í hæsta máta óvenjuleg. „Það er mjög sérkennileg staða ef embætt- ismaður, sem krafa hefur verið gerð um í þjóðfélagi að verði settur úr embætti, gefur út yfirlýsingar sem má skoða hálfpartinn sem hótanir um að fara aftur í stjórn- mál. Ég kann engin dæmi þess að embættismenn hafi áð- ur brugðist við með þessum hætti,“ segir Ólafur. Hann bendir á að Davíð hafi undanfarið talað fremur eins og stjórnmálamaður en embættismaður, t.d. í ný- legu Kastljósviðtali og í ræðu á þingi Viðskiptaráðs. „Sú ræða var eiginlega miklu frekar málsvörn stjórnmálamanns heldur en venjuleg embættismannaummæli.“ Hafi það verið ætlun Davíðs að koma á framfæri hótun um að verði stjakað við honum fari hann aftur í pólitík setji það forsætisráðherrann og ríkisstjórn í mjög skrýtna og óvenjulega stöðu. „Hvort sem þetta er rétt eftir haft [í Fyens Stiftstidende] eða ekki eru þetta mjög óheppileg ummæli fyrir forsætisráðherrann. Þetta er óþægileg staða fyrir Geir að lenda í.“ Ólafur segir að færi Davíð aftur í stjórnmálin yrðu það mikil tíðindi, hvort sem það yrði innan Sjálfstæðisflokksins eða utan hans, en flokkurinn hafi verið í erfiðri stöðu. „Flokkurinn á fyrir höndum erfiðan landsfund í janúar þar sem menn ætla að gera út um Evrópumálin. Ef Davíð kæmi til viðbótar inn í það yrði það ekki til þess að einfalda mál,“ segir Ólafur. Erfitt fyrir forsætisráðherra Ólafur Þ. Harðarson ÁRLEGT jóla- ball og skemmt- un fyrir fatlaða fer fram 9. des- ember n.k. á Hil- ton Reykjavík Nordica hót- elinu. Verður húsið opnað kl. 19:15, en skemmtunin stendur frá 20 – 23. André Bach- mann hefur verið stjórnandi þessara skemmtana frá upphafi, eða í 26 ár. Stjórnendur, allir skemmtikraftar og Hilton hótelið gefa vinnu sína. Það er hljómsveitin Hvar er Mjall- hvít? sem heldur uppi fjörinu á dans- gólfinu á eftir skemmtiatriðum. Fjölmargir landsþekktir skemmti- kraftar og listamenn koma fram á skemmtuninni m.a.: Rúnar Júl- íusson, Sigríður Beinteinsdóttir & Grétar Örvarsson, Magni (Á móti sól) Eyþór Ingi (úr Bandinu hans Bubba), Ragnar Bjarnason, hljóm- sveitin Dalton, kántrísveitin Klauf- arnir, Land og synir, Hreimur og Sprengjuhöllin. Jólaball fyrir fatl- aða á þriðjudag Skemmtun Árlegt jólaball fatlaðra verður í næstu viku. HARPA Þórsdóttir, forstöðumað- ur Hönnunarsafns Íslands, flytur erindið Íslenska jólaskeiðin, saga, stíll og hefðir, á annan í aðventu, næstkomandi sunnudag í Garða- bergi á Garðatorgi 7 í Garðabæ. Erindið er haldið í tengslum við sýningu Hönnunarsafnsins á íslenskum jólaskeiðum sem nú stendur yfir í sýningarsal safns- ins á Garðatorgi. Mun Harpa í erindinu sem hefst kl. 13. 30 velta upp ýmsum þáttum sem tengjast hönnun jóla- skeiðanna, en þær eru söfn- unargripur á mörgum íslenskum heimilum. Íslenska jólaskeiðin Jólatilboð Norskir eðal plastbátar. Sterkir, stöðugir og ósökkvanlegir STJÓRNIR Sparisjóðsins í Keflavík, Byrs sparisjóðs og SPRON hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis að hefja undirbúning og vinnu sem miðar að því að sameina sparisjóðina. Sparisjóðirnir hafa skuldbundið sig til að ræða ekki við aðra aðila um samstarf eða sameiningu á meðan viðræður standa yfir. „STAÐA sparisjóðanna hefur verið almennt séð í umræðunni á vettvangi sambands íslenskra sparisjóða og þar hafa menn verið að ræða framtíð þeirra,“ segir Ragnar Zophonías Guðjónsson, sparisjóðastjóri Byrs, spurður hver hafi átt frumkvæði að samrunavið- ræðum. Hann segir að Byr hafi ávallt haldið þeirri umræðu á lofti að nauðsynlegt sé að sameina spari- sjóði og býst við að áætlun um samruna verði kláruð fyrir árslok. „Það liggur ekki fyrir á þessari stundu hver skiptingin verður í hinu nýja fyrirtæki enda við- ræður á algjöru byrjunarstigi,“ segir Ragnar. Hann býst fastlega við að hið sameinaða fyrirtæki verði rekið með einni stjórn og forstjóra, en ekki sem sjálf- stæðar einingar. „Við hófum ekki sérstaklega þessar viðræður, en öllum hefur verið kunnugt um okkar stöðu,“ segir Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON. Sparisjóðirnir hafa mikla hagsmuni af því að samruni þeirra gangi í gegn. Svo dæmi sé tekið tilkynnti SPRON fyrr í vikunni að eiginfjárhlutfall bankans væri komið undir lög- bundið lágmark, sem er 8%, en ef hlutfallið er undir 8% missir viðkomandi banki bankaleyfið. thorbjorn@mbl.is Sjóðasamruni í árslok Byr, Sparisjóður Keflavíkur og SPRON vilja sameinast Fjölmargt er hægt að gera sér til skemmtunar og fróðleiks í að- draganda jóla og mögulegt að næra skilningarvitin með ýmsum hætti. Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið. 19 dagar til jóla SUNNUDAGINN 7. desember klukkan 14 ætla Gríms- eyjarvinir að hlýða á messu hjá séra Pálma Matthíassyni í Bústaðakirkju og koma sér í jólaskap. Pálmi er fyrrver- andi prestur Grímseyinga eins og mörgum er kunnugt. Þá mun Hulda Signý Gylfadóttir flytja ávarp. Að messu lokinni verður samkoma á vegum félagsins í safn- aðarheimili kirkjunnar, þar sem hægt verður að kaupa kaffi og kræsingar og taka þátt í ókeypis happdrætti. Það er von stjórnar félagsins að Grímseyingar og vinir Grímseyjar fjölmenni. Vinafélag Grímseyjar hefur nýlega gefið út dagatal með ljósmyndum Friðþjófs Helgasonar frá Grímsey og hefur það verið sent velflestum félögum í vinafélaginu. Það kostar kr. 1.500 og er til sölu í Gall- erý Sól í Grímsey, svo og hjá stjórnarmönnum, þeim Helga Daníelssyni, helgidan@gmail.com, Siggerði Bjarnadóttur í Allt í blóma við Laugaveg og Birni Friðfinnssyni. Ef hagnaður verður af útgáfunni er ætlunin að nota hann til að gera flotta heimasíðu með m.a. ljósmyndum frá Grímsey. Grímseyjarvinir með aðventusamkomu Pálmi Matthíasson NÚ á sunnudaginn, 7. desember, verður jólafrumsýning hjá Leik- félagi Mosfellssveitar. Þar ríkir sannkallað jólafjör og koma Grýla og Leppalúði fram ásamt jólakett- inum, Leiðindaskjóðu og fleiri góðum gestum. Aðeins verða tvær sýningar, sunnudaginn 7. desember kl. 16 og sunnudaginn 14. des. kl. 13. Nánari upplýsingar er að finna á vef leikfélagsins, www.- leikmos.is Jólafjör í leikhúsinu í Mosfellsbænum Líf og fjör Ýmsar furðuverur munu mæta í leikhúsið í Mosfellsbænum. MARÞONSÖNGUR verður í Hafn- arborg á morgun, laugardag, þegar fjöldi kóra og sönghópa í Hafn- arfirði tekur þátt í Syngjandi jól- um. Dagskráin hefst kl. 09.40 og stendur fram undir kvöld. Meðal þeirra sem taka lagið eru leikskóla- og grunnskólabörn, kirkjukórar, kvennakórar jafnt sem karlakórar, skátakórinn og kór eldri borgara. Maraþonsöngur STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.