Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 18
18 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008 $%& $%&!       $%&" #'&     !   ()* +  , " !       -./0 (1&         $%&$ $%&%   "    Þetta helst ... &                ! '( ) *+, ,) ( 1 2 3 1#4 5#!63 ' 44 78#5#!63 09  3  0  4 6 :    ;2   #5#!63 < !6  ' 43 % # 3 /=>$+ /# !!#?'!#@ #" -A"# B 3 C !#3 - + .+' / &0   1  21 #) D 1  2= # !=E- 0 4' 4 -F#D ' 4 +G3 #A 3  + %1+ / 2  H !#D1! !H '5#  3 6 @A 3  03 4  ,+0 "  "    # ! $ !" $ !   $ $ $ # #                             I @ 4 6   . B@J4 < !6/      ?   ? ?    ? ?  ? ? ?    ?   ? ? K ?  ?  K ? ? K  ? K ?  ? ? ? ? ? ?  ?  K ? ?  ?  ? ?   ? -A8 7 @ 4 6   ?  ? ?  ? ?  ?  ? ? ? ? (   7 @ 4 7 #@      ?         1. 1. 1. 1. 1.  1. ● ÚRVALSVÍSITALAN í Kauphöllinni á Íslandi hækkaði um 0,7% í gær og er lokagildi hennar 644 stig. Mest hækkun varð á bréfum Atorku, 30,9%. Bréf Bakkavarar hækkuðu um 6,1%. Mest lækkun varð hins vegar á bréfum Før- oya banka, 1,5%. Heilarviðskipti í gær námu 10,0 millj- röðum króna, með skuldabréf fyrir um 9,9 milljarða en hlutabréf fyrir um 100 milljónir. gretar@mbl.is Hækkun í Kauphöllinni ● SEÐLABANKI Evrópu lækkaði stýrivexti niður í 2,5% í gær í kjölfar þess að aðrir seðlabankar í álf- unni tilkynntu um lækkanir. Ákvörðun bankans var tekin minna en klukku- stund eftir að Eng- landsbanki lækk- aði stýrivexti sína í 2%, en það eru lægstu stýrivextir í Bretlandi frá árinu 1951. Ákvarðanir um lækkanir eru til þess að draga úr samdrætti sem hefur þjakað atvinnulífið. Seðlabanki Sví- þjóðar, Riksbank, hefur einnig lækkað sína stýrivexti um 1,75 prósentustig í 2%, sem er mesta lækkun bankans síð- an 1994. thorbjorn@mbl.is Trichet hjá Seðla- banka Evrópu. Vextir lækka í Evrópu ● BEN Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, hvatti stjórnvöld þar í landi í gær til að verja meiri fjár- munum af skattpeningum til að stuðla að því að koma í veg fyrir nauðungaruppboð á íbúðum. Sagði hann að fjármálafyrirtækin hefðu ekki bolmagn til að taka á þessum vanda ein og sér. Lagði Bernanke til að hið opinbera myndi auka kaup á erfiðum lánum í eigu lánafyrirtækja. Þá sagði hann að stjórnvöld ættu einnig að veita hærri fjárhæðir til skuldbreytingarlána að því er fram kemur í frétt Bloomberg- fréttastofunnar. gretar@mbl.is Vill að ríkið veiti heim- ilunum meiri aðstoð Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is ERLEND staða þjóðarbúsins versnaði um 184 milljarða króna, eða um 8,6 prósent, á þriðja fjórðungi ársins 2008 samkvæmt nýjum tölum frá Seðlabanka Íslands. Íslenska krónan veiktist hins vegar um ellefu prósent á tímabilinu og því er ekki um raunhækkun á stöðunni að ræða. Erlendar skuldir Íslands voru samtals 12.257 milljarðar króna og höfðu vaxið um 1.703 milljarða í krónum talið frá júnílokum. Á sama tíma jukust erlendar eignir þjóðar- búsins um 1.519 milljarða króna og voru tæplega tíu þúsund milljarðar króna. Alls skuldaði þjóðarbúið rúm- lega 2.300 milljörðum króna meira erlendis en það átti. Skuldir innlánsstofnana, banka og sparisjóða við erlenda aðila jukust mest, eða um 1.648 milljarða króna. Raunaukning á skuldum þessara að- ila, að teknu tilliti til veikingar krón- unnar, var um 756 milljarðar króna. Þá jukust skuldir Seðlabanka Ís- lands um 30 milljarða króna en skuldir íslenska ríkisins lækkuðu að raunvirði. Þriðja ársfjórðungi lauk daginn eftir að íslenska ríkið til- kynnti að það ætlaði að gerast 75 prósenta eigandi í Glitni eftir að hafa hafnað lánveitingu til bankans vegna lausafjárvandræða hans. Í kjölfarið hrundi íslenska bankakerfið. Erlend staða þjóðarbúsins versnaði um 184 milljarða Í HNOTSKURN » Þriðji ársfjórðungur erfrá byrjun júlí og til loka septembermánaðar. » Íslenskir bankar og spari-sjóðir skulduðu samtals 9.688 milljarða króna erlendis í lok þess tímabils. » Aðrir geirar atvinnulífsinsskulduðu 1.026 milljarða. Það er í fyrsta sinn frá upphafi sem heildarskuldir þeirra fara yfir þúsund milljarða króna. » Hið opinbera skuldaði réttrúmlega 500 milljarða króna og Seðlabanki Íslands 30 milljarða króna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Juku skuldir Raunaukning upp á 756 milljarða króna varð á erlendum skuldum íslenskra innlánsstofnana á þriðja fjórðungi ársins 2008. FULLVISSA um að eignir íslensku bankanna fari ekki á brunaútsölu kom of seint og líkur erlendra lán- ardrottna þeirra á að endurheimta virði eigna sinna eru taldar litlar samkvæmt nýrri skýrslu frá Credit Sights. Í henni er gagnrýnt að ekki hafi komið nægilega skýrt fram hvert virði eignanna er, eftir hverskonar tímaáætlunum íslensk yfirvöld eru að vinna og hvernig lagaleg úrlausn- arefni standa. Í skýrslunni segir að ómögulegt sé að átta sig á hvert endurheimting- arhlutfall kröfuhafa geti orðið fyrr en betri upplýsingar liggi fyrir um virði þeirra eigna sem skildar voru eftir í gömlu bönkunum. Sala hluta þeirra á mjög niðursettu verði gefi þó ekki góð fyrirheit en geta skila- nefndanna til að forðast slíka bruna- útsölu er sögð takmörkuð þar sem nokkur lönd hafi þegar fryst eignir bankanna og sett erlend dótturfélög þeirra í greiðslustöðvun. thordur@mbl.is Virði eigna hríðfellur Ný skýrsla Credit Sights um Ísland SPÁR ýmissa aðila um að krónan myndi veikjast í gær þegar Seðla- bankinn hóf á ný millibankamarkað með gjaldeyri gengu ekki eftir. Þvert á móti styrktist krónan um rúm 8% og er gengisvísitalan 229,6 stig. Ástæðan er væntanlega sú að innstreymi gjaldeyris hafi verið því sem næst verður komist voru engin viðskipti með krónuna annars staðar en hér í gær. Það er einnig já- kvætt við krónuna. Umframgjaldeyrir verður til Í skýringum sem birtar voru á vef Seðlabankans í gær segir að fyrirsjá- anlegt sé að innstreymi gjaldeyris vegna útflutnings muni á næstunni verða meira en útstreymi vegna inn- flutnings. Því muni smátt og smátt verða til umframgjaldeyrir sem hægt verði að selja erlendum aðilum og losa þá þannig út úr krónustöðu sinni. meira en útflæðið, en það var einmitt tilgangurinn með nýjum reglum um gjaldeyrismál. Veltan á bakvið við- skiptin í gær var reyndar ekki mikil. Þetta eru vitaskuld jákvæðar fréttir fyrir almenning og atvinnu- lífið og kannski vísbending um að krónan hafi verið orðin of veik. Ef framhaldið verður í þessa veruna ætti það að stuðla að hraðri hjöðnun verðbólgunnar þar sem fátt annað en veiking krónunnar hefur fóðrað hana að undanförnu. Gengi krónunnar hefur verið mun veikara á gjaldeyrismarkaði erlendis að undanförnu en hér á landi. Eftir Krónan var orðin of veik Innstreymi á gjaldeyri virðist hafa verið meira en útflæðið í gær, eins og tilgangurinn var með nýjum gjaldeyrisreglum Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is FRÉTTASKÝRING Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is GETA ríkissjóðs til að tryggja inni- stæður í íslenskum bönkum hefur minnkað til muna eftir að bankarnir féllu. Moody’s lækkaði einkunn ríkisins fyrir innlendar bankainnistæður um fjóra flokka í gær, niður í A1 úr Aaa. Til viðbótar eru horfur sagðar nei- kvæðar. Einkunnin er mælikvarði á getu yfirvalda til að styðja banka- kerfið á viðsjárverðum tímum með innspýtingu peninga. „Þetta þýðir að ríkið eða Seðlabank- inn eigi mjög erfitt með að koma bönkunum aftur til hjálpar,“ segir Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar. Samkvæmt Moody’s hafa horfur í ís- lensku efnahagslífi versnað segir Gunnar. Það sé að hægja á efna- hagsstarfseminni, skuldir ríkissjóðs að aukast, fyrirsjáanlegur halli verði á fjárlögum um leið og tekjur rík- issjóðs dragist saman. „Geta ríkisins til að koma bönkunum aftur til hjálpar er því takmörkuð,“ segir Gunnar. Hann bendir þó á að matsfyrirtæki séu nú varkárari í sínum spám í kjölfar gagnrýni á þau eftir að fjármálakreppan hófst. Greinendurnir vilji ekki vera of já- kvæðir í umsögnun sínum. Bæði langtíma- og skamm- tímaskuldbindingar ríkisins í inn- lendri og erlendri mynt voru lækk- aðar af Moody’s í gær. Dökk mynd er dregin upp af stöðu hins op- inbera; skuldir eru sagðar munu nema 150% af landsframleiðslu á næstu tveimur árum. Horfur eru sagðar neikvæðar. Óvenjulegt er að lækka einkunn fyr- ir innlendar skuldbindingar ríkis í svo stóru skrefi eins og Moody’s gerir. Í viðtölum við sérfræðinga í gær kom fram að ríkið fékk stóru bankana í hendurnar og hafi lítið lánstraust erlendis. Fjármögnun sé því erfið. Gjaldeyrishöftin gefi vís- bendingar um að stjórnvöld ráði ekki við ástandið og seðlaprent- unarvald sé takmarkað vegna samn- ings við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Moody’s lækkar einkunnir ríkissjóðs Innistæður ekki eins vel tryggðar   / @ B 4      ! "## $% 5  6 % @! 4! 7 @!  "3L & L   4! "  #4 ? "3L &  6 " 4! J "3L & 6 0 4!J M@! @    8! J "3L .8! 8!!K  # !!BL 7 @" 3L 4!%D #"1  #4 # @ 4!  :J3L  44    4! #   K  #4 #J @    #4 # @ 4!  :JL  44    4! #    &   '! 0  4 7L  "  JBL! " 3L   #J4 AM@    "@ J4MB # #%D 3L44 @   @"  J 4!? B   !J # # DJ1 "#3 !# @L44 @#1 J' & & & 5             ● HÚSGAGNA- og búsáhaldakeðjan The Pier í Bretlandi, sem er í eigu Lag- ersins ehf., eignarhaldsfélags Jákups Jacobsen í Rúmfatalagernum, hefur fengið greiðslustöðvun. Reuters greinir frá þessu. Kemur fram í fréttinni að verið sé að skoða alla möguleika í stöðunni, þar á meðal sé verið að leita að hugsanlegum kaupendum að The Pier. Keðjan hafi átt við erfiðleika að stríða sem rekja megi til efnahagsástandsins í Bretlandi. The Pier í Bretlandi á 31 verslun og eru starfsmenn um 400 talsins. gretar@mbl.is The Pier í Bretlandi í greiðslustöðvun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.