Morgunblaðið - 05.12.2008, Síða 6
Aðventa í Álftamýrarskóla
ÁRLEG aðventuhátíð hófst í Álftamýrarskóla í
gær og lýkur í dag. Að vanda er dagskráin fjöl-
breytt, bæði inni og úti á lóð, m.a. ratleikur,
sögustund í rjóðrinu, grill, piparkökugerð, viki-
vakar, tröllagerð og útispil. Í dag verður svo
boðið upp á heitt kakó og með því.
Morgunblaðið/RAX
Aðventunni fagnað í Álftamýrarskóla
mbl.is | Myndasyrpa
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
TÆPLEGA sjötíu lóðum var skilað
inn til Kópavogsbæjar í nóvember-
mánuði. Það hefur því hægt á lóða-
skilum í bænum, en 125 skiluðu inn
lóðum í októbermánuði, nær jafn-
margir og samanlagt alla mánuði
ársins á undan. Þá var 150 lóðum
skilað inn og 25 endurúthlutað.
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í
Kópavogsbæ, segir að bærinn end-
urgreiði allt að fimm milljörðum
króna vegna lóðaskilanna. Bærinn
vinni að lántöku vegna þessa. Strax á
nýju ári sé stefnt að því að úthluta
lóðum í Rjúpnahæð og Þingum en
beðið verði með úhlutanir í Vatns-
endahlíð.
Sjálfur fékk Gunnar lóð við Fróða-
þing í nóvember og greiddi 13 millj-
ónir fyrir. „Úthlutunin var afturköll-
uð þar sem Samfylkingunni þótti
lóðin ekki hafa verið auglýst nóg.“
Gunnar hefur ekki ákveðið hvort
hann sækist eftir annarri lóð.
Alls var 20 lóðum skilað í Hafn-
arfirði í nóvember. 18 íbúðarhúsalóð-
um, 1 hesthúsalóð og 1 atvinnuhúsa-
lóð Þá hefur 167 lóðum af þeim 216
sem úthlutað var í Hafnarfirði á
árinu verið skilað. Ekki fengust tölur
frá Reykjavík
gag@mbl.is
Dregur
úr skilum
á lóðum
70 skilað í Kópavogi
og 20 í Hafnarfirði
MIKILL meirihluti félagsmanna í
Samtökum ferðaþjónustunnar vill
taka upp evru eða 83% samkvæmt
niðurstöðum í nýlegri könnun meðal
félagsmanna.
Enn fremur kemur í ljós í könn-
uninni að mikill meirihluti fé-
lagsmanna, eða 77%, segist vera
hlynntur því að teknar verði upp að-
ildarviðræður við Evrópusam-
bandið. Þetta eru heldur fleiri en
sögðust í sömu könnun vera hlynntir
eða frekar hlynntir aðild að ESB án
nokkurs fyrirvara.
Í Samtökum ferðaþjónustunnar
eru margar tegundir fyrirtækja og
kemur í ljós býsna mikill munur á af-
stöðu einstakra greina hvað varðar
aðild að ESB. Mun minni munur er
þó á milli ólíkra greina á afstöðunni
til upptöku evru. Segjast 80% svar-
enda hjá flugfélögum vilja að Ísland
verði aðili að ESB. 75% forsvars-
manna bílaleigna eru sömu skoðunar
og 69% hjá ferðaskrifstofum. Aðeins
38% svarenda hjá hópferða-
bifreiðum vilja ESB-aðild.
83% segjast
vilja fá evru
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
SKULDIR sveitarfélaga jukust
mikið, og lán þeirra einnig, á mesta
þenslutíma sem einkennt hefur ís-
lenskt efnahagslíf í sögunni, frá árs-
lokum 2004 til 2008. Þetta sýna tölur
sem Seðlabanki Íslands tók saman
fyrir Morgunblaðið og byggjast á
upplýsingum frá Hagstofu Íslands.
Margt bendir til þess að þeirri
gildu hagstjórnarreglu að opinberir
aðilar haldi að sér höndum í upp-
sveiflu en framkvæmi í niðursveiflu
hafi ekki verið fylgt í gegnum
þensluskeið sem nú er á enda. Á
þetta sérstaklega, og nær eingöngu,
við um höfuðborgarsvæðið þegar
sveitarfélögin eru skoðuð sér-
staklega.
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hag-
fræðingur á rannsóknar- og spádeild
Seðlabanka Íslands, segir margt
benda til þess að helsti lærdómurinn
sem draga megi af þeim hremm-
ingum sem íslenskt efnhagslíf sé nú í
verði að ríki og sveitarfélög ásamt
Seðlabanka verði að ganga í takt
þegar kemur að hagstjórn. „Miklar
framkvæmdir hins opinbera á
þenslutímum endurspegla þá bjart-
sýni og þá „húsnæðisbólu“ sem hér
var og átti sér varla sína líka nokk-
urs staðar í heiminum. Sveitarfélög
á höfuðborgarsvæðinu, eins og fyr-
irtæki og ríki, tóku fullan þátt í því
að kynda undir þenslunni með óhóf-
legri framgöngu. Á þetta benti
Seðlabankinn ítrekað. Því miður
hafa fjármál opinberra aðila ekki
verið í takt við Seðlabankann og á
varnaðarorð hans um þessi mál var
ekki hlustað.“
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
segir margt benda til þess að illa hafi
gengið að samhæfa hagstjórnina.
Hröð útþensla hjá sveitarfélögum,
sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu,
hafi ekki verið skynsamleg í því ár-
ferði sem var ríkjandi. Hins vegar
hafi viðvörunarorðin úr Seðlabank-
anum ekki náð eyrum sveitarstjórn-
armanna. „Ég get alveg viðurkennt
það að ég heyrði ekki af þessum við-
vörunarorðum Seðlabankans er
varða fjármál sveitarfélaga. Hins
vegar er því ekkert að leyna að sveit-
arfélög, sérstaklega á höfuðborg-
arsvæðinu, stóðu í umsvifamiklum
framkvæmdum á sama tíma og mikil
þensla var einkennandi.“
Ekki var gengið í takt
Ríki og sveitarfélög gengu ekki í takt við Seðlabankann á þenslutímum Ekki
var hlustað á Seðlabankann sem varaði við því að ganga ekki í takt í hagstjórninni
BREYTINGAR sem orðið hafa á
vísitölu launa sýna að laun í landinu
hækkuðu að meðaltali um 2,2% á
þriðja fjórðungi ársins, þ.e. í mán-
uðunum júlí-september frá næstu
þremur mánuðum á undan. Laun á
almennum vinnumarkaði hækkuðu
minna en laun opinberra starfs-
manna eða um 1,1% að meðaltali
samanborið við 4,8% hækkun meðal
opinberra starfsmanna. Þá kemur í
ljós að laun hækkuðu um 9,4% frá
seinasta ári, þar af um 8,9% á al-
mennum vinnumarkaði og um
10,7% hjá opinberum starfs-
mönnum.
Hækkun launa eftir atvinnu-
greinum mældist mest í bygging-
arstarfsemi og mannvirkjagerð,
2,2% frá fyrri ársfjórðungi en
minnst mældist hækkun launa í
verslun og ýmissi viðgerðarþjón-
ustu 0,6%.
Laun hækk-
uðu um 9,8%
frá í fyrra
EKKI var kennt í Valsárskóla á
Svalbarðseyri við Eyjafjörð á mánu-
dag og þriðjudag í þessari viku í
kjölfar þess að hluti foreldra nem-
enda lýsti á sunnudag yfir van-
trausti á skólastjórann. Hann er nú
farinn í leyfi, ótímabundið, skv.
heimildum Morgunblaðsins. Um 60
börn eru skráð í skólann.
Deilur hafa staðið undanfarin
misseri á milli skólastjórans og
hluta foreldra barna í skólanum.
Morgunblaðið veit að í einstaka til-
fellum gekk svo langt að foreldrar
ákváðu að færa barn sitt í annan
skóla.
Kennarar hafa staðið þétt við bak-
ið á skólastjóranum, að sögn heim-
ildarmanns, og eftir að vantraust
kom fram á skólastjórann treystu
þeir sér ekki til þess að sinna
kennslu fyrst um sinn. Hún hófst
aftur á miðvikudag.
Kennararnir mættu til vinnu báða
dagana en foreldrum var tilkynnt á
sunnudagskvöld að þeir skyldu ekki
senda börnin í skólann fyrr en þeir
yrðu látnir vita. Kennarasamband
Íslands hefur haft afskipti af málinu.
Morgunblaðið veit að í gær
fundaði stjórn foreldrafélags skól-
ans með trúnaðarmönnum kennara
og fleiri kennurum. Skv. heimildum
blaðamanns var þetta átakafundur
en gekk engu að síður mjög vel.
Málið er ekki leyst en útlitið mun
betra en áður, eins og það er orðað.
Foreldri barns í skólanum sem
Morgunblaðið ræddi við sagði
ástandið slæmt fyrir sveitarfélagið,
það væri afar óheppilegt ef sam-
félagið skiptist í tvær fylkingar, en
lagði áherslu á að enginn einn söku-
dólgur væri í málinu. „Sjaldan veld-
ur einn þá tveir deila,“ sagði við-
komandi.
Kennsla féll niður
í byrjun vikunnar
Skólastjóri Valsárskóla farinn í leyfi