Morgunblaðið - 05.12.2008, Side 8
8 FréttirALÞINGI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008
!
"#
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
ÁSKRIFENDUM með ADSL-nettengingu fjölg-
aði nánast ekkert frá áramótum og fram á mitt ár
2008.
Í árslok 2007 var fjöldi áskrifenda að slíkri
tengingu 94.630 talsins og hafði vaxið um ellefu
prósent á einu ári. Í lok júní hafði þeim hins veg-
ar einungis fjölgað um 186, eða 0,2 prósent.
Því virðist sem ADSL-markaðurinn sé orðinn
mettaður en rúmlega 96 prósent allra netteng-
inga á Íslandi eru ADSL-tengingar. Tæplega
1.600 tengingar við netið eru í gegnum ljósleiðara
og 1.900 eru með örbylgjutengingar.
Síminn er með langstærstu markaðshlutdeild-
ina á ADSL-markaðinum eða 53,5 prósent allra
viðskipta. Þeir eru með samtals tæplega 51 þús-
und viðskiptavini.
Vodafone kemur þar næst á eftir með um rúm-
lega 28 þúsund áskrifendur og 30 prósenta hlut-
deild.
Tal er með rúmlega þrettán þúsund viðskipta-
vini og aðrir aðilar rúmlega 2.600 alls. Síminn og
Vodafone eru því samtals með um 83 prósenta
markaðshlutdeild.
Fólk sleppir ekki netinu í kreppu
„Það eru ákveðnar vísbendingar um að það sé
ákveðin mettun í gangi í þessum ADSL-teng-
ingum,“ segir Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Vodafone.
Hann telur þá þróun vera mjög eðlilega enda
virðast flest heimili á Íslandi vera komin með
slíka tengingu. „Við höldum hins vegar ekki að
þeim komi til með að fækka. Þó að kreppi að víða
þá reiknum við ekki með því að fólk fari að skera
netnotkun við sig strax. Við höfum allavega ekki
fundið fyrir því. Hins vegar sjáum við ákveðna
aukningu í 3-G-tengingunum þar sem fólk er að
kaupa sér netlykla til að vera með á ferðinni. Ég
held að það sé mjög eðlilegt að það sé að hægja á
þessu.“
Mettun eðlileg eftir mikinn vöxt
Margrét Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Sím-
ans, segist einnig finna fyrir ákveðinni mettun.
„Við finnum þó ekki fyrir því að fólk sé að hætta
með tengingar heldur er það frekar að skoða leið-
ir til að hagræða og minnkar þá notkunina. Það
mátti alveg búast við ákveðinni mettun á þessum
markaði vegna þess að vöxturinn hefur verið
mikill undanfarin misseri. Það finna allir fyrir
því.“
Hún segir að viðskiptavinir verði að vara sig á
því að nota 3-G-netlyklana í staðinn fyrir ADSL-
tengingar sökum þess hversu dýrt það er að hala
niður erlendis frá í gegnum þá.
Síminn vari viðskiptavini sína sérstaklega við
þessu áður en að þeim er seld slík þjónusta.
ADSL-markaðurinn fullmettaður
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
BJÖRGVIN G. Sigurðsson viðskiptaráðhera og Davíð
Oddsson seðlabankastjóri hittust ekki í tæpt ár eða frá því í
nóvember 2007 og þar til á ríkisstjórnarfundi í september
sl. Þetta kom kom í svari Björgvins við fyrirspurn Birkis J.
Jónssonar, þingmanns Framsóknarflokks, á Alþingi í gær.
Birkir vildi vita hvort Björgvin hefði verið á fundi í júní sl.
þar sem Davíð á að hafa fullyrt að 0% líkur væru á að bank-
arnir gætu lifað aðsteðjandi erfiðleika af.
„Hvað fór fram á einhverjum óskilgreindum fundum
með seðlabankastjóra og einhverjum ráðherrum hef ég
ekki hugmynd um,“ sagði Björgvin og benti á að í form-
legum gögnum Seðlabankans hefði verið skýrt að staða ís-
lensku bankanna væri almennt góð.
Ber fyrir sig bankaleynd sem hann talaði gegn
Davíð Oddsson kom fyrir viðskiptanefnd Alþingis í gær-
morgun en nefndin vildi upplýsingar um hvort hann réði yfir
upplýsingum um hvers vegna Bretar beittu hryðjuverkalög-
um gegn Landsbankanum. Í samtali við mbl.is sagði Ágúst
Ólafur Ágústsson, formaður nefndarinnar, Davíð engar
upplýsingar hafa gefið heldur borið fyrir sig bankaleynd.
Slíkt kæmi spánskt fyrir sjónir þar sem Davíð hefði sjálfur
sagt að ýmis atriði í tengslum við bankahrunið ættu ekki að
lúta slíkri leynd. „Þetta er ekki einkamál hans heldur varðar
hagsmuni þjóðarinnar og stjórnvalda,“ sagði Ágúst Ólafur.
Hitti Davíð ekki í tæpt ár
Í HNOTSKURN
» Davíð Oddsson sagði áþingi viðskiptaráðs að ráð-
herrar hefði á mörgum fund-
um verið varaðir við slæmri
stöðu bankanna.
» Hann sagðist jafnframtbúa yfir upplýsingum um
hvers vegna Bretar beittu
hryðjuverkalögum.
Formaður viðskiptanefndar er ósáttur við að Davíð Oddsson gefi ekki upplýsingar
um hvers vegna Bretar beittu hryðjuverkalögum gegn Íslendingum
HVORT það var mikil fylgisaukning Vinstri grænna í
skoðanakönnunum eða einhver nýr brandari sem
gladdi flokkssystkinin Kolbrúnu Halldórsdóttur og Jón
Bjarnason á Alþingi á dögunum er óvíst. Í öllu falli
hlógu þau bæði dátt milli þess sem tekist var á við al-
varlegri viðfangsefni líðandi stundar.
Morgunblaðið/Kristinn
Vinstri grænn hlátur hljómaði í sal Alþingis
Viðhlæjendur og vinir
PÉTUR H. Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, skoraði í gær á
fjármálaráðherra að fara að for-
dæmi aðila vinnumarkaðarins
þannig að ríkisstofnanir byðu sem
flestum hlutastörf frekar en að
segja þeim upp. Benti hann á að Al-
þingi hefði samþykkt lög um hluta-
atvinnuleysisbætur og vísaði Pétur
til þess að Ríkisútvarpið hefði
gengið þvert á þá stefnu með upp-
sögnum sínum. „Atvinnuleysi er
mannlegur harmleikur,“ sagði Pét-
ur og bætti við að margir sem væru
lengi frá vinnumarkaði færu aldrei
aftur að vinna. halla@mbl.is
Ríkið bjóði
hlutastörf
JÓN Magnússon, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins, hefur lagt fram
fyrirspurn til fjármálaráðherra um
opinber gjöld sem viðskiptabank-
arnir greiddu frá einkavæðingu
sinni árið 2002 og þar til ríkið tók
þá yfir nú í haust.
Jón spyr einnig út í heildarlauna-
greiðslur og fjölda stöðugilda í
bönkunum þremur árið 2002 og
hvernig þróunin í þeim efnum hafi
verið fram til þessa árs.
halla@mbl.is
Hvað borguðu
bankarnir?
Mál málanna
Utanríkismálanefnd hefur lokið um-
fjöllun sinni um þingsályktun-
artillögur þess efnis að ríkisstjórn-
inni verði falið að leiða til lykta
annars vegar samning um lán frá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og hins
vegar Icesave-deiluna. Gert er ráð
fyrir að nefndarálitum verði dreift í
dag og að málin verði síðan tekin á
dagskrá.
Eldri en 20 ára geti
fengið námslán
Katrín Jak-
obsdóttir, VG,
hefur lagt fram
fyrirspurn til
mennta-
málaráðherra um
hvort til greina
komi að breyta
úthlutunarreglum
Lánasjóðs ís-
lenskra náms-
manna þannig að
nám á framhaldsskólastigi teljist
lánshæft fyrir alla sem náð hafa
ákveðnum aldri, t.d. 20 árum. Katr-
ín vill einnig svör frá viðskiptaráð-
herra um hve stór hluti yfirdráttar-
lána bankanna sé vegna lána frá
LÍN, hversu háar þær fjárhæðir séu
og hver vaxtaprósentan sé.
Eitt tollumdæmi
Fjármálaráðherra
mælti í gær fyrir
frumvarpi á Al-
þingi þess efnis
að landið verði
gert að einu toll-
umdæmi. Verði
frumvarpið sam-
þykkt mun Toll-
stjórinn í Reykja-
vík annast
tollframkvæmd í
landinu öllu og heiti embættisins
breytast eftir því. Hann mun þó geta
falið sýslumönnum og lög-
reglustjórum að annast tiltekna
þætti tollframkvæmdar í umdæm-
um þeirra
Lögin gildi lengur
Önnur umræða um frumvarp sem á
að auðvelda útflutning notaðra bíla
úr landi fór fram í gær. Meirihluti
efnahags- og skattanefndar hefur
lagt til að gildistíminn verði lengdur
og að lögin gildi út allt næsta ár.
Gert var ráð fyrir að þau giltu aðeins
fram til 1. apríl nk. en meirihlut-
anum þótti sá tími of stuttur og að
hann kynni að valda óðagoti við út-
flutning. Frumvarpinu var að ósk
Helga Hjörvar vísað til nefndar aftur
í gær og að því loknu getur farið
fram þriðja umræða og loka-
atkvæðagreiðsla.
Dagskrá þingsins
Þingfundur hefst kl. 10.30 í dag
með umræðum um störf þingsins.
Ráðgert er að setja lán frá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum og Icesave-
deiluna á dagskrá þegar nefnd-
arálit liggja fyrir.
Katrín
Jakobsdóttir
Árni M. Mathiesen
ÞRETTÁN svæði á Íslandi verða
friðlýst ef þingsályktunartillaga sem
Þórunn Sveinbjarnardóttir um-
hverfisráðherra lagði fram á Al-
þingi í gær verður samþykkt. Mark-
miðið er að stuðla að traustri
verndun íslenskrar náttúru og koma
upp neti friðlýstra svæða sem tryggi
verndun lífríkis og jarðminja sem
þarfnast verndar.
Meðal þeirra svæða sem verða
friðlýst eru Egilsstaðaskógur,
Hvannstóð undir Reynisfjalli, Orra-
vatnsrústir og Gerpissvæðið. Þá er
gert ráð fyrir að Vatnajök-
ulsþjóðgarður stækki og að til hans
teljist skóglendið við Hoffell, Steina-
dalur í Suðursveit, Langisjór og ná-
grenni og svæði í Skaftártungum og
á Síðuafrétti. halla@mbl.is
13 svæði friðlýst og stærri
Vatnajökulsþjóðgarður
Morgunblaðið/RAX
Friðlýst svæði Langisjór verður hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.
ÞETTA HELST…