Morgunblaðið - 05.12.2008, Page 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008
Nýjar vörur vikulega til jóla
Kjólar frá 3.990 - 8.500 kr.
Verð 3.990 kr.
S M Á R A L I N D
REKTORAR Háskóla Íslands og
Landbúnaðarháskóla Íslands und-
irrituðu í fyrradag samning um
samstarf um mótun þverfræðilegra
námsleiða á sviði náttúruvísinda,
auðlinda- og umhverfisfræði, orku-
vísinda, matvæla- og næring-
arfræði, jarðfræði, vistfræði og
jarðvegsfræði. Marmiðið er að efla
nám og vísindastarf háskólanna
tveggja og að breikka valkosti nem-
enda.
Tilgangurinn með samningnum
er að auka fjölbreytni með hag-
kvæmni í huga þannig að nem-
endur, kennarar og fræðimenn geti
flust á milli skólanna með greiðum
hætti. Þá gerir samningurinn nem-
endum mögulegt að skipta námi
þannig að þeir sæki nám í báðum
skólum. Geta þá nemendur beggja
skóla nýtt sér námskeið og náms-
leiðir sem fyrir eru. Samstarfið
miðar einnig að því að skólarnir
geti brautskráð nemendur með
sameiginlegar prófgráður.
Háskóli Íslands og Landbúnaðarháskóli
Íslands gera samstarfssamning
Ágúst Sigurðsson og Kristín Ing-
ólfsdóttir innsigla samkomulagið.
MÚRBRJÓTAR ársins eru dr.
Guðrún V. Stefánsdóttur, sem
varði
doktorsritgerð sína um lífs-
sögur Íslendinga með þroska-
hömlun á 20.
öld, og Guðbrandur Bogason,
fyrir að auðvelda fólki með
þroskahömlun ökunám. „Múr-
brjótur“ er viðurkenning lands-
samtakanna Þroskahjálpar sem
veitt var á alþjóðadegi fatlaðra, 3.
desember sl. Er hún veitt þeim sem hafa rutt fötluðu fólki nýjar brautir til
jafnréttis eða aukið skilning
samfélagsins á stöðu þess. Í rannsókn Guðrúnar gefst að sögn Þroska-
hjálpar einstakt tækifæri til að kynnast skoðunum og áliti einstaklinga
með þroskahömlun þar sem þeir lýsa lífi sínu og þeim aðstæðum sem fólki
með þroskahömlun buðust á 20.öld. Guðbrandur er formaður Ökukenn-
arafélagsins. Hann hefur að eigin frumkvæði aðlagað ökunám að þörfum
ólíkra einstaklinga í samvinnu við Fjölmennt, fullorðinsfræðslu fatlaðra.
Múrbrjótar á Alþjóðadegi fatlaðra.
Þroskahjálp útnefnir Múrbrjóta ársins
AÐSTANDENDUR vettvangs sem
hefur fengið heitið „Koma svo“
ætla næstu laugardaga kl. 10-12 að
gera nýstárlega tilraun til að leiða
saman fólk til að mynda teymi um
viðskiptahugmynd eða fyrirtækj-
arekstur. „Það er ekki endilega
besta hugmyndin sem nær árangri,
heldur öflugasta teymið,“ segir í
fréttatilkynningu. Fer umræðan
fram á Kaffitári í Borgartúni 10.
„Við teljum að margir leiði aldrei
hugann að eigin rekstri, ýmist
vegna þess að þá vantar viðskipta-
hugmynd eða þeir hafa hugmynd
en vantar samstarfsaðila til að
hrinda góðri hugmynd í fram-
kvæmd.
Ljóst er að ekki eru allir í stakk
búnir til að stofna fyrirtæki byggð
á nýjustu vísindauppgötvunum, en í
tengslum við breytingar í al-
þjóðlegu umhverfi myndast ný
tækifæri til að þjóna heimamarkaði
á arðbærari hátt en áður var.“
Á morgun munu Dísa í World
Class og Camilla Andersson, fyr-
irlesari og frumkvöðull frá Svíþjóð,
verða með innlegg í upphafi dag-
skrár, skv. fréttatilkynningu.
Teymi í kringum
áhugaverða við-
skiptahugmynd
ÖLL börn í leikskólum á Íslandi
hafa fengið að gjöf nýjan tónlistar-
disk sem miðar að því að kenna
lestur. Fær hver stafur sitt lag
þannig að í gegnum söng og texta
geti börn lært að þekkja stafina og
aukið orðaforða sinn. Tónlistar-
disknum fylgir einnig bók. Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra var viðstödd
þegar fyrstu diskarnir voru afhent-
ir á leikskólanum Tjarnarborg en
það eru Sena og Bergljót Arnalds
rithöfundur sem gefa diskana.
Allir leikskólar á Íslandi fá tónlistargjöf
Fengu gjafir Þorgerður Katrín
ásamt börnum á Tjarnarborg.
ÁFRAM halda friðsamleg mótmæli
á Austurvelli. „Á hverjum laug-
ardegi streyma þúsundir manna á
Austurvöll og krefjast afsagnar nú-
verandi stjórnar Seðlabankans, af-
sagnar núverandi stjórnar Gjald-
eyriseftirlitsins og nýrra
kosninga,“ segir m.a. í tilkynningu.
Yfirskrift fundanna hefur verið
„Breiðfylking gegn ástandinu“.
Fundurinn hefur einnig það mark-
mið að sameina þjóðina og skapa
meðal hennar samstöðu og sam-
kennd.
Í fréttatilkynningu eru Íslend-
ingar hvattir til að fjölmenna.
Að þessu sinni ávarpa fundinn
Gerður Kristný rithöfundur og Jón
Hreiðar Erlendsson.
Áfram er mótmælt
BANDALAG háskólamanna beindi
í gær þeim eindregnu tilmælum til
ríkis og sveitarfélaga að kæmi til
niðurskurðar í opinberum rekstri
yrði allt gert til að forðast upp-
sagnir.
„Í svari fjármálaráðherra á
þingfundi í [gær], við fyrirspurn
um lækkaðan launakostnað hins
opinbera, kom fram að „engar sér-
stakar línur í þessum efnum hefðu
verið lagðar fyrir ríkisstofnanir“.
BHM skorar á fjármálaráðherra
að umræddar línur verði lagðar á
þann hátt að allt verði gert til að
forðast uppsagnir og atvinnu-
leysi.“
Áskorun BHM
STUTT
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
„VIÐ tókum á sínum tíma þrjú lán til
húsbyggingar og höfum nú þurft að
greiða tugi þúsunda fyrir skilmála-
breytingar vegna efnahagshrunsins.
Okkur finnst þetta vera ósanngjörn
gjaldtaka,“ segir kona sem ásamt
manni sínum tók þrjú myntkörfulán
upp á alls um 25 milljónir króna í
fyrra hjá Frjálsa fjárfestingarbank-
anum. Við hrun bankanna í október
breyttu hjónin lánunum þannig að af
þeim yrðu einungis greiddir vextir á
gjalddaga í eitt ár. Fyrir það greiddu
þau 10.000 króna breytingagjald og
1.350 króna þinglýsingagjald á hvert
lán. „Við vorum ekki alls kostar sátt
við þetta, enda var okkur sagt þegar
við tókum lánin að engu skipti hvort
þau væru tekin í einu, tvennu eða
þrennu lagi.“
Fyrir skömmu hafi Frjálsi fjár-
festingarbankinn svo farið að bjóða
lántakendum að greiða fasta
greiðslu af lánunum. Þar er greiðsl-
unni ráðstafað upp í vexti og eftir-
stöðvar bætast við höfuðstól á gjald-
daga í mynt, en lágmarksgreiðsla er
5.500 á hverja milljón sem tekin var
að láni.
„Með því að breyta yfir í þetta fyr-
irkomulag greiðum við mun lægri
upphæð mánaðarlega,“ segir konan.
Fyrir að nýta sér hinn nýja kost
þurftu hjónin hins vegar aftur að
reiða fram gjald vegna skilmála-
breytinga. Þeim hafi reyndar boðist
50% afsláttur að þessu sinni.
Engu að síður hafi þau þurft að
greiða yfir 50 þúsund krónur, fyrir
skilmálabreytingarnar.
Sanngjarnt að veita afslátt
Kristinn Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri hjá Frjálsa fjárfest-
ingarbankanum, segir að þar sé í
boði að frysta afborgun á gjalddaga
á lánum í alls fjóra mánuði. „Fólk
borgar ekkert fyrir það og það er í
samræmi við tilmæli frá ríkisstjórn-
inni,“ segir Kristinn.
Þá sé í boði að greiða einungis
vexti á gjalddaga í allt að eitt ár.
„Þegar krónan fór að veikjast
meira áttuðum við okkur á því að það
að greiða aðeins vexti var of mikið
fyrir marga.“ Þá hafi verið ákveðið
að bjóða fólki að greiða fasta greiðslu
í allt að tíu mánuði. Miðað hafi verið
við 5.500 krónur af hverri milljón
sem fólk tók upphaflega að láni.
Kristinn segir að margir lántak-
endur hjá Frjálsa fjárfestingarbank-
anum séu með fleiri en eitt lán vegna
húsnæðiskaupa. Þetta eigi einkum
við um húsbyggjendur. Því hafi verið
ákveðið í síðustu viku að veita fólki
sem breytir skilmálum af fleiri en
einu láni 50% afslátt. „Okkur fannst
þetta sanngjarnt. Þetta var orðið
mikið gjald fyrir fólk með á bilinu 3-5
lán.“ Fólk kjósi frekar að greiða
fasta greiðslu í tíu mánuði, en að
frysta lán sín. „Okkur fannst fjórir
mánuðir of stutt, en raunhæfara að
krónan yrði búin að styrkjast eftir
tíu mánuði heldur en eftir fjóra.“
Greiddu 50 þúsund vegna skilmálabreytinga húsnæðislána
„Finnst þetta vera
ósanngjörn gjaldtaka“
Morgunblaðið/Ómar
Lán Húsbyggjendur tóku margir
fleiri en eitt lán til framkvæmda.
Í HNOTSKURN
»Töluverð vinna er viðhvert mál þegar lánaskil-
málum er breytt, segir Krist-
inn Bjarnason.
»Margir viðskiptavinir hafaóskað eftir skilmálabreyt-
ingum,