Morgunblaðið - 05.12.2008, Side 19
SÉRFRÆÐINGAR segja að hljóðmengunin í heimshöfunum hafi tvöfaldast
á hverjum áratug síðustu 40 árin. Hljóðmengunin hafi orðið til þess meðal
annars að boðskiptageta steypireyða hafi minnkað um 90%.
Hljóðmengunin stóreykst
"789:;%<=% 2 "-=%=:
",(
1 3> .(3
1 >?0 .1034 @ 1
3 + + , A @ >?0
,(
)
(
0 B,) + +
3
+ ) C++ 3C+ ,)
";!D= #E!&F$E
GHE !;: "789:;%<=%$% 5$D%&E I
! !
"
D)0
>/, +4 C+ 1 1 >?0
,(
1.J+
#$
%
!
&
'(%)* !
+
">?0>/+
,
-
-
.
!
(/0$ .
&, +
-
!
%
+.
! +
$
Fréttir 19ERLENT
Á SÍÐUSTU árum hafa yfirvöld í Moskvu breytt
Rauða torginu í skautasvell fyrir hver jól og
óhætt er að segja að vandfundin sé fegurri sviðs-
mynd en um þetta svell. Það er umgirt sögu-
frægum byggingum, Kremlarmúrum, sem hér
eru á vinstri hönd, og Dómkirkju heilags Basils,
því mikla listaverki. Rússar eru í Austurkirkj-
unni og notast við júlíska tímatalið og jólin eru
því 13 dögum á eftir því gregoríska.
AP
Skemmta sér á skautum á Rauða torginu
VLADÍMÍR Pútín, forsætisráð-
herra Rússlands, hélt árlegan síma-
fund í útvarpi og sjónvarpi með rúss-
nesku þjóðinni í gær. Til umræðu
voru m.a. jólatré
„þau eru góð hug-
mynd,“ sagði Pút-
ín, „gervitré njóta
líka vaxandi vin-
sælda.“
Fundurinn er
ein þeirra hefða
sem Pútín hefur
haldið í eftir að
hann lét af emb-
ætti forseta.
Hann ræddi við þjóðina í þrjár
klukkustundir og var meginum-
ræðuefnið efnahagsmál. Pútín sagði
að ríkisstjórnin myndi ráða vel við
fjármálakreppu landsins. „Við mun-
um komast út úr þessum erfiðu tím-
um með minniháttar vandkvæðum,“
sagði Pútín. Engir stjórnarandstæð-
ingar virtust hafa náð sambandi við
forsætisráðherrann sem útilokaði
ekki að hann gæfi kost á sér til for-
seta árið 2012. Hann sló jafnframt á
orðróm um að hann hygðist komast í
forsetastól á næsta ári. jmv@mbl.is
Spjölluðu
við Pútín
Vladímír Pútín
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BARACK Obama, verðandi forseti
Bandaríkjanna, virðist vera á góðri
leið með að efna það loforð sitt að
mynda ríkisstjórn og embættis-
mannasveit í Hvíta húsinu sem end-
urspegli fjölbreytileika bandaríska
samfélagsins.
Obama hafði lofað að skipa ráð-
herra úr röðum minnihlutahópa og
gæta þess að kynjahlutföllin í starfs-
liðinu í Hvíta húsinu yrðu sem jöfn-
ust. Hann tilnefndi síðast Bill Rich-
ardson, ríkisstjóra Nýju-Mexíkó, í
embætti viðskiptaráðherra, en hann
er af mexíkóskum ættum.
Af sjö ráðherrum sem Obama hef-
ur valið til þessa eru tveir hvítir
karlmenn, þeir Timothy Geithner,
væntanlegur fjármálaráðherra og
Robert Gates, sem heldur embætti
varnarmálaráðherra. Þrír af ráð-
herrunum sjö eru konur: Hillary
Clinton, væntanlegur utanrík-
isráðherra, Janet Napolitano, vænt-
anlegur heimavarnaráðherra, og
Susan Rice, sendiherra hjá Samein-
uðu þjóðunum. Þess ber að geta að
Obama hefur sagt að sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð-
unum eigi að fá sæti í ríkisstjórninni
eins og í forsetatíð Bills Clintons, en
sendiherrann hefur ekki átt sæti í
stjórn George W. Bush. Susan Rice
er úr röðum blökkumanna eins og
Eric Holder, sem Obama valdi í
embætti dómsmálaráðherra.
Bush og Bill Clinton höfðu einnig
fjölbreytileika að leiðarljósi þegar
þeir mynduðu ríkisstjórnir sínar. Í
fyrri stjórn Bush voru fjórar konur,
tveir af asískum uppruna, tveir
blökkumenn og einn átti ættir að
rekja til Rómönsku Ameríku. Í
stjórn Clintons voru þrjár konur,
fjórir blökkumenn og tveir ráð-
herrar ættaðir frá Rómönsku Am-
eríku.
Konur 43% starfsliðsins
Af 28 æðstu embættismönnunum
sem Obama hefur valið í Hvíta húsið
eru 43% konur og 29% teljast til
minnihlutahópa, að sögn The Wash-
ington Post. Um tveir þriðju emb-
ættismannanna eru jafngamlir eða
yngri en Obama, sem er 47 ára. Um
þriðjungurinn tengist heimaborg
Obama, Chicago, og um tíu embætt-
ismannanna störfuðu í Hvíta húsinu
í forsetatíð Clintons.
Áhersla lögð á
fjölbreytileika
Konur verða tæpur helmingur æðstu
embættismanna í Hvíta húsinu
Reuters
Ráðherraval Bill Richardson við-
skiptaráðherraefni og Obama.
STJÓRNVÖLD í
Simbabve lýstu í
gær yfir neyðar-
ástandi í landinu
vegna kólerufar-
aldursins og fóru
fram á alþjóðlega
aðstoð.
Samkvæmt op-
inberum tölum
hafa hátt í 600
manns fallið fyrir
kólerunni og nærri 13.000 sýkst en
áreiðanlegar tölur eru þó mjög á
reiki. Hefur ríkisstjórnin einnig við-
urkennt, að heilbrigðiskerfið sé í
raun hrunið enda eru sjúkrahús
óstarfhæf vegna lyfjaskorts, vatns-
skorts og launaleysis starfsmanna.
Kóleran er aðeins ein plága af
mörgum, sem hrjá íbúa landsins, en
þar ríkir viðvarandi stjórnarkreppa
og verðbólga, sem var metin
231.000.000% í júlí. Stjórnvöld
þráuðust lengi við að lýsa yfir neyð-
arástandi vegna kólerunnar og
kenndu Vesturlöndum um ástandið.
svs@mbl.is
Neyð í
Simbabve
Opið skolpræsi í út-
hverfi Harare.
LAGT hefur verið til, að ástralskir
þingmenn verði látnir blása í
blöðru áður en þeir greiða atkvæði
á þingi. Það yrði gert til að
tryggja, að þeir væru allsgáðir
þegar þeir settu landslýðnum lög.
Mörgum sögum fer af drykkju-
skapnum meðal þingmanna og ófá-
ir hafa mátt segja af sér vegna
hneykslanlegrar framkomu. Sem
dæmi um það má nefna, að einn
varð að víkja eftir að hafa skellt
þingmanni, konu, í gólfið í jóla-
veislu, annar fyrir að dansa uppi á
sófa á nærbrókinni einni og sá
þriðji eftir að hann hafði mikið ölv-
aður elt annan þingmann um þing-
salinn.
„Kranastjórar verða að blása í
blöðru áður en þeir fara upp í
kranann og allir vita hvaða afleið-
ingar það getur haft að aka undir
áhrifum. Lagasetningu fylgir ekki
minni ábyrgð,“ sagði John Kaye,
einn þingmanna Græningja. Undir
það hafa aðrir tekið og raunar
bætt við, að blaðamenn í þing-
skrifum skuli líka vera ódrukknir.
svs@mbl.is
Löggjafinn
sé ófullur
Ástralskir þingmenn
skuli blása í blöðru
Samtök Bandaríkjamanna sem
eiga ættir að rekja til Rómönsku
Ameríku hafa fagnað þeirri ákvörð-
un Baracks Obama að tilnefna Bill
Richardson í embætti við-
skiptaráðherra. Samtökin vilja þó
að fleiri úr röðum rómanskra
stjórnmálamanna fái ráðherra-
embætti. Bandaríkjamenn af as-
ískum uppruna vilja einnig eiga
fulltrúa í stjórninni.
Samtök homma og lesbía hafa
skorað á Obama að skipa verka-
lýðsforingjann Mary Beth Maxwell,
sem er lesbía, í embætti vinnu-
málaráðherra. Að sögn samtak-
anna yrði hún fyrsti ráðherrann
sem viðurkenndi samkynhneigð.
Vilja samkynhneigðan ráðherra