Morgunblaðið - 05.12.2008, Síða 36
36 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008
Sudoku
Frumstig
4 1 7
8 3 4 6 9
7 5 8 1
2 5 6 1
1 3 8 2
6 2 7 1
6 9 3 4
9 8 3 5 6
4 6 8
2 4 5
7 3 6 2 9
8 2 7
8 5 1 2
3 1
3 9 4 8
8 6 2
1 2 8 3 6
3 4 1
3 6
1 9 6 3 5
8 5 7
4 6 3
1 5 3 4
2 4 8
2 6 4
9 7 8 4 6
9 2
8 3 1 5 4 7 2 6 9
5 2 4 6 9 1 3 8 7
6 7 9 3 2 8 4 5 1
3 6 7 2 1 5 9 4 8
4 1 2 8 7 9 5 3 6
9 8 5 4 6 3 7 1 2
1 4 8 9 5 2 6 7 3
2 5 3 7 8 6 1 9 4
7 9 6 1 3 4 8 2 5
5 8 9 7 4 2 6 1 3
2 6 3 8 1 9 4 7 5
1 7 4 5 6 3 2 9 8
9 2 7 4 5 1 3 8 6
6 4 8 3 2 7 1 5 9
3 5 1 6 9 8 7 4 2
4 9 2 1 3 5 8 6 7
8 1 5 2 7 6 9 3 4
7 3 6 9 8 4 5 2 1
9 5 4 3 7 2 6 1 8
8 3 2 1 5 6 9 7 4
7 6 1 9 8 4 3 2 5
1 4 5 2 9 7 8 6 3
2 8 9 6 3 5 1 4 7
3 7 6 4 1 8 5 9 2
6 2 8 5 4 1 7 3 9
5 1 3 7 2 9 4 8 6
4 9 7 8 6 3 2 5 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 5. desember,
340. dagur ársins 2008
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af
ávexti sínum, enda lesa menn ekki
fíkjur af þistlum né vínber af þyrni-
runni. (Lúkas 6, 44.)
Víkverji er mjög hugsi yfir fram-vindu endurreisnar Íslands. Það
er sama hvert litið er; á mörgum
póstum sitja sömu menn og þar voru
fyrir fallið og þeir eiga að leiða okkur
inn í nýja tíma. Þeir sem tóku að sér
að sitja yfir ánum lengst inni í Fagra-
dal sofnuðu á verðinum svo bankatóf-
urnar komust í féð. Og nú eru smal-
arnir aðalmenn endurreisnarinnar og
tófurnar sitja um öll tækifæri.
x x x
Engum Íslendingi er kennt umheimskreppuna, en margt sem
á okkur dynur er heimatilbúið. Samt
segja menn, að hvorki sé tímabært að
elta uppi sökudólga né kjósa. Víkverji
hallast meir og meir að því að það sé
nauðsynlegt að ryðja bekkinn og fá
nýja smala til starfa í Fagradal.
x x x
Ekki benda á mig segir varðstjór-inn. Jón Sigurðsson segir að
ekki hafi komið til greina að Fjár-
málaeftirlitið gripi inn í gang mála og
furðar sig á því að Seðlabankinn
skyldi ekki grípa til sinna vopna. Og
Davíð Oddsson er jafnhissa á því að
Fjármálaeftirlitið skyldi ekki taka í
taumana og að enginn skyldi leggja
eyrun við aðvörunum hans.
Ráðherrarnir, sem allir frábiðja
sér ábyrgð í málinu, láta sér samt
lynda, að tveir af bankastjórum nýju
bankanna hafi verið í hópi innstu
koppa í búrum gömlu bankanna! Og
einn fyrrverandi bankastjóri er ráð-
gjafi eins nýja bankans!
Og svo framvegis. Og svo fram-
vegis. Alþingismenn geta ekki lækk-
að launin sín og verkalýðsforkólfarnir
ekki heldur. Og svo framvegis. Og
svo framvegis.
x x x
Víkverji hefur lengi glímt við auka-kílóin og eitt sinn er frúin spurði
hvaða takmark hann hefði sett sér í
þeirri glímu, þá svaraði Víkverji að
hann ætlaði að vera laus við tíu kíló í
marz. Þegar sá mánuður rann upp og
Víkverji hafði ekki runnið um gramm
var hann minntur á gefið fyrirheit.
En Víkverji var snöggur að slá frúna
út af laginu: Sagði ég nokkuð hvaða
ár? víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 nytjafiskur, 8
herkvöð, 9 jarðvöðull, 10
nánös, 11 stunda, 13
koma í veg fyrir, 15 gisið
byrgi, 18 svarar, 21
greinir, 22 hræið, 23
skíma, 24 giftingar.
Lóðrétt | 2 angist, 3
hljóðfæri, 4 púði, 5 end-
urbót, 6 illa þefjandi, 7
drepa, 12 svali, 14 mjó,
15 handfesta, 16 gengur,
17 um garð gengið, 18
hrella, 19 óhreint vatn,
20 kyrrir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hákur, 4 oflof, 7 mjöls, 8 lækur, 9 kló, 11 asna,
13 hatt, 14 sakka, 15 haki, 17 flet, 20 þró, 22 sigur, 23
vitur, 24 rænir, 25 tomma.
Lóðrétt: 1 hamla, 2 kvörn, 3 rösk, 4 Osló, 5 lokka, 6
fornt, 10 lúkar, 12 asi, 13 haf, 15 hasar, 16 kúgun, 18 lít-
um, 19 terta, 20 þrír, 21 óvit.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6
5. Rf3 O-O 6. Be2 e5 7. O-O Rc6 8.
d5 Re7 9. b4 c6 10. Ba3 cxd5 11. cxd5
Bg4 12. h3 Hc8 13. Db3 Bxf3 14.
Bxf3 Rd7 15. Hac1 Bh6 16. Hc2 f5
17. He1 a6 18. Bb2 Rf6 19. Hee2 b5
20. a4 Dd7 21. axb5 axb5 22. He1
Kh8 23. exf5 gxf5 24. Be2 f4 25. Re4
Hxc2 26. Dxc2 Rexd5 27. Hd1 Df5
28. Bf3 Rxb4 29. De2 Rxe4 30. Bxe4
f3 31. Bxf3 Bg7 32. Be4 Df4 33.
Hxd6 Ra2 34. g3 Df7 35. Bb1 Dc7 36.
De4 Bf6
Staðan kom upp í opnum flokki á
Ólympíuskákmótinu sem lauk fyrir
skömmu í Dresden í Þýskalandi.
Hollenski stórmeistarinn Loek Van
Wely (2618) hafði hvítt gegn kollega
sínum Viktor Bologan (2682) frá
Moldavíu. 37. Hxf6! og svartur gafst
upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Snillingur eða fífl?
Norður
♠KD5
♥K106
♦1072
♣K1083
Vestur Austur
♠32 ♠G1098
♥9753 ♥G
♦ÁKD8 ♦953
♣DG4 ♣97652
Suður
♠Á764
♥ÁD842
♦G74
♣Á
Suður spilar 4♥.
Er Bruce Ferguson snillingur eða
fífl? spyr Bruce Ferguson í mótsblaði
haustleikanna í Boston.
Ferguson var í vestur. Hann byrjaði
skynsamlega á því að taka þrjá slagi á
efstu tíglana. En hvað svo? Suður hafði
opnað á Flannery-2♥, sem sýnir 5-4-
skiptingu í hálitunum, þannig að Fergu-
son þekkti skiptingu suðurs. Hann sá
fyrir sér feitt einspil hjá makker í
trompi og spilaði fjórða tíglinum í þre-
falda eyðu. Eins og spilið er sýnt að ofan
dugir þessi vörn til að uppfæra slag á
♥9 og uppfæra Ferguson úr með-
almanni í snilling.
En Bruce Ferguson hitti ekki á óska-
stundina. Makker hans átti bara ♥2, en
hins vegar laufásinn til hliðar. Sagnhafi
trompaði fjórða tígulinn í borði og henti
laufhundi heima. Kláraði síðan trompin
og þvingaði austur í svörtu litunum.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Dagurinn í dag tengist málefnum
fjölskyldunnar og einhverju heimilislegu.
Kannski verður óvenjulegur lærimeistari
á vegi þínum, eða að þú verður einhvers
áskynja um framandi menningarheim.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Nú skiptir öllu máli að finna réttu
aðferðina til að ná viðunandi árangri. Ef
þú gerir sömu kröfur til sjálfs þín og þú
gerir til annarra kemstu hjá vandræðum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ráð frá einhverjum sem er þér
eldri og reyndari munu reynast vel í dag.
Aukin ábyrgð færir þér heppni.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er togað í þig úr öllum áttum.
Sýndu fyrirhyggju í fjármálum því
óvæntir atburðir geta gerst. Byrjaðu á
verkunum og leystu þau eitt af öðru.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ljónið vill lyfta sér upp í dag.
Reyndu að læra sem mest af sem flestum
því það er gott veganesti út í lífið.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú leitar í spennu. Ekki seinna
vænna. Að hjálpa vinum sínum er það
eðlilegasta sem maður getur tekið sér fyr-
ir hendur, en meyjan þolir illa væmni.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Láttu það eiga sig að gefa þeim ráð
varðandi fjármálin sem ekki vilja hlusta.
Góðar hugmyndir gætu þó skotið upp
kolli og leitt til þess að tekjur þínar ykjust
í fyllingu tímans.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú getur ekki velkst í vafa
lengur heldur verðurðu að taka af skarið.
Og ef þú lætur verða af hlutunum sérðu
ekki eftir því.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Notaðu daginn til föndurs og
tómstundaiðkunar heima við. Til allrar
hamingju er samband þitt við samstarfs-
fólk og viðskiptavini mjög gott.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það sem steingeitin heldur að
sé að gerast gæti verið þvert á það sem
raunverulega er á seyði. Andstæðingar
þínir munu gefast upp og þá stendur þú
uppi með pálmann í höndunum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ekki er allt sem sýnist og það
er þitt verk að komast að hinu sanna.
Spjallaðu við vin, syngdu lag eða gerðu
eitthvað skapandi.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þér kann að þykja framkoma ein-
hverra vinnufélaga skrýtin. Ekki láta
segja þér hvað þér á að finnast um sjálfan
þig, þú veist manna best hver þú ert.
Stjörnuspá
Þórhildur Hall-
dórsdóttir kenn-
ari er áttræð í
dag, 5. desember.
Hún tekur á móti
vinum og vanda-
mönnum í safn-
aðarheimili Lang-
holtskirkju milli
kl. 16 og 18 í dag.
80 ára
María K. Guð-
jónsdóttir er
fimmtug í dag,
föstudaginn 5.
desember. María
og eiginmaður
hennar, Pétur
Ingólfsson, taka
á móti gestum á
heimili sínu,
Ekrusmára 2, Kópavogi frá kl. 16.
50 ára
FJÖGURRA barna fjölskyldufaðirinn Sigfús
Bjarni Sigfússon er fertugur í dag. Hann ver af-
mælisdeginum með fjölskyldunni í sumarbústað.
„Svo á laugardaginn ætla ég að bjóða allri stórfjöl-
skyldunni með mér í rútu upp í Haukadal. Þar ætl-
um við að saga niður jólatré, fáum okkur heitt
kakó og förum eftir það á jólahlaðborð á Hótel
Geysi.“ Um fimmtíu vinir og vandamenn verða
með í för, bæði börn og fullorðnir. Sigfús Bjarni
segir að hann hafi verið við það að hætta við ferð-
ina vegna kreppunnar en ákveðið að slá til. „Fólk
styrkir mig í rútunni og ég afþakka afmælisgjafir en bendi þeim sem
vilja gefa mér eitthvað á ABC-hjálparstarfið.“ Honum hafi orðið mik-
ið um þegar hann heyrði fréttir um vopnað rán hjá hjálparsamtök-
unum og hafi því hugsað til samtakanna á þessum tímamótum.
Sigfús Bjarni rekur afþreyingarfyrirtækið ÍSAK ehf. Það býður
ferðamönnum upp á ferðir með níu breyttum jeppum. „Við bjóðum
upp á nýjung í ferðaþjónustunni því hjá okkur eru ferðamenn þátttak-
endur en ekki aðeins áhorfendur. Þeir keyra bílana, moka þá upp
festist þeir og fikta í talstöðvunum,“ segir Sigfús þar sem hann þrífur
bílana fyrir næstu reisu. gag@mbl.is
Sigfús Bjarni Sigfússon 40 ára
Býður í fjölskylduævintýri
Nýirborgarar
Reykjavík Einar Úlfur Beck og Óskar Alfreð Beck
fæddust 4. febrúar kl. 13.42. Þeir voru alveg jafnstórir,
1.710 g og 43 cm að lengd. Foreldrar þeirra eru Mar-
grét Beck og Sverrir Kristján Einarsson.
5. desember 1948
Fyrsti hluti Hallgrímskirkju í
Reykjavík var tekinn í notkun.
Þetta var neðri hluti kórbygg-
ingarinnar, en þar voru sæti
fyrir 250 manns.
5. desember 1954
Íslenska brúðuleikhúsið hóf
sýningar í Alþýðuhúsinu í
Reykjavík. Sýnd voru barna-
leikritin „Hans og Gréta“ og
„Rauðhetta“. Jón E. Guð-
mundsson hafði unnið að und-
irbúningi leikhússins í tvö ár.
5. desember 1954
Akureyrarflugvöllur var
formlega tekinn í notkun þeg-
ar Snæfaxi lenti þar. Morg-
unblaðið sagði þetta vera
merkan áfanga í flugmálum.
5. desember 1968
Jarðskjálfti fannst í Reykja-
vík. Hann átti upptök við
Kleifarvatn, mældist 6 stig og
var einn sá snarpasti síðan
1929.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is