Morgunblaðið - 05.12.2008, Side 38
38 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur ákveðið
að fella niður tvær gestasýningar
sem átti að setja þar á svið í vetur. Í
fréttatilkynningu
frá leikhúsinu
segir: „Í efna-
hagsþrengingum
undanfarinna
vikna er það hrun
krónunnar sem
hefur haft hvað
mest áhrif á
starfsemi Þjóð-
leikhússins, enn
sem komið er. Leikhúsið hefur leit-
að leiða til að bregðast við stór-
auknum kostnaði við þá þætti starf-
seminnar sem krefjast
gjaldeyrisviðskipta. […] Þjóðleik-
húsið hafði gert ráð fyrir marg-
breytilegu samstarfi við erlend leik-
hús og listamenn á þessu leikári, en
laun til erlendra listamanna og aðr-
ar greiðslur í erlendri mynt hafa
hækkað mikið, og því verður leik-
húsið að skera niður í þeim þætti
starfseminnar. Ákveðið hefur verið
að fella niður tvær gestasýningar
sem til stóð að sýna í vetur. Annars
vegar Creature, látbragðssýningu
Kristjáns Ingimarssonar. […] Hins
vegar Mysteries of Love 2, nýja
danssýningu Ernu Ómarsdóttur.
[…] Báðar hefðu [sýningarnar] orð-
ið mikilsverð viðbót við verk-
efnaskrána og aukið framboð á
sviðsverkum á fjölum Þjóðleikhúss-
ins, og er því mikil eftirsjá að þeim.“
Koma til móts við leikhúsið
Í fréttatilkynningunni segir einn-
ig að um tíma hafi verið útlit fyrir að
hætta þyrfti við sýningar á Etern-
um og Sædýrasafninu, en að erlend-
ir samstarfsaðilar við þær sýningar
hafi sýnt Þjóðleikhúsinu mikinn
skilning á þessum erfiðu tímum, og
komi til móts við leikhúsið með því
að taka á sig meiri kostnað.
Hætt við
sýningar
Krónuhrunið veldur
Þjóðleikhúsið
SIMBABVESKA leikskáldið Cont
Mdladla Mhlanga hlaut fyrir helgi
sköpunarfrelsisverðlaunin Freedom
to Create sem mannúðarsamtökin
Art Venture veita árlega.
Mhlanga hefur samið 21 leikrit og
gefið út þrjár bækur. Hann hefur
verið ötull gagnrýnandi Róberts
Mugabes forseta sem hefur bannað
verk hans. Þá hefur Mugabe marg-
sinnis látið handtaka skáldið fyrir að
opinbera skoðanir sínar. Verðlaunin
hlaut Mhlanga fyrir verk sitt The
Good President, en verðlaunin, 50
þúsund pund, voru afhent við athöfn
í Lundúnum í vikunni. Í yfirlýsingu
Art Venture sagði að með valinu á
Mhlanga væri verið að viðurkenna
þá listamenn sem daglega berjast
fyrir frelsi til að tjá sig og þurfa að
fórna miklu í þeirri baráttu.
Mhlanga hefur þegar ánafnað kven-
réttindasamtökum í heimalandi sínu
helming fjárins.
Mhlanga
verð-
launaður
Skáldið Cont Mhlanga
VESTFIRÐINGAR á Suður-
landi boða til bókakynningar í
Bókakaffi á Selfossi í dag,
föstudag, 20:30. Kynntar verða
og lesið úr þremur af þeim
bókum sem Vestfirska forlagið
gefur út fyrir þessi jól.
Guðrún Jónína Magn-
úsdóttir kynnir bók sína „Birta
– ástarsaga að vestan“. Harpa
Jónsdóttir kynnir bók sína
„Húsið – Ljósbrot frá Ísafirði“ og þá kynna Bíld-
dælingarnir Jón Kr. Ólafsson, söngvari þar og
Hafliði Magnússon, rithöfundur sem nú býr á Sel-
fossi, bók Hafliða um lífshlaup Jóns Kr. „Melódíur
minninganna.“ Jón Kr. Ólafsson er landskunnur
söngvari. Allir eru velkomnir.
Bækur
Vestfirsk bóka-
kynning á Selfossi
Hafliði Magnússon
ALÞJÓÐLEG ráðstefna á
sviði þvermenningarlegra
fræða, sem haldin er á vegum
Stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur, var sett í Háskóla
Íslands í gær og stendur fram
á laugardag. Ráðstefnan er
haldin í samvinnu við Málvís-
indastofnun HÍ, Mann-
fræðistofnun HÍ og Alþjóða-
húsið og er hluti af árlegri
ráðstefnuröð norrænna samtaka – NIC.
Flutt eru yfir 80 erindi, m.a. á sviði málvís-
inda, þýðinga, mannfræði, heimspeki og sál-
fræði. Vigdís Finnbogadóttir setti ráðstefnuna
en meðal fyrirlesara eru Gísli Pálsson og Maria
Polinsky.
Hugvísindi
Fjallað um þver-
menningarleg fræði
Gísli Pálsson
GALLERY Turpentine, sem
hefur verið til húsa í Ingólfs-
stræti, opnar á nýjum stað í
dag. Er það nú til húsa gegnt
SPRON á Skólavörðustíg 14, 2.
hæð. Samhliða flutningnum
opnar galleríiið sína árlegu
jólasýningu klukkan 18.
Á jólasýningunni verða m.a.
verk eftir Sigurð Árna Sig-
urðsson, Helga Þorgils, Ey-
borgu Guðmundsdóttur, Georg
Guðna, Pétur Thomsen, Jón Gunnar Árnason,
Helga Má Kristinsson, Sigtrygg Bjarna Baldvins-
son, Tinnu Gunnarsdóttur og Einar Fal Ingólfs-
son. Ákveðnar breytingar verða á starfsemi Tur-
pentine, m.a. með aukinni áherslu á hönnun.
Myndlist
Fjölbreytileg verk
á jólasýningu
Sigurður Árni
Sigurðsson
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
HVAÐ er það að lesa bók? Renna
augum yfir stafi og orð, málsgreinar
og síður; meðtaka upplýsingar –
fletta? Já, en kannski hefði spurn-
ingin átt að snúast um grundvall-
aratriðið, sögnina „að lesa“. Læsi er
nefnilega margskonar, að sögn Þor-
valdar Þorsteinssonar myndlist-
armanns og rithöfundar, sem er einn
af aðstandendum Bókverkasýn-
ingar, sem opnuð verður í Ný-
listasafninu á morgun kl. 16.00.
„Við erum vel alin upp í einhæfri
hugmynd um læsi, en vitum að læsi
er margskonar.
Myndlistin tók bókformið upp á
arma sína fyrir löngu, en það sem að
okkur snýr er koma Dieters Roth til
landsins fyrir um fimmtíu árum.
Sýningin er fjölbreytt – þetta er
sýnishorn af öllu því bókverkasafni
sem Nýlistasafnið hefur yfir að ráða.
Þó sýnum við ekki verk Dieters, sem
þó er einn grunaðra guðfeðra þessa
forms í heiminum og mikill áhrifa-
valdur hér á landi. Hans hlutur er
stór, en bókverk hans voru sýnd í
safninu fyrr á árinu. Þetta er þver-
snið af því sem íslenskir og erlendir
myndlistarmenn tengdir Íslandi
hafa verið að gera. Þetta er kynning,
og verkin kynna sig sjálf.“
Það má og á að ganga á grasinu
Þorvaldur segir hróðugur að eng-
ar bækur verði í glerbúrum og að
gestir megi handfjatla þær og skoða
hanskalaust – en af virðingu! Hann
segir að bókverkið sé skylt gjörn-
ingnum. „Veldur hver á heldur, og
það er hugsun sem skýrist óvenju
vel í umgengni við bókverkin. Áhorf-
andinn verður augljóslega skapand-
inn með upprunalega höfundinum,
því það stjórnar því enginn hvernig
þú upplifir bók. Það er líka mik-
ilvægt að við fáum sem oftast tæki-
færi til að gangast við sköpunareðli
okkar allra, frekar en að vera alltaf
að einblína á sköpun annarra. Þess
vegna er bókverkið skemmtilegur
miðill – þú ert með. Bókstaflega.
Það eru heldur engin rétt eða
röng svör innifalin. Það verður held-
ur enginn staðinn að verki við það að
fletta hallærislegu bókinni of oft, og
það verður heldur ekki hægt að
verða of gáfaður. Ég vil að sýningin
verði eins afslöppuð og hægt er, og
ég geri það með fullri virðingu fyrir
hverju og einu verki með því að
segja sem minnst um það.“
Nú ertu að ná mér
Þorvaldur er lítið fyrir tölfræðina
og segir: „Nú ertu að ná mér. Þetta
er spurningin sem ég óttaðist,“ þeg-
ar hann er spurður um fjölda þeirra
myndlistarmanna sem búa til bók-
verk. „Ég hef ekki hugmynd um það.
Það eru þó nokkrir sem standa upp
úr og hafa verið mjög ötulir í þessu,
eins og Helgi Þorgils Friðjónsson,
Ingólfur Arnarsson og klassíker eins
og Kristján Guðmundsson. Í þeim
hópi eru líka menn sem ég sakna úr
myndlistinni og gerðu skínandi verk,
eins og Magnús V. Guðlaugsson.
Ef satt skal segja þá er það partur
af prógramminu að hafa þessar tölu-
legu upplýsingar ekki tiltækar.
Besta ástæðan fyrir því að hafa ekk-
ert svar, er sú að við ætlum að
freista þess að hvetja fólk til að
koma með bækur sem það grunar
um að vera bókverk svo við getum
skoðað. Kannski enda þær á sýning-
unni. Það verður líka hægt að búa til
bókverk á staðnum – það hafa allir
vald á því. Við tökum því fagnandi og
fáum sumt af okkar uppáhalds bók-
verkafólki til að vera gestum innan
handar á ákveðnum tímum. Vonandi
fjölgar listamönnunum eftir því sem
á sýninguna liður.“
Bækur með meðvitund
Þorvaldur Þorsteinsson setur upp sýningu á bókverkum X listamanna
Enginn verður staðinn að verki við það að fletta hallærislegu bókinni of oft
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bókamaðurinn Þorvaldur Þorsteinsson hvetur fólk til að koma í Nýlistasafn-
ið og sýna aðstandenum sýningarinnar bækur sem það telur vera bókverk.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÞETTA verður með svipuðu sniði og undanfarin
ár, við verðum með léttari lög fyrir hlé og klass-
íkina eftir hlé og endum á hátíðlegum nótum,“
segir Guðmundur Óli Gunnarsson, hljómsveit-
arstjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, en á
morgun kl. 18 heldur hljómsveitin árlega aðventu-
tónleika sína í íþróttahúsi Glerárskóla. Einsöngv-
arar á tónleikunum verða Dísella Lárusdóttir og
Jóhann Smári Sævarsson, og Vilhjálmur Ingi Sig-
urðarson leikur einleik á trompet. Þá verður
Kvennakór Akureyrar einnig gestur hljómsveit-
arinnar á tónleikunum.
„Við flytjum ómissandi standarda eins og
Sleðaferðina og Jólahátíð eftir Leroy Anderson.
Þá tvö mjög skemmtileg lög eftir Ingibjörgu Þor-
bergs, sem Ríkarður Örn Pálsson útsetti fyrir
okkur. Við verðum líka með tvö ný jólalög eftir Ja-
an Alavere sem stjórnar Kvennakór Akureyrar og
er líka fiðluleikari í hljómsveitinni.“
Klassíkin tekur við eftir hlé með þætti úr
Vatnamúsík Händels. „Þá spilar Vilhjálmur Sig-
urðarson trompetleikari með okkur tvo þætti úr
Trompetkonsert eftir Haydn. Vilhjálmur er ný-
kominn heim úr námi í Finnlandi.“
Einsöngvararnir syngja dúett með hljómsveit-
inni í Ave María eftir Gunnar Þórðarson, en Guð-
mundur Óli segir að það sé í aukinni og end-
urbættri útsetningu Gunnars fyrir þessa tónleika.
„Jóhann Smári syngur Ó helga nótt, og Sönginn
um kvöldstjórnuna úr Tannhäuser eftir Wagner.
Það er að vísu ekki Betlehemstjarnan sem þar er
sungið um, en við látum það bara ríma, því það á
ákaflega vel við andann. Dísella syngur svo bæði
Ave Maríu Kaldalóns og Pie Jesu úr Sálumessu
Faurés. Kórinn syngur Jól eftir Jórunni Viðar,
það undurfagra lag. Við endum svo á því að syngja
öll Frá ljósanna hásal.“
Létt en líka hátíðlegt
Syngur Dísella Lárusdóttir verður meðal gesta.
Aðventutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
Hvar liggja skilin milli bókverks og bókar?
„Bókin er í eðli sínu frábær fjölföldunarmiðill á upplýsingum, en það er langt
frá því að möguleikar hennar séu fullnýttir. Segja má að á meðan bækur fjalla
um hlutina þá er bókverkið að framkvæma þá. Gott dæmi um muninn á aka-
demíkerum og listamönnum. Grafík er gerð í takmörkuðu upplagi og er iðu-
lega nátengd höndum listamanns. Andstæða þess er offsetfjölrituð blaðsíða.
Þegar mikið er lagt í bók og hönnunarþættinum og myndræna þættinum eru
gerð góð skil, þá er hún farin að nálgast þá meðvitund sem er í bókverkinu,
um upplifunina óháð skilaboðunum. Hver bók ætti í raun að vera sífelld skoð-
un og uppgötvun á möguleikum þess að fletta. Bókverkið gerir allt það sem
hin hefðbundna bók má ekki gera.“
S&S
Núna er plötu-
umslagið silfurslegið
og það er hægt að
spegla sig í því. 40
»