Morgunblaðið - 05.12.2008, Qupperneq 39
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands
og aðalhljómsveitarstjórinn Rumon
Gamba, hafa verið tilnefnd til
Grammy-verðlaunanna fyrir fyrstu
plötu sína af þrem til fjórum með
hljómsveitarverkum eftir franska
tónskáldið Vincent D’Indy. Platan er
tilnefnd í flokknum „Best Orchestral
Performance“ eða Besti hljómsveit-
arleikurinn.
Árni Heimir Ingólfsson, tónlistar-
stjóri hljómsveitarinnar, er himinlif-
andi. „Þetta er gríðarlegur heiður.
Þarna erum við í hópi með bestu
hljómsveitum og besta tónlistarfólki í
heiminum. Það er staðfesting á því
góða starfi sem hljómsveitin hefur
unnið síðustu ár.“
Árni Heimir segir að ekki hafi ver-
ið búist við því að D’Indy-platan yrði
slíkur smellur sem hún er orðin, en
hún hefur fengið framúrskarandi
dóma í heimspressunni. „Við erum í
skýjunum.“
Eigum flinka hljóðfæraleikara
En hver er ástæða þessarar vel-
gengni? Hvað gerir hljómsveitina
okkar svona góða?
„Það er margt. Við erum heppin að
eiga framúrskarandi hljóðfæraleik-
ara. Við höfum líka oft verið heppin
með samstarfsfólk. Þá er ég ekki
bara að tala um hljómsveitarstjór-
ana, heldur einnig við útgáfufyr-
irtækin, sem er mikilvægt í al-
þjóðlegu samhengi. Við höfum átt í
löngu og farsælu samstarfi við Chan-
dos-útgáfuna sem gefur þessa plötu
út. Chandos gaf út sinn fyrsta disk
með leik Sinfóníunnar árið 1993 með
íslenskri tónlist. Síðan hafa þeir tekið
hér upp reglulega og eru farnir að
læra inn á hljómburðinn hér í Há-
skólabíói. Þeir kunna þá kúnst að láta
bíóið hljóma eins og fyrsta flokks
tónlistarhús. Það skiptir auðvitað
líka miklu máli.“
Árni Heimir segir tilnefninguna
enn eina vörðuna á leið hljómsveit-
arinnar til enn betri árangurs.
Búið er að hljóðrita næstu plötu í
röðinni með verkum D’Indy. Það var
gert í september. Hún kemur út á
næsta ári. „Það verður í það minnsta
ein plata til viðbótar við hana,
kannski tvær. Þær verða gefnar út á
næstu árum.“
Þetta er „raritet“
Árni Heimir segir að ekki sé mikið
til af upptökum með verkum D’In-
dys. „Þetta er raritet og mörg verk-
anna hafa ekki verið gefin út. Það er
heilmikið rannsóknarverkefni að
gera þetta. Við höfum til dæmis verið
að fá nótur, sem hafa greinilega ekki
verið spilaðar í áratugi. Pappírinn
molnar í höndunum á hljóðfæraleik-
urunum. Við höfum sérstöðu í þessu
– það er enginn annar að sinna þess-
ari tónlist og það er greinilega mark-
aður fyrir hana.“
En skyldi útgáfa af þessu tagi –
með erlendum verkum, ekki setja
hljómsveitina í alþjóðlegra sam-
hengi? Árni Heimir segir svo vera.
„Það að við séum tilnefnd til verð-
launa fyrir franska hljómsveita-
músík, sem franskar hljómsveitir
eiga svolítinn eignarrétt á, sýnir best
hvað Sinfóníuhljómsveit Íslands er
fjölhæf. Hún getur þetta, kemst ekki
bara upp með það, heldur fær líka al-
þjóðlega viðurkenningu fyrir.“
Hljómsveitarstjórinn, Rumon
Gamba var himinlifandi með tilnefn-
inguna að sögn Árna Heimis. „Þetta
er líka mikil viðurkenning fyrir hann.
Nú stendur hann á tímamótum, því
næsta starfsár verður hans síðasta
með hljómsveitinni. Tilnefningin á
vafalaust eftir að gera nafn hans
þekktara.“
Fleiri verðlaun
Sinfóníuhljómsveitin fékk verð-
laun fyrir plötur sínar með verkum
Jóns Leifs, árið 1998 en stjórnandi
hljómsveitarinnar þá var Osmo
Vänskä og líka fyrir plötur með verk-
um Síbelíusar, árið 2000 en þá stjórn-
aði Petri Sakari hljómsveitinni. Þar
með hafa allir þrír af fjórum að-
alstjórnendum hljómsveitarinnar á
síðustu árum verið tilnefndir til verð-
launa með hljómsveitinni.
Pacifica einnig tilnefndur
Þá fékk Pacifica kvartettinn
bandaríski, sem Sigurbjörn Bern-
harðsson fiðluleikari leikur með, til-
nefningu í flokknum „Best Chamber
Music Performance“ eða Besti
kammermúsíkleikurinn. Er kvart-
ettinn tilnefndur fyrir hljómplötu þar
sem þeir leika verk eftir Elliott Cart-
er. Pacifica hefur á þessu ári hlotið
ýmsar viðurkenningar fyrir leik sinn.
Gríðarlegur heiður
Sinfóníuhljómsveit Íslands tilnefnd til Grammy-verðlauna
Pacifica kvartettinn tilnefndur fyrir kammermúsíkleik
Sinfóníuhljómsveit Íslands Í hópi þeirra bestu í heimi.
Morgunblaðið/Golli
Menning 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is STOÐIR ERU AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
■ Í kvöld kl. 19:30
Víkingur og Bartók
Hljómsveitarstjóri: Michal Dworzynski
Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson
Béla Bartók: Píanókonsert nr. 3
Ludwig Van Beethoven: Sinfónía nr. 8
Ludwig Van Beethoven: Leonóru-forleikur
Einn dáðasti píanóleikari landsins, Víkingur Heiðar
Ólafsson, leikur einleik með hljómsveitinni í píanókonsert
sem hann lék til sigurs í einleikarakeppni við Julliard-
tónlistarháskólann nýverið.
■ Laugardagur 20. desember kl. 14 og 17
Jólatónleikar
Jólatónleikar Tónsprotans eru sívinsæl skemmtun og
lykilatriði við að komast í jólaskapið hjá þeim fjölmörgu
sem láta sig aldrei vanta.
Þeir sem eiga frátekna miða á Vínartónleikana í janúar eru
beðnir um að ganga frá greiðslu sem fyrst.
www.forlagid.is
2008
1 Ég skal vera Grýla/Þórunn Hrefna Sigurjónsd.
Mál og menning
2 Fíasól er flottust/Kristín Helga Gunnarsdóttir
Mál og menning
3 Steindýrin/Gunnar Theodór Eggertsson
Vaka-Helgafell
4 Eragon - Brísingur/Christopher Panolini
JPV útgáfa
5 Vetrarsól/Auður Jónsdóttir
Mál og menning
6 Auðnin/Yrsa Sigurðardóttir
Veröld
7 Af bestu list/Ritstj. Nanna Rögnvaldsdóttir
Vaka-Helgafell
8 Ofsi/Einar Kárason
Mál og menning
9 Hljómagangur/Jón Hjartarson
Bókaútgáfan Æskan
10 Litla Bænabókin
Skálholtsútgáfan
Metsölulisti
27. nóvember til 3. desember
Vincent D’Indy fæddist í
París árið 1851 og lést ár-
ið 1931. Hann fékk ungur
áhuga á píanóinu og fékk
að læra á það en lét þó
undan kröfu fjölskyldu
sinnar og lærði lög. Lög-
fræðiprófið var honum
ekki til mikils gagns því
að því loknu sneri hann
sér beint að tónlistinni
aftur og gerðist læri-
sveinn tónskáldsins Césars Franck í
Tónlistarháskólanum í París þar
sem hann átti sjálfur eftir að kenna
síðar meir. Í því starfi
var hann áhrifamikill og
kenndi mörgum þekkt-
ustu tónskáldum Frakka
og annarra þjóða sem
blómstruðu um alda-
mótin. Þar má nefna Er-
ic Satie, Darius Milhaud,
Joseph Canteloube, Is-
aac Albéniz og Arthur
Honegger.
D’Indys er vel við-
urkennt tónskáld í Frakklandi og
verk hans þóttu afbragðsgóð. Í dag
hljóma þau hins vegar ekki oft.
Lögfræðitónskáldið
D’Indy