Morgunblaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008
E R N A
sími 552 0775
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
JÓLAFÖTIN
eða kannski
mjúkur pakki
Pelshúfur
og -treflar
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Kringlunni • Sími 568 1822
Margir litir
Stærðir
S-M-L-XL
Mikið úrval af
dömunáttsloppum
m
bl
10
74
39
8
www.fi.is • fi@fi.is • Sími 568 2533
Sólstöðu- og
kökuganga á Esjuna
Sunnudaginn 21. desember verður kökuganga FÍ á Esjuna.
Gengið verður upp Kerhólakamb og yfir á Þverfellshorn.
Þátttakendur taka með sér kakó, kaffi og jólabakkelsi og
deila með sér og valin verður besta jólasmákakan.
Lagt verður af stað frá Mörkinni 6 kl. 10.30, farið er á einkabílum og
sameinast í bíla. Gengið verður frá Esjubergi og síðan ferjað á milli
þegar niður er komið við Mógilsá.
Fararstjórar eru Þórhallur Ólafsson
og Einar Karl Þórhallsson.
Þátttaka er ókeypis
Allir velkomnir.
Skráðu þig inn - drífðu þig út
Komið og heimsækið okkur
Allar verslanir
opnar
kl. 10-22
alla daga til jóla
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄❄
❄
Jól á Skólavörðustígnum
Jólagjöfin
hennar
fæst hjá
okkur
Verð 11.900 kr.
settið
Laugavegi 82 - á horni Barónsstígs - sími 551 4473
Skálastærðir
A-G
Litir: Vínrautt
og koníak
Í FYRRADAG lauk GSM-uppbygg-
ingu Vestfjarða formlega þegar
Haraldur Júlíusson, formaður
Björgunarfélags Ísafjarðar,
hringdi í 112 ofan af Gemlufalls-
heiði.
Alls hafa 30 nýir sendar verið
tektir í notkun á Vestfjörðum á
árinu. Stór svæði á sjó og landi sem
áður voru sambandslaus eru nú
komin í gott GSM-samband.
GSM-uppbyggingu
Vestfjarða lokið
ÓLAFUR F. Magnússon borgar-
fulltrúi telur það áfall fyrir lýð-
ræðið að tillaga hans um að
borgarfulltrúar sýni fjárhagsleg
tengsl sín var felld í borg-
arstjórn.
Í tilkynningu segir Ólafur að
niðurstaðan sýni að aðeins
borgarfulltrúar F-lista og vinstri-
grænna geti sýnt sín fjárhagslegu
tengsl og að framganga Samfylk-
ingar í málinu valdi vonbrigðum.
Leyna fjárhag sínum
, ,
STÆRSTA fjárhagsupplýsingafyr-
irtæki Þýskalands, Schufa, hefur
keypt hlut í erlendri starfsemi hins
íslenska fyrirtækis Creditinfo Group
hf. Mun hið nýja fyrirtæki bera heit-
ið Creditinfo SCHUFA GmbH og
veita lánshæfisupplýsingar auk virð-
isaukandi þjónustu víða um Evrópu.
„Við erum að sameina starfsemi
beggja félaganna utan heimaland-
anna. Ætlunin er að fara á fleiri
markaði og efla sameiginlegt félag,“
segir Reynir Grétarsson, forstjóri
Creditinfo Group. Viðræður milli
fyrirtækjanna hafa átt sér stað frá
því í september 2007. „Þjóðverjar
taka sér góðan tíma, skoða allar leið-
ir og liggja síðan vel yfir málunum.“
Sl. mánuði hefur verið unnin ítarleg
áreiðanleikakönnun á Creditinfo
Group hf. og segir Reynir ánægju-
legt að fyrirtækið hafi staðist það
stranga próf. „Það er líka ánægju-
legt að halda traustinu þrátt fyrir
fall bankanna því að margir eigend-
ur SCHUFA töpuðu fé á því hruni.“
Sameiningin sé líka staðfesting á
að Creditinfo hafi verið á réttri leið.
„Við höfum gert meira af því að
byrja starfsemi á hinum og þessum
mörkuðum frekar en fjárfesta mikið.
Þess í stað höfum við keypt lítil fyr-
irtæki og byggt þau upp og búið
þannig til mikil verðmæti.“
Ánægjulegt sé að geta nú komið
með fjármagn inn í landið. En fyrir-
tækið flytur út íslenska þekkingu á
hugbúnaði, sem og söfnun og miðlun
upplýsinga.
Creditinfo Group veitir margvís-
lega þjónustu á sviði áhættustýring-
ar og fær hún, að sögn Reynis, nú
meiri athygli en áður. „Viðskipta-
kröfur fyrirtækja eru yfirleitt
stærsta eign þeirra. Sl. ár hefur
áhættustýring þó beinst meira að
hlutafjáreign og það höfum við gagn-
rýnt. Viðskiptakröfurnar eru hins
vegar nú farnar að fá aukna athygli
aftur sem skilar sér inn til okkar.“
annaei@mbl.is
„Ánægjulegt að hafa
haldið traustinu“
Reynir Grétarsson Segir áhættu-
stýringu hljóta nú aukna athygli.
Creditinfo Group hf. og SCHUFA GmbH sameina starf-
semi sína utan heimalandanna Stóðust strangt próf
Morgunblaðið/Árni Sæberg