Morgunblaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008 Lægðin sem bankahruniðsteypti okkur í er rétt aðhefjast og því nauðsynlegt að stökkva strax á afturlappirnar og styrkja þær séríslensku stoðir er geta mögulega snúið dæminu við til langs tíma. Erlend lán eru ekkert öryggis- net, aðeins gálgafrestur að hinu óumflýjanlega. Ef við ætlum að rétta okkur við verðum við að verða eins sjálfbær og við mögu- lega getum – eins fljótt og við mögulega getum. Og hvað höfum við annað en náttúrulegar auðlindir okkar? Jú, menningu okkar.    Í gær skrifaði ég um að það gætihaft afdrifaríkar afleiðingar á íslenska menningu verði RÚV kippt af auglýsingamarkaði. Núna langar mig til þess að beina spjótum að frjálsu útvarpsstöðvunum og hvernig þær geta hjálpað enn betur til við að byggja upp hið nýja sjálf- bæra Ísland. Lausnin er í rauninni ofureinföld: Spilið meira af íslenskri tónlist! Því fleiri tónlistarmenn hér sem hafa tækifæri á því að gera sköpun sína að atvinnu, því stærri verður tón- listariðnaðurinn hér og því fleiri eiga tækifæri á að teygja anga sína til útlanda. Þetta er svipuð hug- myndafræði og áform Bjarkar um uppbyggingu sprotafyrirtækja, auk þess sem þetta myndi styrkja ís- lenskt menningarlíf til muna. Ef „íslenski listinn“ á FM957 erskoðaður er þar nú að finna fjögur íslensk lög á topp 30. Svip- aða sögu er að segja af X-inu 977 þar sem sex íslensk lög eru inni á topp 20. Eina einkarekna stöðin sem er í einhverju samræmi við sölu tónlistar í landinu er Bylgjan. Þar er hvergi að finna erlent lag á topp 10, en það er í takt við þá fal- legu staðreynd að íslensk tónlist er nánast allsráðandi í plötu- og net- sölu hér. Gæti sú ákvörðun Bylgj- unnar og Rásar 2, að gera íslenskri tónlist hærra undir höfði en er- lendri, átt þátt í vinsældum stöðv- anna? Auðvitað. Það sannast í þeirri staðreynd að engin útvarps- stöð er spilar íslenska tónlist í minnihluta nær yfir 11% í hlustun. X-ið og FM957 starfa ennþá inn- an þess ramma er var settur hér upp að bandarískri fyrirmynd á þeim tímum er stöðvarnar voru í eigu þarlends fyrirtækis. Þessu var bætt ofan á þann þrönga ramma sem stöðvarnar setja sér sjálfar.    FM957 gefur sig út fyrir að verasvokölluð „topp 20“-stöð en spilar aðeins brot af þeim lögum sem eru vinsælust hér. Þar átta menn sig ekki á því að á Íslandi er Mugison „mainstream“ en Craig David „öndergránd“. Að minnsta kosti hvað sölutölur varðar. X-ið gefur sig út fyrir að þjóna rokkurum landsins, sem er auðvit- að tímaskekkja. Í dag eru það að- eins þröngir hópar fólks er loka á aðrar tónlistarstefnur bara vegna þess að þeir fíla rokk. Vilji þessar stöðvar lifa verða þær að brjóta ramma sína og taka þátt í uppbygg- ingu íslenskrar tónlistar.    Í Frakklandi er útvarpsstöðvumskylt, samkvæmt lögum, að spila a.m.k. 40% af innlendri tónlist á háannatíma, enda er franski markaðurinn í blóma. Væri svo gal- in hugmynd að taka þetta upp hér? biggi@mbl.is Eru útvarpsstöðvar úr takt við fólkið? AF LISTUM Birgir Örn Steinarsson » Það sannast í þeirristaðreynd að engin útvarpsstöð er spilar íslenska tónlist í minnihluta nær yfir 11% í hlustun. Beyonce Á vinsælasta lagið á FM957 sem þó selst ekkert úti í búð. Sími 564 0000 Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Madagascar er ein vinsælasta teiknimynd allra tíma! Quantum of Solace kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Zack & Miri make a porno kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára Igor m/íslensku tali kl. 3:45 LEYFÐ www.laugarasbio.is Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum 500 kr. Sýnd kl. 4 ísl. tal ATH. SÝND MEÐ ÍSLEN SKUT ALI SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND SEM KEMUR ÞÉR Í JÓLASKAP - S.V., MBL 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI KLUKKAN TIFAR OG ÞEGAR HÚN STÖÐVAST ER TÍMA OKKAR Á JÖRÐINNI LOKIÐ! EKKERT GETUR UNDIRBÚIÐ ÞIG FYRIR HEIMSFRUMSÝNG Á MAGNAÐRI STÓRMYND Í ANDA INDEPENDENCE DAY BYGGÐ Á EINUM BESTA VÍSINDATRYLLI ALLRA TÍMA! SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI M.A. BESTI LEIKSTJÓRI OG BESTA HANDRIT 5 EDDUVERÐLAUN! -DÓRI DNA, DV-S.M.E., MANNLÍF EMPIRE- S.V., MBL SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI RENÉ ZELLWEGER JEREMY IRONS VIGGO MORTENSEN ED HARRIS Aðeins 500 kr. SÝND Í SMÁRABÍÓI The day the earth stood still kl. 5:40 - 8 - 10:20 DIGITAL B.i. 12 ára The day the earth stood still kl. 5:40 - 8 - 10:20 DIGITAL LÚXUS Four Christmases kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára FORSÝND UM HELGINA ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA! LEIKURINN HELDUR ÁFRAM... SVAKALEGUR SPENNUTRYLLIR SEM GEFUR FYRSTU MYNDINNI EKKERT EFTIR Sýnd kl. 8 og 10 „ AFÞREYING ÞEIM SEM HAFA UNUN AF DULÚÐ FRAMTÍÐAR OG FLOTTUM BRELLUM“ - S.V., MBL -bara lúxus Sími 553 2075 Sýnd kl. 6, 8 og 10 HÖRKUSPENNANDI MYND ÚR SMIÐJU LUC BESSON ÞEIR HAFA RÆNT DÓTTUR HANS HANN MUN ELTA ÞÁ UPPI. HANN MUN FINNA ÞÁ OG HANN MUN DREPA ÞÁ. ,,ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND” -VJV -TOPP5.IS/FBL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.