Morgunblaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 18
HRÁOLÍUVERÐ hélt áfram að lækka í gær og endaði tunnan í 38,64 dollurum. „Það er engin eftirspurn eftir olíu núna,“ segir Peter Beutel hjá Cameron Hanover. Verð á hrá- olíu hefur ekki verið lægra í fjögur ár, eða síðan í júlí 2004. Miklar uppsagnir í bandarísku at- vinnulífi hafa haft í för með sér minni orkuþörf og þar með minni eftirspurn eftir olíu. JP Morgan breytti í gær spá sinni um olíuverð á næsta ári úr 69 dollurum í 43 dollara og sagði skýringuna vera „hnignun á mörkuðum og minni eftirspurn eftir olíu á heimsvísu“. Olíuverð hefur lækkað um 73 prósent síðan í júlí á þessu ári. Samtök olíuframleiðslu- ríkja, OPEC, tilkynntu fyrr í vikunni að þau hygðust draga úr olíufram- leiðslu um tvær milljónir tunna á dag frá og með næstu áramótum, úr rúmlega 27 milljónum tunna í rúm- lega 25 milljónir. Aðgerðir OPEC um að örva eftirspurnina virðast því hafa brugðist. „OPEC er hreinlega aflvana í augnablikinu,“ segir Jim Ritterbusch, forseti Ritterbusch and Association, sem er ráðgjafarfyrir- tæki á sviði hráolíuviðskipta. thorbjorn@mbl.is Olíuverð ekki lægra í fjögur ár Reuters Borpallur Minni orkuþörf þýðir minni eftirspurn eftir olíu. Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is EKKERT annað ríki með þróaðan fjármálamarkað er með jafnháa stýrivexti og Ísland, en hér eru þeir 18% en verðbólgan er 17,1% samkvæmt nýjustu mælingum og því eru raunvextir 0,9%. Gylfi Zoëga, prófsessor hag- fræði, segir að þessir stýrivextir séu réttlætanlegir í ljósi þess hversu gríðarlega skuldsett þjóðin er í formi gengistryggðra lána. Hliðaraðgerð fyrir gengið „Mjög mörg fyrirtæki eru tæknilega gjaldþrota og það er verið að reyna með áætlun Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins að koma krónunni á flot með ákveðnum tak- mörkunum. Krónan má ekki verða of lág því þá rjúka skuldir fyr- irtækjanna upp úr öllu valdi. Háir stýrivextir eru hliðaraðgerð til þess að koma á stöðugleika á gjaldeyrismarkaði,“ segir Gylfi. Hann tekur sem dæmi að Banda- ríkjamenn þurfi ekki á háum stýri- vöxtum að halda því þeirra skuldir séu í dollurum, en stýrivextir í Bandaríkjunum eru aðeins 0,25% og verðbólga mun minni en hér á landi. „Við höfum komið okkur í ógöngur með skuldasöfnun í er- lendri mynt,“ segir Gylfi. Gylfi Magnússon, dósent í hag- fræði, bendir á að raunvextir séu aðeins 0,9%. „Við getum varla ver- ið með lægri stýrivexti. Það er allt útlit fyrir að vextirnir lækki mjög hratt ef gengið nær einhverri fót- festu því núna er eiginlega öll verðbólga á Íslandi innflutt vegna falls krónunnar,“ segir Gylfi. Hann segir að búast megi við að það dragi hratt úr verðbólgu þegar krónan styrkist. Krónubréfin stórt vandamál „Eitt af stóru vandamálunum sem við stöndum frammi fyrir er að það er gríðarlega mikið fé í krónum sem erlend fyrirtæki eiga á Íslandi, sem er fast hérna vegna gjaldeyrishafta. Með því að hafa raunvextina ekki neikvæða er ver- ið að auka líkurnar á því að það fé fari ekki allt úr landi við fyrsta tækifæri,“ segir Gylfi Magnússon. Geta réttlætt háa stýrivexti Okkar vextir meðal þeirra hæstu í heimi Í HNOTSKURN »Áður en Seðlabankinnhækkaði stýrivexti í 18% lækkaði hann þá úr 15 niður í 12. Nafnarnir Gylfi og Gylfi segja þá ákvörðun óskiljan- lega. » Í Svíþjóð eru stýrivextir2% en Svíar eru ekki jafn skuldsettir og við í erlendri mynt og þar er verðbólga ekki jafnmikil. »Seðlabankinn ætti aðlækka stýrivextina um leið og verðbólgan minnkar og stöðugleiki myndast á gjald- eyrismarkaði. 18 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008 Þetta helst ... ● Flest félögin í Kauphöllinni lækkuðu í gær. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,8% og var lokagildi hennar 362 stig. Mest lækkun varð á hlutabréfum Bakkavar- ar, eða 15,6%. Eitt félag hækkaði, Ice- landair, um 0,4%. Mest viðskipti voru með hlutabréf Straums eða fyrir um 48 milljarða króna. Heildarviðskipti námu um 14 milljörðum króna. Þar af voru viðskipti með hlutabréf um 129 milljónir. Hlutabréfavísitölur í helstu kauphöllum Evrópu ýmist hækkuðu eða lækkuðu lítillega í gær. Lækkun í Kauphöllinni ● Gengi krónunnar lækkaði í gær og gengisvísitalan stóð í 217,50 stigum við lokun. Krónan veiktist því um 4,7%. Bandaríkjadollar kostar núna 119,74 kr. og evra 170,82 kr. „Það eru mjög lítil viðskipti og því þarf mjög lítið til að hreyfa við genginu,“ segir Ingólfur Ben- der, forstöðumaður greiningar Glitnis. Ingólfur segir að ástæða veikingar geti verið aukin gjaldeyrisviðskipti vegna nýrra reglna sem komu út í vikunni og rýmkuðu heimildir til gjaldeyris- viðskipta. Skýringar á veikingu gætu jafnframt hugsanlega falist í ein- stökum viðskiptum, enda markaðurinn mjög grunnur. thorbjorn@mbl.is Krónan lækkar og evra kostar núna 171 kr. ● Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sektað Icelandair Group um eina milljón króna vegna brota á lögum um verð- bréfaviðskipti. FME komst að þeirri niðurstöðu að félagið hefði brotið gegn lögunum með því að tilkynna ekki innan lögmæltra tímamarka tvenn við- skipti fruminnherja með bréf í félaginu. Lögum samkvæmt þarf útgefandi verð- bréfa að tilkynna samdægurs til FME þegar fruminnherji hefur tilkynnt honum um viðskipti með bréf hans. thorbjorn@mbl.is Fjármálaeftirlitið sektar Icelandair Group Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is FLÓKIN endurskipulagning á fjár- hagslegri uppbyggingu Milestone er á lokastigi. Guðmundur Ólason, for- stjóri félagsins, segir ótímabært að úttala sig um stöðu mála þar sem ekki sé enn búið að klára samninga við alla kröfuhafa. Markmiðið sé að tryggja áframhaldandi rekstur fyr- irtækja félagsins, sem að stærstum hluta séu háð eftirlitsskyldu trygg- inga- og fjármálafyrirtækja. Allar eignir séu lágt verðmetnar í dag í kjölfar alþjóðlegs hruns á mörkuð- um. Því fari hagsmunir félagsins og kröfuhafa saman ef beðið er með sölu eigna. Guðmundur segir að ekki standi til að afskrifa nein lán heldur skapa rými til að ná verðmætum upp í kröf- urnar. Hann er bjartsýnn á að það takist enda standi grunnrekstur fé- laga innan samstæðunnar almennt vel. Skuldar yfir 100 milljarða Skuldir Milestone nálgast nú að vera 115 milljarðar króna á meðan verðmæti eigna er um 60 milljarðar króna samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Stór hluti eigna og skulda er í erlendri mynt. Í samningaviðræðum við lánveit- endur er lagt til að þeir breyti 30% af kröfu sinni í lán. Hluti af láninu verð- ur víkjandi. Þessi aðgerð styrkir efnahag félagsins. Fyrir afganginn af kröfunni, eða 70%, fær lánveitandi rétt til að eignast hlutabréf í Mile- stone. Glitnir er stærsti kröfuhafinn. Tæknilega er hægt að segja að sá hluti lánsins sé afskrifaður. Ef eignir félagsins hækka hins vegar geta kröfuhafar nýtt áunninn rétt til kaupa á hlutabréfum. Þannig geta þeir fengið andvirði lánsins greitt aftur í ákveðnum hlutföllum við verðmætaaukningu eigna. Sem dæmi eru eignir Milestone nú metnar á 60 milljarða króna. Í byrj- un þessa árs voru eignirnar metnar á yfir 160 milljarða króna. Endur- heimtuhlutfall kröfuhafa nálgast það að vera 100% ef eignirnar eru metn- ar á 130 milljarða króna samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Núverandi eigendur þynnast út Núverandi eigendur Milestone, bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir, munu einnig njóta þess ef vel gengur. Þeir munu fá 13% af hlutafé félagsins og eiga endur- kauparétt á 27% til viðbótar af Glitni. Samanlagt geta þeir eignast 40% af útgefnu hlutafé. Hins vegar fá lánveitendur for- gang til allra útgreiðslna úr félaginu þangað til skuldin við þá er að fullu bætt. Bræðurnir geta heldur ekki innleyst neinn hagnað af hlutabréfa- eign sinni fyrr en búið er að uppfylla skilmála við kröfuhafa. Með þessum aðgerðum er talið að gætt sé að hagsmunum kröfuhafa, 650 starfsmanna og tveggja milljóna viðskiptavina félaga sem starfa und- ir hatti Milestone. Komið er í veg fyrir nauðungarsölu á eignum og kröfur um styrkan efnahag eignar- haldsfélaga fjármálafyrirtækja upp- fylltar. Fjármálaeftirlitið í Svíþjóð hefur ekki sett sig upp á móti þessu fyr- irkomulagi. Ekki stendur til að afskrifa lán Milestone Kröfuhöfum boðið að breyta kröfum sínum í lán og hlutabréf Í HNOTSKURN »Fyrirtæki í eigu Mile-stone sem eru með starf- semi á Íslandi eru m.a. Sjóvá, Askar, Lyf og heilsa og Avant. »Meginstarfsemin er rekinfrá Svíþjóð undir hatti Moderna Finance. » 90% af eignum félagsinseru eftirlitsskyld trygg- inga- og fjármálafyrirtæki. ÞEGAR FS7, félag Finns Ingólfs- sonar, keypti fjórðungshlut í Langflugi í desember 2006 tók það einnig á sig ábyrgð á fjórðungi skulda Langflugs, sem voru um fimm milljarðar króna. „Rétt er, sem kom fram í grein í Morgunblaðinu í gær, að FS7 greiddi einn milljarð fyrir hlutinn, en þegar tekið er tillit til skulda Langflugs fær FS7 sinn óbeina hlut í Icelandair á sama gengi og aðrir kaupendur,“ segir Finnur. „Þegar ég sel svo hlut FS7 í ágúst 2007 er söluhagnaðurinn því tæpar 400 milljónir, en ekki einn og hálfur milljarður, eins og látið er liggja að í greininni.“ Seldi FS7 7,9% hlut sinn á geng- inu 32 og var söluverðið því 2,53 milljarðar króna. „Söluhagnaðurinn var meðal annars notaður til að auka hlut FS7 í Langflugi og á FS7 nú tvo þriðju í félaginu og Gift einn þriðja. Hefur það haft þau áhrif að tapsáhætta Giftar hefur minnk- að, en tapsáhætta FS7 hefur auk- ist frá því sem var,“ segir Finnur. bjarni@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Hagnaður 400 milljónir                                                       !!        !!"#$%$ &' ()* + ),!)'-./  0  )$%$ &' 1&'2) . ! $  34 *$&,&$5&$6$7 87$ 9  :&$        * *))$ ; * *)3 *$  &,3< )! !) =$ ; ! > $8)  !  " # ? *&$;&,) &, +%$ ) +,')68  $ %&  '                            @)6!)'*) .)  )9 6A ! .B 1&'   CD E CE   F GH FHE 5 F D  5 D F   G CH 5 5 5 H GEG 5  D  5 5 GIE DICC IG IDE GID 5 CIG 5 DIDC FCID CI HI FI DGI 5 I 5 5 I DIE I IG GIGC 5 CIF 5 DIDE FEI CI HDI 5 DI DI I I IF 8# ) ")6!)'* 5 C F G  5 H 5 E  5  5 E 5  5 5 . * ) . ")6! " $6 C D DE E D DE E D DE E D DE E D DE 5 E D DE G  DE E D DE E D DE C  DE E D DE   DE E D DE D  DE E D DE DE  DE   DE    ● Vextir á millibankamarkaði í Lund- únum, svokallaðir LIBOR-vextir, hafa lækkað verulega á undanförnum mán- uðum í helstu myntum. Þessi þróun er jákvæð fyrir íslensk fyrirtæki og heimili þar sem vaxtabyrði af erlendum lánum lækkar. Frá október hafa þriggja mán- aða LIBOR-vextir í dollar lækkað úr 7% í ríflega 2%, að því er segir í morg- unkorni Glitnis. thorbjorn@mbl.is Lækkun vaxta á milli- bankamarkaði jákvæð ● Fjármálaeftirlitið hefur sektað Mosaic Fashions um eina milljón króna fyrir að tilkynna ekki um við- skipti fruminnherja með bréf í félaginu innan lögmæltra tímamarka. Um var að ræða sölu 15 fruminnherja og fjárhagslega tengdra aðila á hlutum í Mosaic á meðan tilboðstímabil vegna yfirtökutilboðs Tessera Holding ehf. í félagið stóð yfir frá 9. júlí til 7. ágúst 2007, en ekki var tilkynnt um við- skiptin fyrr en 10. og 14. ágúst sama ár. thorbjorn@mbl.is Fjármálaeftirlitið sektar Mosaic Fashions ● Fullyrt er að söluferli Kaupþings í Svíþjóð sé á lokastigi og líklegast sé að Ålandsbanken á Álandseyjum kaupi reksturinn. Viðskiptavefurinn Affärs- världen.se hefur þetta eftir heimildum. Meðal hluthafa í Ålandsbanken er Ingv- ar Kamprad, stofnandi IKEA, sem á 1% hlut en stærstu hluthafar eru útgerð- armenn og kaupsýslumenn á Álands- eyjum. Áætlað markaðsvirði samein- aðra banka er 130 milljónir evra. Ålandsbanken að kaupa Kaupþing í Svíþjóð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.