Morgunblaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
–meira fyrir heilsuna
Morgunblaðið gefur
út glæsilegt sérblað um
laugardaginn 3. janúar 2009
heilsu og lífsstíl
Fáðu þér áskrift að Morgunblaðinu
á mbl.is/askrift
Allar nánari upplýsingar
veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða
kata@mbl.is
Tekið er við auglýs-
ingapöntunum til
kl. 16 föstudaginn
19. desember 2008.
Meðal efnis í blaðinu verður:
Hreyfing og líkamsrækt
Hvað þarf að hafa í
ræktina
Vinsælar æfingar fyrir
eldra fólk
Heilsusamlegar
uppskriftir
Andleg vellíðan
Bætt heilsa á viku
– góð ráð
Ráð næringarráðgjafa
Umfjöllun um fitness
Jurtir og heilsa
Meðferð gegn offitu
Fasta – kostir og ókostir
Mikilvægi þess að fara
í krabbameinsskoðun
Skaðsemi reykinga
Ásamt fullt af
fróðleiksmolum og
spennandi viðtölum
Þetta er tíminn til að huga að heilsu sinni og lífs-
stíl og taka nýja stefnu.
Í þessu blaði verða kynntir fjölmargir möguleikar
sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak
og bættan lífsstíl í byrjun ársins 2009.
FR
Á
AU
GL
ÝS
IN
GA
DE
ILD
M
OR
GU
NB
LA
ÐS
IN
S
Á TÍMUM hverfulleika og óvissu er
ómetanlegt að ganga að einhverju
vísu; gildum sem standa af sér hrun-
gjarnan veruleikann þar sem hald-
laus hálmstrá daglegs lífs hafa slitnað
upp hvert af öðru. Þannig urðu þessir
glæsilegu tónleikar til að opna augu
mín fyrir því hvílíkt akkeri slíkir tón-
leikar eru í stórsjónum sem eyðir svo
miklu af þeirri undirstöðu sem við
höfum talið svo trygga okkar lífs-
afkomu. Þær raddir sem heyrast um
að draga eigi úr útgjöldum við starf-
semi eins og hér er til umræðu eru
holar, og raunar hljóma þær í mínum
eyrum eins og hvatning um að borða
útsæðið en bíða ekki eftir uppsker-
unni. Uppskeran var sannarlega
bæði rífleg og bragðgóð á þessum
tónleikum. Einleikur Vilhjálms Sig-
urðssonar í trompetkonsert Haydns
var glæsilegur; öryggi hans, mýkt í
tóni og falleg hendingamótun eins og
best verður á kosið. Jóhann Smári er
tvímælalaust einn okkar besti bassa-
einsöngvari og í aríu Wagners „O, Du
mein holder Abendstern“ var söngur
hans stórbrotinn og hrífandi. Dísella
er með sérstaka rödd, sem er eng-
iltær og ljóðræn. Í Pie Jesu eftir
Fauré og Ave Maríu Kaldalóns naut
maður fullkomlega hrífandi flutnings
og tindrandi raddar hennar. Jóhann
Smári var með sína stóru rödd full-
sterkur í dúettunum, sem var sér-
staklega áberandi í Hvítum jólum.
Kvennakór Akureyrar söng bæði vel
og líflega. Hann frumflutti með SN
tvö lagleg jólalög eftir stjórnanda
sinn, Jaan Alavere, af stakri prýði.
Tvær útsetningar Ríkarðs Arnar
Pálssonar á lögum Ingibjargar Þor-
bergs voru einnig frumfluttar og lík-
uðu mér þær vel, sérstaklega Þrett-
ándasöngur.
Frammistaða hljómsveitar var yf-
irleitt góð, raddsóló sellóa í Pie Jesu
hrífandi. Stöku sinnum var bassa-
styrkur fullmikill á móti veikum
söng. Guðmundur Óli stjórnaði af ör-
yggi og næmi. Öll var framkvæmd
Íþróttafélagsins Þórs við fram-
kvæmd tónleikanna og kynning til
fyrirmyndar, en grænar greinar í sal-
inn og meira af jólaljósum hefði ekki
sakað.
Sinfónía Norðurlands slær
hörpu hátíðar og gleði
Jón Hlöðver Áskelsson
TÓNLIST
Íþróttahús Glerárskóla
á Akureyri
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands leikur
tónlist eftir Fauré, Felix Bernard, Gunnar
Þórðarson, Haydn, Händel, Ingibjörgu
Þorbergs, Irving Berlin, Jaan Alavere, Jón
Sigurðsson, Kirkpatrick, Leroy And-
erson, Jórunni Viðar, Richard Wagner og
Sigvalda Kaldalóns. Hljómsveitarútsetn-
ingar eftir Guðmund Óla, Hróðmar Sig-
urbjörnsson, Jaan Alavere og Ólaf Gauk.
Flytjendur: Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands. Kvennakór Akureyrar, stjórnandi
Jaan Alavere. Einsöngvarar: Dísella Lár-
usdóttir, sópran, og Jóhann Smári Sæv-
arsson, bassi. Einleikari á trompet: Vil-
hjálmur Sigurðsson. Kynnir: Pétur
Guðjónsson. Konsertmeistari: Greta
Guðnadóttir. Hljómsveitarstjóri: Guð-
mundur Óli Guðmundsson. Laugardaginn
6.12. kl. 18:00.
JÓLASÖNGVAR Kórs Langholts-
kirkju fara fram í þrítugasta skipti
um helgina, en fyrstu jólasöngvar-
nir voru sungnir í kirkjunni 1978 og
voru þá nýmæli hérlendis.
Einsöngvarar að þessu sinni eru
þau Bragi Bergþórsson tenór, Ei-
vør Pálsdóttir og Ólöf Kolbrún
Harðardóttir. Einnig syngja kór-
félagarnir Andri Björn Róbertsson,
Oddur Arnþór Jónsson, Guðrún
Matthildur Sigurbergsdóttir og
Kristín Einarsdóttir Mäntylä ein-
söng.
Flutt verða jólalög, hátíðleg og
með léttri sveiflu. Áheyrendur geta
svo tekið virkan þátt í almennum
söng. Í hléi er boðið upp á rjúkandi
jólasúkkulaði og piparkökur.
Jólasöngvarnir fara fram í kvöld
kl. 23, laugardagskvöld kl. 20 og
23, og sunnudagskvöld kl. 20.
Jólasöngvar
í þrjátíu ár
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Jólagleði Söngkonan Eivør Pálsdóttir kemur fram með kór Langholts-
kirkju á jólatónleikunum í annað sinn nú um helgina.