Morgunblaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
KAUPHÖLL Íslands hefur áminnt
gamla Kaupþing banka opinberlega
fyrir að hafa ekki tilkynnt til kaup-
hallarinnar þá ákvörðun stjórnar að
fella niður persónulegar ábyrgðir
lykilstarfsmanna vegna lána sem
þeir höfðu fengið til kaupa á hluta-
bréfum í bankanum. Er bankinn tal-
inn hafa gerst brotlegur við ákvæði
reglna fyrir útgefendur fjármála-
gerninga í kauphöllinni.
Frétt um þessa ákvörðun stjórnar
bankans birtist í Morgunblaðinu og á
mbl.is 4. nóvember sl. og í kjölfarið
krafði kauphöllin bankann um skýr-
ingar. Hafði stjórn bankans þá sent
frá sér yfirlýsingu þar sem kom m.a.
fram að vegna fallandi hlutabréfa-
verðs og aukins fjármagnskostnaðar
hefði það verið mat stjórnarinnar að
um tvær leiðir hefði verið að velja.
Annaðhvort myndu starfsmenn
selja hlutabréf sín eða bankinn felldi
niður það sem eftir stæði af ábyrgð
starfsmanna á lánunum. Mat stjórn-
in það svo að hefðu lykilstarfsmenn
hafið stórfellda sölu á hlutabréfum
Kaupþings hefði það í ljósi viðkvæms
ástands á fjármálamörkuðum skaðað
mjög stöðu bankans.
Óvenjulegir viðskiptahættir
Í áminningu kauphallar segir m.a.
að niðurfelling ábyrgðar hafi falið í
sér ívilnun bankans til handa ná-
tengdum aðilum. Verði ekki annað
ráðið en að starfsmenn Kaupþings
hafi upprunalega verið persónulega
ábyrgir fyrir lánum sínum. Ekki
verði séð að það teljist til venjulegra
viðskiptahátta að fella niður per-
sónulegar ábyrgðir einstaklinga
vegna lána. Kaupþingi hafi borið að
birta þessar upplýsingar í kauphöll-
inni.
Áminnir Kaupþing
Kauphöllin áminnir gamla Kaupþing banka fyrir að tilkynna ekki opinberlega um
niðurfellingu ábyrgðar á lánum starfsmanna til kaupa á hlutabréfum í bankanum
Í HNOTSKURN
»Stjórn Kaupþings bankaákvað á fundi sínum 25.
september sl. að fella niður
persónulegar ábyrgðir starfs-
manna vegna lána til hluta-
bréfakaupa.
»Frá þessu var greint íMorgunblaðinu 4. nóv-
ember og vísar kauphöllin til
þess í ákvörðun sinni.
» Í kjölfarið óskaði kaup-höllin eftir skýringum frá
bankanum, af hverju ákvörð-
unin var ekki tilkynnt.
Morgunblaðið/Golli
Áminning Kauphöllin hefur áminnt
Kaupþing banka opinberlega.
ÞAÐ ER í mörg horn að líta á flestum heimilum
áður en jólin ganga í garð. Jólagjafakaup, korta-
skrif, bakstur og jólahreingerningin eru meðal
þeirra fjölmörgu verkefna sem tilheyra þessum
árstíma.
Jólaferð í miðbæinn er líka á lista margra. Þó
ekki sé nema til að virða fyrir sér tindrandi ljós
og vel skreytta búðarglugga á meðan kuldaboli
bítur kinn.
Ljósadýrð sem lífgar upp á skammdegið
Morgunblaðið́/RAX
HÁTT í fjögur hundruð manns fengu í gær úthlutað í sér-
stakri jólaúthlutun sem er samstarfsverkefni Mæðra-
styrksnefndar, Hjálparstarfs kirkjunnar og Reykjavík-
urdeildar Rauða kross Íslands sem staðið hefur alla
þessa viku. Samkvæmt upplýsingum frá Ragnhildi G.
Guðmundsdóttur, formanni stjórnar Mæðrastyrks-
nefndar, eru aðeins tvær jólaúthlutanir eftir, en þær
verða á morgun milli kl. 10 og 16 og nk. mánudag milli kl.
11 og 14 í Borgartúni 25. Aðspurð segir hún að verið sé að
úthluta mat, gjafakortum, leikföngum, nýjum jólabókum
handa börnum og ýmsum smávörum.
Að sögn Ragnhildar hafa þeir sem sækja um jólaút-
hlutun skipt hundruðum á hverjum degi alla þessa viku.
Segir hún nokkuð um það að fólk sem ekki hafi skráð sig
fyrirfram mæti og sækist eftir aðstoð. Spurð hvort félög-
in þrjú eigi nóg af mat og öðrum þeim vörum sem verið sé
að úthluta svarar Ragnhildur því játandi og tekur fram
að engum sé vísað frá og að enginn þurfi að fara tómhent-
ur frá úthlutun. Félögin þrjú hafa sl. ár átt með sér sam-
starf um jólaúthlutun. Á vef Hjálparstarfs kirkjunnar má
sjá að um jólin 2007 voru afgreiddar alls 1.597 umsóknir
um aðstoð, en um jólin 2006 voru þær 1.647. silja@mbl.is
Hundruð mæta í hverja
jólaúthlutun þessa daga
Morgunblaðið/Golli
Matarúthlutun Frá vikulegri matarúthlutun Mæðra-
styrksnefndar fyrr í desembermánuði.
ÚTLIT er fyrir rauðan aðfangadag
jóla á vestanverðu landinu með roki
og rigningu. Hitastig gæti verið á
bilinu 5-8 stig á höfuðborgarsvæðinu
á aðfangadag og jafnvel enn hærra á
Norðurlandi. Útlit er fyrir að veður
breytist á jóladag, þá kólni og gangi
á með éljum vestanlands.
Þorsteinn Jónsson veðurfræð-
ingur sagði í gær, að veður myndi
væntanlega breytast til suðlægra
átta á mánudag og yrði nokkuð
hvasst fyrri hluta næstu viku. Gera
mætti ráð fyrir að hlýtt yrði í veðri
fram á jóladag. Snjó myndi trúlega
taka upp í næstu viku.
Á heimasíðu Veðurstofunnar, ved-
ur.is, er að finna margvíslegar upp-
lýsingar um veðrið á jóladag á liðn-
um áratugum. Þar kemur fram að
frá árinu 1921 teljast 35 jóladagar á
þessu 86 ára tímabili alhvítir í
Reykjavík. Miðað er við kl. 9 að
morgni og getur snjóinn hafa tekið
upp síðdegis í einhverjum tilvikum.
aij@mbl.is
Rauður
aðfanga-
dagur
Jól Það hríðaði í Reykjavík í gær en hætt
er við að jólin verði rauðleit.
Kólnar vestanlands
á jóladag með éljum
EGGERT Magnússon hefur stefnt
Björgólfi Guðmundssyni og knatt-
spyrnufélaginu West Ham fyrir
samningsbrot og krefst einnar millj-
ónar evra og 100 þúsund punda, ríf-
lega 200 milljóna kr. á gengi Seðla-
banka Íslands, vegna vanefnda á
starfslokasamningi. Málið var þing-
fest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Sjón-
varps og staðfesti Sigurður G. Guð-
jónsson, lögmaður Eggerts, fréttina í
gærkvöldi.
Eggert tók við starfi stjórnarfor-
manns West Ham haustið 2006, eftir
að Björgólfur keypti meirihluta í fé-
laginu. Björgólfur leysti Eggert frá
störfum síðla árs 2007 og gerði við
hann starfslokasamning. Samkvæmt
honum keypti Björgólfur hlut Egg-
erts í West Ham, sem Eggert átti í
gegnum hlutafélag í Lúxemborg. Þá
var samið um að félagið myndi greiða
Eggerti laun í þrjá mánuði frá upp-
sögn. Samkvæmt stefnu málsins
skuldbatt Björgólfur sig og félagið
jafnframt til að greiða Eggerti eina
milljón evra og 200 þús. pund í tveim-
ur jöfnum greiðslum, en þær
greiðslur hafa ekki borist, fyrir utan
100 þús. pund sem Björgólfur greiddi
Eggerti úr eigin vasa í febrúar sl.
Eggert
Magnússon
B jörgólfur
Guðmundsson
Krefst 200
milljóna frá
Björgólfi
HÆSTIRÉTTUR hefur ómerkt
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar
sem karlmaður á fimmtugsaldri var
dæmdur í 8 mánaða fangelsi fyrir al-
varlega líkamsárás á þáverandi sam-
býliskonu sína. Í málinu var
spænskumælandi vitni yfirheyrt og
var þá fenginn til starfa túlkur sem
ekki hafði löggildingu til að gegna
því starfi.
Einnig bætti annað vitni við upp-
lýsingum, eftir að dómurinn í hér-
aðsdómi var kveðinn upp, og taldi
Hæstiréttur ekki útilokað að þau at-
riði hefðu haft áhrif á málið. Mað-
urinn var ákærður fyrir að hafa ráð-
ist á konuna inni á baðherbergi með
þeim afleiðingum að hún hlaut ýmsa
áverka. Hann neitaði sök og sagðist
hafa verið að verjast konunni. Senni-
lega hefði hún meiðst við að ganga
viljandi á dyrastaf.
Dómurinn
ómerktur