Morgunblaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008 FJÁRHAGSÁÆTLUN Hafnar- fjarðarbæjar fyrir árið 2009 var tekin til fyrri umræðu í gær. Sam- kvæmt henni á að ná fram hagræð- ingu og sparnaði í rekstri, stjórn- sýslu og framkvæmdum án þess að skerða grunnþjónustu og velferð- armál. Almenn þjónustugjöld hald- ast óbreytt og vatnsskattur lækkar úr 13% í 0,1%. Til að mæta lækkun á fasteignamati fjölbýlishúsnæðis um 5% verður nýtt heimild til há- marksálagningar útsvars í 13,28%. Jafnframt er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A-hluta verði jákvæð um nær 87 milljónir kr. á árinu 2009. Í tilkynningu frá bæn- um kemur fram að rekstrarniður- staðan verði jákvæð um rúmar 2.341 milljónir kr. samkvæmt út- komuspá fyrir árið 2008, m.a. vegna 6 milljarða söluhagnaðar af hlutabréfum í Hitaveitu Suður- nesja hf. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins í Hafnarfirði telja fjár- hagsáætlunina vera ómark þar sem 6 milljarða kr. hagnaður af sölu hlutabréfa í HS sé færður inn í reikninga bæjarins og þannig sé vísvitandi verið að fegra reikninga bæjarins. Einnig gagnrýna þeir að bæjarfulltúar Samfylkingar og Vinstri grænna hafi samþykkt að hækka útsvarið í 13,28% áður en frumvarp sem heimili slíka hækkun sé orðið að lögum á Alþingi. Laun æðstu stjórnenda lækka Bæjarstjórn Mosfellsbæjar sam- þykkti fyrr í vikunni fjárhagsáætl- un fyrir árið 2009. Samkvæmt henni á að hagræða í rekstri bæj- arins til að mæta lægri tekjum sem og hækkun kostnaðar og launa svo að komast megi hjá því að hækka gjaldskrár vegna þjónustu. Gert er ráð fyrir að niðurgreiðslur til for- eldra hækki, gjaldskrár fyrir leik- og grunnskóla haldist óbreyttar og að laun æðstu stjórnenda bæjarins og bæjarfulltrúa lækki. Útsvar- sprósenta verður 13,03%. Borgarráð Reykjavíkur sam- þykkti á fundi sínum í gær að fresta afgreiðslu fjárhagsáætlunar borgarinnar fyrir næsta ár, en síð- ari umræða og afgreiðsla áætlunar- innar fer fram á fundi borgar- stjórnar 6. janúar 2009. Hagræða til að standa vörð um þjónustuna Í HNOTSKURN »Í Mosfellsbæ hækkar út-svar úr 12,94% í 13,03% á næsta ári. »Ráðgert er að útsvarhækki upp í 13,28% í Hafn- arfirði. FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is ÁKÆRA á hendur Jóni Ásgeiri Jóhann- essyni, Kristínu Jóhannesdóttur systur hans, Tryggva Jónssyni, Baugi Group og fjárfestingarfélaginu Gaumi fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum á árunum 1998 til 2002 var birt í gær. Málið verður þingfest 20. janúar. Jón Ásgeir og Kristín eru ásamt foreldrum sínum eigendur Gaums sem er aðaleigandi Baugs. Ákær- an er í fimm köflum sem sumir hverjir skiptast niður í nokkra liði. Mun fleiri höfðu haft stöðu sakbornings við rann- sókn málsins. Meðal þeirra eru Stefán Hilmarsson, Jóhannes Jónsson, Ingibjörg Pálmadóttir og Óskar Magnússon. Eigin skattskil Jóns og Tryggva Fyrsti kafli ákærunnar snýr að meint- um brotum Jóns Ásgeirs vegna eigin skattskila hans. Þar kemur fram að hann er talinn hafa komið sér undan því að greiða tæpar 15 milljónir í opinberum gjöldum á árunum 1999 til 2003. Auk þess er hann sagður hafa komið sér undan greiðslu á fjármagnstekjuskatti fyrir 14,9 milljónir króna. Meðal þeirra greiðslna sem Jóni Ás- geiri er gefið að hafa vantalið fram eru tekjur vegna greiðslu Baugs á iðgjaldi af líftryggingu hans, söluhagnaðar vegna sölu á bréfum í Baugi, greiðslur vegna fjögurra milljóna króna bónusgreiðslu til hans frá Baugi á árinu 2000 og bifreiða- hlunninda vegna afnota hans á Jeep Grand Cherokee-bifreið. Tryggvi Jónsson er ákærður í öðrum kafla vegna eigin skattaskila. Þar er hann sagður hafa vantalið tekjur sínar á árun- um 1999 til 2003 og komið sér þannig und- an greiðslu á tekjuskatti, útsvari og sér- sökum tekjuskatti að fjárhæð 13,3 milljónir króna. Í ákærunni kemur fram að hann hafi ekki talið það til tekna sinna að Baugur greiddi iðgjald af líftryggingu hans, sleppt því að telja fram tekjur vegna nýtingar á kauprétti á hlutabréfum í Baugi og ekki talið fram fimm milljóna króna bónusgreiðslu frá Baugi. Í þriðja kafla er fjallað um meint brot í rekstri Baugs á árunum 1998 til 2002. Þar eru Jón Ásgeir og Tryggvi ákærðir vegna stöðu sinnar sem framkvæmdastjórar Baugs á tímabilinu. Jóni Ásgeiri og Baugi Group er gefið að sök að hafa „látið undir höfuð leggjast“ að standa skil á stað- greiðslu opinberra gjalda vegna launa- greiðslna, afhendingar á bifreið og hús- gögnum auk greiðslna félagsins á líftryggingariðgjaldi í þágu Jóns Ásgeirs og stjórnenda og starfsmanna þess fyrir um 10,7 milljónir króna. Í öðrum lið eru Tryggvi og Baugur Group sagðir hafa vangreitt 3,2 milljónir króna í opinber gjöld vegna launagreiðslna, og greiðslna félagsins á líftryggingariðgjöldum Tryggva og annarra starfsmanna félags- ins. Kafli fjögur snýr að brotum sem talið er að framin hafi verið í rekstri fjárfest- ingarfélagins Gaums og skiptist í fjóra liði. Í fyrsta lið er Jón Ásgeir ákærður fyr- ir störf sín sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður í Gaumi á árinu 1999, en félagið á þá ekki að hafa staðið skil á stað- greiðslu að upphæð 308.305 krónur. Krist- ín systir hans tók við sem framkvæmda- stjóri hjá Gaumi í lok ágúst 1999 og er ákærð fyrir þau brot sem talið er að fram- in hafi verið eftir þann tíma. Kristín er meðal annars sögð hafa sleppt því að greiða um 27,5 milljónir króna í opinber gjöld á árunum 1999 til 2002. Komu Gaumi undan tekjuskatti Þriðji liður snýr einnig að Kristínu og þar er henni gefið að sök að hafa vantalið til tekna söluhagnað af viðskiptum Gaums með hlutabréf í Baugi á árinu 2000 fyrir 916 þúsund krónur. Auk þess er henni gefið að sök að hafa oftalið 15,7 milljónir króna sem gjöld. Kristín og Gaumur eru líka ákærð í fjórða og síðasta lið þessa kafla fyrir að hafa oftalið til gjalda nið- urfærslu hlutabréfa í sænska félaginu NRG Pizza AB um 75 milljónir króna. Með því var tap félagsins ofmetið um sömu fjárhæð en slíkt tap er yfirfæranlegt til síðari ára og getur þá nýst til lækkunar á greiðslu á tekjum sem eru skattskyldar. Fimmti og síðasti kaflinn snýst um brot framin í rekstri Gaums ehf. og þar eru systkinin Jón Ásgeir og Kristín ákærð saman vegna starfa sinna sem fram- kvæmdastjórar félagsins fyrir að hafa komið félaginu undan greiðslu rúmlega 200 milljóna króna tekjuskatts. Skatt- greiðslurnar eru sagðar vera vegna 775 milljóna söluhagnaðar sem Gaumur fékk þegar Bónus sameinaðist Hagkaup árið 1998. Með þessu er þeim gefið að hafa komið Gaumi undan því að greiða rúm- lega 200 milljónir í tekjuskatt. Ákært fyrir skattsvik Baugs  Jón Ásgeir Jóhannesson, Kristín Jóhannesdóttir og Tryggvi Jónsson ákærð fyrir meiri háttar skatta- lagabrot  Þriðji hluti Baugsmálsins hafinn  Þorri þeirra sem lá undir grun var ekki ákærður Í HNOTSKURN » Skattrannsóknarstjóri hófrannsókn á bókhaldi og skatt- skilum Baugs í nóvember 2003. » Baugur fékk síðan afhentaendurálagningu frá ríkisskatt- stjóra fyrir árin 1998 til 2002 hinn 31. desember 2004. »Baugur greiddi 142 milljónirkróna í janúar 2005 vegna þessa, en ríkisskattstjóra var síðan gert að endurgreiða félaginu 75 milljónir króna í mars síðast- liðnum vegna oftekinna opinberra gjalda. Morgunblaðið/RAX Taka þrjú Jón Ásgeir, Tryggvi og Kristín koma nú fyrir dóm í þriðja sinn. JÓN Ásgeir Jóhannesson, stjórnar- formaður Baugs í Bretlandi, er ósátt- ur við þá ákvörðun setts ríkislög- reglustjóra að ákæra hann fyrir brot á skattalögum. Hann bendir á að þessi rannsókn sé enn einn anginn af Baugsmálinu og nú sé ákært í þriðja sinn. Meginreglan ís- lenska réttarkerfisins sé að gefa út aðeins eina ákæru í sama máli. Nú eigi að fara á eftir honum og fleiri einu sinni enn með það að markmiði að koma á hann höggi. Það komi sér illa núna þegar hann vinni að því að tryggja áframhald- andi rekstur Baugs og bjarga verðmætum félagsins. „Það lítur út fyrir að ekki sé sama hver á í hlut þegar gefin er út ákæra,“ segir Jón Ásgeir. Þeir sem sakaðir voru um að skulda meiri skatta en hann og komu að mál- um sem hann er ákærður fyrir sleppi. Það sýni að mála- tilbúnaðurinn stjórnist af geðþótta ákæruvalds. Hann segist þegar hafa gert upp sínar meintu skuldir við ríkisskattstjóra. Samkvæmt úrskurði yfirskatta- nefndar, frá síðasta sumri, hefði hann meira að segja feng- ið endurgreitt vegna oftekinna skatta. Þessi endurálagn- ing sé nú til meðferðar í réttarkefinu. Ef taka eigi mark á dómi sem féll í máli Jóns Ólafssonar sé hann búinn að taka út sína refsingu. „Ólíkt sumum öðrum athafnamönnum hef ég alltaf borg- að mína skatta og staðið við skyldur mínar á Íslandi. Það má meðal annars sjá með því að taka saman þær skatt- greiðslur sem ég hef innt af hendi síðustu árin,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson. bjorgvin@mbl.is Ekki sama hver á í hlut Ákæran kom á óvart TRYGGVI Jónsson segir að ný skatta- ákæra í Baugsmálinu hafi ekkert með það að gera að hann hafi ákveðið að segja upp störfum hjá Landsbank- anum í gær. „Ég vissi ekki af ákær- unni fyrr en hálffjögur í dag [gær] og hún kom mér mjög á óvart,“ segir Tryggvi. „Ég er hreinlega gáttaður.“ Hann hafi talið fram sjálfur 2002 og skattrannsóknarstjóri ekki talið ástæðu til að senda framtalið hvorki til lögreglu né yfirskattanefndar til sektarmeðferðar. „Ég sendi framtalið því sjálfur til yfirskattanefndar og fékk endurgreiðslu að hluta.“ Aðalástæður uppsagnarinnar hafi verið þrjár. „Mér fannst ég ekki geta boðið samstarfsfólki mínu hjá Lands- bankanum upp á þetta umhverfi og vildi auk þess hafa meira svigrúm til að tjá mig um málið án þess að þurfa að taka tillit til atvinnurekandans. Þýðingarmesta ástæðan er þó fjölskyldan, sérstaklega yngsta dóttir mín sem þetta hef- ur komið harkalega niður á. Hún var farin að svara blogg- færslum án þess að ég vissi af og reyna að bera vörn fyrir föður sinn og þá fannst mér nóg komið.“ annaei@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.