Morgunblaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008 „ALDREI er neitt annað í sjónvarpinu en þetta sem heitir kreppa,“ skrifar ungur drengur í Rimaskóla um hvernig hann upplifir að vera barn á Íslandi í dag. „Mér líður vel á Íslandi,“ skrifar ung stúlka af sama tilefni. Í haust hófst verkefni á veg- um umboðsmanns barna sem heitir: „Hvernig er að vera barn á Íslandi?“ Er tilgangur þess að gefa börnum tækifæri til að láta raddir sínar heyrast. Rimaskóli er meðal grunnskóla sem taka þátt í verkefninu og hafa nemendur í 2. og 5. bekk skól- ans sent umboðsmanni barna tæplega 130 myndskreytt kort. Af þeim má ráða að fjölskyldubönd og vinátta skipta börnin miklu máli. Í gær var opið hús og börn úr Austurbæjarskóla fluttu frumsamin ljóð og skoðuðu kortin. sunna@mbl.is Hvernig er að vera barn á Íslandi? Morgunblaðið/RAX Fjölskyldubönd og vinátta skipta börnin mestu máli Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is Á BILINU 30-40 manns mótmæltu fyrir utan Fjármálaeftirlitið og í útibúi Glitnis við Suðurlandsbraut laust fyrir hádegið í gær. Dyr FME voru læstar þegar fólkið bar að garði, seint á ellefta tímanum, og enginn kom til dyra. Mótmælin mögnuðust fljótlega upp, rúður í útidyrunum voru brotnar og fólkið fór inn í fordyri. Þar voru rúður í innri dyrum brotnar en fólkið fór ekki lengra inn. Á þessum tíma- punkti voru átta lögreglumenn mættir á svæðið. Þeir hringdu eftir aðstoð og fljótlega var mjög mikið lögreglulið mætt. Lögreglumaður sem rætt var við fyrir utan útibú Glitnis sagðist ekki hafa tölu á þeim lögreglumönnum sem voru sendir á svæðið. Þeir gripu þó aldrei inn í með beinum hætti, enginn var handtekinn og mótmælin voru ekki stöðvuð með valdi. Stjórnin segi af sér Hópurinn sendi frá sér yfirlýs- ingu í gær. „Fjármálaeftirlitið hef- ur brugðist þeirri skyldu sinni að veita viðskiptalífinu aðhald og eft- irlit. Sú vanræksla er ein af ástæð- völdin,“ eru skilaboð hans til ráða- manna. Starfsmenn Glitnis lokuðu ekki fyrir þjónustu meðan á mót- mælunum stóð. Mótmælendur lásu upp úr bæklingum Glitnis um fram- færslulán og fjármálaráðgjöf og sungu lög á borð við „Hver stal kök- unni úr krúsinni í gær?“ við kaffivélina í útibúi Glitnis. „Það eru breyttar forsendur frá síðustu kosningum og það er ekki þeirra hlutverk, sem sáu um stefnumótun síðustu ára, að ráða því hverjar þær breytingar verða.“ Hann segir ómögulegt að ráða- menn bendi hver á annan þegar spurt er um ábyrgð. „Það er enginn einn sem stendur út úr, þetta er ykkur öllum að kenna. Segið af ykkur og leyfið fólkinu að taka um þess að þúsundir Íslendinga sjá fram á atvinnuleysi, eignamissi og jafnvel gjaldþrot. Almenningur stendur varnarlaus gegn afglöpum fjármálaeftirlitsins en stjórnar- menn sitja þó sem fastast í hálauna- stöðum sínum, staðráðnir í að firra sig ábyrgð.“ Krafan var sú að stjórn FME segði af sér. Einn mótmælendanna, Guðjón Heiðar Valgarðsson, sagði breyt- inga þörf í samtali við blaðamann, Morgunblaðið/Júlíus Skemmdir Að sögn talsmanna voru rúður brotnar vegna þess að enginn kom til dyra. Ekki þýði að læsa dyrunum á mótmælendur, þá banki þeir bara fastar. Ekki sættast þó allir á að mótmælaaðgerðir af þessu tagi skili árangri. „Varnarlaus gegn afglöpum FME“ Brutu rúður í and- dyrinu hjá Fjár- málaeftirlitinu Áframhaldandi mótmæli mbl.is | Sjónvarp JAFET Ólafsson, fyrrum fram- kvæmdastjóri VBS fjárfesting- arbanka, segir ásakanir um trúnaðarbrest al- rangar en ákæra gegn honum var þingfest í gær. Óskiljanlegt sé að Fjármálaeftirlitið telji sig hafa brot- ið trúnað með því að afhenda Sigurði G. Guðjónssyni, framkvæmdastjóra Fjárfestingarfélagsins Grettis, hljóðupptöku af samtali sínu og Geirs Zoëga 2006. „Það mynduðust tengsl milli kaupenda og seljenda sem er óvenjulegt í slíku máli. Þessir aðilar ræddu saman og því taldi ég mig ekki vera að brjóta neinn trún- að. Ég afhenti honum þau sem lög- manni, til skýringar á því hvernig mál hefðu þróast.“ „Alrangar ásakanir“ Jafet Ólafsson Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is FÓLKI sem lokið hefur BS- eða BA-gráðu í öðrum greinum en hjúkrunarfræði er boðið að hefja nám í hjúkrunarfræði til BS-prófs í hjúkrunarfræðideild HÍ á vormiss- eri 2009. Fyrra nám umsækjenda verður metið svo þessir nemendur ættu flestir að geta lokið hjúkrunar- fræðináminu á skemmri tíma en þeir sem aldrei áður hafa setið í há- skóla. Þessi nýi námskostur var auglýst- ur í nóvember sl. á heimasíðu hjúkr- unarfræðideildar og háskólans með fyrirvara um samþykki Háskóla- ráðs. Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs HÍ, sagði að í fyrradag hefði náðst samkomulag um að ekki þyrfti að bera málið und- ir Háskólaráð. Áhugasamir umsækj- endur eiga því að geta skráð sig til námsins hjá nemendaskrá háskól- ans. Sigurður taldi að margir sem eiga háskólanám að baki ættu að geta lokið hjúkrunarfræðináminu á tveimur og hálfu ári að meðaltali. Það verði þó alltaf einstaklings- bundið og muni m.a. ráðast af menntun og bakgrunni hvers og eins. „Þeir sem hafa áhuga á þessu námi ættu bara að drífa sig í að skrá sig,“ sagði Sigurður. Ákveðið var í haust að bjóða þessa námsleið til að bregðast við auknu atvinnuleysi. Fólk sem hefur misst vinnuna getur farið þarna í nýtt nám án þess að þurfa að byrja frá grunni. Samkvæmt auglýsingunni um námið er miðað við að lágmarksfjöldi nem- enda verði 20 og 40 að hámarki. Mikið atvinnuöryggi „Við fögnum því að hægt verði að fara þessa leið,“ sagði Sóley S. Ben- der, deildarforseti hjúkrunarfræði- deildar. Hún sagði að í gegnum tíð- ina hefðu margir komið til náms í hjúkrunarfræði með aðra háskóla- menntun að baki. Þetta væri því í sjálfu sér ekki óvanalegt. „Nú standa margir á tímamótum. Þarna gefst fólki kostur á að mennta sig á sviði þar sem atvinnuöryggi hefur verið til staðar. Það hefur ver- ið næga vinnu að fá í hjúkrunar- fræði. Fyrst þessi leið hefur opnast þurfum við að skoða þá sem hafa sýnt þessu áhuga og opna fyrir skráningu þeirra.“ Ný leið að BS-námi í hjúkrunarfræði við HÍ Sigurður Guðmundsson Sóley S. Bender Skipholt 50c www.salka.is • Flott á skrifborðinu • Smart í veskinu • Sæt á náttborðinu SKAPANDIOGHVETJANDI í annríki dagsins! Konur eiga orðið er einstök dagatalsbók með mynd- skreyttum hugleiðingum. Konur, þetta er bókin okkar! SKÍÐASVÆÐIÐ í Bláfjöllum verð- ur opið í dag og um helgina. Búið er að opna svæðið í kringum Kóngs- gilið. Enn vantar hins vegar upp á snjóalög til að opna allt svæðið. Árskortasala hefur líka farið vel af stað að sögn Einars Bjarnasonar, rekstrarstjóra Bláfjalla. Landinn virðist því staðráðinn í að skemmta sér heima fyrir á skíðum í vetur. Skíðafæri komið í Bláfjöll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.