Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1975, Blaðsíða 14
3. Meðhöndlun (terapi).
4. Fræðslustarfsemi. (Fundir með aðstandendum, leiðbein-
ingar fyrir starfsfólk stofnana).
5. Rannsóknarstörf.
Hverjum þessara liða er skipt niður í marga undirliði.
Sérmenntað aðstoðarfólk (tandpleijere, hygenists) getur að
miklu leyti annazt fræðslustarfsemina og eins það að kenna
liinum vangefnu hreinlæti. Þessa kennslu þarf sífellt að endur-
taka. Aðstoðarfólk þetta mætti á íslenzku nefna tanntækna.
Embætti tannlæknis þarf að vera vel launað, þannig að
tannlæknir fáist til að gera þetta að ævistarfi. Laun tann-
læknis hjá Ándssvageforsorgen í Danmörku námu á sl. ári
d. kr. 159.558,00 Er þetta 15% hærra en laun tannlækna er
starfa við tanviðgerðir skólabarna Er tekið tillit til þess, að
starfið er talið mjög erfitt.
Meðlimum Tannlæknafélags Islands er óheimilt að sækja
um eða inna af liendi störf nema með kjörum, sem félagið sam-
þykkir.
AÐSTAÐA TTL TANNLÆKNINGA
Lagt er til, að aðstaða til tannlækninga verði á eftirtöldum
stöðum:
1. Reykjavík.
2. Kópavogi.
3. Skálatúni.
4. Sólborg, Akureyri.
5. Sólheimum, Grímsnesi.
6. Egilsstöðum.
Sett verði upp tannlæknastofa í Reykjavík, lielzt í nágrenni
dagheimilanna að Lyngási og Bjarkarási I upphafi skal gert
ráð fyrir fullkominni starfsaðstöðu fyrir tvo tannlækna og einn
tanntæknki. Góð skilyrði skuklu vera til svæfinga.
Á þessari tannlæknastofu skulu meðhöndlaðir vistmenn dag-
heimilanna tveggja og aðrir, sem vangefnir teljast, en eru
hvorki á dagheimili né fávitastofnun. Þarna skulu meðhöndluð
12