Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1975, Blaðsíða 29
TANNLÆKNADEILD
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Fréttir aff
byggingar-
málum
Eftir prófessor
Þórð Eydal Magnússon
deildarforseta Tannlæknadeildar
Háskóla íslands.
Ánægjulegt og skylt er mér að verða við þeim tilmælum
ritstjóra Árbókar TFÍ, Svend Riehters, að segja helztu fréttir
af byggingarmálum Tannlæknadeildar Háskóla Islands, sein
nií. eru betri en nokkru sinni fyrr. Fastlega má gera ráð fyrir
að hafist verði handa við undirbúning byggingarlóðarinnar í
byrjun næsta árs, en sjálfa bygginguna á komandi vori.
Ilelztu ástæður fyrir bjartsýni minni eru þessar.:
a. Borgaryfirvöld hafa unnið sleitulaust frá síðastliðnu vori
að endurskipulagningu umferðaræða og bygginga í grennd
við Landspítalann. Fullt samráð hefur jafnframt verið haft
við yfirstjórn mannvirkjagerðar á Landspítalalóð og em-
bætti Húsameistara ríkisins, sem sér um hönnun bygginga á
lóðinni. Flugmálayfirvöld, Skipulagsstjórn ríkisins og aðrir
þeir aðilar, sem hagsmuna eiga að gæta á áðurnefndu svæði
og í grennd þess, hafa einnig tekið þátt í endurskipulagn-
ingunni og komist að sameiginlegri lausn, sem telja má víst
að verði endanlega samþykkt nú á næstunni.
b. Bygginganefndarteikningar munu verða tilbúnar eftir tvær
til þrjár vikur, af húsi Tannlækna- og læknadeildar, sem nú
sökum nýrrar staðsetningar verður 5 hæðir auk kjallara.
27