Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1975, Page 27

Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1975, Page 27
gengu kringum neðri kjálkann og splintið sjálft. Efri kjálka splintið var fest meS vírum, sem þræddir voru krin'gum fremsta hlutann á arcus zygomaticus og inn í munn beggja vegna ájaxlasvæðinu. Auk þess var gat borað fyrir vír, sem var þræddur gegnum spina nasalis anterior, vírinn síðan tengd- ur lykkju á framtannasvæði splintsins. Síðari hluti aðgerðarinnar var beinaðgerð á ramus ascend- ens báðum megin. Incision var gerð í regio submandibularis. Musculus masseter og beinhimnan var losuð frá ramus upp að incisura mandibulae. Síðan var skorið með rafmagnssög frá incisura niður og aftur og beinskurðurinn endaður rétt aftan við angulus mandibulae. Aftari hlutinn, með processus can- dylaris, var síðan losaður upp og færður til hliðar við frara- hluta kjálkans. Þegar þessu stigi var lokið á báðum hliðum, var auðvelt að flytja allan framhluta kjálkans (með processus coronideus) aftur um 10 mm (Mynd 7a og 7 b). Skurðsárin voru nú saumuð saman. Þá var mandibula komin á þann stað, sem henni var ætlaður og ekki annað eftir en að læsa saman efri og neðri kjálka með vírum milli splintanna í munninum. Sjúklingnum vegnaði vel eftir skurðaðgerðina og var send- ur heim eftir 6 daga. Efri og neðri kjálka var haldið víruðum saman í 8 vikur, en þá var bein á öllum stöðurn vel gróið og splintin því fjarlægð (Mynd 8). Sjúklingurinn var ánægður með árangurinn, enda var útlit hans allt gjörbreytt (Mynd9). 25

x

Árbók Tannlæknafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Tannlæknafélags Íslands
https://timarit.is/publication/739

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.