Árdís - 01.01.1955, Side 20

Árdís - 01.01.1955, Side 20
18 ÁRDÍ S Helen Keller sjötíu og fimm ára Eftir INGIBJÖRGU J. ÓLAFSSON Á þessu sumri verður Helen Keller sjötíu og fimm ára gömul. Hennar merkilega ævisaga er flestum að nokkru leyti kunnug. Hún var fædd 27. júní 1880 í Tuscombo, Alabama. Hún var hraust barn þar til hún var nítján mánaða að hún veiktist hættulega. í þeim veikindum misti hún bæði sjón og heyrn. Hin fyrstu ár ævi sinnar var hún tápmikil en að heita mátti óviðráðanlegt barn, mállaus, sjónlaus og heyrnarlaus. Þegar hún var 7 ára kom Anna Sullivan, kennarinn mikli, til sögunnar, hinn góði engill sem aldrei skildi við Helenu í meir en 40 ár; sem var henni sjón og heyrn um leið og hún var kennarinn hennar. Frá fyrsta fundi þeirra skýrir Helen þannig: „Ég man vel eftir fyrsta samfundi okkar, ég fann að einhver var að nálgast mig og rétti út hendina, ég hélt það væri móðir mín. Þá var mér lyft upp og ég var umvafin af örmum hennar, sem kom til að færa mér nýtt líf og opinbera mér alla hluti.“ Það er of löng saga að skrifa hér hvernig Anne Sullivan tókst að opna nýjan heim og kenna þessu stórgáfaða barni, sem setið hafði í þögulu myrkri hin fyrstu ár ævinnar. Það var eins og einhver undrakraftur kæmi til hennar, þegar myrkrið var rofið og hún kyntist þessum undraheim, sem hún gat þó ekki séð með líkamlegri sjón. Eftir eigin sögusögn reyndist Helen erfiðast að læra að tala. Þó tókst það með hjálp Anne Sullivan og Söru Fuller, sem hafði reynslu í að kenna hinum heyrnarlausu að tala. Mentabrautin var ekki eins torsótt og búast hefði mátt við — af einni tröppu á aðra komst Helen unz hún útskrifaðist af Radcliffe College með heiðursviðurkenningu. Hún talar 7 tungu- mál, hefir skrifað fjölda ritgerða og margar bækur. Hafa bækur hennar verið þýddar á meir en 50 tungumál. Ýmsar þjóðir hafa veitt henni nafnbætur og heiðursviðurkenningu. Helen er sérlega dugleg og kjarkmikil að ferðast, hvert heldur sem er með lestum, skipi eða á flugfari. Alls hefur hún heimsótt
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.