Árdís - 01.01.1955, Side 52

Árdís - 01.01.1955, Side 52
50 ÁRDÍ S sér að útvega enda voru félagskonur þá staðráðnar í því að hjálpa söfnuðinum að koma upp kirkju. Tók þá Geysir Community Club við Geysir Hall, en kvenfélagið hafði þó umráð yfir kaffihúsinu og þar að auki nokkur hlunnindi viðvíkjandi salnum. En máltækið segir, „lengi lifir í gömlum glæðum“ og byggingaráhugi kven- félagsins var aldrei með öllu brunninn út, því 1945 stofnaði það byggingarsjóð og bætti við hann árlega. Frá 1948, þegar Geysir- búar byrjuðu að byggja þetta samkomuhús, sem við erum nú í — Geysir Community Co-operative Hall — til ársloka 1954 hefir kven- félagið gefið því fyrirtæki $1,858.40. Þetta ár hefir það ekki lagt því neitt til, þar sem það er orðið „sjálfstætt ríki“. Eitt af áhugamálum kvenfélagsins er kirkja safnaðarins og hefur það reynt að styrkja hana eftir mætti. Kirkja Geysissafnaðar var byggð 1928 og á árunum 1928 til 1930 gaf kvenfélagið í bygg- ingarsjóð kirkjunnar $1,247,60, að meðtöldu því sem kvenfélags- konur borguðu fyrir bekki í kirkjuna, prédikunarstól og stóla fyrir söngflokk. Síðan hafa þær gefið altaristæki, sálmabækur og gólf- teppi; einnig létu þær mála kirkjuna að utan, og við vonumst til þess að geta látið mála hana að innan þetta árið. í minningu og til heiðurs drengjum bygðarinnar, sem þjónuðu í heimsstyrjöldun- um gáfu þær ljósageymir fyrir kirkjuna. Ákveðið gjald er borgað til safnaðarins árlega og hann styrktur fjárhagslega, þegar brýn þörf gerist. Árið 1930 gerðist félagið meðlimur Bandalags lúterskra kvenna og hefur það reynt að styrkja þann félagsskap eftir mætti. Þó að félagskonur hafi lagt drjúgan skerf til kirkju og til sam- komuhúss bygðarinar er langt frá því að þær hafi vanrækt líknar- starfsemi innan bygðar og utan. Árlega hafa þær reynt að hjálpa þeim, sem hafa orðið fyrir veikindum eða öðrum erfiðleikum. Síðan 1920 hefir kvenfélagið Freyja gefið til einstaklinga fé, sem nemur alls $2,341,40. Ýmsar utanbygðarstofnanir og fyrirtæki hafa einnig notið styrks frá kvenfélaginu, sem frá 1925 nemur alls $1,270.00. Má þar nefna Red Cross, Arborg Memorial Hospital, Betel, Sunrise Camp, Kinsmen’s Club, Russian Relief Fund og Save the Children’s Fund. Á stríðsárunum reyndu félagskonur að senda „böggla“ til bygðardrengja, sem voru á vígvelli. Þessi síðustu ár hafa þær sent jólaglaðning til gamalmenna og sjúkra. Um líknarstarfsemi kvenfélagsins frá 1916—1925 hef ég engar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.