Árdís - 01.01.1955, Page 50

Árdís - 01.01.1955, Page 50
48 ÁRDÍ S Það er ekki ætlun mín að fara að rekja sögu bygðarinnar — hef víst nóg með sögu Freyju — en mig langaði aðeins til að sýna fram á það að konur þær, sem stofnuðu kvenfélagið voru allar landnáms- konur. Heimiliskringumstæður þeirra voru erfiðar, húsin litlir bjálkakofar umkringdir af dimmum skóg, börnin ung, og fjárhagur- inn þröngur. En þrátt fyrir alla örðugleika og strit kom brátt í ljós kröfur um félagsleg störf. Máske hefur einangrunin í frumskógi Nýja-íslands knúið þær til að víkka verkahringinn, hjálpa þeim, sem erfiðar kringumstæður virtust ætla að buga og í samfélagi með öðrum konum að starfa að velferðarmálum bygðarinnar. Um sumarið 1895 var Kvenfélagið Freyja stofnað; frumkvöðlar að því voru þær Ólína Erlendson og Jóhanna Sveinson. Tilgangur félags- ins var talinn að vera: „Að efla eining og félagsskap kvenna í bygðinni". Stofnendur voru fjórtán að tölu og voru: Sigríður Hafliðason, Þórunn Borgfjörð, Guðrún Borgfjörð, Þórey Oddleifson Ólína Erlendson, Jóhanna Sveinson, Guðlaug Einarson, Þórlaug Jóhannesson, Jónanna Halldórsson, Jónína Gunnarsson, Þóranna Einarson, Sigríður Friðriksson, Lilja Thor- steinsson og Guðrún Skúlason. Var Ólína forseti félagsins í fjölda mörg ár og Guðrún féhirðir í sextán ár. Nú eru á lífi aðeins tvær af þessum stofnkonum — þær Þórunn Borgfjörð og Guðrún Borgfjörð. Okkur er það mikil ánægja og heiður að hafa Guðrúnu með okkur hér í dag. Hið nýstofnaða félag var nefnt Freyja eftir blaði Margrétar Benedictsonar. Það blað var hið fyrsta íslenzka kvennablað vestan hafs. Er sagt að Margrét hafi verið forseti á fyrstu samkomu félagsins og þá þakkað þann heiður, sem blaði hennar var sýndur. Fundir voru haldnir á heimilunum til skiptis og voru vel sóttir. Konur komu gangandi þrjá, fjórar mílur, og jafnvel sex og sjö mílur eftir lítt færum götum, sem lykkjuðust gegn um kargaskóg og forarfen. Ef ekki var hægt að skilja yngsta barnið eftir heima, þá bar móðirin það í fanginu eða á bakinu. Til að létta byrðina þá smokkuðu þær léreftsstykki eða sjali undir aðra höndina á sér og bundu það svo yfir hina öxlina, svo lá eða sat barnið í þessari „vöggu“. Verst var þó þegar mývargurinn var upp á sitt allra „bezta“, þá varð móðurinni stundum á að slá hríslunni, sem hún varði sig með of langt aftur fyrir sig og bættist þá barnaóp við flugnasönginn. En enginn kvartaði um þreytu né erfiði, og alltaf
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.