Árdís - 01.01.1963, Side 39

Árdís - 01.01.1963, Side 39
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna 37 Gömul saga HRUND SKÚLASON Á ströndinni stendur stórt autt hús, þögult og eimnanalegt. Þegar litið er til vesturs, mætir auganu mórautt en spegilslétt vatnið. Út við sjóndeildarhringinn mótar fyrir skógvaxinni strönd- inni hinumegin, og til norðurs má líta litla skógaða eyju. Til suð- urs og norðurs sjást til beggja handa aðeins fáeinir faðmar af strandlengjunni, malar-barði, þar sem ekkert vex nema íllgresi og smá toppar af pílviði og berjalyngi, en svo sést ekkert nema veggur af þykkum espi skógi, sem umkringir allt, og lokar öllu útsýni nema himinblámanum, sem í góðviðri endurspeglast í vatninu. f dag á draumur gamla hússins að rætast. Stóru stofurnar eiga ekki lengur að standa auðar. Líf á ennþá einusinni að hrærast þar innan veggja, því í dag flytur nýji presturinn og fjölskylda hans þangað inn. * * * Einn morgun í maí var uppi fótur og fit á stóra heimilinu. Skeyti hafði komið þess efnis að fjölskyldan, sem fara ætlaði til Ameríku, yrði að vera komin á skip snemma næsta morgun. Fjöl- skyldan saman stóð af tveim konum, móðir og ömmu og fjórum börnum á aldrinum frá tólf til sex ára. Átti þessi hópur nú að ferðast til annarar heimsálfu, þar sem faðirinn beið með óþreyju komu þeirra. Seinnipart dags var lagt á stað. Búið var að kveðja vini og vandamenn, og raða aleigunni á einn sleða. Tveir frændur voru íararstjórar. Það var komið kalsa veður, og ófærð var mikil. Ferðin gekk stórslysalaust. Fullorðna fólkið gekk með sleðan- um, og eldri börnin til skiftis, til að létta á þar sem ófærðin var mest. Um háttatíma var numið staðar á heimili vina. Voru við- tökur góðar og hresstist hópurinn mikið, en svo var lagt á stað út í kuldann og myrkrið, og haldið áfram alla nóttina. Loks var kominn morgun, og þreytta ferðafólkið komið á áfangastaðinn, sem var lítið þorp á norðurströnd íslands. Risavaxnir drangar virtust rísa upp úr hafinu, sem þennan morgun var ekki fagurt á að líta. Dimmt var í lofti, og hvítfreiðandi öldurnar lömdu ströndina

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.