Árdís - 01.01.1963, Side 46

Árdís - 01.01.1963, Side 46
44 ÁRDIS fluttar ræður, lesin óskaskeyti, sungið og leikið á hljóðfæri. Börnin og barnabörnin tóku þátt með því að syngja einsöng, leika ein- spil og tvíspil á píanó, einspil og „tríó“ á fiðlu. Allir tóku þátt í því að syngja uppáhalds lög ömmu og afa, bæði á íslenzku og ensku. Að síðustu tók afi til máls, þakkaði öllum sem þátt höfðu tekið í veizlu þessari, og lét í ljósi ánægju sína yfir því að hug- sjónir þeirra hjónanna viðvíkjandi börnunum sínum og lærdómi þeirra á sviði hljómlistarinnar, hefðu birst í veruleika á skemmti- skrá dagsins“. „Þrúða, sem hlustað hafði með gaumgæfni, hrópaði, „Ó, ég vildi að ég hefði verið stödd í þessum veizlum! En segið mér eitt, hvað fenguð þið að borða?“ ,Sykur og sætindi og allt það sem bezt er“, sögðu þær báðar í einu, Una og Sigríður. „Við fengum rúllupylsu ofaná brúnt brauð, vínartertu, „rósettur“, „englaköku“, smákökur og allskonar sæl- gæti, og svo auðvitað brúðarköku með ísrjóma á eftir“. „Getið þið nú ekki talað um annað en mat?“ spurði ungur maður við hliðina á þeim. Jón, frændi Unu, hafði komið án þess að stúlkurnar tækju eftir honum. „Ó, láttu ekki svona! Mér sýnist að þú hafir ánægju af því að borða góðan mat, rétt eins og hver annar!“ svaraði Una. „Við vorum að segja Þrúðu frá gullbrúðkaupsveizlunum þeim í vor, en ég gleymdi að segja henni frá því, að þú hefðir verið forseti í veizlunni sem haldin var fyrir afa okkar og ömmu“. „Ja, hún veit það þá núna!“, svaraði Jón. „En ég var innilega glaður yfir því að gera þetta, og að geta sagt við ömmu og afa, að ég óskaði þess, að samverustundin þennan dag snerti hjörtu þeirra og lifði í minni þeirra í ljósaskiftum æfinnar, fyrir utan áhyggjur og þjáningar“. „En hvað þetta var fallega sagt!“ sagði Þrúða er hún leit að- dáunaraugum á Jón. „Afi og amma settu merkið hátt“, hélt Jón áfram. „Þau réttu börnum sínum blys í hendur, en nú tökum við barnabörnin við því, eftir því sem við þroskumst og öðlumst sjálfstæði. Nú er það upp til okkar að halda blysinu hátt, þangað til að kemur að því, að við látum það af hendi. Guð blessi afa og ömmu!“ „Lengi lifi amma og afi!“ sögðu Una og Sigríður í einu hljóði. I þessu vaknaði ég, reis upp, settist við skrifborðið og skrifaði það sem mig hafði dreymt.

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.