Morgunblaðið - 04.01.2009, Qupperneq 1
4. J A N Ú A R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
2. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Meiri þungi hefur færst í
umræður um mögulega
aðildarumsókn Íslendinga
að Evrópusambandinu. Í
tilefni af því hefur Morgun-
blaðið ráðist í viðamikla
fréttaskýringu, sem birtist næstu daga bæði í Morg-
unblaðinu og á mbl.is, þar sem leitast er við að draga
fram kosti og galla aðildar. Saga Evrópusambandsins
er rakin í fyrstu fréttaskýringunni, sem birt er í dag,
en þetta bandalag 27 lýðræðisríkja teygir sig frá
heitum öldum Miðjarðarhafsins til nyrstu sveita
Finnlands og á rætur í því hugmyndafræðilega upp-
gjöri í Evrópu sem átti sér stað í lok seinna stríðs.
KNATTSPYRNA »6 ÁTÖK Á GAZA »8 REKSTURINN AFEITRAÐUR »4
Glitnir hefur nú riðið á vaðið og gefið út verklagsreglur vegna
fyrirtækja í rekstrarvanda í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar frá því í byrjun desember. Fyrir liggur að 60-80% fyrir-
tækja í landinu eru tæknilega gjaldþrota og því er þörfin brýn.
Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðn-
aðarins, segist bjartsýnn á að það takist að halda fleiri fyrir-
tækjum gangandi og að verklagsreglur bankanna séu e.t.v. til
þess fallnar að stuðla að því.
Skiptar skoðanir eru um hvaða fyrirtækjum eigi að bjarga.
Eðli málsins samkvæmt gilda reglurnar ekki um stærstu
skuldunauta bankanna vegna smæðar efnahagsreiknings nýju
ríkisbankanna. Stærstu skuldirnar voru skildar eftir í gömlu bönkunum og fara
skilanefndir þeirra með þær. Gylfi Magnússon, dósent við HÍ, segir að ekki sé sann-
gjarnt að bjarga eignarhaldsfélögum með lánalengingum eða breytingu skulda í
eignarhluti. Eignarhaldsfélögin séu hluti af meinsemdum gamla hagkerfisins sem
gerðu það ógagnsætt og drógu úr samkeppni. thorbjorn@mbl.is
Eiga sér ennþá lífsvon
Gylfi Magnússon
Ísraelar virtust í gær búa sig undir
landhernað á Gaza en þegar hafa
vel á fimmta hundrað manns fallið
í loftárásum þeirra á svæðið. Gaza er
eitt af þéttbýlustu svæðum heims, þar
búa 1,5 milljónir manna á spildu sem er
á við fjórðung Reykjanesskagans. Sendi
Ísraelar, sem segjast staðráðnir í að
binda enda á flugskeytaárásir Hamas-
liða, skriðdreka inn í Gazaborg er óhjá-
kvæmilegt að mannfall aukist mjög.
Óbreyttir borgarar eru sem fyrr í skot-
línunni.
Skriðdrekarnir
rymja á ný
Liverpool, sigursæl-
asta félag enskrar
knattspyrnu,
hefur komið
sér vel fyrir
á toppi úrvalsdeild-
arinnar.
Skyldi fyrsti meist-
aratitillinn í nítján ár
vera í augsýn? Það er
alls ekki öruggt ef
marka má „jólatölfræðina“
góðu sem vel er haldið til
haga í Englandi.
Er biðin á enda
hjá Liverpool?
„ÞAÐ eru skrýtnir kumpánar, sem
þreytast ekki á að reyta af sér
mannorðið með því að safna að sér
peningum, sem þeir hafa ekkert með
að gera og eru mun betur komnir
annars staðar. Þetta eru menn, sem
kunna ekki með fé að fara, þótt sum-
ir hverjir mylgri annað veifið í nauð-
þurftamenn, vonandi af góðhug.
Engan á að skorta fé til nauðþurfta.
Það er blettur á hverju þjóðfélagi að
ala upp stétt, sem á ekki mat í munn
sér, sem lætur náungann mausa án
hjálpar. Glæpur gagnvart yngstu
kynslóðinni, sem á að erfa landið.“
Svo farast Kristmundi Bjarna-
syni, rithöfundi á Sjávarborg í
Skagafirði, orð. Hann hefur þó ekki
áhyggjur af kreppunni. „Nei, ég hef
engar áhyggjur. Hins vegar finnst
mér leiðinlegt til þess að vita, að
landar mínir skuli aðhyllast happa-
og glappa-aðferðir í stjórnsýslu.“
Kristmundur sendi frá sér ævi-
sögu Gríms Jónssonar, Amtmað-
urinn á einbúasetrinu, fyrir jólin.
Grímur amtmaður var uppi á fyrri
hluta 19. aldar. „Hélt þá íslenskur
bændalýður, að hann bæri af öðrum
sökum vits og þekkingar á fornum
fræðum norrænum, og Íslendingar
væru öllum þjóðum fremri, líklega í
hvívetna. Í þessu fólst í senn styrkur
alþýðu og veikleiki. Þeir áttuðu sig
snemma á því, að tungumálið var
meginstoð þjóðarvitundar þeirra og
þóttust af. Af þessu kann aftur að
hafa leitt ofdekur og hroki á annan
veginn, en tómlæti á hinn bóginn
gagnvart því, sem erlent var og
gagnlegt í verklegum efnum.“ | 20
Kunna
ekki með
fé að fara
Happa- og glappa-
aðferðir í stjórnsýslu
Blettur Engan á að skorta fé til
nauðþurfta, segir Kristmundur.
KOSTIR
OG GALLAR
AÐILDAR
AÐ ESB
MEÐ
[ ]TENGSLLára og ÞorfinnurÓmarsbörn[ ]Er Þorsteinn Páls-son langræknari enDavíð Oddsson?
KARL LAGERFELD
Í HÁLFA ÖLD SIGGA
HÖFÐI
HORN Á
SUNNUDAGUR