Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 47
Velvakandi 47 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞAÐ BESTA VIÐ AÐ VERA Í SVEITINNI ER ÖLL NÁTTÚRAN... HÚN ER ALLS STAÐAR! LÍKA UNDIR SKÓNUM ÞÍNUM FÓLK ER SVO SKRÍTIÐ MÉR FINNST ÞAÐ EKKERT ÞÆGILEGT MARGIR TALA UM ÞAÐ HVERSU ÞÆGILEGT ER AÐ SOFA Í RIGNINGU... ÞAU TALA UM ÞAÐ HVERSU ÞÆGILEGT ER AÐ LIGGJA OG HLUSTA Á DROPANA LENDA Á ÞAKINU... Á PLÁNETUNNI ZARK ER HÆGT AÐ SJÁ TÓMT, RAUTT GEIMFAR SEM ER Í EIGU GEIMKÖNNUÐARINS, SPIFF! Æ, NEI! Á KLETTUNUM SJÁST FÖR EFTIR GEISLABYSSUSKOT! Á ÞESSUM STAÐ HEFUR VERIÐ BARIST Á JÖRÐINNI SJÁST BARA SPOR EFTIR STÓRA GEIMVERU SEM YFIRGEFUR STAÐINN! HVAÐ HEFUR ORÐIÐ UM SPIFF?!? ÞETTA ER NIÐUR- LÆGJANDI! SLEPPTU MÉR! ÉG VIL EKKI FARA Í SKÓLANN! HRÓLFUR, FALDIR ÞÚ FLÖSKU AF ROMMI INNI Í SVEFNHERBERGI, Í KOMMÓÐUNNI, Í ÞRIÐJU SKÚFFU FRÁ HÆGRI, UNDIR FIMM BOLUM OG ÞREMUR SOKKUM? KANNSKI... HVERNIG LEIT HÚN ÚT? SJÁÐU ÞENNAN TURN, GRÍMUR! ÞESSI ÆVINTÝRASKÓGUR ER ALVEG ÓTRÚLEGUR! ÞAÐ SNJÓAR MEIRA AÐ SEGJA... OG ÞAÐ ER EKKI EINU SINNI KALT! GULLVEIG ER GREINILEGA MEÐ SVONA SLÆMA FLÖSU VIÐ ÆTTUM AÐ SEGJA GUNNA OG LÍSU AÐ ÞAU GETI EKKI KOMIÐ MEÐ OKKUR Á NEIL YOUNG TÓNLEIKANA VIÐ ÞEKKJUM ÞAU HVORT EÐ ER EKKI NEITT... VIÐ ÞURFUM EKKI AÐ FÓRNA MIKLU LÍSA? ADDA HÉRNA! HEYRÐU, VARÐANDI TÓNLEIKANA... ÞAÐ KOM UPP SMÁ VANDAMÁL KOMIST ÞIÐ EKKI? EN LEIÐINLEGT! VIÐ GETUM SAMT ENNÞÁ FENGIÐ MIÐANA, ER ÞAÐ EKKI? VERTU STERK ÞAÐ ER EKKI AUÐVELT AÐ VERA STJARNA MARY JANE PAKER! ÁTT ÞÚ HEIMA HÉR? JÁ, ER ÞAÐ EKKI ÁSTÆÐAN FYRIR ÖLLUM MYNDA- VÉLUNUM? NEI, ÞAÐ SÁ EINHVER KÓNGULÓAR- MANNINN HÉR UM DAGINN ! ÉG VERÐ AÐ FINNA HANN SVO ÉG GETI SANNFÆRT HANN UM AÐ ÉG ELSKI HANN Í RAUN OG VERU ÞÆR taka ekki augun af gómsætum brauðbitanum sem ein heppin gæs hefur náð sér í og eins gott að halda fast í hann þangað til komið er í öruggt skjól og hægt að borða í friði fyrir ágengninni. Morgunblaðið/Kristinn Baráttan við Tjörnina Hryðjuverk BREZKA stjórnin hefur sett á okkur hryðjuverkalög. Var ekki hernám Íslands vorið 1940 eitt alls- herjar hryðjuverk? Margt bendir til að svo hafi verið í raun. Fljótlega byrjuðu Bretar að gera flug- völl í Reykjavík, fólk var flæmt burtu úr húsum sínum og lentu margir í miklum vandræðum vegna þessa. Margir verka- menn unnu við flug- vallargerðina og hugðust gera verkfall í ársbyrjun 1941. Dreifðu þeir bréfi til hermanna þar sem þeir voru hvattir til þess að ganga ekki í störf Íslendinga ef til verk- falls kæmi. Herlögreglan handtók umsvifalaust þá sem voru að bera út bréfið og voru þeir settir í dýfl- issu á Kirkjusandi. Herstjórnin hafði tilfinningu fyrir því að Ís- lendingar væru Bretum andsnúnir og hygðu jafnvel á uppreisn og myndu jafnvel snúast á sveif með Þjóðverjum sem höfðu gert áætl- anir um að ná Íslandi haustið ’41. Dagana 10., 11. og 12. mars réðst kafbátur á fiskiskipin Reykjaborg, Pétursey og Fróða þar sem þau voru á siglingu milli Íslands og Bretlandseyja. Fórust í árásunum 28 Íslendingar. Við réttarhöld sem haldin voru í Reykjavík vegna þessara skiptapa kom fram að breski kafbáturinn Torbay N-79 hafði stöðvað togar- ann Geir hinn 16. mars 27 mílur út af Barra Head. Yfirmað- ur á bátnum skýrði togaramönnum frá því að daginn áður hefðu þeir sökkt vopnuðum þýskum togara sem var með íslenskan fána mál- aðan á síðuna. Torbay, hvað var hann að gera þarna? Kafbáturinn Torbay var afhentur flotanum í janúar 1941 og virð- ist hafa verið að æf- ingum úti á hafinu norðvestur af Bret- landi dagana 6.-20. mars. Hinn 22. mars lagði báturinn svo af stað suður í Miðjarðarhaf. Þar hófust mikil vígaferli og sökkti N-79 38 skipum á ellefu mánuðum. Helm- ingur þessara skipa var lítil fiski- og strandferðaskip sem unnu fyrir þýska hernámsliðið á Krít. Stýri- maðurinn á Torbay skrifaði bók um þessa herför. Þar er þessum árásum lýst og er lýsingin í sam- ræmi við framburð Íslendinga sem lifðu af árásirnar í mars. Skipun flotans var: Drepa allt kvikt, sökkva svo skipunum. Hvað er hryðjuverk? Gestur Gunnarsson tæknifræðingur, Flókagötu 8, Rvík.       Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Bólstaðarhlíð 43 | Kirkjuferð í Hóla- og Fellakirkju þriðjudaginn 6. janúar kl. 13.25. Uppl. og skráning í síma 535- 2760 fyrir kl. 16, mánudaginn 5. jan- úar. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansað í Ásgarði Stangarhyl 4, sunnu- dagskvöldkl. 20, Caprí-tríó leikur. Félagsheimilið Gjábakki | Kynning á fyrirhugaðri dagskrá í Gjábakka til vors verður mánudaginn 5. jan. kl.14. Allir eru hvattir til að kynna sér hvaða möguleikar eru í boði. Félagsstarf Gerðubergs | Starfsfólk sendir hugheilar nýárskveðjur til þátt- takenda, samstarfsaðila og velunnara um land allt, með þakklæti fyrir sam- starf, stuðning og ánægjulegar sam- verustundir á líðandi ári. Unnið er að endurskoðun dagskrár, ábendingar og hugmyndir óskast og þeim komið áleiðis til starfsfólks félagsstarfs. Korpúlfar, Grafarvogi | Ganga frá Eg- ilshöll alla mánudaga kl. 10, bútasaum- ur á Korpúlfsstöðum annan hvern mánudag kl. 13.30. Lífeyrisþegadeild Landssambands lögreglumanna | Munið fundinn í dag kl. 10 að Grettisgötu 89. Mætum hress á nýju ári. Vesturgata 7 | Nýtt glerbræðslu- námskeið hefst aftur þriðjudaginn 6. janúar ef næg þátttaka fæst. Upplýs- ingar og skráning í síma 535-2740. Leikfimi byrjar mán 5. jan., bútasaum- ur þriðjud. 6. jan., enska og tréskurður miðvikud. 7. jan., mánud. 12. jan., tölvukennsla og boccia, þriðjud. 13. jan., glerbræðsla,miðvikud. 14. jan., myndlist og fimmtud 15. jan., kóræfing. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Ögurkirkja í Ögurvík Ögur er stórbýli og kirkjustaður í Ögurvík, milli Skötufjarðar og Mjóafjarðar við Ísafjarðardjúp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.