Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 42
42 Minningar MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% Kristín Þorbjarnar- dóttir, eða amma Stína eins og hún var alltaf kölluð af okkur barna- börnunum, var klassakona í hefð- bundnum skilningi orðsins. Hún var alltaf vel til höfð, var einkar mynd- arleg á öllum sviðum og ákaflega vel að sér um hlutina. Ef maður hugsar um ömmu og hvaða góðu kostum ömmur þurfa að búa yfir þá bjó amma Stína sennilega yfir þeim öllum. Flestir tengjast þeir auðvitað mat og það var ósjaldan súkkulaðikaka á eldhúsborðinu þegar lítill krullhærður snáði kom í heim- sókn í Hvassaleitið. Það hitti alltaf Kristín Þorbjarnardóttir ✝ Kristín Þorbjarn-ardóttir fæddist á Bíldudal 4. júní 1923. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Eir í Reykjavík 23. desem- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Grensáskirkju 2. janúar. beint í mark. Hún amma las líka oft fyrir mig Grimms-ævintýr- in og dró fram gamalt fótboltaspil föður míns þegar ég var heimsókn um helgar. Amma Stína var flugskörp kona og hefði vafalaust staðið sig frábærlega í hvaða háskólanámi sem er. Hún kaus hins vegar að fara ekki í bóknám að loknu stúdentsprófi og var þess í stað stoð og stytta afa míns er hann stundaði háskólanám í lögfræði hér heima og erlendis. Hún hélt utan um heimilis- hald á meðan hann rýndi í bækurnar og setti sig inn í hinn júridíska þanka- gang. Hún amma setti fjölskylduna í forgang og kenndi börnum sínum góða siði. Sú áhersla sem amma hefur lagt á snyrtimennsku og góða siði í heimilishaldi hefur verkað sterkt á börn hennar því faðir minn er einn mesti snyrtipinni sem ég þekki og skrambi góður kokkur í þokkabót. Systkini hans eru einnig miklir höfð- ingjar heim að sækja. Þau hjónin, afi og amma, lögðu ríka áherslu á menntun enda fóru öll börnin þrjú í framhaldsnám erlendis að loknu há- skólanámi hér heima. Það var alltaf stíll yfir ömmu og hún var flott í tauinu. Hún var samt afar hagsýn og var ekkert fyrir eyðslu að óþörfu. Hún lagði manni líka línurnar í þessum efnum og brýndi fyrir manni að ljúka við mat- inn og að temja sér nægjusemi. Hún hafði veg og vanda af glæsilegu heim- ilishaldi í Hvassaleitinu þar sem hald- in voru boð við hin og þessi tækifæri. Sérstaklega eru minnisstæð jólaboð- in á jóladag, þar sem amma reiddi fram hvern réttinn á fætur öðrum fyrir stórfjölskylduna. Þegar ég dvaldist heima hjá ömmu og afa um nokkurra mánaða skeið reyndust þau mér bæði ákaflega vel. Amma sá til þess að það væri alltaf heitur matur í hádeginu og á kvöldin. Við lok borðhalds fylgdu stundum skondnar athugasemdir frá henni til afa míns um að hann „mætti nú ekki borða of mikið“. Síðustu árin var amma nokkuð veik og það var dálítið erfitt að sjá þessa öflugu og glæsilegu konu tapa heilsunni smátt og smátt í hægfara skrefum. Þau skipti sem ég heimsótti ömmu voru samt alltaf ánægjuleg enda hafði hún góða nærveru. Nú er hún horfin á braut en minn- ingin um klassakonuna ömmu Stínu mun lifa áfram. Þorbjörn Þórðarson. Setningin „Hin gömlu kynni gleymast ei“ á vel við. Það var fal- legan sólríkan haustdag í september- mánuði 1970 sem hópur kvenna hitt- ist á Sunnuflötinni við Hraunholtslækinn í Garðabæ. Tilefn- ið var fyrsti fundur nýkjörinnar fjár- öflunarnefndar Kvenstúdentafélags Íslands. Ein í hópnum var Kristín Þorbjarnardóttir sem hér er kvödd. Þegar þetta var, vó fjáröflunarnefnd- in þungt í félagsstarfinu. Stundin var spennandi. Nefndarkonurnar komu úr ýmsum stúdentaárgöngum og vissu lítil sem engin deili hver á ann- arri. En í loftinu ríkti gleði, bjartsýni og endalaus áhugi á að vinna ungum stúdínum í framhaldsnámi allt til góða. Kristín vinkona okkar kom þar sterk inn, svo björt og brosandi, svo vitur og vel að sér. Hópurinn hristist einstaklega vel saman. Við hittumst, funduðum, komum með hugmyndir og framkvæmdum. Allt með gleðina og kraftinn að leiðarljósi. Súlnasalur- inn á Hótel Sögu var fylltur, stórvin- sælir flóamarkaðir haldnir í borginni og úti á landi sem voru nýjung. Nefndin stóð ekki ein, hún fékk ein- stakan stuðning frá hjónunum Helgu og Gísla Sigurbjörnssyni á Grund, foreldrum nefndarkonunnar Nínu. Eins studdi formaður félagsins okk- ar, Ingibjörg Guðmundsdóttir, kennd við Síld og fisk, sterkt og vel við nefndina sem fljótlega gekk undir nafninu „ sníkjunefndin“. Vináttuböndin sem bundust þenn- an haustdag fyrir nærri 40 árum rofnuðu aldrei. Löngu eftir að nefnd- arstörfum lauk, fögnuðum við vin- konurnar í „sníkjunefndinni“ hausti, jólum og vori. Kristín opnaði heimilið sitt og hélt okkur dýrlegar veislur. Hún var ekki bara góð vinkona held- ur einstök manneskja. Ég fann fljótt hvað hún elskaði manninn sinn og besta vininn Guðmund Ingva heitt, þau höfðu ung ruglað saman reytum og áttu yndislegan barnahóp sem var þeim allt. Heimilið þeirra fallegt, fullt af list og menningu. Hjónin svo sam- stiga í lífi og leik. Kristín var glæsileg kona, björt og bein með fallega ljósa hárið sitt og kæti sem lýsti af henni. Við vinkonurnar úr nefndinni frá 1970 sem enn erum að hittast eigum sannarlega eftir að minnast Kristínar vinkonu okkar. Guð geymi manninn hennar og börnin hennar öll. Guð geymi Kristínu Þorbjarnar- dóttur með hjartans þökk fyrir allar góðar, skemmtilegar og gefandi stundir „sníkjunefndarinnar“ kæru. Helga Mattína Björnsdóttir – Grímsey. Alltaf kemur and- látsfregn vinar manns á óvart. Vonin er svo sterk og virk í huganum, því við viljum víkja í burtu öllu öðru en því sem við óskum. En straumur tímans heldur áfram – enginn stöðvar hann. Guðmundur Benediktsson sem hér er kvaddur, var myndarlegur maður og fallegur, allur liðlegur í hreyfingum og til allra verka. Hann var listfengur maður og hagur vel við hvað sem hann tók sér fyrir hendur. Má vel um hann segja að Guðmundur Líndal Benediktsson ✝ Guðmundur Lín-dal Benediktsson verkstjóri fæddist á Siglufirði 9. ágúst 1932. Hann lést á deild 11E á Landspít- alanum að kvöldi 20. desember síðastliðins og var jarðsunginn frá Kvennabrekku- kirkju í Dalasýslu 30. desember. hann hafi verið „þús- undþjalasmiður“ svo fjölhæfur var hann. Hann var einnig afar barngóður og hænd- ust öll börn að honum, sérstaklega barna- börnin sem sóttu mjög í afa sinn. Guðmundur var vel greindur maður. Hann var frjálslyndur, víð- sýnn og hafði vítt sjón- arsvið í flestum mál- um. Við ræddum oft saman um hin ýmsu málefni líðandi stundar, ekki skorti umræðuefnin, þau komu af sjálfu sér hvert af öðru. Við hittumst oft, sér- staklega eftir að Guðmundur flutti til dóttur sinnar og tengdasonar í Hundadal, við áttum margar góðar, skemmtilegar og fræðandi stundir saman sem gott er að minnast nú. Guðmundur hafði ekki langskóla- menntun að baki en „lífsins skóli“ var honum drjúgur skóli. Hann átti sæti í sveitarstjórn Kjalarness um skeið og kunni góð skil á þeim mál- um sem að sveitarstjórn lúta. Hann var verkstjóri til margra ára og kom þá skýrt fram hve hagsýnn hann var og oft framsýnn í mörgum málum. Hann var unnandi útiveru og fag- urs landslags og íslensk sveit stóð honum nærri. Við fórum margar ferðir saman þar sem hann var bíl- stjórinn og fengum okkur oft ís- lenska kjötsúpu í leiðinni, en það var uppáhaldsréttur okkar beggja, sem okkur fannst að ætti að vera þjóð- arréttur sem boðinn yrði útlending- um sem yrðu hér á ferð. Margs er að minnast og margt á ég að þakka honum. En síðasta kveðjan minnir á loforðið: „Kristnir menn eiga árnaðarmann hjá Föð- urnum, Jesúm Krist hinn réttláta.“ Með innilegri samúð til dætra hans og fjölskyldna þeirra, svo og systkina hans. Blessuð sé minning Guðmundar Líndals Benediktssonar. Hjörtur Einarsson. Það mun hafa verið sumarið 1976 sem ég hitti Guðmund Benediktsson fyrst. Þá staðsetti ég fyrir hann ein- býlishús sem hann var að hefja byggingu á í Esjugrund á Kjalar- nesi, en ég hafði þá nýlega tekið að mér starf byggingafulltrúa í hreppn- um. Guðmundur var glaðlyndur og hress og vílaði ekki fyrir sér hlutina. Þegar grunngreftri var lokið og í ljós kom að vatn safnaðist í grunninn og honum var ráðlagt að fylla í holuna með grófu fyllingarefni til að lenda ekki í vandræðum með þjöppun, þá gerði Guðmundur sér lítið fyrir og fyllti allan grunninn með harpaðri möl og þjappaði með einum stærsta valtara sem til var í landinu. Guðmundur var á þessum árum verkstjóri í Vinnuvélum í Kollafirði og hafði aðgang að góðu fyllingarefni og stórvirkum tækjum. Guðmundur seldi síðar þetta hús og keypti jörð- ina Dalsmynni og bjó þar lengi. Þar fékk Guðmundur góða aðstöðu til viðgerða en hann var mjög tækni- lega sinnaður og var stöðugt að gera upp einhver tæki og tól. Guðmundur varð síðar starfsmaður Kjalarnes- hrepps og var verkstjóri, slökkvi- stjóri og hitaveitustjóri. Einnig sat hann eitt kjörtímabil í hreppsnefnd Kjalarneshrepps. Árið 1984 var lögð hitaveita um stærstan hluta Kjalar- neshrepps og var það mikil fram- kvæmd fyrir lítið sveitarfélag. Gekk framkvæmdin það vel að allar tíma- og kostnaðaráætlanir stóðust og var Guðmundur eftirlitsmaður á verk- inu. Ólafur Guðjónsson á Móum var þá rekstrarstjóri Kjalarneshrepps og Gunnar Finnbogason á Mógilsá var formaður hitaveitustjórnar. Þetta sumar tókst góður vinskapur með okkur félögunum sem hefur enst fram á þennan dag. Um 1990 fór Guðmundur að starfa hjá Sorpu í Álfsnesi og var þar uns hann hætti störfum vegna aldurs. Síðustu árin hefur Guðmundur búið hjá dóttur sinni í Neðri-Hundadal í Dalasýslu. Guðmundur var virkur félagi í Kiwanisklúbbnum Geysi í Mos- fellsbæ og var formaður klúbbsins 1997-1998. Þegar Kiwanisklúbbur- inn hafði fest kaup á gömlum sum- arbústað í landi Leirvogstungu í Mosfellsbæ var Guðmundur einn af hvatamönnum þess að húsið væri stækkað. Kiwanisklúbburinn byggði síðan við húsið og eignaðist þar myndarlega aðstöðu fyrir fé- lagsstarfið. Guðmundur var formað- ur hússtjórnar og sá um rekstur Kiwanishússins í mörg ár eða þar til hann flutti til dóttur sinnar í Dala- sýslu. Undanfarin ár átti Guðmund- ur við vanheilsu að stríða, hann sýndi æðruleysi í baráttu sinni við þann sjúkdóm sem að lokum lagði hann að velli. Ég og aðrir Kiwanisfélagar í Geysi viljum þakka Guðmundi sam- starfið og samfylgdina og sendum aðstandendum hans okkar samúðar- kveðjur. Þorgeir Guðmundsson. Í lífsbók hvers manns eru margir kaflar. Í hverjum kafla koma vissar persónur við sögu. Einn kafli í lífs- bók Guðbjörns E. Guðjónssonar er kafli sem hann deilir með föður okk- ar sem lést fyrir mörgum árum. Þeir voru vinir og samferðamenn í gegn- um mikla lífsreynslu sem ungir menn. Kynni okkar systkinanna af Guðbirni eru mótuð af ævilangri vin- áttu þeirra og þeirri reynslu sem hann hefur deilt með okkur nú á eldri árum. Í maí 1942 réðu fjórir Íslendingar sig á ameríska skipið Ironclad frá Halifax sem átti að sigla með her- gögn til Arkangelsk í Sovétríkjunum með viðkomu í Murmansk á baka- leiðinni. Þetta voru þeir Guðbjörn E. Guðbjörn E. Guðjónsson ✝ Guðbjörn EggertGuðjónsson kaup- maður fæddist í Reykjavík 1. desem- ber 1921. Hann and- aðist á líknardeild Landspítalans á Landakoti sunnudag- inn 21. desember síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Digraneskirkju 30. desember. Guðjónsson, Frið- steinn Hannesson, Magnús Sigurðson og faðir okkar Albert Sig- urðsson. Skipið sigldi ásamt fleiri skipum frá Hvalfirði 27. júní 1942 og fleiri skip bættust í skipalestina úti fyrir Vestfjörðum. Samtals urðu þetta 40 skip sem sigldu í skipalestinni PQ-17 sem einnig fékk nafnið Dauðalestin. Aðeins 11 skip komust á leiðarenda og var eitt þeirra Ironclad. Á leiðarenda varð skipið einnig fyrir miklum loft- árásum og komust skipverjar við ill- an leik í land og urðu innlyksa í Ark- angelsk í 8 mánuði við slæm kjör. Þegar þeir kunningjarnir Guð- björn og Albert réðu sig á skipið var þeim ekki ljóst hvaða hlutverki það ætti að þjóna né hvaða aðstæður biðu þeirra um borð og síst af öllu hvaða hörmungar biðu þeirra. Þeir voru einungis ungir menn með útþrá, sólgnir í ævintýri. Guðbjörn lýsti fyr- ir okkur aðdraganda þessarar skyndihugdettu, að sækja um á skip- inu Ironclad sem beið í Hvalfirði. Þetta var aðeins brot af mörgum frá- sögnum hans og föður okkar af þessu ævintýri sem þeir deildu. Sameigin- leg lífsreynsla þeirra batt þá vináttu- böndum ævilangt og mótaði þeirra samskipti og þau kynni sem við systkinin höfum haft af Guðbirni. Ekki er að undra að þeir hittust reglulega og heimsóttu hvor annan. Um margt var að ræða, margs að minnast. Sem ung börn voru sögur af skipalestinni líkastar ævintýri eða uppspuna. Sem fullorðið fólk undr- umst við enn þær hörmungar sem þeir upplifðu, sem eru okkur börnum og barnabörnum svo framandi. Ekki er að undra að lífsreynsla sem þessi móti fólk alla ævi. Mörgum frásögn- um af sameiginlegri reynslu þeirra hefur Guðbjörn deilt með okkur. Hann hafði góða frásagnarhæfileika og blandaði sögurnar með hæfileg- um skammti af kímni og alvöru. Guð- björn var vingjarnlegur maður, myndarlegur og bar sig af reisn þrátt fyrir að heilsan væri farin að daprast hin síðari ár. Guðbjörn hefur verið heiðraður af rússneska sendiráðinu ásamt öðrum Íslendingum sem sigldu í skipalest- um norðurslóðanna í seinni heims- styrjöld. Fyrir hönd systkina minna og föður okkar heitins þakka ég hon- um frásagnirnar, samfylgdina og góð kynni með ósk um að hann sigli nú á lygnari sjó. Fyrir hönd systkinanna, Kolbrún Albertsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.