Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009 Ísland Liechtenstein Noregur Finnland Svíþjóð Danmörk Bretland Írland Portúgal Spánn Frakkland Belgía Lúxemborg Þýskaland Pólland Eistland Lettland Litháen Tékkland Slóvakía Ítalía Malta Kýpur Grikkland Búlgaría RúmeníaSlóvenía Ungverjaland Króatía Tyrkland Makedónía Sviss* Holland Austurríki Serbía Kósóvó Bosnía/ Hersegónía Svartfjallaland Albanía Rússland Hvíta-Rússland Úkraína Moldóva Kaliningrad Andorra Mónakó San Marínó 1 4. janúar | Sunnudagur Evrópusambandið (Saga, hugsjónir, gildi) 2 5. janúar | Mánudagur EES-samningurinn 3 6. janúar | Þriðjudagur Landbúnaður/ Byggðastefna 4 7. janúar | Miðvikudagur Gjaldmiðillinn 5 8. janúar | Fimmtudagur Finnland 6 9. janúar | Föstudagur Stjórnkerfi og stofnanir ESB 7 10. janúar | Laugardagur Orka og auðlindir 8 11. janúar | Sunnudagur Sjávarútvegur 9 12. janúar | Mánudagur Umhverfismál 10 13. janúar | Þriðjudagur Utanríkis- og öryggismál 11 14. janúar | Miðvikudagur Mannréttindi 12 15. janúar | Fimmtudagur Umsóknarferlið Skýringar: Aðildarþjóðir Evrópusambandsins (og þar með Evrópska efnahagssvæðins) Aðildarþjóðir EFTA (og þar með Evrópska efnahagssvæðins (*nema Sviss)) Þjóðir í formlegum aðildarviðræðum Mögulegar aðildarþjóðirABC ABC ABC ABC „Eftir síðari heimsstyrjöldina tók við ríkjakerfi sem byggist á alþjóðasamtökum og alþjóðalögum. Áður byggðust samskipti ríkja á stjórnleysi og vopnuðu valdajafnvægi, það kerfi hrundi í aðdrag- anda fyrri heimsstyrjaldar. Upp úr þessum breytingum spratt Bretton Woods fjármálakerfið, Sameinuðu þjóðirnar og Atlantshafsbandalagið. Evrópusambandið er sá hluti af þessari þróun sem lýtur að efnahagsuppbyggingu Evrópuríkja eftir stríð.“ Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst. Evrópusambandið og Ísland Eftir Pétur Blöndal N ú er málið rætt af alvöru innan allra stjórnmálaflokka hvort Ísland eigi að sækja um aðild að ESB og láta reyna á samninga sem kunna að nást í þjóðaratkvæðagreiðslu. Til marks um það verða Evrópumálin ofarlega á baugi á flokksþingi Framsóknarflokksins 16.- 18. janúar og landsfundi Sjálfstæðisflokksins 29. janúar til 1. febrúar. Ef til vill hafa Íslendingar ekki verið eins nærri því að sækja um aðild að ESB síðan í upphafi sjöunda áratugarins þegar viðreisn- arstjórnin var við völd. „Þá var rætt um hugs- anlega aðild af hálfu ríkisstjórnarinnar og sér- fræðinga hennar af meiri þunga en nokkru sinni síðan,“ skrifar Björn Bjarnason dóms- málaráðherra á heimasíðu sinni. „Bretar voru þá að velta fyrir sér aðild. Þeim var hafnað af Charles de Gaulle Frakklandsforseta og þar með runnu hugmyndir um aðild Íslands einnig út í sandinn.“ Viðamikil fréttaskýring Á þessum tímamótum hefur Morgunblaðið ráðist í viðamikla fréttaskýringu á kostum og göllum aðildar að ESB fyrir Íslendinga. Í dag er fjallað um sögu Evrópusambands- ins, hugsjónir og gildi. Tæpum 60 árum eftir að Evrópa steig skref í átt til þess samstarfs sem orðið hefur að ESB stendur samvinnan enn á ný á tímamótum. Tyrkir standa enn utan sambandsins og framundan eru erfiðir tímar þar sem tryggja þarf að ávinningur alþjóðavæðingarinnar á hinum síðari árum þurrkist ekki út í fjármálahruninu. ESB er nú mesta efnahagsveldi heims en allt útlit er fyrir að hlutur þess í heimsframleiðslunni muni minnka á öldinni. Þangað til má reikna með auknum hagvexti í nýju aðildarríkjunum í austri sem áður bjuggu við áætlunarbúskap. Á morgun, 5. janúar, verður fjallað um EES- samninginn. Ísland hefur verið aðili að EES- samningnum frá árinu 1994 og hefur á þeim tíma tekið upp nánast alla löggjöf ESB sem varðar innri markaðinn. Hvað stendur út af og hvað myndi bætast við ef Ísland gengi alla leið? Þá tekur við umfjöllun um landbúnað og byggðastefnu á þriðjudag. Við inngöngu í ESB myndu tollar á milli Íslands og ESB falla niður, þar með talið tollar á landbúnaðarafurðir. Jafn- framt yrðu Íslendingar aðilar að sameiginlegri landbúnaðarstefnu sambandsins. Bændur eru andvígir inngöngu í ESB og segja að aðild myndi leiða til lægri styrkja, engrar tollverndar og lægra afurðaverðs. Svína- og alifuglarækt yrði verst úti. En hvaða áhrif hefði aðild að ESB á matvælaverð – og pyngju neytenda? Og gætu byggðastyrkir rétt að einhverju leyti hlut lands- byggðarinnar? Fjallað verður um gjaldmiðilsmál 7. janúar, en gengi krónunnar hrapaði í fyrra og margir kalla á nýjan valkost, hvort sem það felst í inn- göngu í ESB og upptöku evru, ein- hliða upptöku annars gjaldmiðils, einkum evru eða dollars, eða því að festa gengi krónunnar við annan gjaldmiðil með myntráði. Þá verður fjallað um stöðuna í Finnlandi 8. janúar. Fjórtán árum eftir að hafa samþykkt inngöngu í ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu eru Finnar gagnrýnir á samstarfið við sambandið. Ef marka má viðmælendur Morgunblaðsins vill hins vegar mikill minnihluti úrsögn úr samband- inu. Evran er talin styrkur andspænis fjármála- hruninu, þótt umdeilt sé hvort og þá hversu mik- ið nýi gjaldmiðillinn hafi örvað hagvöxt í landinu. Leitað verður svara við því 9. janúar hvaða hlutverki ráðherraráðið, framkvæmdastjórnin og Evrópuþingið gegna? Hverju ræður ESB og hverju ráða aðildarríkin? Hvernig eru ákvarð- anir teknar innan sambandsins? Evrópusam- bandið er flókið fyrirbæri og ekki hlaupið að því að útskýra það með einföldum hætti. En það má reyna … Hvað er í húfi? Fjallað verður um orku og auðlindir laug- ardaginn 10. janúar. Hvað verður um íslensku orkuna ef Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu? Mun sam- bandið gera tilkall til olíunnar finnist hún þá á annað borð norðaustur af landinu eins og norskir olíusérfræðingar hafa haldið fram að undanförnu? Mun náttúruverndarstefnan taka breytingum vegna krafna frá Brussel? Lengi hefur mest andstaða við inngöngu í ESB verið út af því að Íslendingar vilji halda yfirráðum yfir 200 mílna landhelgi og fiskimið- unum. Sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB hefur sætt gagnrýni, en hversu mikil áhrif myndi það hafa á útgerð frá verstöðinni Ís- landi ef við gengjum í ESB? Þeirri spurningu verður velt upp sunnudaginn 11. janúar. Umhverfismál verða til umfjöllunar 12. jan- úar. Hafa Íslendingar ekki þegar notið þess besta úr umhverfisstefnu Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn? Er nokkur þörf á að stíga skrefið til fulls með aðild? Utanríkis- og öryggismál verða viðfang fréttaskýringar 13. janúar. Eftir því sem slag- kraftur Evrópusambandsins vex á alþjóðavett- vangi er eðlilegt að spurningar um stefnu þess í utanríkismálum vakni. Hvaða hlutverk ætlar það sér á vettvangi alþjóðamálanna næstu ára- tugina? Evrópusamstarfið snýst ekki einvörðungu um efnahagsmál. Áhrifa þess gætir víða í al- þjóðasamstarfi. Mannréttindi eru málaflokkur sem kemur þar einna fyrst upp í hugann og verða þau til umfjöllunar 14. janúar. En styðja Íslendingar viðleitni sambandsins í mannrétt- indamálum? Telja Íslendingar sig eiga samleið með sambandinu í jafn veigamiklum mála- flokki? Loks verður fjallað um umsóknarferlið að ESB í síðustu fréttaskýringu greinaflokksins 15. janúar – hvernig slíkt ferli gengur fyrir sig og hvaða reynslu aðrar þjóðir hafa af því. Með þessum flokki fréttaskýr- inga leitast Morgunblaðið við að draga fram kosti og galla aðildar, þannig að Íslendingar geti betur gert sér grein fyrir því hvað er í húfi – og hvort hagsmunum Íslands er betur borgið inn- an eða utan ESB. Fréttaskýringar um ESB í Morgunblaðinu frá 4.-15. janúar Kostir og gallar aðildar að ESB Umfjöllunin um Evrópusambandið verður aðgengileg á mbl.is. Þar verð- ur einnig margvíslegt ítarefni, svo sem myndskeið og aðsendar greinar fræðimanna. Tenging við ESB-vefinn verður í valstikunni ofarlega á for- síðu mbl.is og bætist inn á vefsafnið sem þar er. Einnig verður hægt að tengjast vefnum á slóðinni: www.mbl.is/esb.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.