Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009 M annréttindi hafa verið lítils virði í stjórn- artíð George W. Bush Bandaríkja- forseta. Allt frá því að hryðjuverkin voru framin í Bandaríkj- unum 11. september 2001 og hið svokall- aða stríð gegn hryðjuverkum hófst hefur stjórn Bush mark- visst grafið undan mannréttindum. Heims- byggðina hryllti við þegar myndirnar af pynt- ingum í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdað birtust. Þar mátti sjá menn með hettu á höfði og rafmagnsvíra á útlimum, nakta fanga liggja í kös og fanga á hnjánum á meðan hundum var att að þeim. Fangarnir voru niðurlægðir kyn- ferðislega og látnir sæta meðferð sem var brot á ákvæðum Genfar-sáttmálans um meðferð stríðsfanga og stríddi gegn trúarsannfæringu þeirra. Í upphafi var reynt að láta sem örfáir ein- staklingar hefðu misst stjórn á sér og farið út af sporinu. Smám saman hefur hins vegar komið í ljós að meðferðin á föngunum í Abu Ghraib var ekki undantekning, heldur hluti af kerf- isbundnum pyntingum sem Bandaríkjamenn hafa beitt fanga í baráttu sinni gegn hryðju- verkum. Ábyrgðin nær til æðstu valdamanna. Ljóst er að Donald Rumsfeld, fyrrverandi varn- armálaráðherra, samþykkti harkalegar yf- irheyrsluaðferðir og studdist við lagaleg álit sem sett voru saman í dómsmálaráðuneytinu. Þó hafa aðeins undirmennirnir verið sóttir til saka. Hinir raunverulegu ábyrgðarmenn hafa sloppið. Styrkti óvininn og veikti siðferði Um miðjan desember kom fram skýrsla her- málanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings þar sem ábyrgðin á því að ganga of langt í yf- irheyrslum í Abu Ghraib, Guantanamo á Kúbu og víðar var rakin til æðstu valdamanna, þar á meðal Rumsfelds. Carl Levin, þingmaður demókrata, og John McCain, þingmaður repúblikana og forsetaframbjóðandi flokksins í síðustu forsetakosningum, kynntu skýrsluna. Þar er fullyrðingum stjórnar Bush um að með harkalegum aðferðum við yfirheyrslur hafi ver- ið stuðlað að öryggi almennings og hermanna vísað á bug. Í henni segir að ill meðferð á föng- um í Abu Ghraib hafi „ekki bara verið afleiðing af því að nokkrir hermenn tóku sér bessaleyfi“, heldur afsprengi stefnu sem Rumsfeld og aðrir háttsettir embættismenn samþykktu og „komu þeim boðum til skila að líkamlegt álag og nið- urlæging væri viðeigandi meðferð fyrir fanga“. Aðferðirnar felast meðal annars í því að láta fanga vera lengi í sömu stöðu og neyða þá til að vera naktir. Önnur aðferð er fólgin í að fram- kalla köfnunartilfinningu með því að kaffæra fanga í vatni. Spænski rannsóknarrétturinn beitti slíkum aðferðum á sínum tíma. Einnig hefur föngum verið haldið svefnlausum og þeir látnir hírast í miklum kulda langtímum saman. Í skýrslunni segir að þótt Rumsfeld hafi form- lega dregið til baka leyfi til að beita slíkum að- ferðum hafi útbreiðsla þeirra í kerfinu haldið áfram og notkun þeirra „skaðað getu okkar til að safna saman áreiðanlegum upplýsingum, sem gætu bjargað mannslífum, styrkt stöðu óvina okkar og grafið undan siðferðislegum styrk okkar“. Að undirlagi æðstu ráðamanna Talsmenn Rumsfelds hafa hafnað þessum ásök- unum. Þó er vitað að í nóvember 2002 lagði William J. Haynes II, lögfræðilegur ráðgjafi varnarmálaráðuneytisins, til að Rumsfeld veitti formlegt leyfi til harkalegra aðferða við yf- irheyrslur, þar á meðal að láta fanga vera lengi í líkamsstöðu þar sem þeir væru undir álagi, notkun hunda þjálfaðra til árása og að kalla fram skyntruflanir. Rumsfeld samþykkti þessa leyniskipun 2. desember 2002. Það var ekki fyrr en Alberto Mora, lagalegur ráðgjafi sjóhersins, mótmælti og sagði að hann myndi skrifa minn- isblað þar sem kæmi fram að sumar þessara að- ferða brytu í bága við lagahefðir bæði heima fyrir og á alþjóðlegum vettvangi að blaðinu var snúið við. 15. janúar 2003 afturkallaði Rumsfeld samþykki sitt en undirritaði í apríl sama ár ann- að minnisblað þar sem taldar voru upp leyfileg- ar aðferðir, þar á meðal að svipta fanga svefni. Í apríl í fyrra greindi sjónvarpsstöðin ABC frá því að æðstu ráðamenn Bush hefðu hist árið 2003 til að ræða ágengar aðferðir við yf- irheyrslur. Á þessum fundum voru meðal ann- ars Dick Cheney varaforseti, David Addington, sem þá var ráðgjafi og nú er starfsmannastjóri, John Ashcroft dómsmálaráðherra, Condoleezza Rice, þáverandi þjóðaröryggisráðgjafi og nú- verandi utanríkisráðherra, Rumsfeld og Hayn- es. Bush staðfesti þessa frétt í viðtali við sjón- varpsstöðina. „Staðreyndin er sú að ég sagði þjóðinni að við gerðum þetta. Og ég sagði þeim líka að þetta væri löglegt. Við höfðum lagaleg álit sem gerðu okkur fært að gera þetta.“ Pyntingunum hefur ekki verið tekið þegjandi í Bandaríkjunum og hefur öflugt andóf komið fram innan hersins. Meðferð fanga er eitt. Í ofanálag hafa Banda- ríkjamenn handtekið fjölda manna fyrir afar léttvægar sakir og haldið þeim föngnum svo ár- um skiptir án þess að þeir ættu þess nokkurn kost að fá réttláta málsmeðferð. Í fyrra kom út bók, sem heitir My Guant- anamo Diary eftir Mahvish Rukhsana Khan. Khan bauð sig fram sem túlkur fyrir fanga í Guantanamo. Hópur manna, sem hún hitti, lýsti því hvernig þeir hefðu verið seldir í hendur Bandaríkjamönnum eftir að bandaríski herinn varpaði bæklingum úr lofti víða um Afganistan og hét því að borga hverjum þeim, sem segði til liðsmanns talibana eða Al Qaeda, 25 þúsund dollara. Það eru um hundraðföld árslaun ein- staklings í Afganistan. Það segir síðan sína sögu um sekt fanganna að margir þeirra hafa síðan verið látnir lausir án þess nokkrar kærur kæmu fram. Mohammed Jawad var handtekinn fyrir að varpa sprengju að bíl með bandarískum her- mönnum í Kabúl síðla árs 2002. Blaðamaðurinn Anthony Lewis rekur sögu hans í grein, sem hann nefnir Official American Sadism eða Op- inber bandarískur sadismi og birtist í The New York Review of Books í september. Í febrúar 2003 var Jawad fluttur til Guantanamo, þá 17 ára. Í desember 2003 reyndi hann að fremja sjálfsmorð. Í maí 2004 var hann beittur meðferð þar sem hann var á þriggja tíma fresti í tvær vikur fluttur í járnum á milli fangaklefa. Vitað er um meðferðina á honum vegna þess að lög- manni hans, David J.R. Frakt major, tókst að fá herdómara til að skipa yfirvöldum að leggja fram skýrslur um fangavist hans. Hér fylgir lýsing Lewis á réttarhöldunum: „„Af hverju var Mohammed Jawad pyntaður?“ spurði Frakt major. „Hvers vegna völdu yfirmenn hersins táningsdreng, sem tæpum fimm mánuðum áður hafði reynt að fremja sjálfsmorð í fangaklefa sínum, til að vera viðfang þessarar sadísku til- raunar í að svipta hann svefni?“ Yfirmenn í Guantanamo sögðu að þeir teldu ekki að hann byggi yfir neinum mikilvægum upplýsingum og hann var ekki einu sinni yfirheyrður meðan á meðferðinni stóð. „Líklegast er,“ sagði Frakt major, „að þeir hafi einfaldlega ákveðið að pynta Jawad til gamans, til að veita honum ráðningu, kannski öðrum til viðvörunar.“ En Frakt lét ekki staðar numið við þá sem pyntuðu Mohammed Jawad. Hann tók fyrir til- skipun Bush forseta frá 7. febrúar 2002 þess efnis að þeir, sem sætu í Guantanamo sem meintir liðsmenn eða stuðningsmenn Al Qaeda eða talibana ættu ekki að njóta verndar Genf- arsáttmálanna. „7. febrúar 2002,“ sagði hann, „þann dag glötuðu Bandaríkin dálitlu af mik- ilfengleika sínum. Við glötuðum stöðu okkar sem helstu verjendur mannréttinda í heim- inum, sem málsvarar réttlætis, sanngirni og réttarríkisins … Því miður hefur þessi her- nefnd [sem hélt vitnaleiðslurnar í máli Jawads] ekki vald til að gera neitt við þá sem opnuðu á pyntingar eins og John Yoo, Jay Bybee, Robert Delahunty, Alberto Gonzales …, David Add- ington, William Haynes, Cheney varaforseta og Donald Rumsfeld …““ Frakt er aðeins einn af mörgum, sem hafa verið tilbúnir að fórna frama sínum innan hers- ins til að segja skoðun sína á meðferðinni, sem fangar hafa verið beittir í stjórnartíð Bush, um- búðalaust. Bandaríkjamenn hafa löngum verið á gráu svæði varðandi yfirheyrslur og þær aðferðir, sem fangar hafa verið beittir í Abu Ghraib, Bag- ram-fangelsinu í Afganistan, Guantanamo og víðar eiga rætur í rannsóknum, sem bandaríska leyniþjónustan, CIA, styrkti á sínum tíma og taldi nytsamlegar þar sem þær væru sálrænar en ekki líkamlegar. Það er hins vegar hrollvekj- andi að hugsa til þess að háskólagengnir menn skuli sitja á rökstólum í æðstu stöðum í banda- rísku stjórnkerfi og velta því fyrir sér hvernig hægt sé að komast hjá því að kalla pyntingar sínu rétta nafni og hvernig megi skilgreina fanga þannig að hægt sé að komast fram hjá ákvæðum Genfar-sáttmálans um mannúðlega meðferð fanga. Það mætti kalla þetta menntað siðleysi. Margir hafa bent á það að pyntingar beri ekki tilætlaðan árangur og stjórnvöld hafi eng- ar nytsamlegar upplýsingar fengið með því að beita fanga harðræði. Það er hins vegar auka- atriði vegna þess að þá er verið að gefa í skyn að pyntingar séu réttlætanlegar ef þær beri ár- angur. Glæpir Bandaríkjastjórnar? Á sínum tíma var gerð tilraun til að svipta Bill Clinton embætti vegna þess að hann hefði borið ljúgvitni um samband sitt við Monicu Lew- insky. George W. Bush hefur traðkað á mann- réttindum. Hann bjó til lagalegt svarthol í Guantanamo. Hann leyfði flutning á föngum á laun til landa sem bandaríska utanríkisráðu- neytið gagnrýnir í árlegum skýrslum fyrir illa meðferð á föngum. Hann leyfði fangelsun þús- unda manna án dóms og laga. Margir hafa setið inni svo árum skiptir. Hann leyfði meðferð á föngum, sem ekki er hægt að kalla neitt annað en pyntingar – hvað sem öllum hártogunum líð- ur. Þess eru dæmi að menn hafi látið lífið af völdum pyntinga og margir hafa misst geðheils- una. Það má færa rök að því að hegðun Bush hafi verið glæpsamleg. Ýmsir hafa hvatt til þess að reynt yrði að svipta Bush embætti. Fyrir því eru þyngri rök en áttu við um Clinton en demó- kratar lögðu ekki í þann slag. Bush hefur hins vegar komið því til leiðar að Bandaríkjamenn eru rúnir trausti í mannrétt- indamálum. Hvernig eiga Bandaríkjamenn að gagnrýna mannréttindabrot Kínverja þegar þeir beita sjálfir pyntingum og handtaka fólk án dóms og laga? Harðstjórar um allan heim geta hæglega sakað Bandaríkjamenn um hræsni í mannréttindamálum. Gagnrýni bandarískra ráðamanna í þeim efnum verður hæglega létt- væg fundin þegar horft er á gerðir þeirra. Mannréttindi og frelsi fara hönd í hönd. Með því að ráðast á mannréttindi hefur Bush breytt vörninni fyrir frelsið í andhverfu sína. Bush hef- ur gert mörg mistök á forsetastóli en óvirðing hans fyrir mannréttindum er svartasti blett- urinn á stjórnartíð hans. Nú kemur í hlut Bar- acks Obamas að vinda ofan af óhæfuverkum Bush-stjórnarinnar og sýna að hægt sé að leiða baráttu gegn hryðjuverkum án þess að fótum troða mannréttindi. Lítilsvirðing Bush fyrir mannréttindum Reykjavíkurbréf 030109 2001 Hryðjuverkamenn ráðast á New York og Washington. 2002 George W. Bush lýsir yfir að ákvæði Genfar- sáttmálans eigi ekki við um fangelsaða liðsmenn Al Qaeda og talibana í Guantanamo. 2008 Þingnefnd bendlar æðstu ráðamenn við harðræði við fanga. Reuters Pyntingar Það var álitshnekkir fyrir Bandaríkin þegar myndir af misþyrmingu fanga í Abu Ghraib-fangelsinu birtust í tímaritinu New Yorker.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.