Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
Ísland
Liechtenstein
Noregur
Finnland
Svíþjóð
Danmörk
Bretland
Írland
Portúgal Spánn
Frakkland
Belgía
Lúxemborg
Þýskaland
Pólland
Eistland
Lettland
Litháen
Tékkland
Slóvakía
Ítalía
Malta Kýpur
Grikkland
Búlgaría
RúmeníaSlóvenía
Ungverjaland
Króatía
Tyrkland
Makedónía
Sviss*
Holland
Austurríki
Serbía
Kósóvó
Bosnía/
Hersegónía
Svartfjallaland
Albanía
Rússland
Hvíta-Rússland
Úkraína
Moldóva
Kaliningrad
Andorra
Mónakó
San Marínó
1
4. janúar | Sunnudagur
Evrópusambandið (Saga,
hugsjónir, gildi)
2
5. janúar | Mánudagur
EES-samningurinn
3
6. janúar | Þriðjudagur
Landbúnaður/
Byggðastefna
4
7. janúar | Miðvikudagur
Gjaldmiðillinn
5
8. janúar | Fimmtudagur
Finnland
6
9. janúar | Föstudagur
Stjórnkerfi og
stofnanir ESB
7
10. janúar | Laugardagur
Orka og auðlindir
8
11. janúar | Sunnudagur
Sjávarútvegur
9
12. janúar | Mánudagur
Umhverfismál
10
13. janúar | Þriðjudagur
Utanríkis- og öryggismál
11
14. janúar | Miðvikudagur
Mannréttindi
12
15. janúar | Fimmtudagur
Umsóknarferlið
Skýringar:
Aðildarþjóðir Evrópusambandsins (og þar með Evrópska efnahagssvæðins)
Aðildarþjóðir EFTA (og þar með Evrópska efnahagssvæðins (*nema Sviss))
Þjóðir í formlegum aðildarviðræðum
Mögulegar aðildarþjóðirABC
ABC
ABC
ABC
„Eftir síðari heimsstyrjöldina tók við ríkjakerfi sem byggist á alþjóðasamtökum og alþjóðalögum.
Áður byggðust samskipti ríkja á stjórnleysi og vopnuðu valdajafnvægi, það kerfi hrundi í aðdrag-
anda fyrri heimsstyrjaldar. Upp úr þessum breytingum spratt Bretton Woods fjármálakerfið,
Sameinuðu þjóðirnar og Atlantshafsbandalagið. Evrópusambandið er sá hluti af þessari þróun
sem lýtur að efnahagsuppbyggingu Evrópuríkja eftir stríð.“
Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst.
Evrópusambandið og Ísland
Eftir Pétur Blöndal
N
ú er málið rætt af alvöru innan allra
stjórnmálaflokka hvort Ísland eigi
að sækja um aðild að ESB og láta
reyna á samninga sem kunna að
nást í þjóðaratkvæðagreiðslu. Til
marks um það verða Evrópumálin ofarlega á
baugi á flokksþingi Framsóknarflokksins 16.-
18. janúar og landsfundi Sjálfstæðisflokksins
29. janúar til 1. febrúar.
Ef til vill hafa Íslendingar ekki verið eins
nærri því að sækja um aðild að ESB síðan í
upphafi sjöunda áratugarins þegar viðreisn-
arstjórnin var við völd. „Þá var rætt um hugs-
anlega aðild af hálfu ríkisstjórnarinnar og sér-
fræðinga hennar af meiri þunga en nokkru
sinni síðan,“ skrifar Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra á heimasíðu sinni. „Bretar voru
þá að velta fyrir sér aðild. Þeim var hafnað af
Charles de Gaulle Frakklandsforseta og þar
með runnu hugmyndir um aðild Íslands einnig
út í sandinn.“
Viðamikil fréttaskýring
Á þessum tímamótum hefur Morgunblaðið
ráðist í viðamikla fréttaskýringu á kostum og
göllum aðildar að ESB fyrir Íslendinga.
Í dag er fjallað um sögu Evrópusambands-
ins, hugsjónir og gildi. Tæpum 60 árum eftir
að Evrópa steig skref í átt til þess samstarfs
sem orðið hefur að ESB stendur samvinnan
enn á ný á tímamótum. Tyrkir
standa enn utan sambandsins og
framundan eru erfiðir tímar þar
sem tryggja þarf að ávinningur
alþjóðavæðingarinnar á hinum
síðari árum þurrkist ekki út í
fjármálahruninu. ESB er nú
mesta efnahagsveldi heims en
allt útlit er fyrir að hlutur
þess í heimsframleiðslunni
muni minnka á öldinni.
Þangað til má reikna
með auknum hagvexti í nýju aðildarríkjunum í
austri sem áður bjuggu við áætlunarbúskap.
Á morgun, 5. janúar, verður fjallað um EES-
samninginn. Ísland hefur verið aðili að EES-
samningnum frá árinu 1994 og hefur á þeim
tíma tekið upp nánast alla löggjöf ESB sem
varðar innri markaðinn. Hvað stendur út af og
hvað myndi bætast við ef Ísland gengi alla leið?
Þá tekur við umfjöllun um landbúnað og
byggðastefnu á þriðjudag. Við inngöngu í ESB
myndu tollar á milli Íslands og ESB falla niður,
þar með talið tollar á landbúnaðarafurðir. Jafn-
framt yrðu Íslendingar aðilar að sameiginlegri
landbúnaðarstefnu sambandsins. Bændur eru
andvígir inngöngu í ESB og segja að aðild
myndi leiða til lægri styrkja, engrar tollverndar
og lægra afurðaverðs. Svína- og alifuglarækt
yrði verst úti. En hvaða áhrif hefði aðild að ESB
á matvælaverð – og pyngju neytenda? Og gætu
byggðastyrkir rétt að einhverju leyti hlut lands-
byggðarinnar?
Fjallað verður um gjaldmiðilsmál 7. janúar,
en gengi krónunnar hrapaði í fyrra og margir
kalla á nýjan valkost, hvort sem það felst í inn-
göngu í ESB og upptöku evru, ein-
hliða upptöku annars
gjaldmiðils, einkum evru eða dollars, eða því að
festa gengi krónunnar við annan gjaldmiðil með
myntráði.
Þá verður fjallað um stöðuna í Finnlandi 8.
janúar. Fjórtán árum eftir að hafa samþykkt
inngöngu í ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu eru
Finnar gagnrýnir á samstarfið við sambandið.
Ef marka má viðmælendur Morgunblaðsins vill
hins vegar mikill minnihluti úrsögn úr samband-
inu. Evran er talin styrkur andspænis fjármála-
hruninu, þótt umdeilt sé hvort og þá hversu mik-
ið nýi gjaldmiðillinn hafi örvað hagvöxt í
landinu.
Leitað verður svara við því 9. janúar hvaða
hlutverki ráðherraráðið, framkvæmdastjórnin
og Evrópuþingið gegna? Hverju ræður ESB og
hverju ráða aðildarríkin? Hvernig eru ákvarð-
anir teknar innan sambandsins? Evrópusam-
bandið er flókið fyrirbæri og ekki hlaupið að því
að útskýra það með einföldum hætti. En það má
reyna …
Hvað er í húfi?
Fjallað verður um orku og auðlindir laug-
ardaginn 10. janúar. Hvað verður um
íslensku orkuna ef Ísland
gerist aðili að Evrópusambandinu? Mun sam-
bandið gera tilkall til olíunnar finnist hún þá á
annað borð norðaustur af landinu eins og
norskir olíusérfræðingar hafa haldið fram að
undanförnu? Mun náttúruverndarstefnan taka
breytingum vegna krafna frá Brussel?
Lengi hefur mest andstaða við inngöngu í
ESB verið út af því að Íslendingar vilji halda
yfirráðum yfir 200 mílna landhelgi og fiskimið-
unum. Sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB
hefur sætt gagnrýni, en hversu mikil áhrif
myndi það hafa á útgerð frá verstöðinni Ís-
landi ef við gengjum í ESB? Þeirri spurningu
verður velt upp sunnudaginn 11. janúar.
Umhverfismál verða til umfjöllunar 12. jan-
úar. Hafa Íslendingar ekki þegar notið þess
besta úr umhverfisstefnu Evrópusambandsins
í gegnum EES-samninginn? Er nokkur þörf á
að stíga skrefið til fulls með aðild?
Utanríkis- og öryggismál verða viðfang
fréttaskýringar 13. janúar. Eftir því sem slag-
kraftur Evrópusambandsins vex á alþjóðavett-
vangi er eðlilegt að spurningar um stefnu þess
í utanríkismálum vakni. Hvaða hlutverk ætlar
það sér á vettvangi alþjóðamálanna næstu ára-
tugina?
Evrópusamstarfið snýst ekki einvörðungu
um efnahagsmál. Áhrifa þess gætir víða í al-
þjóðasamstarfi. Mannréttindi eru málaflokkur
sem kemur þar einna fyrst upp í hugann og
verða þau til umfjöllunar 14. janúar. En styðja
Íslendingar viðleitni sambandsins í mannrétt-
indamálum? Telja Íslendingar sig eiga samleið
með sambandinu í jafn veigamiklum mála-
flokki?
Loks verður fjallað um umsóknarferlið að
ESB í síðustu fréttaskýringu greinaflokksins
15. janúar – hvernig slíkt ferli gengur fyrir sig
og hvaða reynslu aðrar þjóðir
hafa af því.
Með þessum flokki fréttaskýr-
inga leitast Morgunblaðið við að
draga fram kosti og galla aðildar,
þannig að Íslendingar geti betur
gert sér grein fyrir því hvað er í
húfi – og hvort hagsmunum
Íslands er betur borgið inn-
an eða utan ESB.
Fréttaskýringar um ESB í Morgunblaðinu frá 4.-15. janúar
Kostir og gallar aðildar að ESB
Umfjöllunin um Evrópusambandið verður aðgengileg á mbl.is. Þar verð-
ur einnig margvíslegt ítarefni, svo sem myndskeið og aðsendar greinar
fræðimanna. Tenging við ESB-vefinn verður í valstikunni ofarlega á for-
síðu mbl.is og bætist inn á vefsafnið sem þar er. Einnig verður hægt að
tengjast vefnum á slóðinni: www.mbl.is/esb.