Morgunblaðið - 04.01.2009, Síða 23
Tíska 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
Nánari upplýsingar og aðstoð í síma 411 1111
www.reykjavik.is
• skoðað álagningarseðil fasteignagjalda fyrir árið 2009 (eftir 26. jan. nk.)
og alla breytingaseðla þar á eftir
• afpantað álagningarseðla og breytingaseðla í pósti
• skráð sig í boðgreiðslu fasteignagjalda
• valið einn eða níu gjalddaga fasteignagjalda
(sjálfvirk breyting um áramót: sex gjalddagar breytast í níu gjalddaga)
• gefið upp reikningsnúmer ef til endurgreiðslu kemur
www.reykjavik.is
Á vef Reykjavíkurborgar
geta fasteignaeigendur:
Rafræn Reykjavík fyrir þig
Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur
vjon@mbl.is
K
arl keisari eða djásnið í
krúnu Chanel eins og
Karl Lagerfeld er jöfn-
um höndum kallaður,
varð sjötugur á liðnu
ári, þegar hálf öld var liðin frá því
hann haslaði sér völl svo heitið
gæti í hátískuborginni París. Þessi
roskni herramaður, sem ennþá
leggur tískulínur hins vestræna
heims er svolítið eins og holdgerv-
ingur þeirrar ímyndar, sem marg-
ir hafa um heimsfræga tísku-
kónga; fremur lágvaxinn,
þvengmjór, vel klæddur en spjátr-
ungslega og eilítið tilgerðarlegur í
fasi. Og svo er hann hommi.
Hvað Karl Lagerfeld varðar er
ekkert hæft í því að lítið mark sé
tekið á gamla fólkinu. Hann fer
eigin leiðir og þótt margir koll-
egar hans hafi haft laus og þægi-
leg föt í öndvegi fyrir sumarið
2009 var annað uppi á teningnum
hjá honum, a.m.k. í flíkunum, sem
hann kynnti undir eigin merki,
Karl Lagerfeld, síðastliðið haust.
Tískuskríbent bresku útgáfu tíma-
ritsins Marie Claire sagði að kon-
ur mættu ekkert gefa eftir í lík-
amsræktinni til þess að geta
klæðst þeim með sóma. Breið belti
og svart/hvít litapalletta eins og
einkenna sumartísku Lagerfelds
sagði hún beinlínis hannaða
með það fyrir augum að
vekja ómælda athygli á
jafnt klæðunum sem kon-
unni – og vaxtarlagi hennar
þá sérstaklega.
Vildi vera öðruvísi
Ferill Lagerfelds í
tískubransanum
hófst þegar hann,
22ja ára, vann sam-
keppni um hönnun
kápu, sem al-
þjóðlegt ullarfyr-
irtæki efndi til, en
hann hafði þá
stundað nám í
París um nokk-
urra ára skeið.
Verðlaunin voru
lærlingsstaða
hjá Pierre
Balmain í París.
Eftir þrjú ár
flutti hann sig
um set til Jean
Patou þar sem
hann hannaði tvær
hátískulínur á ári í
fimm ár undir nafninu
Roland Karl. Fyrsta
árið fékk hann slaka
dóma, en var lofaður í
hástert fyrir vorlínuna
1959, m.a. voru flík-
urnar sagðar vera lát-
lausar en samt óvenju-
lega glæsilegar. Vorið
1960 voru pils hans svo
stutt að annað eins hafði
ekki sést í Parísartískunni
og krítíkerar töluðu með
vanþóknun um sölulegan
hversdagsfatnað, sem lítt
ætti skylt við hátísku.
Um haustið sama ár hann-
aði hann litla satínhatta,
sem voru eins og pönnu-
kökur í laginu og slúttu niður á
kinn og kallaði þá „löðrunga“.
Ekki þótti mikið til þeirra koma.
Lagerfeld tók að leiðast og gerði
ekkert næstu tvö árin annað en
flatmaga á baðströndum og stúd-
era mannlífið, eins og hann orðaði
það.
Leiðin lá upp á við upp úr 1962
þegar hann hannaði föt í lausa-
mennsku fyrir merki á borð við
Valentino, Krizia, Ballantyne,
Fendi og Chloé og og setti upp
litla verslun í París með stuðningi
fjölskyldu sinnar. Lagerfeld hafði
alist upp við allsnægtir í foreldra-
húsum í Hamborg áður en hann
freistaði gæfunnar í París. Faðir
hans auðgaðist á að setja þurr-
mjólk á markaðinn í Þýskalandi
og móðir hans var annáluð smekk-
kona, sem veitti honum strangt og
á stundum harðneskjulegt uppeldi.
Þau mæðginin deildu tísku-
áhuganum, en sem barn dundaði
hann sér við að klippa tískumynd-
ir út úr tímaritum hennar. Móður
hans þótti samkynhneigð hans
ekkert tiltökumál frekar en að
hann lét hár sitt vaxa og klæddist
austurrískum búningum af því að
enginn í Norður-Þýskalandi gerði
það. „Ég var öðruvísi en aðrir og
vildi vera öðruvísi,“ sagði hann ný-
lega í viðtali í The Sunday Times
og kvaðst hafa hatað skólann og
ekkert þótt gaman að leika sér við
önnur börn. „Ég vildi bara
lesa, teikna, skrifa og læra
tungumál,“ bætti hann við.
Endurreisti Chanel
Á sjöunda og áttunda ára-
tugnum kom Lagerfeld til
góða að vera ungur
og vel með á nót-
unum um þá hug-
arfarsbreytingu
sem orðið hafði hjá
ungu fólki í Evr-
ópu jafnt sem
vestanhafs á sjö-
unda og áttunda
áratugnum. Ýms-
um borgaralegum
gildum var varp-
að fyrir róða og
hátískan varð í
huga margra
tákn broddborg-
ara. Götutískan
varð allsráðandi
en Lagerfeldt
tókst að snúa á þessi nýju
gildi með því að innleiða
hana í hátískuna. „Tískan
speglar tíðarandann. Mér
finnst gaman að horfa á
heiminn og fylgjast með því
sem er að gerast,“ sagði Lag-
erfeld í fyrrgreindu viðtali.
Eflaust hefur mesta áskor-
un Lagerfelds á löngum ferli
verið 1983 þegar hann varð
listrænn stjórnandi Chanel,
en merkið hafði verið í dauða-
teygjunum frá því stofnand-
inn, Coco Chanel, lést 1971.
Hinar settlegu og frúarlegu
Chanel-dragtir voru víð-
frægar, en vandamálið var að
konur vildu ekki endilega
vera settlegar og frúarlegar á
þessum tíma. Lagerfeld tók
djarfmannlega til hendinni, léði
drögtunum unggæðislegt yf-
irbragð með því að stytta pilsin og
jakkana sömuleiðis, þannig að þeir
beruðu mittið, og gerði auk þess
mikið úr Chanel-lógóinu, t.d. í
stórum hálsfestum. Mörgum þótti
breytingarnar groddalegar, nánast
helgispjöll, en gagnrýnin var létt-
væg fundin því Chanel-búðirnar
lifnuðu við og peningarnir
streymdu í kassann.
Árið 1984 kom Karl Lagerfeld
fram með tískulínu undir eigin
nafni og hefur æ síðan kynnt tvær
línur á ári auk þess að hanna
ógrynnin öll; fatnað og annað, fyr-
ir ýmis fyrirtæki, t.d. þýska postu-
línsfyrirtækið Hutchenrehter.
Einnig hefur hann hannað bún-
inga fyrir kvikmyndir og leikhús í
áranna rás og markaðssett ilm-
vötn, slæður, gleraugu og fylgi-
hluti í sínu nafni.
Yfirborðslegasti
maður heims?
Engan bilbug er á honum að
finna, enda maðurinn einarður
mjög eins og kom í ljós 2001 þeg-
ar hann fór í megrun og léttist um
42 kíló á rúmlega ári. Hann vildi
nefnilega geta klæðst fötum hönn-
uðum af Hedi Slimane, og þau
eru, að hans sögn, aðeins fyrir
þvengmjóa drengi. Tiltækið gat af
sér bókina The Karl Lagerfeld
Diet. Nema hvað!
Síðustu árin hefur Lagerfeld
helgað ljósmyndun æ meira af
tíma sínum. Hann hefur haldið
nokkrar ljósmyndasýningar og yf-
irleitt fengið góða dóma. Lungann
úr árinu býr hann í glæsiíbúð
sinni á Signubökkum þar sem
hann dregur upp tískulínur á
morgnana við tónlist í einum
þeirra hundraða iPod-tækja sem
hann er sagður eiga í íbúðum og
húsum sínu úti um allan heim. Þar
er hann líka umlukin bókum enda
segist hann vera „vitlaus í bæk-
ur“, því hann vilji læra og vita um
allt. „Ég er samt enginn gáfumað-
ur og vil ekki vera í félagsskap
slíkra. Ég er yfirborðslegasti mað-
ur á jörðinni,“ sagði Karl Lag-
erfeld, sem Time Magazine út-
nefndi sem einn af eitt hundrað
áhrifamestu mönnum heims á síð-
asta ári.
Reuters
Skapar peninga Karl Lagerfeld með 5 evru mynt sem hann hannaði til að
minnast 125 ára fæðingarafmælis Gabrielle „Coco“ Chanel.
Enginn
bilbugur
á Karli
keisara