Morgunblaðið - 04.01.2009, Síða 24
24 Myndaalbúmið
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
Sigríður María Beinteins-dóttir fæddist 26. júlí1962, í miðjunni af sjö
börnum Svövu Markúsdóttur,
sem lést 2007 og Beinteins Ás-
geirssonar.
Sigga byrjaði að syngja með
hljómsveitinni Geðfró árið 1980
og tók þátt í Músíktilraunum
með Meinvillingunum árið 1981.
Síðar var hún í hljómsveitinni
Kikk og rak m.a. eigin hljóm-
sveit um tíma, en lengst af hefur
hún sungið með Stjórninni.
Sigga söng í Evrópu-
söngvakeppninni með Grétari
Örvarssyni árið 1990, með Sig-
rúnu Evu árið 1992 og ein síns
liðs árið 1994. Hún söng í bak-
röddum hjá Silvíu Nótt árið
2006.
Undanfarin ár hefur hún gefið
út myndbönd og diska, Söngva-
borg, ásamt Maríu Björk Sverr-
isdóttur. Fimmti Söngvaborg-
ardiskurinn kom út fyrir jólin.
Sigga er í sambúð með Huldu
Ingvarsdóttur Bethke.
Sigga
Beinteins
Skírnarmyndin Ég var skírð í höfuðið á ömmu
2. dag jóla árið 1962. Þá heyrðist fyrst í mér í
útvarpi, því ég var skírð í útvarpsmessu.
Píramídar Sumarið 2001 fór ég til Egyptalands. Það var eitt allra
skemmtilegasta frí sem ég hef upplifað.
Á heimaslóðum mömmu Við pabbi í Súða-
vík sumarið 2007 í húsi fjölskyldunnar þar.
Hundurinn minn, hann Frosti, var auðvitað
líka með í för.
Vinkonur Við fórum í frábæra ferð til Mallorka
sumarið 1999, ég og Jóhanna Waagfjörð.
Kikkið Með einni af fyrstu hljómsveitunum, Kikkinu, á balli, senni-
lega árið 1984. Yst er Nikulás Róbertsson hljómborðsleikari, þá
Sveinn Kjartansson bassaleikari, Magnús Stefánsson á trommur.
Síamstvíburar? Með Sigrúnu Evu
Ármannsdóttur eftir sigur í for-
keppni Eurovision 1992.
Lítil Þriggja ára sumarið 1965 að prófa
hjólið hans Einars bróður.
Ball Með Stjórninni á Tveimur vinum
árið 1992. Grétar Örvarsson í baksýn.
Brúðkaup frænku Mamma, pabbi og við systkinin í aldursröð:
Ásgeir, Halldóra, Einar, ég, Jóhanna, Markús og Berglind.
Einhyrningur Svona var búningurinn
þegar ég fór með Silvíu Nótt til Aþenu
árið 2006. Ég var marga daga að ná
glimmerinu úr hárinu.
Hin ástríðan Að æfa sveifl-
una á Spáni sumarið 2005.
Golfið er uppáhaldið, næst
á eftir söngnum.
Á sveitaballi
Á Spáni
Með ömmu minni og nöfnu
Ég og Jóhanna á jólum