Morgunblaðið - 04.01.2009, Qupperneq 39
Minningar 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
Ég hef misst einn
af bestu vinum mín-
um. Það er sárt að
missa, en þegar mað-
ur veit að vinur manns er kominn
heim til Jesú þá samfagna ég Sigga.
Sigurður er kominn heim til Drott-
ins. Ég trúi því að við sem þekktum
Sigurð höfum misst merkan trúfast-
an og góðan vin, er alltaf var
Sigurður Þ. Gústafsson
✝ Sigurður Þ. Gúst-afsson fæddist í
Reykjavík 4. janúar
1939. Hann lést á
líknardeild Landspít-
alans í Kópavogi 31.
ágúst síðastliðinn og
var jarðsunginn frá
Bústaðakirkju 11.
september.
reiðubúinn að láta gott
af sér leiða. Nú er Sig-
urður kominn heim til
Jesú, Föðurins og
Heilags anda.
Sigurður Þ. Gúst-
afsson átti mikinn þátt
í að ég komst til trúar.
Á ögurstund í lífi mínu
er allt virtist, brotið
og öll sund lokuð,
bauð Sigurður skóla-
bróðir minn úr Versló,
mér á samkomu í
K.F.U.M. og síðan á
mót í Vatnaskógi. Á
mótinu í Vatnaskógi snart Drottinn
við mér. Ég tók á móti Jesú í Vest-
mannaeyjum ári síðar.
Farðu heill góði vinur með þakk-
læti fyrir góða viðkynningu.
Einar Gíslason, kennari.
✝ Guðbjörg Páls-dóttir, Sólbakka á
Selfossi, fæddist á
Skúmsstöðum á Eyr-
arbakka, 27. október
1910. Hún lést á Ljós-
heimum á Selfossi 19.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Páll Pálsson
frá Ferjunesi í Vill-
ingaholtshreppi og
Jónína Jónsdóttir frá
Skúmsstöðum. Guð-
björg var í hópi níu
systkina, og kveður
þeirra síðust. Hún ólst upp á Eyr-
arbakka. Missti föður sinn ung, en
naut góðrar samstöðu fjölskyld-
unnar.
Guðbjörg giftist 6. júní árið
1936 Steindóri Sigursteinssyni,
Denna, sem var bílstjóri. Þau settu
heimili sitt á Selfossi, voru þar
með frumbýlingum og mótendum
nýrrar byggðar. Byggðu hús við
það sem síðar varð Austurvegur,
kölluðu Sólbakka og voru við það
kennd. Börn Guðbjargar eru fimm:
Páll Árnason, kvænt-
ur Benediktu Guðna-
dóttur; Sigursteinn,
kvæntur Valgerði
Kristinsdóttur;
Sverrir, látinn, var
kvæntur Báru Stein-
dórsdóttur, látin,
seinni kona hans var
Sigríður Þóra Ingva-
dóttir; Ingibjörg,
maður hennar er
Sveinbjörn Ein-
arsson; og Gísli, fyrri
kona hans var Perla
María Jónsdóttir,
kona hans er Þórunn Þórmunds-
dóttir. Barnabörn Guðbjargar eru
19, langömmubörnin 39 og langa-
langömmubörnin 5.
Guðbjörg og Steindór voru kunn
á Selfossi, virk í félagsstarfi. Guð-
björg var m.a. með stofnendum og
heiðursfélagi Kvenfélags Selfoss.
Síðustu árin átti hún á Ljós-
heimum.
Útför Guðbjargar var gerð frá
Selfosskirkju laugardaginn 27.
desember.
Margs er að minnast við leið-
arlok ástkærrar móður. Það eru
mikil forréttindi að fá að njóta sam-
vista svo lengi. Líkaminn var orð-
inn lúinn en minnið ótrúlegt. Ég
sagði oft ef ég mundi ekki eitthvað
að ég þyrfti að spyrja mömmu, hún
hafði gaman af og spurði oft hvort
ekki væri erfitt að vera svona
gleymin. Mamma var einstaklega
hress, kát, lífsglöð og dugleg. Það
var henni og okkur öllum mikill
missir þegar pabbi dó. Þau voru
ákaflega samrýnd, vinamörg og
skemmtileg.
Í minningunni var alltaf mann-
margt á Sólbakka. Fjölskyldan
stór, ættingjar og vinir og ýmsir
sem bjuggu þar með þeim. Sig-
ursteinn afi og pabbi byggðu Sól-
bakkann og voru foreldrar mínir
með þeim fyrstu sem fluttu að Ölf-
usá, eins það hét í þá daga. Pabbi
var mjólkurbílstjóri á þessum árum
og oft lengi að heiman. Ég minnist
frásagnar frá stríðsárunum, þá fór
hann að heiman að morgni og kom
ekki heim fyrr en eftir marga daga,
var kyrrsettur í Reykjavík og sótti
þaðan mjólk að Kolviðarhóli sem
bílar frá Selfossi komu með. Oft
voru ferðirnar langar, því ekki var
annar mokstur en þeir sjálfir með
sínar skóflur.
Ég minnist líka aðfangadags-
kvölda, þegar við systkinin fylgd-
umst með bílalestinni mjakast frá
Ingólfsfjalli, ekki gekk alltaf vel, þá
fengum við að opna 1 pakka kl. 6,
sjálfsagt gert til að róa okkur. Ég
minnist líka skemmtilegra ferða-
laga, veiðiferða, berjaferða o.fl. Þá
var ekki útvarp í hverjum bíl, en
mamma og pabbi sungu ættjarð-
arlög o.fl. sem við ýmist kunnum
eða lærðum og tókum undir.
Mamma var einstaklega mynd-
arleg húsmóðir, góð móðir, amma
og vinur, var alltaf til staðar fyrir
okkur. Fór ekki að vinna utan
heimilis fyrr en við vorum öll full-
vaxin og mörg farin að heiman.
Hún var sívinnandi, hafði sérstakt
yndi af hannyrðum, mörg listaverk-
in eftir hana prýða veggi heimila
okkar systkina o.fl. Margar hendur
hafa borið einstaklega fallega lopa-
vettlinga, sem hún prjónaði, þæfði
og kembdi. Ég þori ekki að minn-
ast á matargerð og bakstur, því
einhvern tímann sagði hún að ef
ekki væri hægt að minnast hennar
fyrir annað en kleinusteikingu og
e.þ.h. væri ekki gaman að lifa.
Mamma hugsaði alltaf fyrst og
fremst um aðra gerði aldrei kröfur
fyrir sjálfa sig. Frásögn er til um
þegar pabbi kom heim með ísskáp
og mamma stóð í dyrunum og
spurði hvað hann ætlaði að gera við
þetta, þá sagði hann: „Færðu þig
frá, kona góð, þetta ætla ég með
inn í eldhús til…“. Eins man ég
þegar ég kom eitt sinn heim,
mamma sagði mér að koma inn í
stofu, þar var fallegt sófasett sem
pabbi hafði keypt en mömmu
fannst að kannski hefði verið meiri
þörf fyrir peningana í eitthvað ann-
að. Sagði að sjálfsagt ættu þau ekki
mikið ef hún fengi að ráða.
1974 eignuðust þau jeppa og
hjólhýsi sem þau notuðu mikið á
sumrin og nutu vel. Í rúm 60 ár bjó
mamma á Sólbakka, flutti svo í
íbúð fyrir aldraða, seinustu árin
dvaldi hún á Ljósheimum við góða
umönnun en átti erfitt með að
sætta sig við að geta ekki hugsað
um sig sjálf. Hjartans þakkir til
alls starfsfólksins.
Hvíldu í friði, elsku mamma. Veit
að pabbi og Sverrir taka vel á móti
þér. Þín Bíbí –
Ingibjörg Jóna.
Þá er hún elsku amma Gudda
farin í sína hinstu ferð. Ákveðið að
nú væri þetta komið gott og farið
og hitt hann afa eftir langan að-
skilnað. Amma var alveg stórkost-
leg kona í alla staði og eins og við
sögðum svo oft „þá var hún með
munninn fyrir neðan nefið“. Alltaf
þegar farið var á Selfoss var komið
við á Sólbakkanum hjá ömmu og
afa, var þá dreginn fram keflakass-
inn og mikið var hægt að leika sér
með þau og ekki sakaði ef afi var
með í leiknum. Alltaf voru bornar á
borð fyrir okkur miklar og góðar
kræsingar, s.s. græna byltingin,
smákökurnar með súkkulaðidrop-
unum og ef maður datt í lukkupott-
inn kótelettur í raspi með öllu til-
heyrandi enda amma mikill kokkur.
Eftir að afi féll frá kom amma
stundum til okkar í sveitina, amma
átti sinn stað í öðru horninu í eld-
húskróknum og þar sat hún og
stoppaði í alla götóttu lopasokkana
eða lagði kapal. Já, sem betur fer
er maður svo heppinn að eiga
margar og góðar minningar um
hana ömmu sem við geymum með
okkur.
Elsku mamma, ástarþakkir fyrir
allt sem þú gerðir fyrir ömmu,
missir þinn er mikill sem og okkar
allra.
Amma, eins sárt og það er að
missa þig huggar maður sig við það
að þú sért komin á betri stað þar
sem afi Steindór og Sverrir frændi
hafi tekið þér opnum örmum.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Hvíl í friði, amma mín.
Þín
Unnur Anna.
Þegar hátíð ljóssins nálgaðist
slokknaði ljós sem logaði skært í
rúm 98 ár. Lífsgöngu Guðbjargar
Pálsdóttur lauk eftir farsæla ævi.
Gudda Páls, eins og við kölluðum
hana, var heimilisvinur í Eystra-
Geldingaholti. Fyrir rúmum hundr-
að árum var móðir hennar kaupa-
kona hjá langafa og langömmu okk-
ar. Það varð til þess að hún, innan
við fermingu, kom sumarstelpa til
ömmu og afa. Fyrstu sumrin hafði
hún það hlutverk að passa pabba
og Ingu systur hans. Þó að síðan
séu liðin hátt í 90 ár hafa tengslin
aldrei rofnað. Gudda og Denni,
maðurinn hennar, voru hluti af til-
verunni og mikill samgangur var á
milli Sólbakka og Eystra-Geldinga-
holts. Varla var farin Selfossferð án
viðkomu á Sólbakka, þar var ein-
staklega gott og skemmtilegt að
koma. Denni brá sér yfir götuna, í
Siggabúð til að kaupa vínarbrauð, á
meðan Gudda hellti á könnuna og
hafði til undirstöðugott meðlæti og
var fljót að. Í eldhúsinu urðu
hressilegar umræður um þjóðmál
og það sem var á döfinni hverju
sinni og þau töluðu bæði tæpi-
tungulaust. Um árabil áttu Gudda
og Denni nokkrar kindur, gjarnan
golsóttar. Á vorin komu þau með
þær upp eftir og voru þær hjá okk-
ur þar til þær fóru á afrétt. Í mörg
ár ráku Denni og pabbi saman til
fjalls ásamt kaupamönnunum og
höfum við heyrt margar sögur af
þeim ferðum. Síðar óku þeir fénu á
vörubílunum sínum og það var æv-
intýri að fá að fara með í slíkar
ferðir. Það var hátíð í bæ þegar
Gudda og Denni birtust, alltaf voru
þau með eitthvert góðgæti sem var
saldséð í sveitinni á þeim árum. Og
þau töluðu við okkur krakkana.
Réttadagurinn hefur ávallt verið
mikill hátíðisdagur hjá Gnúpverj-
um. Í bernsku okkar systkinanna
og fram á fullorðinsár fannst okkur
réttirnar byrja þegar Gudda og
Denni mættu, venjulega daginn áð-
ur. Hún söng: „Nú liggur vel á
mér“ og síðan minnir þetta lag okk-
ur á hana. Það var eins og það lægi
alltaf vel á Guddu, hún var spaug-
söm, hafði einstaka frásagnarhæfi-
leika, gerði óspart grín að sjálfri
sér og hafði svo smitandi hlátur að
óðar voru allir nærstaddir farnir að
hlæja. Fólk laðaðist að henni.
Gudda var glæsileg bæði ung og
háöldruð heiðurskona og orðheppin
fram í andlátið. Við minnumst
Guddu með þakklæti fyrir allar
stundirnar og gleðina frá því að við
munum eftir okkur. Við færum fjöl-
skyldu hennar einlægar samúðar-
kveðjur. Blessuð sé minning henn-
ar.
Árdís og Sigrún Jónsdætur.
Guðbjörg Pálsdóttir
✝
Elsku mamma mín, tengdamamma, amma og
langamma,
UNNUR EIRÍKSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 30. desember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Malín Örlygsdóttir, Gunnlaugur Geirsson,
Örlygur, Bergþór, Unnur,
Theodóra, Unnur Malín, Þorvaldur, Arnljótur, Gylfi, Valgerður
og barnabarnabörn.
✝
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
REYNIR MARKÚSSON
brunavörður,
Hraunvangi 1,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
6. janúar kl. 15.00.
Guðríður Jónsdóttir,
Þröstur Reynisson,
Hildur Reynisdóttir, Guðmundur Davíðsson,
Ólafur Gísli Reynisson, Jóna Sigurlín Harðardóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur sonur minn, bróðir okkar og mágur,
EINAR G. VESTMANN ÞÓRODDSSON
frá Bekansstöðum,
lést á Dvalarheimilinu Höfða föstudaginn
26. desember.
Hann verður jarðsunginn frá Akraneskirkju
miðvikudaginn 7. janúar kl. 14.00.
Valgerður Einarsdóttir Vestmann,
Margrét Vestmann Þóroddsdóttir, Finnur S. Guðmundsson,
Valur Þór Vestmann Þóroddsson, Guðlaug Magnúsdóttir,
Jóhann Vestmann Þóroddsson, Guðríður Hannesdóttir,
Bjarni O. Vestmann Þóroddsson, Kristín J. Dýrmundsdóttir,
Katrín Vestmann Þóroddsdóttir,
Ólafur Vestmann Þóroddsson, María Björk Reynisdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
BALDVIN JÓHANNSSON,
Eyrargötu 31,
Siglufirði,
lést þriðjudaginn 30. desember á Heilbrigðis-
stofnun Siglufjarðar.
Jarðarförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugar-
daginn 10. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hins látna er bent á Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar.
Anna Hulda Júlíusdóttir,
Theodóra Hafdís Baldvinsdóttir,
Konráð Karl Baldvinsson, Erla Hafdís Ingimarsdóttir,
Sigurður Örn Baldvinsson, Halldóra Jörgensen,
Ásdís Eva Baldvinsdóttir, Hörður Þór Hjálmarsson,
María Gíslína Baldvinsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðursystir mín,
LÁRA HORTSMANN,
lést á heimili sínu í Kaliforníu föstudaginn
2. janúar.
Helga Magnúsdóttir.