Morgunblaðið - 04.01.2009, Page 40
40 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
✝
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
SVERRIR GUÐJÓNSSON,
áður Miðtúni 42,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju þriðju-
daginn 6. janúar kl. 11.00.
Aðstandendur.
✝
Ástkær sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi,
INDRIÐI INGI STYRKÁRSSON,
lést á aðfangadag 24. desember á krabbameins-
deild Landspítalans.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
6. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent
á Minningarkort krabbameinslækningadeildar Landspítalans
s. 543-1159.
Laila Andrésson,
Alfred Júlíus Styrkársson,
Sigurður E. Styrkársson, Ingibjörg Hanna Sigurðardóttir,
Elísabet Þórisdóttir, Alexandra Inga Alfredsdóttir.
✝ Þórður KristinnJóhannesson,
skipstjóri og útgerð-
armaður, oftast kall-
aður Dóri á Gauk,
síðast til heimilis að
Álfaskeiði 64, Hafn-
arfirði, fæddist á
Gauksstöðum í Garði
4. nóvember 1929.
Hann lést á hjarta-
deild Landspítalans
við Hringbraut 21.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Jóhannes Jóns-
son, formaður og útvegsbóndi á
Gauksstöðum, og Helga Þorsteins-
dóttir frá Melbæ í Leiru. Þórður
ólst upp á Gauksstöðum í stórum
systkinahópi og eru þau: Þor-
steinn, f. 1914, d. 1995, Kristín, f.
1915, d. 1982, Jón, f. 1916, d.
1995, Gísli, f. 1918, d. 1919, Svein-
björg, f. 1919, d. 2006, Ástríður, f.
1921, d. 1988, Gísli Steinar, f.
1924, Jóhannes Gunnar, f. 1926, d.
2001, Kristín Ásthildur, f. 1928,
Sigurlaug, f. 1931, d. 1933, Sig-
urlaug Erla, f. 1933, Matthildur, f.
1935, d. 1959 og Einar, f. 1937, d.
1995.
Hinn 2. júní 1951 kvæntist hann
Ragnhildi Einarsdóttur, f. 29. maí
1931, d. 4. júní 1986. Foreldrar
hennar voru Ragnhildur Jóns-
dóttir og Einar Tómasson, kola-
kaupmaður í Reykjavík. Þórður
og Ragnhildur byrjuðu sinn bú-
skap í Garðinum. Þau fluttu síðan
til Keflavíkur og bjuggu þar nær
alla tíð, fyrst á Smáratúni 18 og
svo Faxabraut 49, þar til þau
fluttu í Helguvík á Álftanesi. Þau
eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1)
Þórður, f. 1. ágúst 1951, d. 29.
maí 2008. Kvæntist Hildi Guð-
mundsdóttur, þau skildu. Börn
þeirra eru: a) Guðmundur Þorkell.
hannesar og rak eftir það sína
bátaútgerð. Lengst af átti hann
bátinn Ólaf KE-49, síðan bættist
við Ólafur II KE-149 og loks
Ragnhildur HF-49. Til viðbótar
við bátaútgerðina byggði hann
fiskhús í Njarðvík og rak þar
Fiskverkun Þórðar Jóhann-
essonar í mörg ár. Þar verkaði
hann saltfisk og skreið, saltaði
síld og frysti fisk. Þegar best lét
rak hann fiskhúsið, tvo báta og
var með fjölda starfsfólks í
vinnu, þar á meðal hóp Fær-
eyinga. Auk þessa var hann
brautryðjandi í rækjuvinnslu á
Suðurnesjum. Fyrstu áratugina
er Þórður var til sjós var aðeins
notast við klukku, kompás og
landmið. Menn skráðu hjá sér og
lögðu á minnið hvar þeir lögðu
línur og net, ásamt því hvar
bestu miðin voru. Hann hafði
sína hjátrú varðandi sjósókn og
veiði, fór eftir draumum sínum
og hugboðum, hvort sem það
boðaði gott eða vont. Þórður
sagðist aldrei hafa tapað línu eða
bauju. Alltaf fann hann sín veið-
arfæri þó það tæki hann tíma að
leita að þeim. Eitt sinn gafst
hann upp á að leita að bauju, fór
niður í lúkar og fékk sér kaffi.
Þegar hann kom upp aftur þá
var baujan við hliðina á bátnum.
Þórður endaði sinn sjómannsferil
sem hæstánægður trillukall í
Hafnarfirði, með nýtísku skip-
stjórnar- og veiðibúnað, bauj-
urnar komnar með endurskins-
merki og GPS-búnað þannig að
hann gat séð nákvæmlega hvar
og hvernig þær lágu. Þórður var
farsæll skipstjóri og aflamaður.
Ásamt öllum þeim sjómönnum
sem voru með honum á vertíð
voru margir úr fjölskyldu hans
og Ragnhildar, þ.á m. börn
þeirra, sonarsonur og tengdason-
ur.
Útför Þórðar fór fram frá
Garðakirkju 30. desember, í
kyrrþey að ósk hins látna.
Börn hans eru Alex-
andra Ósk og Heim-
ir Berg. b) Elenora
Ósk, gift David Tre-
vor Park. Sonur
þeirra er Kári Tre-
vor. Fyrir á Elenora
soninn Embrek Snæ.
2) Einar, f. 22. ágúst
1954, kvæntur Berg-
ljótu Jóhannsdóttur.
Börn þeirra eru Sig-
rún Björk, Ragn-
hildur og Tómas
Gauti. 3) Matthildur,
f. 6. maí 1960, gift
Lárusi Einarssyni. Dóttir þeirra
er Ingveldur, sambýlismaður
Emmanuel Kwame Boateng. Börn
þeirra eru Adrian Nana og Lára
Serwaa. Lárus á einnig: a) Ástu,
sambýlismaður Andrew McCor-
mack. Börn þeirra eru Anna
Katrín og Stefan Trent.b) Unnar
Þór, sambýliskona Lea Margrét
Arnardóttir. Dóttir þeirra er El-
ísabet Helga. 4) Jóhannes, f. 6.
mars 1964, kvæntur Margréti
Sigmarsdóttur. Börn þeirra eru
Hera, Hugi, og Embla.
Þórður ólst upp á stóru útgerð-
arheimili á Gauksstöðum í Garði
og var sjómennskan honum í blóð
borin. Á þeim tíma var skóla-
gangan með öðru sniði en í dag
og fékk hann sína grunnskóla-
kennslu í Garðinum og við
Reykjaskóla í Hrútafirði. Hann
útskrifaðist síðan frá Stýrimanna-
skólanum í Reykjavík 1951 með
fiskimannapróf sem veitti honum
skipstjórnarréttindi. Allan sinn
starfsferil vann Þórður við sjó-
inn, bæði sem skipstjóri og út-
gerðarmaður. Hann var á ýmsum
bátum þar til árið 1957, er hann
ásamt Jóhannesi bróður sínum
keypti 22 tonna bát sem bar nafn-
ið Ólafur. Hann keypti hlut Jó-
Nú þegar pabbi, hann Dóri á
Gauk, er látinn þá langar mig að
minnast hans. Hann var sjómaður
alla tíð og byrjaði ungur til sjós.
Hann var tíu eða ellefu ára þegar
hann stalst með bræðrum sínum út
á sjó á litlum bát frá Gauksstaða-
fjöru að veiða í soðið eins og Jó-
hannes pabbi þeirra og eldri bræður
gerðu. Líklegt er að systur þeirra
hafi haft nóg að gera við að passa
bræður sína við sjómennskuleiki
þeirra. Hásetastörf á stærri bátum
og lengri róðrar tóku síðan við á
næstu árum.
Hann tók fiskimannapróf í Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík 1951,
sem veitti honum skipstjórnarrétt-
indi. Sama ár kvæntist hann Ragn-
hildi Einarsdóttur frá Reykjavík og
bjuggu þau lengst af í Keflavík.
Börn þeirra eru Þórður (Danni) sem
lést fyrr á þessu ári, Einar, Matt-
hildur og Jóhannes.
Pabbi eignaðist marga báta og
byggði eigið fiskhús. Fyrsti bátur-
inn var Ólafur KE-49. Bræðurnir
urðu allir dugnaðar sjómenn og
mikið samband var milli þeirra, ekki
síst milli pabba og Jóhannesar. Það
hlýtur að hafa verið dýrmætt og
gaman fyrir þá að geta leitað hver
til annars eftir aðstoð, hugmyndum
og þekkingu. Ekki má gleyma
Nonna bróður sem öllum þótti vænt
um.
Þó nóg væri að gera hjá pabba þá
kvartaði hann aldrei. Það var ekki
hans stíll. Hann hafði góða lund og
hvað sem á bjátaði var hann alla tíð
bjartsýnn og jákvæður, var alltaf að
stappa í menn stálinu og hvetja. Ég
reri með honum ásamt Danna bróð-
ur eina netavertíð og fékk þar mína
eldskírn í sjómennsku sem ég hef
búið að síðan. Hann horfði t.d. á
þegar sjóveikin bráði af mér við eitt
öldubrot og hafði gaman af.
Pabbi lifði tímana tvenna og
fannst gaman að segja frá lífinu á
árum áður, ekki síst skemmtilegum
veiðisögum, þar var af nógu að taka.
Hann undi sér best við veiðiskap, úti
á sjó eða við lax- og silungsveiði.
Sumarbústaðurinn sem hann byggði
við Meðalfellsvatn var sælureitur
fjölskyldunnar. Til eru margar
skemmtilegar sögur tengdar hon-
um. Pabbi hafði alla tíð yndi af mat,
og eftir að mamma dó, árið 1986, að-
eins 55 ára að aldri, þá sá hann um
sig og eldaði sjálfur. Hann var líka
duglegur að koma í heimsókn og í
mat til okkar systkinanna. Hann
borðaði allt og kvartaði aldrei yfir
matnum en ef honum fannst hann
ekki nógu kryddaður þá hvíslaði
hann þessa frægu setningu „Áttu
ekki smá pipar?“
Hann sló ekki slöku við þó hann
væri sestur í helgan stein, spilaði
golf á sumrin og brids á veturna í
góðra vina hópi, las einnig mikið og
átti gott bókasafn. Honum fannst
gaman að umgangast barnabörnin,
segja þeim sögur eða bara rabba við
þau um daginn og veginn. Hann var
ávallt boðinn og búinn að rétta fram
hjálparhönd. Þegar hann var beðinn
um að passa þau eða skutla var það
ávallt auðsótt mál enda var hann
mjög stoltur af sinni fjölskyldu. Á
sjómannadeginum var oft farið í
siglingu með barnabörnin og muna
þau vel eftir því.
Það sýnir hve pabbi var elskaður
af börnum sínum og barnabörnum
að þau voru flest við dánarbeð hans
þegar hann kvaddi. Hans er sárt
saknað en það er okkur huggun að
hann er kominn til mömmu og
Danna bróður. Blessuð sé minning
hans.
Einar.
Í dag kveð ég minn elskulega
tengdaföður, Þórð Jóhannesson,
sem alltaf var nefndur Dóri. Ég var
ung að árum eða aðeins 17 ára göm-
ul þegar ég kom inn í fjölskylduna á
Faxó. Mér var strax tekið vel af
Dóra og tók hann mér strax sem ég
væri hans eigin dóttir. Dóri var ein-
stakur maður. Hann var mjög hlýr
og átti gott með að umgangast fólk.
Hann var góður frásagnarmaður og
var unun að hlusta á hann segja frá,
hvort sem það var frá hans æskuár-
um á Gauksstöðum, sjónum eða út-
gerðinni hans. Hann var víðlesinn
og gott var að leita til hans ef maður
þurfti svar við einhverju varðandi
lífsgátuna. Ef einhver var að
kveinka sér þá sagði Dóri oft þessa
setningu: „Hefurðu aldrei verið til
sjós?“
Dóri var besti afi í heimi og sýndi
hann barnabörnum sínum alltaf
mikla natni og áhuga hvort sem var
í námi eða tómstundum. Hann var
duglegur að hringja í fjölskylduna
og gat spjallað tímunum saman í
símann um heima og geima. Einnig
var hann duglegur að koma í heim-
sókn og vera með fjölskyldunni.
Hann sýndi okkur öllum alltaf mikla
væntumþykju og hlýju, og átti gott
með að samgleðjast og var stoltur af
fjölskyldu sinni.
Dóri var mikill matmaður og var
gaman að bjóða honum í mat. Hann
borðaði allt sem á borð var borið en
þó pantaði hann oft steik og góða
sósu. Toppurinn var að fá kaffi og
súkkulaði á eftir. Ég kynntist ýms-
um matarvenjum þegar ég kom inn
í fjölskylduna hans. Þá fékk ég í
fyrsta skipti rjúpur, sem hafa verið
á borðum síðan hjá okkur á að-
fangadag. Einnig lærði ég að borða
skötu sem ég hafði aldrei sett inn
fyrir mínar varir áður. Skata er
núna orðin órjúfanleg hefð á Þor-
láksmessu hjá okkar fjölskyldu í
Mosarima.
Ég er þakklát fyrir að hafa
kynnst tengdaföður mínum og átt
með honum ógleymanlegar stundir
og minningar sem munu ylja um
ókomin ár. Með þakklæti fyrir allt.
Guð geymi tengdaföður minn.
Þín tengdadóttir,
Bergljót.
Fallinn er frá kær tengdafaðir,
Þórður Jóhannesson (Dóri), skip-
stjóri og útgerðarmaður frá Gauks-
stöðum í Garði. Hann lést síðasta
sunnudag í aðventu eftir veikindi.
Upphaf kynna okkar Dóra var
þegar ég hóf samband við yngsta
barn hans, Jóhannes, en á þeim
tíma var fjölskyldan búsett í Kefla-
vík þar sem Dóri rak útgerð af mikl-
um myndarleika ásamt konu sinni
Ragnhildi Einarsdóttur. Dóri hafði
á þessum tíma í mörg horn að líta
enda fjögurra barna faðir og allt
vildi hann að vel færi hjá sér og sín-
um.
Margs er að minnast þegar litið
er yfir farinn veg. Fiskveiðar eru þó
það sem stendur upp úr en allt vissi
Dóri um þau efni. Eina sumarnótt
vantaði mann í róður og ég dreif
mig í verkið og öðlaðist þar með þá
reynslu „að hafa verið til sjós“ eins
og hann komst gjarnan að orði.
Þetta fannst Dóra í framhaldinu
örugglega ekki verra en umræðan
um ferðina var ævinlega skemmti-
leg. Auk sjóferða í hans lögsögu var
honum boðið í sjóferðir norður á
Melrakkasléttu, í mína lögsögu. Þar
fékk hann alvöru silung og sá að það
var víða flottur fiskur og fín fiski-
tökin. Dóri var léttur í lund og vildi
horfa á það sem vel gekk og var
skemmtilegt. Hann var mikill frum-
kvöðull, vinnuþjarkur, framtaks-
samur og metnaðargjarn.
Eftir að börnin okkar fæddust var
alltaf talað um Dóra-afa á okkar
heimili enda naut hann mikilla vin-
sælda meðal þeirra. Hann spilaði við
þau, talaði við hvern og einn um það
sem að honum sneri, horfði á fim-
leikamót og fótbolta, kom á tónleika
og keyrði þennan hingað og hinn
þangað. Dóri-afi átti gott með að
nálgast fólkið sitt og ræða það sem
hann taldi líklegt að passaði hverj-
um og einum. Hann bauð börnunum
í bátsferðir á meðan hann reri og
svo seinna í golf, sem hann stundaði
af kappi. Hann naut barnabarnanna
eins og þau hans.
Að leiðarlokum þökkum við Dóra-
afa fyrir samfylgdina og biðjum
honum blessunar.
Margrét Sigmarsdóttir.
Það er með söknuði og sorg í
hjarta sem við kveðjum elsku Dóra
afa okkar. Betri afa en hann er ekki
hægt að hugsa sér. Hann var mikið
hjá okkur fjölskyldunni eftir að
Ragga amma dó fyrir rúmum tveim-
ur áratugum og vorum við því mjög
tengd honum. Hann hugsaði vel um
okkur barnabörnin sín og hafði mik-
inn áhuga á því sem allir höfðu fyrir
stafni. Við eigum margar ljúfar
minningar úr sumarbústaðnum við
Meðalfellsvatn. Þar leyfði afi okkur
að sigla, smíða, veiða og allt. Einnig
var hann duglegur að spila við okk-
ur.
Þær voru ófáar ferðirnar sem
hann fór með okkur á trillunni sinni
og leyfði okkur að taka í stýrið þó að
við stýrðum henni í eintóma hringi.
Hann var mikill sjómaður og sagði
að maður væri ekki sannur karl-
maður nema hafa migið í saltan sjó.
Á gamals aldri hóf afi að spila golf
og hafði gaman af þeirri íþrótt og
kenndi hann sonarsonum sínum
ýmsa takta. Hann var mikið innan
um fólk enda mikil félagsvera. Hon-
um þótti skemmtilegt að spjalla og
segja sögur og var hann góður sögu-
maður. Það besta sem afi vissi var
matur. Helst vildi hann fá steik með
miklum pipar og súkkulaði og kaffi í
eftirrétt. Það var skrítið að fá afa
ekki í heimsókn núna um jólin.
Hann var vanur að koma við, narta í
rjúpurnar og fá sér kaffi og konfekt.
Það eru ótal margar minningar
sem koma upp í hugann þegar við
hugsum til afa og munum við varð-
veita þær í hjarta okkar um ókomna
framtíð. Við systkinin vonum að
honum líði vel hvar sem hann er.
Við trúum því að Ragga amma og
Danni frændi hafi tekið vel á móti
honum.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Sigrún Björk, Ragnhildur og
Tómas Gauti.
Nú er hann Dóri bróðir farinn.
Við Dóri ólumst upp á stóru heim-
ili í Garðinum og það var oft kátt í
kotinu í svo stórum systkinahóp.
Hann var næstyngstur af okkur
strákunum og fimm árum yngri en
ég. Það kom strax í ljós að hér var
góður drengur á ferð. Það var því
ljúf skylda hjá okkur sem eldri vor-
um að líta eftir yngri krökkunum á
fyrstu árum þeirra. Lífið í Garð-
inum gekk út á sjómennsku og bú-
skap og tók Dóri dyggan þátt í því.
Hann byrjaði sína sjómennsku á
unglingsaldri og þar með var ævi-
starfið ljóst. Dóri kláraði fiski-
mannapróf frá Stýrimannaskólan-
um í Reykjavík 1951 sem veitti
honum skipstjórnarréttindi. Á þess-
um skólaárum kynntist hann Ragn-
hildi Einarsdóttur sem hann kvænt-
ist á útskriftarárinu sínu. Þau
bjuggu lengst af í Keflavík og eign-
uðust 4 börn. Dóri stundaði útgerð
og verkun og reri sjálfur fyrstu ár-
in.
Dóri og Ragga áttu fallegt heimili
í Keflavík og þau var gott heim að
sækja. Einnig áttu þau glæsilegan
sumarbústað við Meðalfellsvatn þar
sem þau stunduðu útivist og veiði.
Dóri var aflasæll skipstjóri og
ráðagóður á útgerðarferli sínum og
það var gott að geta spjallað við
Dóra og fengið hans sýn á málin.
Hann var líka duglegur að halda
sambandi við systkini sín og honum
lét best af okkur að miðla málum á
milli okkar þegar þess þurfti.
Dóri var bæði góður bróðir og
vinur og ég kveð hann með söknuði.
Blessuð sé minning hans.
Gísli Jóhannesson og fjölskylda.
Þórður Jóhannesson