Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 43
✝ Guðbjörg Þor-steinsdóttir
fæddist á Forn-
usöndum, V-
Eyjaföllum, hinn 17.
maí 1938. Hún lést
eftir erfið veikindi á
líknardeild Landa-
kotsspítala hinn 12.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar Guð-
bjargar voru Þor-
steinn Gunnarsson,
f. á Krossi, A-
Landeyjum 21. ágúst
1914, d. 16. júlí
1990, og Bergþóra Magnea Har-
aldsdóttir, f. á Tjörnum, A-
Landeyjum 24. júní 1915, d. 24.
ágúst 1997. Systkini Guðbjargar
eru Sigurður Elías, f. 6. nóvember
1936, Hólmfríður Lára, f. 29. jan-
úar 1943, d. 16. október 1998,
Guðrún, f. 25. desember 1946 og
Haraldur, f. 18. júlí 1952, kvæntur
Huldu Sigurðardóttur, f. 12. mars
1957.
Guðbjörg giftist Hafsteini Ár-
sæli Ársælssyni, f. í Reykjavík 26.
september 1937, og eignaðist með
honum fjögur börn, þau eru: 1)
1992, og Eygló, f. 26. mars 1998.
4) Gunnar, f. 27. október 1977, d.
28. október 1977. Guðbjörg og
Hafsteinn skildu.
Guðbjörg ólst fyrstu árin upp
á Fornusöndum, V-Eyjafjöllum,
en fluttist átta ára gömul til
Reykjavíkur. Eyjafjöllin og
Landeyjarnar voru Guðbjörgu
ætíð kær og þangað átti hún
sterk tengsl, fyrst í gegnum for-
eldra sína og síðar börnin sín
sem nú eiga jörð í V-Landeyjum.
Guðbjörg hóf skólagöngu sína í
Austurbæjarskólanum og lauk
grunnskólaprófi frá Miðbæj-
arskólanum. Hún fór snemma að
vinna og hóf störf hjá málning-
arfyrirtækinu Hörpu þar sem
hún eignaðist vini fyrir lífstíð.
Góður rómur var gerður að
störfum hennar og á meðan hún
gat sinnt störfum gerði hún það
með þeim hætti að samviskusemi
og dugnaður skein í gegn.
Þáttaskil urðu í lífi Guð-
bjargar þegar henni var rúmlega
fertugri gefið sýkt blóð sem
leiddi til fullrar örorku. Hún bar
þessar miklu lífsbreytingar með
reisn og kenndi um leið með lífi
sínu æðruleysi, sem í felst djúp-
stæður styrkur, ekki bara fyrir
hana heldur ekki síður fólkið
hennar.
Útför Guðbjargar hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Ársæll, f. 14. janúar
1958, sambýliskona
Emma. R. Mar-
inósdóttir, synir
þeirra eru Hafsteinn
Viðar, f. 4. sept-
ember 1985, og Mar-
inó, f. 21. september
1991. 2) Bergþóra, f.
23. júlí 1961, gift
Ólafi St. Haukssyni,
f. 17. júní 1958, dæt-
ur þeirra eru Guð-
björg, f. 8. nóvember
1983, gift Bæring
Jóhanni Björgvins-
syni, sonur þeirra er Ólafur
Björgvin, f. 3. nóvember 2006, og
lítil stúlka er á leiðinni, Steinunn,
f. 29. júlí 1986, og Hrönn, f. 18.
september 1992. 3) Klara Guðrún,
f. 9. janúar 1965, gift Þorgeiri
Björgvinssyni, f. 19. mars 1964,
dætur þeirra eru Hugrún Diljá, f.
23. maí 1985, dóttir hennar er
Klara Líf Martin, f. 14. sept-
ember 2006, í sambúð með Stef-
áni Atla Guðnasyni, f. 25. júlí
1982, Íris Rut, f. 29. júlí 1987,
unnusti Hafþór Hauksson, f. 8.
júlí 1986, Lýdía, f. 18. desember
Elsku amma mín.
Núna ertu lögð af stað í ferða-
lagið mikla, á leiðinni í friðinn sem
þú þráðir. Manstu þá gömlu góðu
daga sem við áttum saman. Þegar
ég gisti hjá þér og við spiluðum
rommí langt fram á nótt. Manstu
tímana sem við áttum í garðinum
þínum, innan um öll blómin sem
við höfðum plantað. Elsku amma
mín, hvað ég gæfi fyrir að upplifa
þessa tíma aftur.
Þegar Óli fæddist varstu svo
stolt, núna var halinn þinn búin að
lengjast til muna. Hvað þér fannst
gaman að fá að spilla honum að-
eins og láta eftir honum. Enda var
hann ekki kominn inn um dyrnar
hjá þér þegar hann brosti út að
eyrum og bað um ís. Manstu þegar
hann kom til þín á spítalann og
grandskoðaði rúmið þitt í bak og
fyrir með öllum tilheyrandi látum,
til að gá hvort að rúmið væri ekki
nógu gott fyrir langömmu sína. Á
meðan hlóstu að látalátunum í
honum, Óla til mikillar ánægju.
Mikið er ég þakklát fyrir að Óli
fékk að kynnast þér og ég mun
halda minningunni um þig að hon-
um, amma mín.
Í gegnum veikindin þín varstu
sterkust okkar allra. Þú vissir að
þinn tími var kominn og varst
tilbúin. Stelpunni sem ég geng
með og þú beiðst eftir bið ég þig
um að vaka yfir og viltu líka vaka
yfir Óla litla. Betri verndarengil er
ekki hægt að fá.
Guð geymi þig, elsku amma mín.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Þín
Guðbjörg.
Elsku amma mín.
Nú er stríði þínu við þennan ill-
ræmda sjúkdóm lokið og þú ert
komin í góðar hendur langömmu,
langafa og fleiri ástvina. Sama
hversu erfiður hann var varstu
alltaf svo sterk, amma mín. Vildir
alltaf fyrst og fremst að öllum í
kringum þig liði vel og stappaðir
stálinu í okkur. Þú varst gerð úr
gulli, hjarta þitt svo tært. Yndisleg
manneskja að innan sem og utan.
Þú varst svo ánægð með prinsess-
udvölina þína á Landakoti þar sem
svo vel var hugsað um þig. Gleðin
skein af þér yfir því að það væri
alltaf verið að hrósa þér, hvað hár-
ið á þér væri nú fínt. Þú varst svo
jákvæð, amma mín, gafst okkur
hinum svo mikið bara með því einu
að vera þú. Ég gæti ekki verið
heppnari með það hafa átt eins
hjartahlýja og yndislega ömmu og
þig.
Ég á svo erfitt með að trúa því
að þú sért farin, elsku amma. Að
ég eigi aldrei eftir að koma aftur
til þín í heimsókn þar sem þú tek-
ur á móti mér með hlýju faðmlagi
og við sitjum saman við eldhús-
borðið þitt og tölum um lífið og til-
veruna. Ef ég bara gæti fengið eitt
faðmlag í viðbót frá þér, elsku
amma, myndi ég aldrei vilja
sleppa. Ég sakna þín svo mikið að
orð fá því engan veginn lýst. Þeg-
ar söknuðurinn sækir svona á mig
er gott að eiga svona margar góð-
ar minningar um þig. Þig, elsku
amma, sem ert nú verndarengill-
inn okkar og betri verndarengil
gæti ég ekki óskað mér. Takk fyrir
þann yndislega tíma sem við áttum
saman, Ég sé þig þegar kemur að
mér, elskan mín.
Mér finnst ég varla heill né hálfur
maður
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður
verða betri en ég er.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur með blómunum.
Er rökkvar ráðið stjörnumál.
Gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niður á strönd.
Fundið stað, sameinað beggja sál.
Horfið er nú sumarið og sólin,
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin;
nú einn ég sit um vetrarkvöld.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
Ég gái út um gluggann minn
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar.
Ég reyndar sé þig alls staðar.
Þá napurt er, það næðir hér
og nístir mig.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson.)
Ég elska þig af öllu hjarta, elsku
amma mín. Þín ömmustelpa
Steinunn.
Nú er Gunna á nýju skónum,
nú eru að koma jól.
Þetta söngstu fyrir mig fyrir
hver jól, alveg frá því ég var lítil
stelpa. Þú varst rosalega tónelsk
og naust þín alveg þegar tónlistin
hljómaði í kringum þig. Ég minn-
ist þess bross sem kom þegar þú
straukst á mér kinnina og horfðir
svo innilega í augun á mér og
sagðir: Amma elskar þig, ástin
mín. Ég elska þig líka, amma mín,
svo heitt og ég sakna þín svo sárt.
Það huggar mig að kvölin sé búin
hjá þér og þú sért komin til allra
sem þú beiðst eftir að hitta aftur.
Nú ertu farin, elsku amma mín.
Ég hugsa til þess tíma á Kanarí
síðustu jól þegar ég rölti yfir til
þín og greiddi á þér hárið og mál-
aði þig, þú varst svo mikil prins-
essa. Þú elskaðir að vera fín og
ekki þótti mér leiðinlegt að punta
þig. Ég er svo sannarlega blessuð
að hafa átt þig að, elsku amma, þú
varst svo hlý og góð. Þú hafðir úr-
ræði við öllu og það var svo gott
að leita til þín. Þú kenndir mér svo
margt og ég þakka guði fyrir allar
þær stundir sem við áttum saman.
Þú varst ekki bara amma mín, þú
varst svo mikið meir en það. Ég
mun muna allt sem þú lærðir og
kenndir okkur og miðla því áfram.
Litla skonsan þín,
Íris Rut.
Elsku amma mín.
Ég trúi því varla að þú sért far-
in frá okkur en ég veit að þú ert
komin á betri stað þar sem
langamma og langafi eru, og ég
veit að þér líður vel með það að þú
sért komin til þeirra. Við áttum
svo margar góðar stundir saman,
elsku amma mín, og mun ég varð-
veita þær að eilífu. Ég man eftir
því þegar þú komst að sækja mig á
leikskólann þegar ég var um 4 ára,
og þú fórst óvart á vitlausa deild.
En þú áttaðir þig á því á endanum
og komst yfir á mína deild og ég
man hvað ég var ánægð að amma
mín væri komin að sækja mig.
Þegar ég var yngri gistum við
Lýdía oft hjá þér á Hjaltabakk-
anum og fannst okkur það alveg
æðislegt. Á kvöldin fengum við
okkur allar svo rautt epli sem var í
miklu uppáhaldi hjá þér. Þú
skrældir það fyrir okkur þótt við
gætum alveg borðað rauða börkinn
en okkur fannst svo gaman þegar
þú bauðst til þess að gera það og
gátum við varla sagt nei við þig.
Það var alltaf svo gaman að skjót-
ast út í búð fyrir þig eða sækja
póstinn þinn, sama hvort var varst
þú alltaf jafnþakklát fyrir. Ég bjó
oft til hluti í smíði eða textílmennt
sem ég síðan gaf þér í jólagjöf eða
bara svona til gamans og fannst
þér alltaf skemmtilegt að fá gjöf
sem maður hafði gert sjálfur.
Koddaverið sem ég saumaði í
„Góða nótt, amma“ og gaf þér ætla
ég að láta fylgja með þér, elsku
amma mín.
Þú varst búin að vera svo sterk
gegnum þennan erfiða sjúkdóm og
er ég svo stolt af þér. Þú hafðir
meiri áhyggjur af okkur en af
sjálfri þér og fannst þér alltaf
gaman þegar við komum í heim-
sókn til þín á spítalann.
Elsku amma mín, ég elska þig
svo mikið og ég mun alltaf sakna
þín. En ég veit að þú fylgist með
okkur öllum og gætir okkar allra
vel.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þú varst alveg yndisleg amma
með hjarta úr gulli og mun ég
aldrei gleyma þér, elsku amma
mín.
Þín
Hrönn.
Guðbjörg
Þorsteinsdóttir
Minningar 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur hlýhug, vináttu og samúð við andlát og útför
WOLFGANGS STROSS.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á
gjörgæsludeild og deild 12E á Landspítalanum
við Hringbraut.
Ásdís Stross Þorsteinsdóttir,
Sigríður Roloff,
Þórdís Stross, Þorsteinn Þorsteinsson,
Karen Stross, Hafsteinn Ólafsson,
börn þeirra og barnabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýju vegna andláts
og útfarar
SÆMUNDAR SIGURSTEINSSONAR,
Seljabraut 68,
Reykjavík.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sæbjörg Vilmundsdóttir.
Við, börn Guðbjargar,
kveðjum þig, elsku mamma,
með orðum Sörens Kier-
kegaards:
Þegar þú komst í heiminn gréstu en
þínir nánustu voru glaðir.
Lifðu þannig að þegar þú ferð gráti
þínir nánustu en þú sjálfur verði
glaður.
Fjölskylda Guðbjargar
kann öllu starfsfólki líknar-
deildarinnar bestu þakkir
fyrir frábæra umhyggju og
alúð í hennar garð og fyrir
veitta aðstoð á erfiðum tím-
um.
Ársæll, Þóra og Klara.
HINSTA KVEÐJA
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upp-
lýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bilum
- mælt í Tools/Word Count). Ekki er
unnt að senda lengri grein. Hægt er
að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim
sem kvaddur er virðingu sína án þess
að það sé gert með langri grein. Ekki
er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá, sem
fjallað er um, fæddist, hvar og hve-
nær hann lést, um foreldra hans,
systkini, maka og börn og loks hvað-
an útförin fer fram og klukkan hvað
athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | | Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Myndir | Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um
annað. Ef nota á nýja mynd er ráð-
legt að senda hana á myndamóttöku:
pix@mbl.is og láta umsjónarmenn
minningargreina vita.
Minningargreinar