Morgunblaðið - 04.01.2009, Page 45
Auðlesið efni 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
Skip-brot krónunnar, banka-hrunið og
efna-hags-kreppan hefur vakið
Evrópu-pólitíkina til lífsins innan íslensku
stjórn-mála-flokkanna. Þau sögu-legu
kafla-skil urðu á árinu að spurningin um
aðild Íslands að Evrópu-sambandinu og
upp-töku evru er komin af fullri alvöru og
þunga á dagskrá allra flokka.
Evrópu-málið kann að ráða úrslitum í
stjórnar-sam-starfinu, það yrði í fyrsta
sinn eitt stærsta kosninga-málið ef efnt
verður til þing-kosninga á árinu 2009 og
ólík af-staða flokka til aðildar-umsóknar
getur skipt sköpum í
stjórnar-myndunar-við-ræðum, slitni upp
úr sam-starfi Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingarinnar. Endur-mat á
Evrópu-stefnu flokka sýnir um leið
við-leitni þeirra til að skapa sér víg-stöðu
og úti-loka engin tæki-færi til þátt-töku í
ríkis-stjórn.
Á pólitískum vett-vangi er nú tekist á
um tvær leiðir. Annars vegar eru þeir
sem vilja efna til
þjóðar-atkvæða-greiðslu um
aðildar-umsókn. Aðrir vilja á hinn bóginn
ganga hreint til verks, hefja
aðildar-viðræður og leggja niður-stöðuna
að því búnu undir dóm kjósenda. Fyrri
kosturinn yrði aðeins gálga-frestur.
Enginn flokkur getur komið sér hjá því að
móta skýra af-stöðu til málsins. Allt
hnígur í þá átt að þjóðin standi brátt
frammi fyrir því að taka stærstu
ákvörðun sína í utan-ríkis-málum í 60 ár.
Taka slaginn um ESB
Flestir flokkar eru klofnir í af-stöðu til ESB. Vaxandi stuðningur er við að málið
verði lagt í dóm kjósenda.
Gagn-rýnendur og
blaða-menn Morgun-blaðsins
hafa valið eftir-farandi bestu
verk ársins 2008:
Besta bókin:
Hvert orð er atvik
eftir Þorstein frá Hamri.
Besta leik-sýningin:
Utan gátta
eftir Sigurð Pálsson.
Leikstjóri Kristín
Jóhannesdóttir.
Leikmynd Grétar
Reynisson.
Þjóðleikhúsið.
Besta mynd-listar-sýningin:
Of the North
Steina Vasulka.
Listasafn Íslands.
Bestu tón-leikarnir:
Tuttugu tillit til
Jesúbarnsins
eftir Olivier Messiaen
í flutningi Önnu Guðnýjar
Guðmundsdóttur
píanó-leikara
í Langholtskirkju.
Besta platan:
Fordlandia
Jóhann Jóhannsson.
Besta íslenska popp-platan:
Emilíana Torrini –
Me and Armini.
Besta erlenda
popp-platan:
Nick Cave &
The Bad Seeds
Dig!!! Lazarus Dig!!!
Tón-leikar ársins:
Björk Guðmundsdóttir
í Langholtskirkju
26. ágúst.
Besta erlenda bókin:
2666 – Roberto Bolaño.
Besta kvik-myndin:
No Country for Old Men
(Ekkert land fyrir öldunga).
Ethan og Joel Coen.
Bandaríkin.
2007.
Topp-
listar
ársins
2008
Plata Emiliönu Torrini, Me
and Armini, er besta plata
ársins að mati Morgun-
blaðsins.
Komum barna til
skóla-hjúkrunar-fræðinga í
nýjustu hverfunum á
höfuð-borgar-svæðinu hefur
fjölgað um allt að 100% í
september, október og
nóvember miðað við sama
tíma undan-farin tvö ár.
Að sögn Þórunnar
Ólafsdóttur,
framkvæmda-stjóra
hjúkrunar við Heilsu-gæslu
höfuð-borgar-svæðisins, má
draga þá ályktun að
vanda-málin séu meiri í nýju
hverfunum. „Fólk er kannski
ný-búið að kaupa húsnæði
þar og er í basli. Umræðan
um kreppuna hefur áhrif á
alla, ekki síst börnin.“
Börnin full af kvíða
Kort grunn-skóla-nema til Umboðs-manns barna.
„ÞETTA var ótrúlegt ár hjá
mér,“ sagði Ólafur
Stefánsson eftir að hann
var kjörinn íþróttamaður
ársins 2008 á föstudag.
Það eru Samtök
íþróttafréttamanna sem
standa að kjörinu. Ólafur er
fyrirliði íslenska
handboltalandsliðsins sem
fékk silfurverðlaun á
ólympíuleikunum í Peking.
Hann varð Evrópumeistari
með liði sínu Ciudad Real á
sem vann einnig
bikarkeppnina og
deildarkeppnina á Spáni.
Ólafur fékk 480 stig í
kjörinu og gat hann ekki
fengið fleiri stig. Snorri
Steinn Guðjónsson
handknattleiksmaður varð
annar og Margrét Lára
Viðarsdóttir
knattspyrnukona varð
þriðja.
Ólafur íþróttamað-
ur ársins 2008
Salmonellu-sýking sem kom
upp í hrossum undir rótum
Esju 21. desember sl. er
óvenju slæm. 23 hross úr
40 hrossa stóði hafa drepist
eða verið af-lífuð vegna
sýkingar-innar. Tjarnirnar
sem hrossin drukku úr eru
set-tjarnir, vatn rennur í þær
en lítið vatn úr þeim og þær
þorna ekki upp nema í
þurrkum. Gunnar Örn
Guðmundsson,
héraðs-dýralæknir
Gullbringu- og Kjósarsýslu,
segir ekki ljóst hver upp-runi
sýkingarinnar sé en lík-legt
Mörg hross hafa drepist úr salmonellu
Gunnar Örn Guðmundsson héraðs-dýra-læknir tók sýni úr set-
tjörnum á Kjalarnesi.
hrein-læti, að það þvoi sér
um hendur og gæti sín í
um-gengni við allan saur
sem frá hrossunum kemur.
Hann er mengaður af
salmonellu.“ Gunnar Örn
segir að svæðið, þar sem
tjarnirnar eru, innan
girðingar og húsin sem
hestarnir eru í, hafi verið girt
af.
Haraldur Briem
sóttvarnalæknir segir að
grannt sé fylgst með gangi
mála. Hann telur líklegt að
sýkingin hafi byrjað í einu
hrossi og stigmagnast.
megi telja að sýkingin hafi
komið úr fuglum. „Þeir sem
eru í snertingu við hestana
gætu sýkst,“ segir hann.
„Þess vegna brýnum við fyrir
fólki að við-hafa persónulegt