Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 46
46 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
Sudoku
Frumstig
4 5 8
2 9 7 4 5 6
3 7
1 4 9 7 5
3 4 7 2
6 8 5 3 4
6 7
5 4 7 8 3 1
8 2 5
7 6 5 8
1 3
6 2 9
3 8 5 1 6
5 1 3 7
2 1 4 5 8
9 3 6
6 9
1 4 2 7
6 2 8 9
3 5 8 6 1
7 1 6 5
2 5 9
8 2
4 1 8
6 7 1 5
7 3 5 6 4
2 5 4 7
1 7 3 6 9 8 5 2 4
2 4 5 7 3 1 6 9 8
6 9 8 2 4 5 3 7 1
7 8 4 5 2 3 1 6 9
3 1 6 9 8 7 4 5 2
9 5 2 1 6 4 8 3 7
8 2 9 4 5 6 7 1 3
4 6 1 3 7 2 9 8 5
5 3 7 8 1 9 2 4 6
8 3 9 5 2 6 7 4 1
1 6 7 8 9 4 5 3 2
4 2 5 7 1 3 6 9 8
6 5 1 2 8 9 4 7 3
2 9 3 1 4 7 8 5 6
7 8 4 3 6 5 1 2 9
9 4 8 6 5 2 3 1 7
3 1 2 4 7 8 9 6 5
5 7 6 9 3 1 2 8 4
4 6 7 5 8 1 9 3 2
8 1 5 9 2 3 7 6 4
2 9 3 4 7 6 5 1 8
6 5 9 3 4 2 1 8 7
3 8 1 7 9 5 2 4 6
7 4 2 1 6 8 3 5 9
9 3 6 8 5 7 4 2 1
5 7 8 2 1 4 6 9 3
1 2 4 6 3 9 8 7 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
Í dag er sunnudagur 4. janúar, 4. dagur
ársins 2009
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)
Víkverji er ekki mikill sjónvarps-aðdáandi og hefur í mörg ár ekki
verið með sjónvarp. En nú er Víkverji
fluttur á nýjan stað og þá var tekin
ákvörðun um að hafa sjónvarp til taks
og rúlla því fram í stofu þegar mikið
liggur við. Og mikið lá við á gaml-
ársdag því að þá var ekki aðeins Ára-
mótaskaupið á dagskrá heldur líka
fréttaannálarnir og áramótaávarpið,
að ógleymdri Kryddsíldinni, sem var
að vísu í styttra lagi!
x x x
Að þessu sinni horfði Víkverji áskaupið í góðum og jákvæðum
félagsskap. Hann veit sem er að fé-
lagsskapurinn er mikilvægastur,
enda horfði Víkverji einu sinni á
skaupið með neikvæðum en annars
ágætum vinum sínum. Þá var
hneykslast á öllum atriðum og sjald-
an brosað, hvað þá hlegið. Víkverji
hitti síðan vinkonu sína og meðan
hann sjálfur fussaði og sveiaði,
dásamaði vinkonan skaupið og hló sig
máttlausa yfir að Davíð Oddsson
skyldi hafa leikið sjálfan sig, en það
atriði vakti mesta hneykslan í ára-
mótaveislu Víkverja.
Víkverji heldur þó að það sé ekki
aðeins félagsskapnum að þakka
hversu ánægður hann var með skaup-
ið að þessu sinni. Af nógu var að taka
til að gera grín að og Víkverji var
einkar ánægður með einfalda um-
gjörð og hárbeitta ádeilu. Sér-
staklega hafði Víkverji gaman af
bullfréttunum sem létu álíka und-
arlega í eyrum og viðskiptafréttir
hafa alltaf gert. Leit konunnar í stór-
markaðnum að þvottaefni var líka
hlægileg og Víkverja þótti sem þar
væri þjáningarsystir hans á ferð. Vík-
verji er nefnilega blaðamaður og hef-
ur síðustu mánuði þurft að sætta sig
við miklu færri svör en spurningar.
x x x
Víkverji var líka glaður að sjá nýjaleikara spreyta sig á gömlum
pólitíkusum. Reyndar segir það mest
um íslenskt þjóðfélag að þegar Vík-
verji er orðinn þreyttur á að horfa á
sömu karlana leika sömu karlana sé
eina tilbreytingin sú að skipt er um
leikarana. Gömlu pólitíkusarnir eru
enn á sjónarsviðinu. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 tág, 8 sælu, 9
tómið, 10 elska, 11 hljóð-
færið, 13 peningar, 15
endurtekningar, 18
kjáni, 21 ótta, 22 ákveð-
in, 23 guð, 24 dæma-
laust.
Lóðrétt | 2 óviljandi, 3
sleifin, 4 áma, 5 grefur, 6
þvættingur, 7 kvenfugl,
12 þræta, 14 reyfi, 15
skert, 16 örlög, 17 fugls,
18 hagnað, 19 nið-
urbældur hlátur, 20 vit-
laus.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 firra, 4 gafls, 7 óvild, 8 raupa, 9 agn, 11 skil, 13
hiti, 14 ógæfa, 15 húnn, 17 farg, 20 þak, 22 ansar, 23
runni, 24 afræð, 25 koðna.
Lóðrétt: 1 flóns, 2 reipi, 3 alda, 4 görn, 5 fauti, 6 Skaði,
10 græða, 12 lón, 13 haf, 15 hvata, 16 nusar, 18 annað,
19 geipa, 20 þráð, 21 krók.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Ba6 5.
b3 Bb4+ 6. Bd2 Be7 7. Rc3 0-0 8. Hc1 d5
9. cxd5 exd5 10. Bg2 Bb7 11. 0-0 Rbd7
12. Dc2 He8 13. Hfd1 c6 14. Re1 Rf8 15.
Bg5 Re6 16. Bxf6 Bxf6 17. e3 a5 18. Rd3
Be7 19. Hb1 Ba3 20. b4 axb4 21. Rxb4
De7 22. Db3 Ha7 23. Rc2 b5
Staðan kom upp á heimsbikarmóti
FIDE sem lauk fyrir skömmu í Elista í
Rússlandi. Rússneski stórmeistarinn
Alexander Grischuk (2.719) hafði hvítt
gegn Peter Leko (2.747) frá Ungverja-
landi. 24. Bxd5! cxd5 25. Rxb5 hvítur
vinnur nú óhjákvæmilega manninn til
baka og verður þá tveim peðum yfir.
Svartur afréð í framhaldinu að fórna
hrók til að fá mótspil á kóngsvæng en
það dugði skammt: 25. …Ha6 26. Rbxa3
Bc8 27. Rb4 Rg5 28. Rxa6 De4 29. Db5
Hf8 30. Rc5 Df3 31. Kf1 Rh3 32. Hd2
Dh1+ 33. Ke2 Dxh2 34. Kd3 Rxf2+ 35.
Kc3 Dxg3 36. De2 Rg4 37. Hf1 Dc7 38.
Kb2 Da5 39. Rb3 og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ófullkomnar reglur.
Norður
♠D62
♥KG10872
♦10
♣D109
Vestur Austur
♠1098 ♠ÁKG43
♥6 ♥2
♦ÁG976 ♦543
♣K852 ♣7643
Suður
♠75
♥ÁD954
♦KD82
♣ÁG
Suður spilar 4♥.
Það er erfitt að búa til fullkomnar
reglur. Flestir eru sammála um ágæti
þess að spila út háu frá tvíspili og ofan
af röðum. En einstaka sinnum getur
vafist fyrir makker að sjá muninn. Í
spilinu að ofan kemur vestur út með
♠10 og fær að eiga slaginn. Hann spil-
ar níunni næst og austur lendir inni.
Austur hefur engin tök á því að sjá
hvort makker hafi byrjað með tvílit eða
þrílit og hlýtur því að spila spaða í
þriðja sinn. Sem reynist afdrifaríkt.
Sagnhafi trompar, tekur hjarta einu
sinni, spilar ♦10 úr borði og lætur hana
rúlla! Vestur á slaginn á gosann og er
illa endaspilaður. Hann prófar lítinn
tígul, en suður fær á áttuna og tromp-
svínar síðan fyrir ásinn. Tvö lauf blinds
fara þannig niður í tígul.
Lauf í þriðja slag hefði auðvitað
bjargað vörninni.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú átt svo auðvelt með að hrífa
fólk með þér. Allt á sér sinn stað og sína
stund. Taktu þér samt tíma til þess að
íhuga stöðu þína í tilverunni.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Auðvitað er enginn vandi að missa
móðinn, en það er samt alger óþarfi.
Farðu varlega hvort sem þú ert á gangi
eða í umferðinni.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er einhver sem er að þrýsta
á þig og vill fá þig til að gera hlut sem þér
er þvert um geð. Reyndu að láta ekkert
trufla þig við að framkvæma hana.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Reyndu að hafa stjórn á hlutunum
þótt að þér sé sótt úr mörgum áttum. Er
þú reynir að róa hugann finnst þér þú
endurnærast.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú hefur miklar fjáröflunarhug-
myndir í dag og eirðarleysi og sjálfstæð-
isþrá munu láta að sér kveða. Það sem þú
getur gert án mikillar áreynslu, gæti
reynt mikið á einhvern annan.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þetta er góður dagur til að njóta
samvista við vini þína. Haltu ímyndunar-
aflinu gangandi, það er þín sterkasta hlið í
augnablikinu. Himinn og jörð eru ekki að
farast.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Stundum getur eitthvað sem sagt er
reynt verulega á vináttuna. Gaumgæfið
alla möguleika og reynið að forðast alla
óþarfa áhættu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarft að taka þig saman í
andlitinu og einbeita þér að því sem fyrir
liggur. Ekki láta aðra letja þig í nýrri
tekjuöflun.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er gaman þegar vel geng-
ur og þú átt að njóta meðbyrsins því eng-
inn hefur fært þér hann nema þú sjálfur.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Svo virðist sem steingeitin njóti
ekki nægrar leiðsagnar, upplýsinga eða
úrræða en hún á ekki að láta það á sig fá.
Eigðu þín leyndarmál.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Í dag er ekki rétti tíminn til
þess að leita sátta í fjölskyldunni, við yf-
irmanneskjuna eða foreldra. Skrifaðu
þær niður til frekari umhugsunar.
Kynntu þér því málavöxtu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert ómótstæðilega heillandi - og
ómögulegt að spilla þínu góða skapi.
Mundu að ekki er allt sem sýnist.
Stjörnuspá
4. janúar 1891
Konráð Gíslason málfræð-
ingur lést, 82 ára. Hann var
einn Fjölnismanna og braut-
ryðjandi í íslenskri orðabók-
argerð. Sigurður Nordal pró-
fessor sagði: „Það sem Jónas
Hallgrímsson hefur skrifað og
Konráð samþykkt, það kalla
ég íslensku.“
4. janúar 1917
Ríkisstjórn Jóns Magnússonar
tók við völdum, en þetta var
fyrsta íslenska ráðuneytið.
Aðrir ráðherrar voru Sig-
urður Jónsson og Björn Krist-
jánsson. Sigurður Eggerz kom
í stað Björns í ágúst 1917.
Stjórnin sat til 25. febrúar
1920 en þá myndaði Jón aðra
stjórn.
4. janúar 1984
Stórviðri með snjókomu olli
miklum samgönguerfiðleikum
á höfuðborgarsvæðinu og víð-
ar. Fjöldi fólks lenti í hrakn-
ingum. „Annasamasti dagur í
starfi lögreglunnar í Reykja-
vík. Öngþveiti skapaðist, öll
umferð nánast stöðvaðist,
skólastarf féll niður og at-
vinnulíf lamaðist,“ sagði í
Morgunblaðinu.
4. janúar 1989
Stórbruni varð að Réttarhálsi
2 í Reykjavík þar sem Gúmmí-
vinnustofan hf. og önnur fyr-
irtæki voru til húsa. Tjónið
nam á fimmta hundrað millj-
ónum króna og var hið mesta
á seinni árum.
4. janúar 1994
Samið var við Bandaríkja-
menn um samdrátt í rekstri
varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli. Orrustuþotum af
gerðinni F 15 fækkaði úr tólf í
fjórar og lokað var hlust-
unarstöð og miðunarstöð.
Hermönnum átti að fækka í
áföngum um 380.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Sex ára gömul dóttir mín hefur rætt um að færa
mér morgunmat í rúmið,“ segir afmælisbarn dags-
ins, Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur,
sem fyllir 35 ár í dag. „Ég hef eiginlega ekki hald-
ið upp á afmælið mitt af alvöru síðan ég varð tví-
tugur en þá leigði ég sjálfstæðishúsið á Seltjarn-
arnesi, fékk hina stórgóðu hljómsveit Nesvini til
að leika fyrir dansi og bauð næstum öllum í 5. og
6. bekk MR,“ segir Einar Mar og áætlar að þá hafi
um 200 manns mætt til veislu.
Einar deilir afmælisdegi með bróður sínum en
veislurnar voru oft í smærri kantinum, enda að af-
loknum miklum hátíðarhöldum. „Það voru smákökuafgangar á borð-
um og kannski lítið pylsupartí fyrir nánustu vini. Svo voru flestar búð-
ir auðvitað lokaðar og gjafirnar komu því stundum frá bensín-
stöðvununum,“ rifjar Einar Mar upp en hann deilir þeim kalda
veruleika með öðrum afmælisbörnum jólaviknanna að hafa oft fengið
einn pakka í stað tveggja. „En 17 ára afmælið vó mjög upp á móti
þessu því að þá var ég fyrstur til að fá bílpróf,“ segir Einar Mar og á
von á því að bjóða vinum og vandamönnum í kaffi í dag. Líklega verða
smákökuafgangar á borðum.
Einar Mar Þórðarson 35 ára
Smákökuafgangar á borðum
Nýirborgarar
Reykjavík Elsa fæddist
30. september kl. 16.11.
Hún vó 4.465 g og var
53 cm löng. Foreldrar
hennar eru Rakel Þor-
bergsdóttir og Ragnar
Santos.
Stokkhólmur Símon
Ragnar Love fæddist 19.
júlí kl. 7.23. Hann vó 16
merkur og var 53 cm
langur. Foreldrar hans
eru Camilla Mirja Björns-
dóttir og Pontus Degsell.
Reykjavík Hafdís Birta
fæddist 2. ágúst kl. 04.38.
Hún vó 3.950 g og var 52,5
sm löng. Foreldrar henn-
ar eru Björn Ragnar Lár-
usson og Una Ólöf Gylfa-
dóttir.