Morgunblaðið - 10.02.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009
ELDRI BORGARA FERÐIR
um fornar byggðir á Suður-Grænlandi.
Fimm daga ferðir í júlí og ágúst. Allt innifalið.
Allar upplýsingar veitir Emil Guðmundsson í síma 898 9776.
Einnig hægt að senda tölvupóst á emil@flugfelag.is
REYKJAVÍK
Grænland
Narsarsuaq
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
45
01
1
02
.2
00
9
flugfelag.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„VIÐ erum búin að mæla gönguna
hér vestur af Ingólfshöfða tvisvar og
niðurstöðurnar gefa ekki tilefni til
þess að mæla með kvóta að svo
komnu máli,“ segir Sveinn Svein-
björnsson, fiskifræðingur hjá Hafró
og leiðangursstjóri á Árna Friðriks-
syni. Þrátt fyrir umfangsmikla leit
rannsóknarskipa sem og veiðiskipa
hefur enn ekki tekist að mæla nægj-
anlegt magn loðnu til að unnt sé að
hefja veiðar á þessari vertíð.
Alls hafa nú mælst um 385 þúsund
tonn en samkvæmt aflareglu er miðað
við að skilja eftir a.m.k. 400 þúsund
tonn af loðnu til hrygningar ár hvert.
Steingrímur J. Sigfússon landbún-
aðar- og sjávarútvegsráðherra gaf í
gær út 15 þúsund tonna loðnukvóta til
að efla leit og rannsóknir á loðnu. Út-
hlutunin gildir á tímabilinu 10. febr-
úar til 30. apríl 2009 og skal stjórn
veiðanna og skipulag þeirra unnið í
samráði við Hafró.
Að sögn Sveins eru fjögur veiðiskip
á leið í leitina með Hafró. Segir hann
nauðsynlegt að fá aðstoð við leitina
þar sem leitarsvæðið sé gríðarlega
stórt. „Við vonumst til að finna með
þessu móti meiri loðnu.“
Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðu-
neytinu segir að óljóst sé eins og sakir
standa hvort nægjanlega mikið af
loðnu finnist. Ekki þurfi hins vegar að
fjölyrða um þá miklu hagsmuni sem í
húfi séu fyrir þjóðarbúið í heild, út-
gerðirnar og sveitarfélögin, og þá
miklu atvinnusköpun sem veiðar og
vinnsla loðnu skapi til sjós og lands.
Því verði að gera allt sem í mannlegu
valdi standi til þess að ganga úr
skugga um hvort nú sé fyrir hendi
loðna á Íslandsmiðum í veiðanlegu
magni. silja@mbl.is
Leita loðnunnar ákaft
Sjávarútvegsráðherra gaf út 15 þúsund tonna leitarkvóta svo efla mætti leitina
Útgerðarmenn og skipstjórar eru vongóðir um að nægilegt magn loðnu finnist
Enn hafa aðeins mælst 385.000 tonn af loðnu
Skilja verður a.m.k. 400 þús. tonn eftir árlega
Fjögur veiðiskip bætast í leitarhópinn í dag
Gefinn hefur verið út 15 þús. tonna leitarkvóti
Úthlutunin gildir frá 10. febrúar til 30. apríl
MÓTMÆLENDURNIR sem ætluðu að varna
bankastjórum Seðlabankans inngöngu þar í gær-
morgun höfðu ekki erindi sem erfiði.
Mótmælendur héldu því leiðar sinnar eftir
nokkrar klukkustundir en boðað hefur verið til
mótmæla við Seðlabankann á ný í dag.
Hörður Torfason hvatti til mótmæla við Seðla-
bankann á mótmælafundi Radda fólksins síðast-
liðinn laugardag. Nokkrir tugir svöruðu kallinu.
Árangurslaus bið eftir bankastjórunum
Morgunblaðið/RAX
SIGURÐUR Helga-
son, fyrrverandi for-
stjóri og stjórnarfor-
maður Flugleiða, er
látinn, 87 ára að aldri.
Sigurður lést að kvöldi
sunnudagsins 8. febr-
úar sl. á eynni Musti-
que í St. Vincent og
Grenadines í Karíba-
hafinu.
Sigurður fæddist 20.
júlí 1921 í Reykjavík,
sonur hjónanna Helga
Hallgrímssonar full-
trúa og Ólafar Sigur-
jónsdóttur kennara.
Sigurður lauk námi í viðskipta-
fræðum frá Columbia-háskóla í
New York árið 1947. Hann var
framkvæmdastjóri Orku og Steypu-
stöðvarinnar 1948-61, varaformaður
stjórnar Loftleiða hf. 1953-74, fram-
kvæmdastjóri Loftleiða í New York
1961-74, framkvæmdastjóri Flug-
leiða hf. 1974-79 og forstjóri Flug-
leiða hf. 1979-84. Hann
var síðan stjórnarfor-
maður Flugleiða til
ársins 1991. Hann sat í
stjórn Cargolux í Lúx-
emborg 1977-86, þar af
sem varaformaður árin
1980-86.
Sigurður var virkur
í félagsstarfi og gegndi
ýmsum trúnaðarstörf-
um. Hann sat í stjórn
International House í
New York frá 1986,
var meðlimur Wings
Club í New York frá
1962 og sat í stjórn
1972-75. Hann var formaður Ís-
lensk-ameríska félagsins 1975-87, í
Rotaryklúbbi Reykjavíkur frá 1978,
í fulltrúaráði Landakotsspítala
1979-90, í stjórn American Scand-
inavian Foundation í New York
1970-75 og frá 1982, stjórnarfor-
maður Álafoss hf. 1986-91, stjórn-
armaður í Verslunarráði Íslands
1982-91, í framkvæmdastjórn VSÍ
1978-87, í landsnefnd Alþjóðaversl-
unarráðsins 1984-91, í stjórnar-
nefnd Alþjóðasamtaka flugfélaga
(IATA) 1988-90 og Samtaka Evr-
ópuflugfélaga 1979-90. Sigurður sat
í stjórn The Mustique Company og
var formaður fjárhagsnefndar þess
félags 1994-98. Hann sat einnig í
stjórn Stangveiðifélagsins Hofsár
ehf. frá árinu 1999.
Sigurður hlaut ýmsa viðurkenn-
ingu um ævina. Hann varð heið-
ursborgari Winnipeg 1965, hlaut
riddarakross hinnar íslensku fálka-
orðu 1972, Grand Officier af Chène-
orðuna í Lúxemborg 1986 og gull-
merki Flugmálafélags Íslands 1986.
Vorið 2007 hlaut hann Harry Ed-
monds-viðurkenningu International
House.
Eiginkona Sigurðar var Unnur
Hafdís Einarsdóttir, en hún lést ár-
ið 2005. Þau eignuðust fjögur börn:
Ólöfu, Eddu Línu, Helga og Sigurð
Einar.
Sigurður Helgason
Andlát
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hafnaði því í gær að fresta máli,
sem höfðað var gegn Glitni, á með-
an greiðslu-
stöðvun bankans
stendur. Í úr-
skurði dómarans
segir að lög um
fjármálafyr-
irtæki, sem
breytt var í nóv-
ember á síðasta
ári, gangi gegn
ákvæðum stjórn-
arskrár og að réttindum, sem
stjórnarskránni sé ætlað að
tryggja, verði ekki breytt eða þau
felld úr gildi með almennri laga-
setningu.
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri
grænna, segir að blasað hafi við að
stjórnarskrárbrot fælist í lögum um
fjármálafyrirtæki sem Alþingi sam-
þykkti í lok síðasta árs. Hann seg-
ist hafa varað Sturlu Böðvarsson,
þáverandi forseta Alþingis, við því
að stjórnarskrárbrot væri í uppsigl-
ingu, en Sturla hafi hunsað aðvar-
anirnar. „Þetta er fyrir neðan virð-
ingu Alþingis. Það var hægt að
gera lögin þannig úr garði að þau
stæðust,“ segir Atli og telur málið
allt víti til varnaðar.
„Mér skilst að þetta mál sé nú í
vinnslu í viðskiptaráðuneytinu. Mér
skilst að farið hafi verið í það fljót-
lega eftir lagasetningu,“ segir Atli.
Ekki náðist í Gylfa Magnússon
viðskiptaráðherra í gærkvöldi til
þess að fá það staðfest.
Brot á
stjórnar-
skránni
Atli Gíslason
Segir aðvaranir sínar
hafa verið hunsaðar
MYNDAÐUR var nýr meirihluti í
bæjarstjórn Blönduóss í gærkvöldi.
Fyrrverandi bæjarstjóri, Jóna
Fanney Friðriksdóttir, af E-lista, er
ein komin í minnihluta en meirihlut-
inn er skipaður sex bæjarfulltrúum;
þremur frá E-lista, tveimur frá D-
lista og einum frá Á-lista; allt saman
karlmenn.
Jóna Fanney sprengdi meirihluta
E-lista á dögunum vegna fyrirspurn-
ar um launakjör núverandi bæjar-
stjóra, Arnars Þórs Sævarssonar.
Ein á móti sex
á Blönduósi