Morgunblaðið - 10.02.2009, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009
Ásta Möller alþing-
ismaður hefur
ákveðið að bjóða
sig fram í 3. sætið í
prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í
Reykjavík sem
haldið verður 14.
mars nk.
Ásta var fyrst
kjörin á Alþingi í alþingiskosn-
ingum 1999.
Í störfum sínum hefur Ásta lagt
sérstaka áherslu á heilbrigðismál,
málefni aldraðra og önnur velferð-
armál fjölskyldunnar, auk lífeyr-
ismála og málefna launamanna.
Hún situr í miðstjórn Sjálfstæð-
isflokksins og er ritari þingflokks
sjálfstæðismanna.
Ásta Möller
í þriðja sætið
Ásta Möller
Samfylking og Vinstri hreyfing-
in grænt framboð hafa komið sér
saman um að Alþingiskosningar
fari fram laugardaginn 25. apríl
næstkomandi. Morgunblaðið
mun daglega birta fréttir sem
tengjast framboðum, prófkjör-
um, kosningafundum o.fl.
Kosningar
2009
Sturla Jónsson
vörubílstjóri er
genginn til liðs við
Frjálslynda flokk-
inn.
„Frjálslyndi
flokkurinn hefur
nú í nokkurn tíma
barist fyrir þjóð-
areign á nátt-
úruauðlindum og er sennilega eini
flokkurinn sem hefur staðið þar
hreinn og beinn,“ segir Sturla í til-
kynningu. Ætlar hann að beita sér
fyrir „hina vinnandi stétt, eldri
borgarana og mótorsportið“.
Sturla til liðs
við Frjálslynda
Sturla Jónsson
Guðbergur Egill
Eyjólfsson, bóndi
og nemandi við Há-
skólann á Ak-
ureyri, gefur kost á
sér í 2.-3. sæti á
lista Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns
framboðs í forvali
flokksins í Norð-
austurkjördæmi.
Hann segir sjávarútveg, landbúnað
og ferðaþjónustu grunninn að betri
framtíð þjóðarinnar.
Guðbergur í 2.-3.
sæti forvals VG
Guðbergur
Eyjólfsson
Ólafur Hannesson,
formaður Jafnrétt-
indafélags Íslands
og sjónvarpsmaður
á ÍNN, gefur kost á
sér í þriðja sætið á
lista Sjálfstæð-
isflokksins í Suður-
kjördæmi.
Ólafur segir kall-
að eftir endurnýjun
í stjórnmálum og hann sé tilbúinn
að stíga fram og taka þátt í þeirri
uppbyggingu í samfélaginu sem nú
sé á döfinni.
Ólafur býður sig
fram í þriðja sætið
Ólafur
Hannesson
JÓHANNA Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra segir ekki óeðlilegt að ný
ríkisstjórn skoði mannabreytingar í
bankaráðum viðskiptabankanna.
Þetta kom fram í svari hennar við fyr-
irspurn Geirs H. Haarde, fyrrv. for-
sætisráðherra, við upphaf þingfundar
í gær. Geir spurði forsætisráðherra
hvort til stæði að bola mönnum út úr
bankaráðum viðskiptabankanna
þriggja líkt og gert hefði verið við tvo
ráðuneytisstjóra, stjórn Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna og reynt væri að
gera við bankastjórn Seðlabanka Ís-
lands.
Sátt hefði náðst milli allra flokka í
haust um skipan í bankaráðin. Þannig
hefði t.d. VG fengið fleiri fulltrúa en
flokkurinn hafði þingstyrk til. Yfirlýs-
ingar forsætis- og fjármálaráðherra
varðandi bankaráð Landsbankans og
tímabundna ráðningu Ásmundar
Stefánssonar sem bankastjóra hefðu
valdið vonbrigðum.
Jóhann mótmælti því að um
hreinsanir væri að ræða og sagði ekki
óeðlilegt að skoða breytt valdahlutföll
í bankaráðum. Ekki ætti að koma á
óvart að stöður bankastjóra yrðu
auglýstar. omfr@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Vel fagnað Það fór vel á með þeim Steingrími J. Sigfússyni og Geir H.
Haarde er Geir kom til þings í fyrsta sinn eftir læknisaðgerð.
Skoða breytingar
í bankaráðum
JÓN Magnússon
alþingismaður
kvaddi sér hljóðs
við upphaf þing-
fundar á Alþingi
í gær og greindi
frá því að hann
hefði í gær til-
kynnt þingflokki
Frjálslynda
flokksins, að
hann segði sig úr þingflokknum.
Tilkynnti Jón jafnframt að hann
hefði sagt sig úr Frjálslynda
flokknum.
Sagðist Jón starfa áfram á Al-
þingi sem þingmaður utan flokka.
Jón Magnússon var formaður þing-
flokks Frjálslynda flokksins.
Úr Frjálslynda
flokknum
Jón Magnússon.
SKATTAR verða ekki hækkaðir á
þessu ári. Þetta sagði Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra í
svari við fyrirspurn Sigurðar
Kára Kristjánssonar, Sjálfstæð-
isflokki. „Það má vera að í þeim
áætlunum sem við þurfum að
gera til næstu fjögurra ára, þurf-
um við kannski að fara í hvort
tveggja, bæði niðurskurð og
skattahækkanir.“
Skattar ekki
hækkaðir í ár
Bráðabirgðamat
Í Morgunblaðinu á laugardag kom
fram að fjármálaráðgjafarfyrirtækið
Oliver Wyman hefði unnið bráða-
birgðamat á eignum og skuldum
Kaupþings. Oliver Wyman vann
ekki bráðabirgðamatið heldur Price-
WaterhouseCoopers. Nú er Deloitte
í Bretlandi að vinna að endanlegu
verðmati á eignum Nýja Kaupþings
og Oliver Wyman samræmir verð-
matsferlið milli bankanna.
Músíktilraunir
Í umfjöllun um Músíktilraunir á
laugardaginn var missagt að úr-
slitakvöld keppninnar færi fram í
Listasafni Íslands. Úrslitakvöldið
fer hins vegar fram í Listasafni
Reykjavíkur laugardaginn 4. apríl.
Sýning Alfreðs Flóka
Á baksíðu Morgunblaðsins á laug-
ardag sagði að sýning Alfreðs Flóka
standi yfir á Kjarvalsstöðum. Hið
rétta er að hún er í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsi.
LEIÐRÉTT
FRUMVARPI ríkisstjórnarinnar
um breytingar á Seðlabankanum
var í gær vísað til viðskiptanefndar
eftir 1. umræðu. Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra hafði
lagt til að frumvarpinu yrði vísað til
efnahags- og skattanefndar en hún
kvaddi sér hljóðs fyrir atkvæða-
greiðslu á þinginu í gær þar sem
komin var fram önnur tillaga um að
vísa frumvarpinu til viðskipta-
nefndar. Jóhanna sagði rök fyrir
báðum tillögunum. „Ég tel að það
skipti engu meginmáli í hvora
nefndina þetta mál fer, svo fremi að
það fái skjóta og góða afgreiðslu í
þeirri nefnd sem fær þetta mál til
umfjöllunar,“ sagði hún og dró til-
lögu sína til baka.
Var frumvarpinu því vísað til við-
skiptanefndar. Þingmenn rík-
isstjórnarflokkanna eru í meiri-
hluta í efnahags- og skattanefnd en
í minnihluta í viðskiptanefnd þings-
ins. Seðlabankafrumvarpið og
skipulag yfirstjórnar hans er á dag-
skrá fundar viðskiptanefndar sem
hefst kl 8:30 í dag.
Tillaga dregin til baka og mál-
inu vísað til viðskiptanefndar
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
60-80% afsl.
af öllum vörum
ENN MEIRI
VERÐLÆKKUN
Á ÚTSÖLU
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030 Opið virka daga frá 10-18
Hinir frábæru
Care þægindabrjóstahaldarar,
Frábært tilboð í
Sjúkravörum ehf.
í bláu húsi v. Faxafen,
sími 553 6511
Opið 11-18 virka daga
Mb
l.
10
86
43
7
20% afsláttur
(af gamla verðinu)
Stök skópör
25% afsláttur
20% afsláttur
Allir stuðningssokkar og
sokkabuxur 70 d og 140 d
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Útsalan
Str. 36-56
enn í fullum
gangi
Orðsending til skilanefnda og lögmanna.
Önnumst fjármálaþýðingar · Afar snör handtök.
Tilboð í öll verkefni · bafþýðingaþjónusta.is.
LAGERSALA 50-70% afsláttur • Góð tilboð
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Laugavegi 63 • S: 551 4422
NÚ LJÚKUM VIÐ
ÚTSÖLUNNI
50-70%
AFSLÁTTUR
Á FRÁBÆRUM VETRARFATNAÐI