Morgunblaðið - 10.02.2009, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009
Einar Sigurðsson.
Ólafur Þ. Stephensen.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal.
Útlitsritstjóri:
Árni Jörgensen.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
ThorvaldStoltenberg,fyrrverandi
utanríkisráðherra
Noregs, skilaði í
gær utanrík-
isráðherrum Norð-
urlandanna afar
athyglisverðum tillögum um
aukið samstarf Norðurlanda í
öryggis- og utanríkismálum.
Sú tillaga Stoltenbergs sem
mesta athygli hefur vakið, jafnt
hér á landi sem annars staðar á
Norðurlöndum, er að norrænu
ríkin taki í sameiningu að sér
loftrýmisgæzlu á Íslandi. Hún
tengist beint tveimur öðrum til-
lögum; um að Norðurlönd taki
upp sameiginlegt, borgaralegt
eftirlit með umhverfi, mengun
og skipaumferð í norðurhöfum
og að þau komi sér í sameiningu
upp eftirlitsgervihnöttum.
Fyrir rúmum sex áratugum
voru hugmyndir um norrænt
varnarbandalag slegnar af og
norrænu ríkin völdu ólíkar leið-
ir í varnarmálum. Áratugum
saman var bannað að ræða þau
mál á fundum Norðurlandaráðs
og norrænu ráðherranefnd-
arinnar. Aukinn áhugi hefur
hins vegar verið á norrænu
varnarsamstarfi undanfarin
misseri. Fyrir því eru nokkrar
ástæður.
Í fyrsta lagi er samvinna
Finnlands og Svíþjóðar við Atl-
antshafsbandalagið, NATO,
orðin náin og ríkin taka virkari
þátt í ýmsu samstarfi en sum
aðildarríkin.
Í öðru lagi hefur hern-
aðarlegt mikilvægi norðurhafa
vaxið á ný, meðal annars vegna
hlýnunar loftslags, möguleika á
að nýjar siglingaleiðir opnist og
að unnt verði að
vinna olíu og gas í
auknum mæli á
norðurslóðum.
Í þriðja lagi
standa lítil og
meðalstór ríki eins
og þau norrænu
frammi fyrir þeirri staðreynd
að þau verða að vinna saman til
að hafa efni á hinni dýru tækni,
sem nútímavarnir byggjast á.
Í fjórða lagi hafa öll ríkin
áhyggjur af auknum hernaðar-
umsvifum Rússa á norð-
urslóðum.
Þau hafa því góða ástæðu til
að vilja auka samstarf sitt, burt-
séð frá aðild að NATO eða ekki.
Þegar umferð um norðurslóðir
eykst, hvort sem hún er borg-
araleg eða hernaðarleg, eykst
jafnframt þörfin fyrir eftirlit.
Stoltenberg orðar það svo að
lofthelgiseftirlit sé svið þar sem
það séu eiginhagsmunir allra
ríkjanna að starfa saman.
Frá íslenzkum sjónarhóli
hlýtur aukið norrænt varn-
arsamstarf að vera æskilegt og
eftirsóknarvert. Eftir að varn-
arlið Bandaríkjamanna fór frá
Íslandi, hafa íslenzk stjórnvöld
stóraukið samstarf sitt við Nor-
eg og Danmörku. Finnland og
Svíþjóð hafa einnig sýnt áhuga
á nánara samstarfi.
Í skýrslu Stoltenbergs er
rætt um að norrænt samstarf
geti orðið til þess að spara mikla
peninga, til dæmis á sviði rat-
sjáreftirlits. Norrænt samstarf
um lofthelgiseftirlit getur verið
einn lykillinn að lausn á því
verkefni íslenzkra stjórnvalda
að axla ábyrgð á eigin vörnum
og öryggi með sem lægstum til-
kostnaði fyrir skattborgarana.
Frá íslenzkum
sjónarhóli er aukið
varnarsamstarf
Norðurlanda
eftirsóknarvert}
Norrænar varnir?
Strengjakvar-tettinn Paci-
fica hlaut Grammy-
verðlaun fyrir
plötu sína með
verkum eftir bandaríska tón-
skáldið Elliott Carter. Kvart-
ettinn hefur fengið mikið hrós
fyrir flutning sinn á tónverkum
hins aldargamla tónskálds, sem
enn er að semja.
Einn félaga Pacifica er Ís-
lendingurinn Sigurbjörn Bern-
harðsson fiðluleikari. Kvart-
ettinn hefur náð langt á
alþjóðlegum vettvangi tónlist-
arinnar og Grammy-verðlaunin
eru ekki fyrsta og áreiðanlega
ekki síðasta viðurkenningin
sem fellur þessu frábæra tón-
listarfólki í skaut.
Síðastliðið haust var Pacifica
útnefndur tónlistarhópur árs-
ins 2009 af stærsta tónlistar-
tímariti Bandaríkjanna, Musi-
cal America. Þar var Pacifica í
góðum hópi, því sellóleikarinn
heimskunni Yo-Yo Ma var út-
nefndur tónlistarmaður ársins,
mezzósópraninn Stephanie
Blythe söngvari ársins, Marin
Alsop hljómsveit-
arstjóri ársins og
enn einn verðlauna-
hafinn þetta árið
var tónskáldið
Christopher Rouse.
Sigurbjörn Bernharðsson og
félagar hans í Pacifica eru enn
ungir tónlistarmenn, en gagn-
rýnendur eru sammála um að
kvartettinn sé óvenju þrosk-
aður. Reyndar eiga gagnrýn-
endur oft í erfiðleikum með að
lýsa kvartettinum svo vel sé,
vísa í hugsjónir og draumóra,
heillandi og andríkan leik.
Sigurbjörn Bernharðsson
spaugaði með það í viðtali við
Morgunblaðið í haust að nú
væri Pacifica orðinn fullorðinn
kvartett – verðlaun og viður-
kenningar til þess dags hefðu
fyrst og fremst verið fyrir það
að vera ungur og efnilegur
kammerhópur.
Grammy-verðlaunin eru enn
ein staðfesting frábærs árang-
urs strengjakvartettsins. Sig-
urbjörn og félagar hans verð-
skulda þessa miklu viður-
kenningu.
Nú er kvartettinn
orðinn fullorðinn}Til hamingju, Pacifica!
A
ldrei var sjálfgefið að Ísland héldist
í byggð. Þess vegna var fögnuður
þjóðarinnar ósvikinn í upphafi lýð-
veldis 1944. Þjóðskáldið Hannes
Pétursson, sem þá var lítill gutti,
lýsir þeirri tilfinningu í afmælisritinu Gloria
Kristmundi.
„Og manni heyrðist að þá yrði myrkur og böl
margra alda á Íslandi að baki þegar í stað, gunn-
fánar strangrar sjálfstæðisbaráttu myndu
blakta við hún, framundan blikuðu grænar
grundir nýs þjóðlífs jafnlangt og augað eygði.
Vorhugur, þetta skáldskaparorð, tók nú aftur að
glitra.“
En maður skyldi aldrei ganga að neinu sem
vísu á farsældar Fróni. Samkoman lýðveldisdag-
inn 17. júní á Þingvöllum króaðist af í heiftarlegu
slagviðri og „þingstaðurinn forni varð ösku-
grár“. Litli guttinn mætti vanbúinn, varð holdvotur, skalf um
síðir af hrolli „eins og hundur af sundi dreginn“ og varð að
leita skjóls í mígleku tjaldi.
Nú eru meiri óvissutímar en oft áður. Og ábyrgð Samfylk-
ingarinnar mikil að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu, þegar
tæpir þrír mánuðir eru í kosningar, til að mynda minni-
hlutastjórn. Víst þarf að endurnýja traust. En það gerist í
kosningum. Jóhanna Sigurðardóttir átti sjálf sæti í fráfar-
andi ríkisstjórn – bara í öðru ráðuneyti. Nú er hún orðin
heilög. Og fólki er ýtt til hliðar um allt stjórnkerfið. Er flýt-
irinn kannski meiri en fyrirhyggjan?
Jón Sigurðsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, hefur gagn-
rýnt harðlega ný lög um Seðlabankann, þar sem svonefnt
peningastefnuráð yrði selt undir ofurvald eins
manns, nýs seðlabankastjóra. Jafnframt er
starfslýsingin svo þröng, að einn okkar farsæl-
asti seðlabankastjóri, Jóhannes Nordal, hefði
ekki talist hæfur til starfans.
Það er á þessum grunni sem reisa á nýtt Ís-
land. Og verkaskiptingin er ekki skýrari en svo,
að fjármálaráðherrann er jafnframt ráðherra
landbúnaðar og sjávarútvegs. Ætli standi á
fyrirgreiðslu þar?
Þá er heilbrigðisráðherrann Ögmundur
Jónasson jafnframt formaður BSRB, þó að
hann sé að vísu í „leyfi“ fram yfir þingkosningar
í apríl. Er það við hæfi á „nýja Íslandi“ að heil-
brigðisráðherra sé einnig á mála hjá ríkisstarfs-
mönnum í heilbrigðiskerfinu? Er það þá trú-
verðugt þegar hann segist vilja beita sér af
hörku gegn einkarekstri í heilbrigðiskerfinu?
Verkaskiptingin er hinsvegar skýr þegar kemur að Öss-
uri. Hann fær utanríkisráðuneytið til hliðar við iðnaðarráðu-
neytið. Samlegðaráhrifin blasa við í sameinuðu „stóriðju-
ráðuneyti“. Og byltingarkenndar hugmyndir
umhverfisráðherrans um fjallagrös hverfa fyrir lítið.
Íslendingar þurfa að berjast fyrir sjálfstæði sínu og lýð-
veldi. Aldrei verður sjálfgefið að landið haldist í byggð. Það
snart lítinn gutta djúpt að skynja þjóðernislegan samhug Ís-
lendinga í atkvæðagreiðslunni miklu vorið 1944. Og Hannes
rifjar það upp árið 2009: „Sá hugur – sá arnsúgur þjóðar-
andans eins og skáld fyrr á öldinni hefðu máski komizt að
orði – held ég að verði óskiljanlegur komandi kynslóðum.“
pebl@mbl.is
Eftir Pétur
Blöndal
Pistill
Arnsúgur þjóðarandans
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
J
óhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra deilir nú
harðlega við Davíð Odds-
son, formann banka-
stjórnar Seðlabanka Ís-
lands, vegna fyrirhugaðra breytinga
á lögum um Seðlabankann. Jóhanna
óskaði eftir því að seðlabankastjór-
arnir þrír, Ingimundur Friðriksson,
Eiríkur Guðnason og Davíð Oddsson,
hættu störfum. Ingimundur ætlar að
hætta en hinir ætla ekki að verða við
beiðni Jóhönnu. Ingimundur segir í
bréfi sem hann sendi Jóhönnu að
hann telji vegið að starfsheiðri sínum.
Í bréfi sem Jóhanna sendi stjórn-
armönnum Seðlabankans sagði hún
beiðni sína um að þeir vikju úr stjórn-
inni byggjast á því að nauðsynlegt
væri að byggja upp trúverðugleika á
Seðlabankanum og íslensku efna-
hagslífi.
Fara með nýjum lögum
Líklegt verður að teljast að lyktir
þessarar deilu verði þær að stjórn
Seðlabankans hætti störfum og nýr
bankastjóri verði skipaður á grunni
nýrra laga sem bíða þess að verða
samþykkt á Alþingi. Frumvarpið sem
viðskiptanefnd á eftir að fjalla um
gerir ráð fyrir að einn seðla-
bankastjóri verði skipaður til sjö ára í
senn að undangenginni auglýsingu.
Sá sem gegnir stöðu seðlabanka-
stjóra verður að vera með meistara-
próf í hagfræði samkvæmt frumvarp-
inu.
Erna Guðmundsdóttir, lögfræð-
ingur hjá Bandalagi háskólamanna,
segir embættismenn, eins og þá sem
eru í stjórn Seðlabankans, hafa rík
réttindi sem stjórnvöldum beri að
virða. Hins vegar geti lagabreytingar
breytt miklu. „Ef störfin eru lögð nið-
ur þá eiga embættismenn biðlauna-
rétt, samkvæmt lögum frá 1996. Við
höfum fundið töluvert fyrir því að
undanförnu að ríkisstarfsmenn eru
að kanna réttarstöðu sína gagnvart
því ef störf þeirra eru lögð niður,“
segir Erna. Biðlaun embættismanna
geta verið til allt að tólf mánaða eftir
að störfin eru lögð niður, að sögn
Ernu.
„Það er heldur ekki óeðlilegt að
ríkisstarfsmenn skoði stöðu sína í
ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin í
þjóðfélaginu, sem fylgir mikill nið-
urskurður hjá hinu opinbera. Þá eyk-
ur óróinn í stjórnmálalífi landsins ef-
laust óöryggi hjá mörgum opinberum
starfsmönnum.“
Álitamál getur verið á hvaða for-
sendum lagabreytingarnar eru gerð-
ar og þá hvort réttlætanlegt sé að
skipta út embættismönnum á grund-
velli þeirra. Ljóst er þó að réttur
stjórnvalda til þess að skipta út
starfsfólki hjá æðstu stofnunum rík-
isins er ótvíræður ef skilyrði lögum
samkvæmt eru uppfyllt. Tilgang-
urinn með aðgerðum ríkisstjórn-
arinnar, að tillögu forsætisráðherra
nú, er sagður sá að efla traust á bank-
anum og aðgerðum hans og ekki síð-
ur á íslensku efnahagslífi í heild. Á
þeim forsendum hvílir mikilvægi
lagabreytinganna að mati ríkisstjórn-
arinnar sem þegar hefur afgreitt
frumvarpið.
Bréfin gana enn á milli
Jóhanna sendi Ingimundi Friðriks-
syni og Eiríki Guðnasyni bréf í gær,
þar sem hún ítrekaði að þeir hefðu
ekkert sér til saka unnið og væru
hæfir til þess að sinna sínum störfum.
Engar fréttir bárust af frekari bréfa-
sendingum til Davíðs.
Morgunblaðið/Kristinn
Seðlabanki Íslands Hörð deila er nú komin upp milli forsætisráðherra og
formanns stjórnar Seðlabanka Íslands.
Seðlabankastjórar
telja að sér vegið
Samþykkti Jóhanna breyt-
ingar á lögunum 2001?
Jóhanna Sigurðardóttir kom að
breytingum á lögum um Seðla-
banka Íslands árið 2001 og sam-
þykkti þær breytingar sem þá
voru gerðar. Þær áttu fyrst og
fremst að miða að því að auka
sjálfstæði Seðlabankans.
Gagnrýndi fyrri lög
Jóhanna gagnrýndi hvernig lögin
voru áður en þeim var breytt og
sagði ráðherra þá vera í stöðu til
að ráðskast með Seðlabankann.
Meðal annars á grundvelli þess
að hægt var að ráða þá í stuttan
tíma. Hún sagði á vefsíðu sínni
af þessu tilefni: „Þetta getur
varla þýtt annað á mæltu máli
en að ef bankastjórinn fer ekki í
einu og öllu að því sem forsætis-
ráðherra segir þá eigi hann það
á hættu að vera látinn fjúka.
Eðlilegri stjórnsýsluhættir væri
að bankaráðið réði sjálft einn
bankastjóra sem ábyrgð bæri
gagnvart bankaráði, sem gæti þá
látið hann fara ef hann væri ekki
starfinu vaxinn, frekar en að
hann sé háður duttlungum og
geðþóttaákvörðun ráðherra á
hverjum tíma.“
S&S