Morgunblaðið - 10.02.2009, Síða 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2009
✝ Dagbjartur Jóns-son fæddist á Sól-
bakka á Stokkseyri
24. ágúst 1924. Hann
lést á Landspítalanum
í Fossvogi 2. febrúar
sl.
Foreldrar hans
voru Viktoría Hall-
dórsdóttir, f. í Stokks-
eyrarseli 7.8. 1889,
húsfrú, Sólbakka á
Stokkseyri og Jón
Þórir Ingimundarson
trésmíðameistari, f.
12.10. 1888, frá
Stokkseyri. Dagbjartur var yngstur
níu systkina, sem öll eru látin, nem
eitt, en þau voru: 1) Jóna Margrét, f.
5.9. 1910, 2) Sigríður Fanney, f.
17.9. 1912, 3) Inga Rakel, f. 19.12.
1914, 4) Þóra, f. 25.1. 1917, 5) Al-
bert, f. 4.11. 1919, 6) Sigríður Dóra,
f. 26.9. 1921, 7/8) tvíburarnir Dag-
Hallsson, f. 1.10. 1946. (Þrjú börn
og þrjú barnabörn). 4) Þóra Jóna, f.
13.3. 1964, maki Hlynur Hjörleifs-
son, f. 14.10. 1966. (Tvö börn og
eitt látið). 5) Dagbjartur Vigfús, f.
1.11. 1970. Fyrir átti Dagbjartur
eina dóttur með Margréti Olsen
(látin). Hún heitir Ellen Arný Bar-
nes, f. 26.8. 1951, gift Jaffrey Bar-
nes, búsett í Bandaríkjunum. (Þrjú
börn). Á árunum 1952 til 1960
stundaði Dagbjartur sjómennsku.
Fyrst á Heiðrúnu frá Bolungavík á
árunum 1952 til 1956 og síðan á
Guðmundi Þórðarsyni á árunum
1956 til 1960. Á Guðmundi voru
kraftblakkir í fyrsta skipti teknar
til notkunar í tilraunaskyni og var
Dagbjartur einn þeirra sjómanna
sem tóku þátt í þeirri tilraun. Á ár-
unum 1960 keypti Dagbjartur
eignarhlut í Stál húsgagnagerðinni
og vann þar fram til 1989, en þá
eignaðist hann fyrirtækið Stálkó
og starfaði við það til ársins 1992.
Dagbjartur verður jarðsettur frá
Árbæjarkirkju í dag og hefst at-
höfnin kl.13.
rún og Njóla f, 24.8.
1922, Dagrún d.
16.12. sama ár. Hinn
24. maí 1958 giftist
Dagbjartur eftirlif-
andi konu sinni, Ingi-
björgu Auði Ingva-
dóttur, f. 2.12. 1934.
Foreldrar hennar
voru: Ingvi Hann-
esson, f. 12.9. 1911 að
Hörðubóli í Dalasýslu,
d. 6.12. 1978 og Lilja
Karlotta Jónsdóttir, f.
8.9. 1899 á Akureyri,
d. 19.11. 1971 Börn
Dagbjarts og Ingibjargar Auðar
eru: 1) Dagrún, f. 13.7. 1955, maki
Halldór Jónsson, f. 27.9. 1959.
(Fimm börn og sex barnabörn). 2)
Viktoría, f. 14.8. 1957, maki Júlíus
Þór Júlíusson, f. 18.10. 1956. (Tvö
börn og eitt barnabarn). 3) Inga
Hanna, f. 26.5. 1959, maki Jónas J.
Það er sárt til þess að hugsa að
pabbi sé ekki lengur hér með okkur.
Hann var ætíð svo ljúfur og hlýr í
umgengni, fámáll, en með ákveðnar
skoðanir á þeim hlutum sem skiptu
hann og okkur máli. Ég man þá tíð
þegar við systkinin vorum lítil og
pabbi var búinn að gera morgunmat-
inn tilbúinn handa okkur áður en
hann sjálfur fór til vinnu. Þá eru
ógleymanlegar ferðirnar á Stokks-
eyri og fjöruferðirnar með mömmu
og pabba. Þannig var pabbi, ávallt að
hugsa um að okkur liði sem best, þeg-
ar hann átti stund, sem voru þó alltof
fáar, þar sem pabbi vann mikið og
var að vinna oft um helgar í þá daga.
Hann hafði sérstaka ánægju af
veiði í ám og vötnum, nema seinni ár-
in eftir að hann veiktist. Ég áttaði
mig ekki á því hversu veikur hann
var orðinn, þar sem hann hafði það
fyrir sig og gerði lítið út veikindun-
um. Það var ávallt gott að koma í
Álakvíslina og fá vöfflur með kaffinu
á laugardögum eftir bæjarferð og
skiptast á skoðunum. Það verður haft
til minningar um pabba að koma
saman í vöfflukaffi, þegar færi gefst,
á laugardögum, Pabba þótti afar
gaman að rifja upp þau ár sem hann
var til sjós, en á þeim árum lenti hann
í sjávarháska, bæði við björgun
mannslífa og ekki síst þegar upp kom
eldur um borð í skipinu sem hann var
á. Þá lýsti hann fyrir okkur ýmsum
atburðum og upplifði þá sjálfur í frá-
sögnum sínum.
Aldrei man ég eftir því að hann tal-
aði illa um nokkurn mann og ekki
minnist ég þess að hann hafi skamm-
að okkur systkinin, þó svo við höfum
eflaust átt það skilið. Það má segja að
pabbi hafi ræktað garðinn sinn og
sáð fræjum í þann akur sem laut að
uppeldi okkar. Við systkinin áttum
góða barnæsku hjá mömmu og
pabba, og búum að því í dag,
Ég bið algóðan Guð að varðveita
þig og veita mömmu styrk til að tak-
ast á við sorgina með okkur og kveð
þig með þessu fallega ljóði:
Grátið mig ekki, því ég er frjáls,
ég fylgdi veginum sem Guð lagði fyrir mig.
Ég tók Hans hönd, þegar kallið kom,
sneri við og yfirgaf allt.
Ég gat ekki dvalið lengur,
til að hlæja, elska, vinna eða gleðjast.
Ókláruð verk mín verða eftir hér,
ég fann þennan stað minn síðasta dag.
Hafi brottför mín skilið eftir tómarúm,
fyllið það með góðum minningum.
Vináttu og gleðistunda,
ó já ég á eftir að sakna líka.
Berið ekki þungar byrðar sorgarinnar.
Ég óska ykkur bjartra daga.
Líf mitt var fyllt af gleðistundum,
í samför ástvina og annarra.
Kannski virtist dvöl mín hér allt of stutt.
En lengið hana ekki með djúpri sorg.
Léttið á hjarta ykkar og samgleðjist mér,
Guð vildi mig núna og tók móti mér.
(Irvin R. Karon.)
Inga Hanna og fjölskylda.
Þegar að kveðjustund er komið
rennur lífið í gegnum hugann og
minningarnar streyma fram. Hann
var alinn upp á Stokkseyri, yngstur í
stjórum systkinahópi. Mér er það til
efs að margir sem fæddir voru á fyrri
hluta síðustu aldar hafi hlotið slíkt
jafnréttisuppeldi sem hann fékk.
Hann þurfti að sinna húsverkunum
og það kom sér vel síðar meir. Þar réð
ferðinni móðir hans, félagsmálatröllið
og jafnréttiskonan Viktoría Halldórs-
dóttir.
Hann hélt síðan á sjóinn og líkaði
það vel. Dvaldi því ansi mikið fjarri
okkur börnunum en bætti það ríku-
lega upp í inniverum. Það var oft kátt
á hjalla þegar haldið var í bæinn á
þeim árum.
Þegar hann hætti til sjós og gerðist
stálsmiður komu kostir uppeldisins
frá Stokkseyri í ljós. Fyrr en varði
var hann, þrátt fyrir langan vinnu-
dag, farinn að taka þátt í heimilis-
störfunum. Hann bjó til hafragraut
fyrir okkur börnin áður en hann hélt
til vinnu og matseldin á sunnudögum
var hans. Ekki vafðist nú baksturinn
fyrir honum heldur.
Þrátt fyrir hæglátt og hógvært fas
var hann aldeilis ekki skoðanalaus
maður. Pólitískur með afbrigðum og
réttlætiskenndin ósvikin. Hitnaði
stundum verulega í kolunum þegar
mikið gekk á í þjóðfélaginu og þá vildi
nú stundum orðbragðið harðna.
Hann var umfram allt jafnaðar-
maður. Saklausir fréttatímar gátu
breyst í hressilega orðræðu hans ef
því var að skipta. Hann bar þó virð-
ingu fyrir skoðunum annarra sem
kom best í ljós þegar dóttirin birtist
með bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins. Eflaust var hann seintekinn og
virkaði án efa hrjúfur í fyrstu. Trú-
lega réð þar hógværðin nokkru eða
feimnin. Innra sló hjarta manns sem
allt vildi fyrir alla gera. Slíkt fékk ég
að reyna um nokkurt skeið þegar ég
sótti höfuðborgina heim að vestan í
leit að læknisþjónustu. Maðurinn
sem aldrei missti úr vinnu gerðist þá
einkabílstjóri dótturinnar og skipti
þá tíminn eða fyrirhöfnin engu máli.
Umhyggjusemin ofar öllu.
Undir yfirborðinu leyndist svo list-
unnandi. Sá áhugi kom nú best í ljós
ef glingrað var við stút. Þá breyttist
hægláti heimilisfaðirinn í tenór-
söngvara með sjálfstraustið í lagi.
Það voru mikil ánægjuár sem hann
átti eftir að sumarhúsið á Stokkseyri
reis úr jörðu. Þar var hann á heima-
velli. Kenndi barnabörnunum um-
gengni við náttúruna og það sem hún
gefur af sér. Það verður seint sagt að
maðurinn hafi verið ferðagarpur, í
það minnsta þegar ferðir innanlands
áttu í hlut. Því var hann sjaldséður
gestur á heimilum þeirra í fjölskyld-
unni er úti á landi bjuggu. Því var
hver fundur verðmætur og nauðsyn-
legt að nýta hverja stund. Heima var
best í hans huga.
Síðustu árin var heilsan farin að
bila. Ekki var nú verið að ónáða
læknastéttina að óþörfu og því varð
sjúkrahúslegan stutt og andlátið
óvæntara en við mátti búast þrátt
fyrir allt. Því var það afar ánægjulegt
að flestir hans afkomendur skyldu
hafa í sameiningu sótt hann heim um
síðustu jól. Þar naut hann sín vel inn-
an um sína nánustu. Guð geymi
minningu föður míns.
Dagrún.
Dagbjartur Jónsson
Fleiri minningargreinar um Dag-
bjart Jónsson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Elskuleg mágkona okkar og frænka,
ÓLAFÍA G. ÁSGEIRSDÓTTIR
frá Krossnesi,
Kjarrhólma 30,
Kópavogi,
sem lést föstudaginn 30. janúar, verður jarðsungin
frá Digraneskirkju miðvikudaginn 11. febrúar
kl. 13.00.
Gróa Sigurjónsdóttir, Kristjana H. Guðmundsdóttir,
Valgerður Ásgeirsdóttir, Björgvin Gylfi Snorrason,
Áslaug Dís Ásgeirsdóttir, Ásgeir Valur Snorrason,
Ásgeir Már Ásgeirsson
og fjölskyldur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
THEÓDÓRA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Bakkavegi 13,
Hnífsdal,
lést á blóðlækningadeild Landspítalans við Hring-
braut föstudaginn 6. febrúar.
Halldóra Elíasdóttir, Guðmundur Kr. Thoroddsen,
Sigríður Inga Elíasdóttir, Svavar Geir Ævarsson,
Finnbjörn Elíasson, Gyða Björg Jónsdóttir,
Guðmunda Elíasdóttir, Friðrik Óttar Friðriksson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
STEFÁN GUNNLAUGUR EÐVALDSSON
skipasmiður,
Sóltúni 18,
sem lést þriðjudaginn 3. febrúar, verður jarðsunginn
frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 12. febrúar
kl. 13.00.
Guðrún V. Ragnarsdóttir,
Þuríður Ragna Stefánsdóttir, Brynjólfur Sigurjónsson,
Sigrún Björk Stefánsdóttir,
Eðvald Einar Stefánsson, Hildur Guðrún Hauksdóttir,
Katrín Rósa Stefánsdóttir, Stephen D. Smith,
Stefán Stefánsson,
Magnús Halldórsson, Laufey Pétursdóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN MÝRDAL,
Bogahlíð 26,
Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni sunnudaginn
1. febrúar, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
mánudaginn 16. febrúar kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningar- og styrktarsjóð
hjartasjúklinga, sími 552 5744 eða minningarsjóð Sóltúns, sími
590 6000.
Sigurveig G. Mýrdal,
Sigurjón Mýrdal, María Sophusdóttir,
Garðar Mýrdal, Ingibjörg Ósk Kjartansdóttir,
Jón Agnar Mýrdal, Vivian Hansen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
LÁRUS EGGERTSSON
kafari og björgunarfræðingur,
Hlíðargerði 26,
Reykjavík,
lést föstudaginn 6. febrúar.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
20. febrúar kl. 13.00.
Einara Þyri Einarsdóttir,
Eggert Lárusson, Guðrún Sigurgeirsdóttir,
Einar Þór Lárusson, Hrönn Kristjánsdóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
VALGERÐUR SIGFÚSDÓTTIR
frá Vogum í Mývatnssveit,
Sólbrekku 26,
Húsavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Húsavík,
föstudaginn 6. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Húsavíkurkirkju laugar-
daginn 14. febrúar kl. 14.00.
Stefán Haraldsson, Friðrika Baldvinsdóttir,
Guðmundur Óskar Haraldsson,
Gísli Haraldsson,
Sigfús Haraldsson, Elfa Brynja Sigurðardóttir,
Jón Kristinn Haraldsson, Klara Matthíasdóttir,
Haraldur Haraldsson, Guðrún Anna Jónsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín, amma, langamma og
langalangamma,
JÓNA ÁSTA SIGURÐARDÓTTIR,
lést á Vífilsstöðum fimmtudaginn 29. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingibjörg Erla Jósefsdóttir.