Morgunblaðið - 30.03.2009, Qupperneq 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2009
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
89.660kr.FRÁ
Marmaris
TYRKLAND – Forum Residence
á mann miðað við 2 með 2 börn í eina viku.
Brottför
5. júní
Verðdæmi miðað við 2 fullorðna: 97.611 kr. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn og gisting. Verðmiðast við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega.
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
Úrval-Útsýn – Lágmúla 4 – Sími 585 4000 – www.urvalutsyn.is
REYKJAVÍKURBORG hlaut verð-
laun alþjóðasamtaka miðborgar-
stjórna „The Association of Town
Centre Management“ (ATCM) fyrir
frábæran árangur við hreinsun og
endurreisn miðborgar Reykjavíkur á
síðastliðnu ári. Þetta var tilkynnt á
ársfundi samtakanna í London hinn
26. mars.
Hátt í 700 alþjóðlegar borgir og að-
ilar tengdir miðborgarrekstri víðs
vegar um heim eru aðilar að samtök-
unum. „Þessi verðlaun eru mikilvæg
fyrir Reykjavík og ánægjuleg stað-
festing þeirra mörgu verka sem borg-
aryfirvöld hafa á undanförnum árum
hrint í framkvæmd í þágu miðborg-
arinnar. Við munum halda áfram að
vinna í þessum anda og gera miðborg-
ina okkar að enn betri stað fyrir íbúa,
ferðamenn og hagsmunaaðila,“ sagði
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgar-
stjóri. haa@mbl.is
Miðborg-
arátakið
verðlaunað
„Vinnum áfram í
þessum anda“
Morgunblaðið/G.Rúnar
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
KONAN sem slasaðist á Skessu-
horni á laugardag er á batavegi og
var útskrifuð af gjörgæsludeild
Landspítalans í gærmorgun. Hún er
enn á spítalanum en líðan hennar er
eftir atvikum góð. Því er ljóst að
giftusamleg björgun tókst við erfiðar
aðstæður á Skarðsheiðinni.
Um hundrað og tuttugu manns
tóku þátt í aðgerðinni og komu jepp-
ar, vélsleðar, snjóbílar og þyrla
Landhelgisgæslunnar að góðum not-
um. Björgunin tók hins vegar langan
tíma. Slysið varð rétt um klukkan
tvö eftir hádegið, fyrstu björgunar-
sveitarmenn komu á staðinn um
kvöldmatarleytið og konan hafði ver-
ið flutt á brott um klukkan tíu um
kvöldið.
Strax hringt á neyðarlínuna
Af þessum sökum skiptu viðbrögð
leiðsögumannsins, Jóns Gauta Jóns-
sonar, og hins göngufólksins miklu
um hvernig til tókst. Að sögn Jóns
Gauta datt konan og hlaut höfuð-
högg þegar tólf manna hópurinn var
á niðurleið. Þá hafði Jón Gauti afráð-
ið að fara ekki á tindinn, heldur snúa
við. Konan missti meðvitund undir
eins og endasentist allt að 200 metra
niður brekkuna. „Ég sleppti takinu
og henti mér á eftir henni. Þarna var
brött fönn og ég rann vel. Á end-
anum gat ég hlaupið niður fyrir hana
og stoppað hana. Þar sá ég að blóð
var í vitum hennar og engin merki
um líf. Ég hringdi þá strax í Neyð-
arlínuna og reyndi að klæða hana í
þau föt sem ég var með,“ segir hann.
Eftir nokkrar mínútur þegar Jóni
Gauta barst liðsauki sýndi konan
merki meðvitundar og augljóst var
að öll hreyfing var henni mjög sárs-
aukafull. Það var því ekki um annað
að ræða en að bíða og halda á henni
hita með öllum ráðum.
Því næst hófust allir í hópnum
handa við að hlúa að konunni. Bak-
pokar voru lagðir undir hana og þrír
lögðust þétt upp við hana til að halda
á henni hita.
Grafið, borðað og hlýjað
„Á meðan grófu hinir betra snjó-
hús inn í hlíðina. Fljótlega höfðum
við vaktaskipti, þeim sem grófu varð
fljótt heitt og þá lögðust þeir hjá
henni en hinir fóru að grafa. Svona
gekk þetta næsta látlaust í þrjá
klukkutíma. Við héldum einfaldlega
áfram að borða og halda á okkur hita
svo við gætum haldið á henni hita.“
Jón Gauti segir að göngufólkið hafi
staðið sig stórkostlega, allir hafi
haldið ró sinni og unnið sem einn
maður. „Mér skilst að líkamshiti
hennar hafi verið 36 gráður þegar
hún kom inn á spítala svo ljóst má
vera að hópnum tókst vel að halda á
henni hita í þetta langan tíma við
jafnerfiðar aðstæður.“
Gönguhópurinn sem Jón Gauti var
með þennan dag nefnist Toppfarar
og segir hann fólkið í hópnum mjög
reynslumikið fjallafólk sem lagt hafi
að baki mörg hæstu fjöll landsins.
Jón Gauti segir veður hafa verið
betra en hann bjóst við en alltaf hafi
verið ljóst að snúa þyrfti við ef veður
versnaði eða aðstæður krefðust þess.
Erfið og flókin björgun
Göngufólk á Skessuhorni kostaði öllu til að halda hita á slasaðri konu úr hópnum
Leiðsögumaðurinn henti sér niður hlíðina til að stöðva konuna áður en verr færi
Ljósmynd/Bára Ketilsdóttir www.toppfarar.is
Björgun Viðmælendur segja það velta á reynslu og búnaði göngufólks hvort
ganga á Skessuhorn er skynsamleg við aðstæður eins og voru á laugardag.
Í HNOTSKURN
»Skessuhorn er nokkuð fjöl-farinn tindur enda einn
besti útsýnisstaður á Vest-
urlandi. Ásýndar er það ekki
árennilegt enda hömrum girt
á flestar hliðar.
»Suðvestan í horninu erhins vegar leið sem göngu-
fólk nýtir sér til uppgöngu, áð-
ur en gengið er út á hornið of-
an klettanna.
»Aðstæður voru engu aðsíður mjög erfiðar enda
mikill vindur og úrkoma auk
þess sem skyggja tók áður en
björgunin var yfirstaðin.
Í TILEFNI af því að í dag eru 60 ár
liðin frá því að Alþingi samþykkti
inngöngu Íslands í Atlantshafs-
bandalagið efna Samtök hernaðar-
andstæðinga (SHA) til útifundar á
Austurvelli kl. 17.00 í dag.
Þar verður haldið á lofti kröfunni
um að Ísland standi utan hern-
aðarbandalaga. Ármann Jakobsson
íslenskufræðingur og María S.
Gunnarsdóttir flytja stutt ávörp.
Fundarstjóri verður Stefán Pálsson,
formaður SHA.
Útifundur á
Austurvelli
HÁTT í 50 milljónir króna söfn-
uðust í landssöfnun Hjartaheilla í
beinni útsendingu á Stöð 2 sl.
laugardagskvöld. Söfnunarútsend-
ingin stóð yfir í þrjár klukku-
stundir og komu þar fram val-
inkunnir listamenn og
skemmtikraftar á borð við Pál
Óskar, Bogomil Font og Millj-
ónamæringana, Pétur Jóhann og
Jón Gnarr.
Söfnunarféð rennur óskipt til
hjartasjúkdómadeildar Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss, nánar til-
tekið til nýs hjartaþræðingartækis
sem skipta mun sköpum í þeirri
viðleitni að stytta biðlista eftir
hjartaaðgerðum hér á landi, segir
m.a. í tilkynningu.
„Það kom greinilega í ljós í
söfnunarútsendingunni að hjartað
og heilsan eru þjóðinni mjög hug-
leikin því að þrátt fyrir krappan
efnahag þjóðarinnar lögðust menn
á eitt um að láta af hendi rakna fé
til söfnunarinnar, allt frá börnum
sem gáfu vasapeninga sína, vegna
hjartveikra foreldra eða ömmu og
afa, til fyrirtækja sem gáfu stærri
upphæðir og skoruðu um leið á
fyrirtæki í sama geira að gera
slíkt hið sama.“
Hátt í 50 milljónir söfnuðust
SÉRSTAKT átak gegn ölvunar-
akstri er hafið hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu. Það er unnið
í samvinnu við embætti ríkislög-
reglustjóra. Átakið stendur í tæpar
fjórar vikur og mega ökumenn bú-
ast við að vera stöðvaðir víðsvegar í
umdæminu.
Að sögn lögreglunnar verður
skipulagt eftirlit á ýmsum tímum
sólarhringsins og á mismunandi
stöðum. Markmiðið er að vekja at-
hygli á þeirri hættu sem stafar af
ölvunar- og fíkniefnaakstri.
Átak gegn
ölvunarakstri