Morgunblaðið - 30.03.2009, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 30.03.2009, Qupperneq 15
Fréttir 15ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2009 TÖLVUNJÓSNAKERFI sem stjórnað var frá Kína braut sér leið inn í leyniskjöl á tölvum jafnt í einka- eigu og eigu yfirvalda í 103 löndum að sögn kanadískra netsérfræðinga. Njósnakerfið, sem rannsakendur hafa nefnt GhostNet, réðst á 1.295 vélar, m.a. í eigu NATO, utanríkis- ráðuneyta, sendiráða, banka og fréttastofa um allan heim. Þá ruddi það sér einnig leið inn í tölvur sem notaðar voru af Dalai Lama, andleg- um leiðtoga Tíbeta og útlægra Tíb- eta. Ekki liggja sannanir fyrir um að kínversk yfirvöld standi að baki njósnakerfinu og hafa yfirvöld í Pek- ing neitað aðild. Skýrsla sérfræðinganna um njósnakerfið birtist í kjölfar 10 mán- aða rannsóknar á vegum Inform- ation Warfare Monitor-stofnunar- innar (IWM), sem hafin var að beiðni Dalai Lama. jmv@mbl.is Njósnarar á netinu Tölvuþrjótar brutust inn í þúsundir tölva Reuters Njósnir Tölvuþrjótar brutust inn í hundruð tölva um víða veröld. VOLKER Kraft og eiginkona hans Christa hafa skreytt garðinn sinn í austurhluta Þýskalands með lituðum eggj- um fyrir hverja páska síðastliðin 40 ár. Eggjunum á greinum trjánna hefur farið sífjölgandi í gegnum tíðina og eru nú orðin 9.200 talsins sem verður að teljast harla gott. Það þarf elju og þolinmæði við að koma svo mörgum eggjum upp svo vel sé og byrjuðu hjón- in því tímanlega til að ná að ljúka verkinu fyrir páska. Mál- uð hænuegg eru í stóru hlutverki í hátíðleika páskanna víða um heim ekki síður en súkkulaðieggin gómsætu. AP Eggjaæði fyrir hverja páska ÞÚSUNDUM eitraðra karta var slátrað í Queensland í Ástralíu við hátíðlega athöfn í gær. Hundruð eft- irvæntingarfullra Ástrala frá fimm sveitarfélögum söfnuðust saman til að slátra körtunum. Stór hluti jarðneskra leifa dýr- anna verður nýttur í áburð handa bændum sem hafa liðið fyrir ódæð- isverk kartanna svo árum skiptir, en þær stærstu verða stoppaðar upp. Körturnar voru fluttar til Ástralíu og var ætlað að drepa bjöllur sem höfðu gert bændum lífið leitt. Dýrin fjölguðu sér hins vegar gríðarlega og skipta nú milljónum en hvert kvendýr getur framleitt 20.000 egg. Dýrin geta orðið allt að 20 sm löng og auk þess að vera eitruð breiða þau út salmónellu og ráðast á önnur dýr, jafnvel fugla. Dýraverndarsamtök lýstu yfir ánægju með framkvæmd slátrunar- innar, en dýrin voru annaðhvort fryst eða kæfð í plastpoka með koltvísýringi. jmv@mbl.is Í stríð gegn eiturkörtum AP Grunlaus Sumar körturnar voru vigtaðar fyrir slátrun. Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is BARACK Obama heldur á morgun í fyrstu opinberu heimsókn sína til Evrópu frá því hann tók við embætti forseta Bandaríkjanna fyrir 70 dögum. Þrátt fyrir vin- sældir Obama í Evrópu þykir líklegt að hann muni eiga í erfiðleikum með að sannfæra leiðtoga álfunnar um ágæti áætlana sinna. Forsetinn hefur tilkynnt breytta stefnu í málefnum Afganistans auk þess sem hann mun hvetja leiðtoga Evrópu til að sameinast um lausnir á al- þjóðlegu efnahagskreppunni. Endurreisir stöðu Bandaríkjanna í heiminum Talsmenn Hvíta hússins segja ferðina vera leið til að takast á við þann vanda sem Obama „fékk í arf“ frá Bush-stjórninni. „Við teljum [ferðina] tvímælalaust verða grundvallandi þátt í verkefni forsetans að end- urreisa stöðu Bandaríkjanna í heiminum, og þá sér- staklega í Evrópu,“ segir Denis McDonough, einn ráðgjafa Obama í viðtali við The Washington Post. Sérfræðingar í slíkum ferðum Bandaríkjaforseta segja Obama enn búa yfir þeim stjörnukrafti sem hann sýndi þegar hann fór um Evrópu meðan á kosningabaráttunni stóð í sumar. Þá hélt Obama m.a. ræðu fyr- ir framan 200.000 manns í Berlín. „Það er ennþá svo að evrópskir leiðtogar vilja láta sjá sig með Obama, helst í faðm- lögum við hann brosandi, því hann er svo vinsæll í Evr- ópu,“ segir Reginald Dale, sérfræðingur í alþjóðasam- skiptum. Gagnrýnendur Obama hafa sagt að ungur aldur hans og reynsluleysi muni reynast honum fjötur um fót þeg- ar hann mæti leiðtogum heims og það verður því eitt af verkum hans á ferðalaginu að kveða niður þann orðróm. Obama leggur í Evrópuferð Átta daga ferð Obama um Evrópu er talin liður í að endurreisa stöðu Bandaríkj- anna í heiminum og vinna á þeim vanda sem forsetinn erfði frá forvera sínum Í HNOTSKURN »Obama leggur í átta dagaferð til Evrópu á morgun og mun m.a. sækja G20- fundinn í London á miðviku- dag. »Þá hyggst Obama einnighitta leiðtoga NATO þar sem aðalumræðuefnið verður aðgerðir bandalagsins í Afg- anistan. »Obama mun hitta ýmsaþjóðarleiðtoga, þ. á m. for- seta Kína og Rússlands. Barack Obama Sveitarstjórn- arkosningar voru haldnar í Tyrklandi í skugga ofbeldis í gær. Að minnsta kosti sex manns létu lífið í átök- um tengdum kosningunum og allt að hundrað manns særðust. Stjórnarflokkur Tayyips Erdog- ans, AK, hafði fengið flest atkvæði þegar tveir þriðju hlutar höfðu ver- ið taldir. Flokkurinn hefur verið gagnrýndur fyrir aðgerðarleysi í efnahagskreppunni. Talið er að stjórnin snúi sér nú að viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Kosið í skugga ofbeldis í Tyrklandi Tayyip Erdogan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.