Morgunblaðið - 30.03.2009, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 30.03.2009, Qupperneq 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2009 ✝ Auður BryndísGuðmundsdóttir fæddist í Keflavík 30. nóvember 1988. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja 23. mars sl. For- eldrar hennar eru Róberta Bára Mal- oney, f. 9. ágúst 1963, maki Viðar Ólafsson, f. 31. ágúst 1966, og Guðmundur Óskarsson, f. 4. sept- ember 1960, maki Hrafnhildur Svav- arsdóttir, f. 9. maí 1963. Foreldrar Róbertu eru Sveindís Rósa Hans- dóttir, f. 18. mars 1942, og Char- les Joseph Maloney Jr., f. 19. októ- ber 1943. Foreldrar Viðars eru Guðlaug Fríða Bárðardóttir, f. 12. janúar 1943, og Ólafur Þorgils Guðmundsson, f. 24. júlí 1939. Foreldrar Guðmundar eru Kristín Dagbjört Þórðardóttir, f. 18. júlí 1931, og Óskar Frank Guðmunds- son, f. 21. desember 1921. For- eldrar Hrafnhildar eru Sóldís Björnsdóttir, f. 22. júní 1944, og Svavar Geir Tjörvason, f. 22. maí 1942. Systkini Auðar Bryndísar eru: Óskar Frank Guð- mundsson, f. 10. nóv- ember 1982, sam- mæðra er Aníta Eva Viðarsdóttir, f. 26. febrúar 1994, sam- feðra eru Aron Geir Guðmundsson, f. 24. júní 1995, og Tinna Björk Guðmunds- dóttir, f. 4. október 1998. Auður Bryndís bjó í Keflavík og var nemandi í Heiðarskóla þar sem hún kláraði grunnskóla. Hún hóf síðan nám í Fjölbrautaskóla Suðurnesja en varð frá að hverfa vegna veikinda sina. Auður Bryn- dís var í hlutastarfi um tíma hjá Bókasafni Reykjanesbæjar þegar heilsan leyfði. Útför Auðar Bryndísar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 30. mars, kl. 14. Elsku hjartans engillinn minn, þú ert hetjan mín. Ef ég væri fugl og gæti flogið myndi ég fljúga til þín og taka þig með mér til tunglsins. Missirinn er sár. Ef ég ætti eina ósk, myndi ég óska mér þig aftur til mín, svo þú gætir lifað lífinu eins og þú hefðir kosið. Ef þú finnur þig knúna að koma aftur til mín. Birstu mér í draumi og segðu mér að þér líði vel. (Vjofn.) Ég dáist að hugrekki þínu og já- kvæðni þrátt fyrir mörg bakslög. Söknuðurinn er mikill. Guð geymi þig þar til við hittumst á ný. Mamma. Í dag kveð ég fósturdóttur mína. Mín fyrstu kynni af Auði voru þegar hún var að verða fjögurra ára, og þegar maður hugsar til baka hrann- ast upp minningarnar sem fjölskyld- an á um hana sem ég þakka fyrir. Öll ferðalög sem við áttum saman eru ógleymanleg. Minnisstæðar eru ferðirnar í rússibönunum þegar hinir í fjölskyldunni þorðu ekki. Hún var alla tíð róleg manneskja, sem kom henni til góða í veikindum hennar, sem stóðu í rúm fimm ár. Það er erf- itt að átta sig á því hvað fer um huga svo ungrar stelpu sem greinist með svona sjúkdóm. Það besta sem við hin getum gert er að hlúa hvert að öðru og takast á við þau vandamál sem upp koma. Þú varst ótrúlega sterk, ég var stoltur að eiga þig sem dóttur. Engan mann hendir neitt það sem honum er ekki áskapað að þola. Auður, ég veit að þú ert komin á betri stað og hittir þar nána ættingja sem taka vel á móti þér. Þú varst einn sterkasti hlekkurinn í keðjunni hjá okkur, hetja varst þú sem er sárt saknað, sé þig seinna. Viðar. Hví var þessi beður búinn, barnið kæra, þér svo skjótt? Svar af himni heyrir trúin hljóma gegnum dauðans nótt. Það er kveðjan: „Kom til mín!“ Kristur tók þig heim til sín. Þú ert blessuð hans í höndum, hólpin sál með ljóssins öndum. (Björn Halldórsson) Auður var alltaf svo yndisleg syst- ir og gullfalleg, bæði að innan sem utan. Hún var rosalega ákveðin og stóð alltaf á sínu. Við eigum margar góðar minning- ar um systur okkar, eins og í utan- landsferðum t.d. gerðist margt skemmtilegt. Við elskum systur okkar og eigum eftir að stórsakna hennar. Ávallt munum við minnast þess hve mikil hetja hún var, barátta hennar, sem stóð yfir í rúmlega fimm ár, er alveg ógleymanleg. En nú er baráttunni lokið og við erum fullviss um að góður hópur tek- ur vel á móti henni. Hvíldu í friði elsku Auður, þú lifir í hjarta okkar. Aníta Eva og Óskar. Elsku Auður mín. Orð fá ekki lýst sorginni þegar ung og falleg stúlka eins og þú kveð- ur þetta líf langt um aldur fram. Þú varst sönn hetja í baráttu þinni við þennan illvíga sjúkdóm. Þetta ljóð lýsir tilfinningum mínum á þess- ari stundu. Ég kveð þig elsku Auður mín með þessu ljóði: Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku Bobby, Viðar, Óskar og Aníta, þið voruð ekki minni hetjur en hún Auður okkar. Guð geymi ykkur öll. Amma Sveindís. Elsku Auður Bryndís mín. Ég man þegar þú fæddist og hvað þú varst lítil og falleg. Þegar þú varst skírð og ég heyrði nafnið þitt, ég ákvað þá að ég átti smá í þér. Þú varst alltaf skuggi minn þegar þú varst lítil og ég var svo ástfangin af þér með fallegu brúnu augu þín og spékoppana. Elsku ástin mín, ég er varla farin að trúa að þú sért farin frá okkur og mikið er það sárt. Ég mun ávallt sakna þín og í hvert skipti sem ég lit í brún augu dóttur minnar mun ég sjá brúnu augun þín. Megi Guð geyma þig, elsku yndið mitt. Ég elska þig. Þín frænka Karlotta Bryndís. Það er margt sem leitar á hugann á stundu sem þessari. Minningar um þig hrannast upp. Þú lítil 4 ára hnáta með brúnu stóru augun þín sem voru fljót að bræða mann. Það fór nú ekki mikið fyrir þér, einstaklega rólegt og gott barn. Mikill dundari og tókst þér tíma í það sem þú varst að gera. Þú orðin stóra systir og stóra frænka og passaðir vel upp á að þau Aníta Eva og Óli Elí færu sér ekki að voða, eða væru að rífast um hlutina. Barnapían okkar sem var viljug að passa og svo þegar Rúnar Bárður fæddist löngu síðar komu vinkonurn- ar með, fyrirmyndarunglingar hugs- aði maður með sér. Svo kom áfallið, þú 15 ára og greindist með æxli í heilanum, þú tókst á þessu með stakri ró. Eftirbatinn gekk ótrúlega vel og með von og trú hélt maður að þetta væri yfirstaðið. Síður en svo, ávallt voru einhver vonbrigði, æxlið stækkaði, önnur aðgerð, lyfjagjafir og geislar. Mikið að takast á við á unga aldri, ekki varstu að bera til- finningar þínar á torg, tókst á þessu á þinn hátt. En þetta hafði mikil áhrif á þig, þú byrjaðir í menntaskóla en heilsan ekki eins og áður. Skert starfsgeta, þrekið ekki eins og hjá ungu fólki. Var það þess vegna sem þú vildir lifa hratt á tímabili, prufa hluti sem gerðu þér ekki gott. Þá sá maður hvað þú áttir sterka og skiln- ingsríka móður sem reyndi að forða þér og vernda frá þessum aðstæðum og allir gömlu vinirnir sem reyndu að snúa þér á rétta braut. En svo varst það þú sem ákvaðst að snúa við blaðinu og gamla góða þú komst aft- ur. Það er ekki hægt að ímynda sér hvað miklar raunir voru á þig lagðar og fjölskyldu þína, en mikinn stuðn- ing fékkstu frá þeim sem standa þér næst og aldrei gáfust þið upp, bar- áttan hélt áfram nánast fram á síð- asta dag. Það er sárt að kveðja unga stúlku sem á allt lífið framundan en svona getur lífið verði óréttlátt en við eigum allar minningarnar um þig, elsku Auður Bryndís, sem við geym- um ávallt í hjarta okkar. Ég votta Bobbie, Viðari, Óskari, Anítu Evu og öðrum aðstandendum samúð mína og megi Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Sveina. Elsku Auður mín. Ég trúi ekki að það sé komið að þessu. Þetta er svo ótrúlega sorglegt að svona skuli geta gerst. Maður trúir því aldrei að mað- ur þurfi að kveðja svona náinn vin og ættingja svona snemma í lífinu. En þegar ég lít til baka, á allar minning- arnar sem ég á um þig, er ekki annað hægt en að finna fyrir gleði. Ég man eftir þeim stundum sem við lékum okkur þegar við vorum litl- ar. Þú varst alltaf uppáhaldsfrænka mín og sérstaklega þegar við urðum eldri. Ég taldi þig alltaf meira en bara frænku mína, þú varst vinkona mín. Þegar við sátum úti í garðinum heima hjá þér, á teppi á grasinu, með fullt af dóti í kringum okkur í logni og sól og lífið snerist ekki um annað en bara að leika sér. Þegar við kom- umst unglingsárin og vandamálin sem fylgdu því hófust, og sérstak- lega strákamálin, þá var alltaf best að kom til þín og fá ráð. Þú vissir allt- af hvernig átti að kljást við þessa stráka. Aðalráðið var að láta engan strák ráða yfir þér og alltaf að vera þú sjálf. Strákar koma og fara en vin- konur verða alltaf til staðar. Ég man hvað mér fannst þú alltaf svo töff, hvernig þú komst fram, hvernig þú klæddir þig og tónlistin sem þú hlustaðir á. Þú kynntir mig fyrir Guns ’N Roses, hljómsveit þinni, og Alice Cooper. Og þar með hófst rokkaratímabilið. Alltaf þegar ég hlusta á þá hugsa ég um þig. Í fyrstu vikunni minni í FS kynntir þú mig fyrir „fólkinu á borðinu“ og var ég þar þekkt sem „frænka Auðar og Freydísar“. Smátt og smátt urðu vinir þínir mínir vinir. Það var sorgardagur þegar þú veiktist. Ég hélt að heimurinn væri að farast. En þegar ég heimsótti þig heima hjá þér eftir að þú komst af sjúkrahúsinu fann ég fyrir létti. Mér fannst ótrúlegt hversu róleg þú varst yfir þessu. Þetta yrði bara tekið og þá yrði allt í lagi, óþarfi að hafa of miklar áhyggjur. Ég horfði á þig með svo miklum aðdáunaraugum og þar með varst þú hetjan mín. Það komu erfiðir tímar eftir þetta, en aldrei léstu þetta buga þig, þú varst bjart- sýn og hélst áfram með lífið. Það er sannarlega hægt að segja að þú hafir lifað. Það er erfitt að ímynda sér lífið án þín. Við erum sterkur vinkvennahóp- ur, ég, þú, Freydís, Tinna, Snæfríður og Auður Indíana, og við höldum allt- af að við verðum alltaf saman. Þú verður ávallt með okkur í anda. Þeg- ar við förum út að borða munt þú alltaf sitja hjá okkur, þegar við för- um í bíó fylgir þú með og þegar við höldum partí verður þú í gleðinni með okkur. Þú færðir okkur hlýju og ánægju. Brosið og augun lýstu upp herberg- in. Þessum ótrúlega stóru og fallegu augum getur enginn gleymt. Hlátur- inn þinn fékk alla í kringum þig til að hlæja. Það þótti öllum vænt um þig. Þú varst hún Auður Bryndís, ljósið okkar, krúttið. Ég er ekki tilbúin að kveðja þig, enginn er það. En ég vil halda að þú sért núna á betri stað og að þér hafi aldrei liðið betur. Það mun síðan koma sú stund að við verð- um allar aftur saman. Heiðrún Þórðardóttir. Elsku stelpan okkar, nú er baráttu þinni lokið við illvígan sjúkdóm, þú barðist eins og hetja og varst alltaf jafn róleg og yfirveguð. Þegar þú komst inn í okkar fjölskyldu varstu fjögurra ára, fyrstu kynnin voru þeg- Auður Bryndís Guðmundsdóttir Lífið manns hratt fram hleyp- ur … og nútíminn er trunta. Það má segja að hvorttveggja sé orð að sönnu. Þótt maður hafi ekki haft nokkra löngun til að taka þátt í því lífsgæðakapphlaupi sem þjóðin hef- ur verið í gegnum árin, þá hefur maður sogast ósjálfrátt inn í það. Og nú höfum við siglt í strand. Liðinn er tími, sem hefur böðlast áfram af þvílíkum hraða, og framundan er Sveinn Þorbjörn Gíslason ✝ Sveinn ÞorbjörnGíslason fæddist á Frostastöðum í Skagafirði 10. júní 1921. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 18. mars sl. Sveinn var jarð- sunginn frá Sauð- árkrókskirkju 28. mars. Jarðsett var á Flugumýri. endurreisn. Ósjaldan hef ég hugsað heim í sveitina og til skyld- menna minna sem maður hefur alls ekki getað heimsótt eða ræktað samband sitt við. Af hverju ekki? Hraðferð, ekki tími? En maður yljar sér við minningar og hlakkar til í hvert skipti sem maður get- ur farið og heimsótt fólkið sitt. Gamli-Sveinn hringdi í mig á Þorláksmessu. Ég var staddur á kaffihúsi á Akranesi þar sem kórinn minn var að fara að syngja. „Sæll vinur, þetta er Gamli- Sveinn.“ Hann var að þakka fyrir jólakortið sem fjölskyldan sendi honum. Við áttum ánægjulegt spjall. Ég lofaði að líta inn hjá honum næst þegar ég kæmi í Skagafjörðinn. Hann var klökkur í lok símtalsins og ég held að við höfum fundið það báð- ir að þetta væri okkar síðasta sam- tal. Sjálfur kvaddi ég klökkur. Það hefur varla liðið sá dagur að ég hafi ekki hugsað til hans síðan. Ég veit að hann hugsaði til mín og minnar fjölskyldu og vildi fylgjast með. Genginn er fjórði bróðirinn úr stórum systkinahópi frá Eyhildar- holti. Gamli-Sveinn, en svo kallaði hann sjálfan sig, var skemmtilegur og góður maður. Ég á margar góðar minningar um hann og hans góðu konu, Lillu. Minningar sem ég ætla að geyma í hjarta mínu. Nú hafa þau sameinast á ný. Ég og mín fjöl- skylda kveðjum frænda minn með þessu fallega ljóði sem flutt var við útför Kolbeins, bróður Sveins. Á kveðjustund er þungt um tungutak og tilfinning vill ráða hugans gerðum, því kærum vini er sárt að sjá á bak og sættir bjóða Drottins vilja og gerðum. En Guðs er líka gleði og ævintýr og góð hver stund er minningarnar geyma. Farðu vel, þér fylgir hugur hlýr á ferð um ljóssins stig og þagnar heima. (Sigurður Hansen) Guð geymi Svein Gíslason og styrki fjölskyldu hans í sorginni. Sveinn Arnar Sæmundsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verður birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengd- armörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minn- ingargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.