Morgunblaðið - 01.05.2009, Síða 2
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
APRÍL var mjög hlýr, en veður var
þó venju fremur órólegt og úr-
komusamt var um landið sunn-
anvert. Þetta kemur fram í bráða-
birgðayfirliti Trausta Jónssonar
veðurfræðings.
Meðalhiti í Reykjavík var 5,0 stig
og er það 2,1 stigi ofan við með-
allag. Í fljótu bragði sýnist Trausta
apríl vera u.þ.b. sá tíundi hlýjasti
frá upphafi samfelldra mælinga.
Það sem af er öldinni hafa apr-
ílmánuðir oftast verið mjög hlýir,
þannig að núverandi apríl er sá
fjórði hlýjasti frá aldamótum.
Úrkoma í Reykjavík var mikil og
trúlega er hann einn af tíu úrkomu-
sömustu aprílmánuðum þar. Á Ak-
ureyri stefnir meðalhitinn í 3,4 stig
sem er 1,7 stigum ofan meðallags.
Mánuðurinn er einnig fjórði hlýj-
asti apríl það sem af er öldinni á
Akureyri. Ítarlegt yfirlit frá
Trausta verður tilbúið eftir
helgina.
Sigurður Þór Guðjónsson,
áhugamaður um veður, bloggar á
mbl.is í gær, að hann fái ekki betur
séð en að í nýliðnum apríl hafi
mælst meiri úrkoma, á mannaðri
veðurstöð í það minnsta, en áður
hefur mælst á veðurstöð á Íslandi í
apríl. Á Kvískerjum í Öræfum hafi
mælst 523,7 millimetra úrkoma.
Gamla Íslandsmetið var 520,7 mm
frá 1984 og var það einnig á Kví-
skerjum. Sigurður segir ennfremur
á bloggi sínu að fleiri úrkomumet
hafi fallið og sum hraustlega. Nefn-
ir hann meðal annars til sögunnar
Vík í Mýrdal, Stórhöfða í Vest-
mannaeyjum, Eyrarbakka og Mýri
í Bárðardal.
Helgi Björnsson á Kvískerjum,
sem annast hefur veðurathuganir
ásamt bróður sínum Hálfdáni um
áratuga skeið, segir að þessi apr-
ílmánuður verði þeim bræðrum
minnisstæður. Heita megi að ein-
hver úrkoma hafi fallið á hverjum
degi í apríl.
Helgi segir að að öðru leyti hafi
veður verið hlýtt og úrkoman hafi
haft góð áhrif á gróður og fuglalíf.
Hann segir að mikið vatn komi af
jöklunum og ár og lækir séu í sum-
arvexti.
Þegar Morgunblaðið talaði við
Helga í gær var dimmviðri á Kví-
skerjum og rigning öðru hverju.
Apríl er grimmastur mánaða, græðir
grös upp úr dauðri moldinni, hrærir
girndum saman við minningar, glæðir
vorregni visnaðar rætur.
T.S. Eliot Eyðilandið (The Waste Land).
Þýðing Sverrir Hólmarsson.
Apríl var hlýr en óvenjublautur syðra
Mánuðurinn verður bræðrunum á Kvískerjum eftirminnilegur vegna óvenjumikillar úrkomu
Nýliðinn aprílmánuður er sá tíundi hlýjasti frá upphafi samfelldra veðurmælinga hér á landi
Morgunblaðið/Heiddi
Rigning Mikið hefur rignt í apríl og regnhlífar komið að góðum notum.
Suma daga hefur rokið verið svo mikið að þær hafa ekki komið að gagni.
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
5,0
Meðalhitinn í Reykjavík í apríl
var 2,1 gráðu yfir meðallagi.
523,7
Nýtt rigningarmet fyrir apríl
virðist hafa litið dagsins ljós á
Kvískerjum í Öræfum.
FYRSTI áfangi nýbyggingar Há-
skólans í Reykjavík í Öskjuhlíð
verður tekinn í notkun í árslok
2009. Byggingin var kynnt fyrir
starfsfólki og aðstandendum skól-
ans í gær. Byggingin verður um
30.000 fermetrar að stærð á tveim-
ur til þremur hæðum með um 50
kennslustofur. Seinni hluti bygg-
ingarinnar er á áætlun og verður
honum lokið á næsta ári. Að sögn
Þorkels Sigurlaugssonar, fram-
kvæmdastjóra fjármála- og þróun-
arsviðs HR, hafa kostnaðaráætlanir
sem lagt var upp með staðist.
Ákveðnum hluta byggingarinnar
var þó frestað og skipulagi hliðrað
vegna þessa.
Tekin í notk-
un í lok ársins
Morgunblaðið/Heiddi
Ræða Svafa Grönfeldt, Jón S.Val-
dimarsson og Róbert Wessman.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
og Andra Karl
ENGAN 27 farþega Fokker-
flugvélar Flugfélags Íslands sakaði
þegar tvö aðaldekk vélarinnar
sprungu við lendingu á Reykjavík-
urflugvelli á sjötta tímanum í gær-
kvöldi. Að sögn starfsmanns Rann-
sóknarnefndar flugslysa (RNF)
voru bremsurnar læstar, sem olli því
að hjólin snerust ekki, ofhitnuðu og
dekkin sprungu að lokum.
Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Íslands,
sagði í samtali við fréttavef Morg-
unblaðsins, mbl.is, að á meðan beðið
hefði verið eftir bílum til að flytja
farþegana yfir í flugstöðvarbygg-
inguna, hefði góður tími gefist fyrir
flugstjórann til að útskýra fyrir far-
þegum hvað hefði farið úrskeiðis.
Þegar í flugstöðvarbygginguna
var komið tók þjónustustjóri flug-
félagsins á móti farþegum þar og
var að sögn Árna ekki að sjá geðs-
hræringu eða vanlíðan á fólki. Ekki
þótti því ástæða til að veita farþeg-
um áfallahjálp. Í stað þess var far-
þegum vísað á símanúmer til að
hringja í ef þeir vildu tjá sig um at-
vikið við starfsmenn flugfélagsins
síðar meir.
Með fulla stjórn á vélinni
„Þetta fór allt á besta veg,“ sagði
Bragi Baldursson, flugvélaverk-
fræðingur og starfsmaður RNF, en
hann skoðaði skemmdirnar á flug-
vélinni. Dekkin affelguðust ekki,
heldur gáfu þau eftir þegar loftið
fór úr þeim. „Og flugstjórarnir
höfðu fulla stjórn á vélinni allan
tímann.“ Hann sagði jafnframt lík-
legt að farþegar hefðu varla orðið
varir við það þegar dekkin
sprungu.
Ljósmynd/Frosti Heimisson
Athugun Starfsmenn Rannsóknarnefndar flugslysa voru kallaðir á vettvang og fóru þeir ítarlega yfir atvik málsins.
Læstar bremsur ollu
því að dekk sprungu
Engan 27 farþega Fokker-flugvélar sakaði í flugatvikinu
Í HNOTSKURN
»Vélin var að koma fráKulusuk á Grænlandi og
lenti klukkan 18.51 á Reykja-
víkurflugvelli.
»Flugvélin staðnæmdist ábrautinni og var ekki
hreyfð fyrr en búið var að
selflytja alla farþegana frá
borði og huga að skemmd-
unum.
»Reykjavíkurflugvelli varlokað í um það bil tuttugu
mínútur vegna flugatviksins.
Héraðsdómur
Reykjavíkur
samþykkti í gær
að taka Fons,
eignarhaldsfélag
Pálma Haralds-
sonar og Jóhann-
esar Kristinsson-
ar, til
gjaldþrotaskipta.
Fons hefur ver-
ið atkvæðamikið í íslensku viðskipta-
lífi undanfarin ár. Auk Securitas og
Plastprents á Fons hlut í bresku
leikfangaversluninni Hamleys og
norrænu ferðaskrifstofunni Ticket.
„Þetta er auðvitað mikið áfall,“
segir Pálmi en vill að öðru leyti lítið
tjá sig um stöðu félagsins.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru eignir félagsins metnar
á tíu til tólf milljarða. Þar af eru fjór-
ir milljarðar í reiðufé. Skuldirnar
nema hins vegar um tuttugu millj-
örðum. Viðskiptabankarnir þrír eru
stærstu kröfuhafar. bjorgvin@mbl.is
Samþykkt að
Fons fari í
gjaldþrot
Pálmi Haraldsson
ENGAR formlegar stjórnarmynd-
unarviðræður fara fram í dag, á al-
þjóðlegum frídegi verkafólks.
Fundað var í Norræna húsinu í gær
og er búist við að viðræður taki
u.þ.b. viku til viðbótar.
Breytingar hafa verið gerðar á
viðræðuhópnum því Össur Skarp-
héðinsson og Ögmundur Jónasson
taka nú þátt í viðræðunum. Með því
hefur starfshópur um Evrópumál
verið lagður niður, eða stækkaður,
að minnsta kosti að svo komnu máli.
Ögmundur segir að þetta hafi ver-
ið ákveðið svo hlutirnir væru ekki
ræddir í tvennu lagi. Spurður um
hvernig gengi svaraði Ögmundur að
því myndi Steingrímur svara, en
annars væri allt „í góðum gír“.
Stjórnar-
myndun í
„góðum gír“
ENGAR ályktanir voru gerðar á
miðstjórnarfundi Frjálslynda
flokksins sem fram fór í gær. Vænt-
anlega verður annar miðstjórn-
arfundur haldinn eftir mánuð eða
svo, að sögn Magnúsar Reynis Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
flokksins.
Á fundinum var rætt um stöðu
flokksins og stjórnmálanna að lokn-
um kosningum. Fram hefur komið
að Magnús Þór Hafsteinsson, fyrr-
verandi varaformaður Frjálslyndra,
vill að flokksmönnum gefist færi á að
endurmeta forystuna á landsþingi. Á
miðstjórnarfundinum var hins vegar
ákveðið að boða ekki til landsþings.
halldorath@mbl.is
Miðstjórnin
komi aftur
saman
Morgunblaðið/Heiddi
Frjálslyndir Ólafur F. Magnússon
borgarfulltrúi var viðstaddur.