Morgunblaðið - 07.05.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2009
Stjórnarflokkarnir hafa átt í basliundanfarnar vikur með að ná
saman um ýmis mál.
Á almannavitorði er þó að þeir erusammála um eitt mál.
Það er aðbreyta skuli
stjórnkerfi fisk-
veiða, fyrna 5%
allra aflaheim-
ilda ár hvert,
kalla inn til rík-
isins og endur-
úthluta.
Í þessu máli eruflokkarnir sammála nánast orð
fyrir orð og prósentu fyrir pró-
sentu, eins og sást á samanburði
stefnuyfirlýsinga þeirra í Morg-
unblaðinu gær.
Stefnunni, sem flokkarnir erusammála um og börðust fyrir í
kosningunum, verður hins vegar
ekki hrint í framkvæmd þegar í
stað.
Það þykir ekki ráðlegt vegna þesshvað staða sjávarútvegsins er
alvarleg. Skuldirnar nema þre-
földum árstekjum greinarinnar. Án
kvótans geta fyrirtækin ekki staðið
undir skuldunum.
Það er gott fyrir efnahagslífið aðfallið skuli hafa verið frá
fyrningarleiðinni, alltént í bili.
En leiðinlegt fyrir stjórnarflokk-ana að málið, sem þeir voru
mest sammála um, skuli hafa verið
svona vitlaust. Það þýðir að þeir
verða að halda áfram að tala um
mál, sem þeir eru ekki sammála um.
Ein spurning vaknar þó. Breyttiststaða sjávarútvegsins mikið eft-
ir kosningarnar? Kannski getur
sjávarútvegsráðherrann svarað því.
Steingrímur J.
Sigfússon
Samhljóða óráð
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 10 skýjað Lúxemborg 13 skýjað Algarve 25 heiðskírt
Bolungarvík 3 rigning Brussel 16 skýjað Madríd 29 léttskýjað
Akureyri 4 alskýjað Dublin 15 skýjað Barcelona 21 heiðskírt
Egilsstaðir 3 alskýjað Glasgow 12 skúrir Mallorca 25 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 7 rigning London 20 skýjað Róm 21 léttskýjað
Nuuk -3 alskýjað París 16 skýjað Aþena 15 skýjað
Þórshöfn 9 léttskýjað Amsterdam 14 skýjað Winnipeg 18 skýjað
Ósló 13 léttskýjað Hamborg 12 léttskýjað Montreal 12 alskýjað
Kaupmannahöfn 12 léttskýjað Berlín 14 léttskýjað New York 13 alskýjað
Stokkhólmur 9 skýjað Vín 15 skúrir Chicago 19 alskýjað
Helsinki 11 skýjað Moskva 17 alskýjað Orlando 29 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
7. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5.03 3,5 11.16 0,5 17.30 3,8 23.42 0,4 4:38 22:11
ÍSAFJÖRÐUR 1.09 0,2 6.59 1,9 13.23 0,2 19.34 2,0 4:24 22:36
SIGLUFJÖRÐUR 2.56 0,1 9.22 1,1 15.26 0,2 21.33 1,2 4:06 22:19
DJÚPIVOGUR 2.16 1,9 8.18 0,5 14.41 2,2 20.56 0,5 4:03 21:46
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á föstudag
Allhvöss eða hvöss norðanátt
með slyddu eða rigningu, en
skýjað með köflum og þurrt að
mestu sunnan til á landinu. Hiti
0 til 7 stig, mildast sunn-
anlands.
Á laugardag
Minnkandi norðvestanátt og
snjókoma eða él norðaustan til,
en bjartviðri sunnan- og vest-
anlands. Fremur kalt áfram.
Á sunnudag
Suðvestanátt með rigningu á
vestanverðu landinu, en skýjað
að mestu og þurrt NA- og A-
lands. Hvessir V-lands um
kvöldið. Hlýnandi veður.
Á mánudag og þriðjudag
Suðvestlæg átt og fremur milt
veður. Vætusamt sunnan- og
vestan til á landinu en bjart
veður NA-lands.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðan 10-18 og slydda eða
snjókoma með köflum, einkum
norðaustan til, en víða bjart-
viðri S- og SV-lands. Hiti 0 til 5
stig en 4 til 11 stig sunnan til á
landinu.
GRÍÐARLEG fjölgun hefur orðið á beiðnum um
aðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar. Fyrstu fjóra
mánuði ársins er aukningin 317% miðað við sömu
mánuði í fyrra. Umsóknir í ár, janúar til apríl, voru
2.206 en voru 701 í fyrra.
Í fréttatilkynningu frá Hjálparstarfi kirkjunnar
kemur fram að áhrif kreppunnar séu að koma
fram með fullum þunga. Aukningin sé langmest
vegna atvinnuleysis. Í mars í fyrra komu fjórar at-
vinnulausar konur og einn karl, í ár voru konurnar
27 og karlarnir 136, í apríl í fyrra var engin at-
vinnulaus kona og fjórir karlar, en í ár voru kon-
urnar 46 og karlarnir 213.
Fjölgun er í yngstu aldurshópum og meðalaldur
umsækjenda hefur lækkað, var 45,4 en er nú 41,8.
Tveir þriðjuhlutar umsækjenda voru áður konur
en nú er kynjahlutfallið orðið jafnt.
Hjálparstarf kirkjunnar hefur mætt aukinni
þörf með því að bæta við félagsráðgjafa í hálft
starf. Aðstoðin er fólgin í ráðgjöf, mataraðstoð, að-
stoð við að leysa út lyf, fatnaði og sérstaklega er
reynt að mæta þörfum barnafjölskyldna.
Sífellt fleiri leita til Hjálparstarfsins
Í HNOTSKURN
»Í janúar í ár voru beiðnir til Hjálp-arstarfs kirkjunnar 400 en 159 árið áð-
ur, í febrúar 410 en 139 árið áður, í mars
607 en 220 í fyrra og í apríl 804 en voru 183.
»Aðstoðin er m.a. fólgin í ráðgjöf, mat-araðstoð og aðstoð við að leysa út lyf.
Ungt fólk og fólk sem ekki er með vinnu leitar í auknum mæli eftir aðstoð