Morgunblaðið - 07.05.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2009
ÍBÚAR í Arahólum 2 í Breiðholti
hafa tekið að sér að snyrta nær-
umhverfi sitt í kjölfar áskorunar
Reykjavíkurborgar til íbúa um að
taka höndum saman við hana við
að hreinsa til.
Guðrún Jónsdóttir, íbúi í Ara-
hólum segist vilja með þessu
framtaki stuðla að því að um-
gengni sé góð og snyrtimennska
og virðing fyrir umhverfinu í
heiðri höfð.
Hreinsa til í
sjálfboðavinnu
Á morgun standa Verkfræðinga-
félagið, Tæknifræðingafélagið og
Stéttarfélag verkfræðinga fyrir
ráðstefnu um framsækin fyrirtæki í
tæknigreinum. Yfirskrift ráðstefn-
unnar er „Nýsköpun í verki“ og
verður hún haldin í Öskju, Sturlu-
götu 7, kl. 8:30-12:00. Markmiðið er
að draga fram nýjungar í verk-
fræði.
Tæknigreinar
VALGERÐUR Grímsdóttir hjúkr-
unarfræðingur heldur til Íraks í
dag á vegum Rauða kross Íslands
til að starfa fyrir Alþjóða Rauða
krossinn. Valgerður mun vinna við
sjúkrahúsið í borginni Najaf, eink-
um við þjálfun innlendra heilbrigð-
isstarfsmanna og eflingu bráða-
þjónustu í borginni.
Valgerður til Íraks
BORGARAHREYFINGIN hefur
sent beiðni til Orkustofnunar um að
raforkuverð til álbræðslu verði
gert opinbert. Auk þess hefur
hreyfingin sent formlega kvörtun
til Eftirlitsstofnunar EFTA þar sem
kvartað er yfir því að raforkunot-
endur á Íslandi skuli ekki njóta
sanngirni og og gagnsæi við sam-
anburð á raforkuverði líkt og kveð-
ið er á um í tilskipun frá ESB. Sök-
um leyndarinnar sé illmögulegt að
fjalla um rétt neytenda eins og
kveðið er á um í tilskipuninni.
Kvarta yfir leynd á
raforkuverði
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
AÐSÓKN að skíðasvæðum landsins í
vetur sló öll fyrri met. Heildaraðsókn
í vetur var 241 þúsund gestir. Gamla
metið var frá í fyrra, 170 þúsund
gestir. Aukningin er um 42%.
Nokkrar skýringar eru taldar vera
á stóraukinni aðsókn. Snjóalög voru
sérlega hagstæð sem og veðurfar en
einnig er staða efnahagsmála í land-
inu talin hafa haft augljós áhrif. Tals-
vert minna var um að fólk færi í
skíðaferðir til annarra landa, eins og
fram hefur komið í fréttum. Þess í
stað fór fólk í skíðaferðir innanlands.
Þannig var umtalsvert aukin aðsókn
að öllum skíðasvæðum á landinu.
Skíðaveturinn hófst snemma að
þessu sinni. Dalvíkingar riðu á vaðið
en þar hófst vertíðin 25. október sl.
Flest skíðasvæðin á Norðurlandi
fylgdu fljótlega í kjölfarið. Skíðavæði
í öðrum landshlutum voru komin í
fullan rekstur um miðjan desember.
Síðustu skíðasvæðunum var lokað 3.
maí en það voru Hlíðarfjall ofan Ak-
ureyrar og skíðasvæðin á Siglufirði
og Seyðisfirði. Að meðaltali voru
skíðasvæðin opin í 75 daga í vetur.
Aðsóknin í febrúar var sérstaklega
góð enda eru vetrarfrí orðin fastur
liður í starfi flestra grunnskóla.
„Greinilegt er að margir lögðu
land undir fót og heimsóttu skíða-
svæði víðs vegar um landsbyggðina.
Skíðaiðkun er orðin stór þáttur í
vetrarferðaþjónustu á landsbyggð-
inni. Sífellt fleiri heimsækja skíða-
svæðin á landsbyggðinni á sama tíma
og öll aðsóknarmet eru slegin á
skíðasvæðum höfuðborgarsvæð-
isins,“ segir í frétt frá Samtökum
skíðasvæða á Íslandi.
Mjög góð sala á skíða- og bretta-
búnaði í skíðavöruverslunum lands-
ins hélst í hendur við þessa stór-
auknu aðsókn á skíðasvæðin. Einnig
var áberandi gríðarleg spurn eftir
notuðum búnaði og voru dæmi um að
söluaðilar hefðu langa biðlista eftir
slíku, segir í fréttinni.
Guðmundur Karl Jónsson, for-
stöðumaður skíðasvæðisins í Hlíð-
arfjalli á Akureyri og formaður Sam-
taka skíðasvæða á Íslandi, segir að
mikil gleði ríki hjá starfsmönnum
skíðasvæðanna yfir því hvernig til
tókst í vetur. Guðmundur segir að
snjóalög í vetur hafi verið þau jöfn-
ustu í háa herrans tíð á öllum svæð-
um og það hafi haft gríðarlega mikið
að segja.
Hann segir að stærsti markhóp-
urinn sé fyrir sunnan og þegar góður
snjór sé þar og snjói í byggð verði
gríðarleg vakning. „Við þekkjum
þetta frá útlöndum. Ef til dæmis
snjóar í München í Þýskalandi
aukast bókanir stórlega í Ölpunum.
Það sama má segja um Denver í
Colorado. Ef snjóar þar stóreykst
aðsóknin að skíðasvæðunum,“ segir
Guðmundur.
Hið sama gerist hér á landi þegar
byrjar að snjóa. Menn komist í vetr-
argírinn og fari að huga að skíð-
unum. Kreppan hafi svo greinilega
haft áhrif og hún í bland við góðan og
stöðugan vetur hafi skilað þessari
miklu aðsókn.
Magnús Árnason, framkvæmda-
stjóri skíðasvæðanna á höfuðborg-
arsvæðinu, segir að veturinn hafi
slegið öll met þrátt fyrir að opið hafi
verið í færri daga en í fyrra. Í vetur
voru gestir í Bláfjöllum og Skálafelli
tæplega 87 þúsund, samanborið við
um 60 þúsund gesti í fyrravetur. Op-
ið var í Bláfjöllum í 56 daga sam-
anborið við 67 daga í fyrra. Opið var í
Skálafelli í 30 daga, samanborið við
52 daga í fyrra. Þetta sýni að hver
dagur hafi verið mun betur nýttur en
í fyrra. „Við fengum fjögurra vikna
samfelldan tíma í janúar og fram í
febrúar þar sem opið var hvern ein-
asta dag. Aðsóknin á hverjum degi
var eins og hún er venjulega um
páska,“ segir Magnús.
Hann segir að góð aðsókn í vetur
eigi sér nokkrar skýringar. Mikill
snjór hafi verið í fyrravetur, sem hafi
valdið því að margir drógu skíðin
fram úr geymslunum. Snjóað hafi í
byggð í desember og þá hafi fólk
drifið sig af stað aftur og góð sala
verið á vetrarkortum. Loks segir
Magnús að hann hafi verið sérlega
heppinn með starfsfólk í vetur.
Margir reyndir starfsmenn hafi unn-
ið á skíðasvæðunum og allt gengið
nánast hnökralaust. Enda hafi gestir
lýst yfir mikilli ánægju með þjón-
ustuna.
Aðsókn í vetur sló öll met
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skíðamenn Jöfn og góð aðsókn var í Bláfjöllum í allan vetur.
Gestir á skíðasvæðum landsins í vetur voru 241 þúsund talsins, sem er um 42% aukning frá í fyrra
Æ fleiri sækja skíðasvæði á landsbyggðinni á sama tíma og öll met voru slegin á höfuðborgarsvæðinu
Aðsóknartölur
Bláfjöll
84.599
Hlíðarfjall
66.750
Ísafjörður
22.000
m
bl
11
10
02
6
www.fi.is • fi@fi.is • Sími 568 2533
Gönguferðir fyrir barnafólk
með barnavagna og kerrur,
alla daga vikunnar 11. – 15. maÍ.
Léttar, skemmtilegar gönguferðir,
góð hreyfing og góður félagsskapur.
Allar gönguferðir hefjast klukkan 16.00
Fyrsta gönguferðin er frá Perlunni og er gengið um Öskjuhlíð.
Dagskrá barnavagnavikunnar má sjá á heimasíðu FÍ www.fi.is
Fararstjórar: Auður Kjartansdóttir og Páll Guðmundsson
Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir.
Ferðafélag Íslands
skráðu þig inn – drífðu þig út
www.fi.is
Barnavagnavika FÍ
11.–15. maí